Morgunblaðið - 19.11.1976, Síða 20

Morgunblaðið - 19.11.1976, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÖVEMBER 1976 33% hækkun á sveitar- sjóðsgjöldum frá 1975 Ráðstefnu Sambands ísl. sveitar- félaga um fjármál lauk 1 fyrradag Ráðstefnu Sambands íslenzkra sveitarfélaga um fjármðl sveitar- félaga lauk 1 fyrradag og þágu ráð-stefnufulltrúar boð forsætis- ráðherra 1 gærkvöldi. I gær var einkum rætt um áætlanagerð rfkis og sveitarfélaga. Þá var lagt fram á fundinum yfirlit um álagningu sveitarsjððsgjalda fyr- ir árið 1976 og nema þau gjöld samtals 14.4 milljörðum króna og er þar um að ræða 33% hækkun frá 1975. Fasteingaskattur, sem lagður var á sveitarfélög, nam 2.2 millj- örðum í ár og er það 34% hækkun frá 1975. Aðstöðugjöld voru 2.2 milljarðar, 40% hækkun frá 1975, og álögð útsvör voru tæplega 10 milljarðar, en það er 26% hækk- un. t sambandi við útsvarsálagn- inguna var bent á, að útlit er fyrir að sala á áfengi og tóbaki nemi 10 milljörðum króna í ár, eða sömu upphæð og útsvörin. Af þeim 14.4 milljörðum, sem lögð voru á í sveitarsjóðsgjöld í ár, hafa nú verið innheimt um 60% af þeirri upphæð, eða um 8.4 milljarðar. Otistandandi eru hins vegar um 6 milljarðar. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa Grímseyingar einir sveitarfélaga gert fullnaðarskil á sveitarsjóðs- gjöldum, en t.d. í Reykjavík hafa verið innheimt 61.5% af þessum gjöldum. Svipaðar tölur eru í hinum sveitarfélögunum á Reykjavíkursvæðinu en t.d. á Húsavík, Fáskrúðsfjarðarhreppi, Stokkseyri og Dalvík hafa verið innheimt yfir 70% af sveitar- sjóðsgjöldum. „Fannfeykir” í Breiðholti ÁKVEÐIÐ hefur verið að setja upp „fannfeyki" við Möðrufell og Litlafell I Breiðholti og var þetta samþykkt á fundi borgarráðs á þriðjudaginn. Að sögn Ólafs Guðmundssonar verkfræðings er þarna um nokkurs konar snjó- skerm að ræða, svipaðan og Vega- gerðin hefur m.a. verið með á Hellisheiði. Á hann að draga úr snjóþyngslum þarna og auðvelda umferð, en þarna er snjóþungt mjög. Á þessari mynd má sjá ungan mann, Þóri Baldursson úr Garðabæ, taka á móti bifreið þeirri er hann hlaut I vinning I happdrætti Hjarta- verndar. Það er Hjördfs Kröyer fulltrúi Hjartaverndar sem afhendir Þóri bifreiðina, sem er af Mazda gerð. Kynning á armálum í A RÁÐSTEFNU um kjör lág- launakvenna, sem var haldin á Hótel Loftleiðum 16. maí s.l. vor var gerð ályktun um dagvistunar- mál þar sem segir að fordæmi sé sú breyting, sem hafi verið gerð á lögunum um þátttöku rfkisins I stofnun og rekstri dagvistunar- stofnana og fella niður'hlutdeild rfkissjóðs f reksturskostnaði þeirra. Sfðan segir: „Ráðstefnan telur að varanleg lausn á uppbyggingu nægilega margra dagvistunar- stofnana fáist ekki nema rfki og sