Morgunblaðið - 02.11.1976, Síða 38

Morgunblaðið - 02.11.1976, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1976 HELGIÓLAFSSON — MINNINGARORÐ Fæddur 8. maí 1891 Dáinn 25. október 1976 Þegar Snorri Sturluson sagði í formálanum fyrir Eddu sinni, að „allir hlutir væri smíðaðir af nokkru efni", komst hann þar sem víðar spaklega að orði. Þetta á við, hvar sem iitið er, og þá ekki sízt, þegar vér hyggjum nánara að einstaklingunum í kringum oss og reynum að kanna þann efnivið, sem þeir eru gerðir úr. Oss hættir þó löngum til að einfalda hlutina um of fyrir oss, tölum um, ap einhver sé kominn af þessari eða hinni ættinni, en gleymum því, að öll erum vér komin af ýmsum ættum og sækjum sitt í hverja. Engir tveir einstaklingar eru eins, og það sem vér köllum svip eða ættarmót fer sfnar leiðir. Maður getur líkzt meir frænda sínum í fjórða lið en sambornum bróður. Stundum er eins og skaparinn hafi gert það að gamni sínu að búa til mann, er sameinaði sitt- hvað hið bezta úr fjölmörgum ætt- um, eða svo hefur mér t.a.m. virzt um tengdaföður minn, Helga Öl- afsson trésmlðameistara í Hafnar- firði, er lézt 25 október sl. 85 ára að aldri. Helgi fæddist 8. maí 1891 f Garðhúsum í Höfnum, sonur 01- afs Sigurðssonar smiðs og for- manns þar og konu hans, Þórunn- ar Halldórsdóttur. Foreldrar Ölafs voru Sigurður Ölafsson frá Ægissfðu á Rangár- völlum, sfðar þjóðhagasmiður, bóndi og sýslunefndarmaður f Merkinesi f Höfnum, og koma hans, Guðríður Halldórsdóttir Gunnarssonar frá Hvammi á Landi. Þau hjónin voru bæði af Vikingslækjarætt, og var því ekki að undra, þótt Helgi sækti margt í þá sunnlenzku kjarnaætt. Þaðan komu honum ekki sfzt smiðshend- urnar og óbilandi elja, en þeir, sem sverja sig í þá ætt, eru manna óverkkvíðnastir. Séu þeir á annað borð fúsir að vinna eitthvert verk, þarf ekki lengi að biðja þá þess: Þeir eru fyrr en varir teknir til óspilltra málanna og eru f senn útsjónarsamir og afkastamiklir. Þótt þeir geti verið meinlegir I orðum, skeyti þeirra hvöss og beitt eins og hraunnibburnar, sem standa upp úr svörtum sand- inum ofarlega á Rangárvöllum, þar sem ættin á upptök sín, eru þeir viðkvæmir undir niðri og hjartahlýir, mega í rauninni ekki aumt sjá. Um þá mætti hafa þessi orð Jónasar f Heklulýsingu hans f Gunnarshólma: Svell er á gnfpu, eldur geisar undir. Þórunn, móðir Helga, var dóttir Halldórs Helgasonar í Þorláks- höfn og Kolfinnu Ögmundsdóttur Sigurðssonar, Ögmundssonar, Högnasonar prestaföður Sigurðs- sonar, er Högnaætt er við kennd. ögmundur skáldið og gleðimaður- inn, síðast prestur á Tjörn á Vatnsnesi, hafði á skólaárum sfn- um eignazt dóttur með Steinunni, einni hinna mörgu dætra Guð- mundar Þórðarsonar tugthús- varðar f Reykjavfk og konu hans,Steinunnar Helgadóttur frá Ökrum á Mýrum, en eini sonur þeirra var Helgi Thordersen, síð- ar biskup. Kolfinna Ögmundsdóttir ólst upp hjá föðurafa sínum, sr. Sig- urði ögmundssyni á Ólafsvöllum á Skeiðum. Hún giftist eystra Magnúsi eldra Magnússyni Andréssonar, og eignuðust þau tvær dætur, er upp komust, Katrínu og Jóhönnu. Við Iát Magnúsar leitaði Kolfinna suður í Hafnir til Þórunnar Brynjólfs- dóttur og Vilhjálms Hákonarson- ar í Kirkjuvogi, en Þórunn var hálfsystir Steinunnar, móður Kol- finnu. Þegar Þórunn dóttir henn- ar giftist Ólafi Sigurðssyni, sat hún áfram þar syðra í skjóli þeirra. Þórunn dó 1896 frá eigin- manni og þremur ungum sonum, Sigurði, Ögmundi og Helga, er þá var aðeins fimm ára gamall. Hann var þá tekinn í fóstur af frænda + Móðir mín, SIGURLAUG HALLDÓRSDÓTTIR frá Valþjófsstöðum andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði 3 1 október sfnum, sr. Brynjólfi Gunnarssyni á Stað f Grindavík og Helgu Ket- ilsdóttur konu hans. Þegar Ólafur, faðir Helga, hafði kvænzt öðru sinni, Sigurbjörgu Marfu Eyjólfsdóttur frá Langeyri við Hafnarfjörð, og þau nokkrum árum sfðar setzt að f Hafnarfirði, fór Helgi til þeirra og ólst upp með hálfsystkinum sínum tveim- ur, er lifa hann, þeim Ólafi lækni og Þórunni Kolfinnu. Á sumrum var hann stundum f sveit austan fjalls, og var fróðlegt að heyra hann segja frá æskuárum sfnum, er stóðu honum fyrir hugskots- sjónum eins og stafur á bók. Helgi gekk um hrfð f Flensborg- arskóla, en hvarf brátt þaðan og sneri sér að smíðanámi, var svo heppinn að komast að hjá Jóhann- esi Reykdal, er skömmu eftir aldamótin hóf sinn mikla athafna- feril í Hafnarfirði. Hann stofnaði trésmiðjuna Dverg 1903, og þegar Helgi hafði aldur til, hóf hann störf þar og vann samfleytt að kalla f trésmiðjunni fram til 1965, um hálfrar aldar skeið. Enda var hann meðal Hafnfirðinga lengi kenndur við smiðjuna og kallaður Helgi f Dverg. í smiðjunni var tfðast valinn maður í hverju rúmi, og hafa þeir smiðirnir í Dverg ekki átt lítínn þátt í að byggja upp Hafnarfjarð- arbæ á þessari öld. Iðnaðar- mannafélag Hafnarfjarðar gerði Helga á sínum tfma að heiðursfé- laga, og þótti honum mjög vænt um það. Helgi kvæntist 6. september 1913 Kristfnu Stefánsdóttur í Njarðvfk. Varð þeim skammra samvista auðið, þvf að hún lézt rúmu ári sfðar, 10. nóvember 1914, af barnsförum. Barnið lifði, drengur, er skírður var Kristinn Stefán, og ólst hann upp hjá móð- urfólki sínu í Ytri-Njarðvfk. Hann lézt vorið 1971, 57 ára að afdri. Á fyrri árum sfnum f Dverg fór Helgi oft á vegum smiðjunnar til smfða út um land, og átti sú til- breyting vel við hann, er var mannblendinn að eðlisfari og hafði yndi af ferðalögum. I einni slfkri ferð hitti hann sfðla sumars 1917 á Akureyri Þóru Kristjáns- dóttur, er hann kannaðist við úr Hafnarfirði og honum þótti mjög þekkileg. Hefði hann helzt kosið að fá hana suður með sér þá um haustið, en hún hafði þá ráðið sig í vist hjá frænda sfnum Sigurði Hlíðar, og vildi hún ekki rifta því. Varð sá vetur Helga langur, en því fegnari varð hann, þegar Þóra kom suður árið eftir og þau giftu sig haustið 1918, 29. september. Þau bjuggu fyrstu árin hjá vinafólki f Brekkugötunni sunn- an lækjarins, en nokkrum árum siðar reistu þau sér eigið heimili að Austurgötu 45, skammt norðan við lækinn, og þar bjuggu þau saman til æviloka. Þóra lézt 17. janúar 1976, en Helgi sem fyrr segir 25. október. I minningargrein, er ég ritaði um Þóru í Morgunblaðið 23. janúar sl., lýsti ég hinu fagra heimilislífi þeirra hjóna og hve samhent þau voru f uppeldri dætranna fjög- urra, Þórunnar, Kristjönu, Ölafíu og Sólrúnar. Á heimili þeirra var jafnan mjög gestkvæmt, og sóttu margir þangað bæði gleði og styrk. Oft fór og Helgi heim til manna til að vera þeim til hugg- unar og uppörvunar á erfiðum stundum. Þegar Helgi hætti í Dverg, vann hann heima við smiðar og keppt- ist þá oft ekki sfður við en í smiðj- unni. Síðustu árin smfðaði hann og skar út fagra eikarstóla, er hann seldi við gjafverði og nú prýða mörg heimili á höfuðborg- arsvæðinu og raunar enn víðar. Allra sfðustu vikurnar smfðaði hann borð handa dætrum sfnum öllum, hreinustu kjörgripi, og var handbragðið jafnsnjallt og fyrr- um. En eftir fráfall Þóru var hann ekki samur maður, lff þeirra hafði verið f svo föstum skorðum, að við brottför hennar fannst hon- um sem fótunum væri kippt und- an sér. Honum þótti sem Bjarna Thorarensen I saknaðarvfsunni fögru eftir Þórarin öefiord ráð vera færri en áður: Viður var mér áður vaxinn frfður að sfðu, vestan eg varði hann gusti, varði hann mig austanblástrum, vatnsflóð hann rætti frá rótum, ráð eru færri en áður, skjól þó samt ekkert skýli, skal ei vind hræðast svalan. Helgi Ólafsson var meðalmaður á vöxt, bar sig jafnan vel og var kvikur í spori. Hann hélt reisn sinni til hinztu stundar, enda glæsimenni á velli. I viðræðum var hann ætíð manna skemmtileg- astur og frásagnargáfa hans frá- bær. Hann sá hið spaugilega f atvikum lffsins og fari manna og gat verið neyðarlegur f orðum, en aldrei skæður. Hið létta úr Högnakyninu og hið fágaða úr ættum Guðmundar Þórðarsonar og Steinunnar Helgadóttur hefur sorfið það hrjúfasta úr Víkings- lækjarættinni, mildað það án þess að dregið væri í nokkru úr þeirri hnitmiðun, sem úrslitum ræður um hverja frásögn. Eftir lát Þóru var Helgi til heimilis hjá Ölafíu dóttur sinni og Ragnari Björnssyni manni hennar á ölduslóð 26 f Hafnar- firði. Hann fór þó flesta daga ofan á Austurgötu 45, og þegar hann var hress, vann hann við smiðar, ýmist þar eða hann brá sér niður í Dverg til sinna gömlu félaga. Laugardagsmorguninn 23. októ- ber fagnaði hann dætrum sfnum tveimur, er þá komu heim úr ut- anlandsferð. Seinna um daginn fór hann niöur á Austurgötu, kveikti sér f vindli og las í Péturs- hugvekjum, eins og hann var van- ur. Hann var setztur við kvöld- verðarborðið hjá dóttur sinni og hlýddi á ferðasögu hennar, þegar hann leið útaf meðvitundarlaus. Á mánudagsmorgni, tveimur dög- um sfðar, var hann allur. Eg tel það hafa verið mér mikið lán og lærdómsrfkan skóla að hafa þekkt Helga Ólafsson og þau Þóru bæði, og þvf minnist ég þeirra nú beggja með virðingu og þökk. Finnbogi Guðmundsson. I dag fer fram frá Þjóð- kirkjunni f Hafnarfirði útför Helga Ólafssonar trésmiðs. Hann var fæddur f Garðhúsum í Höfn- um 8. maf 1891, sonur hjónanna Ólafs Sigurðssonar trésmiðs og S. Helgason hf. STEINIGJA Hnho/I/ 4 Slmar 74677 og 14754 t Eiginmaður minn og faðir, HREIÐAR PÁLSSON Lindargötu 24 andaðist af slysförum 3 1 október s.l. Eiginkona og börnin. Fósturmóðir min + JÚLÍANA SIGURÐARDÓTTIR frá Búastöðum, Vestmannaeyjum lést 29 október Fyrir hönd vandamanna Þorvaldur Ólafsson. + DAGNÝ EYGLÓ HJÖRLEIFSDÓTTIR Lindargötu 13 Sauðárkróki andaðist í Landspitalanum 31 október Guðmundur Arason Ari Guðmundsson Eyjólfur Finnbogason og systkini hinnar látnu. + Eigmmaður minn RÓSMUNDUR TÓMASSON Laugarnesvegi 66 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4 nóvember klv 1330eh Fyrir hönd aðstandenda Berga Ólafsdóttir + Jarðarför PÉTURS JANUSAR ODDSSONAR Bergþórugötu 59 Reykjavik fer fram miðvikudagmn 3 nóv kl 3 e h frá Fossvogskirkju Blóm vinsamlegast afþökkuð Fyrir hönd systkina hins látna og annarra vandamanna, Pétur Geir Helgason + Maðurinn minn og faðir okkar SVAVARMARKÚSSON verður jarðsungmn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 3. nóvember kl 13.3.0 Kristfn Pálmadóttir Anna Élín Svavarsdóttir, Berglind Svavarsdóttir. Stefán Jóhannesson. + Útför móður minnar SIGRÍÐAR ÞORVAROARDÓTTUR. fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 3. nóvember kl 1 0 30 Arinbjörn Sigurðsson. + Eigínmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, ÞORSTEINN HALLDÓRSSON prentari Fálkagötu 4 lézt á Borgarspitalanum 1 nóv Sara Hermannsdóttir, Erla H. Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Sigurðsson, Margrét Þorsteinsdóttir, Benedikt Bachmann. + Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir SIGURDUR WAAGE forstjóri Melhaga 1 7 Reykjavfk lézt í Borgarspítalanum sunnudaginn 31 október 19 76 Lára Ágústsdóttir Waage Guðrún Waage Sigurður S. Waage Ellen Sigurðardóttir Waage Björn Þorláksson Hulda Waage Ágúst Sverrisson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.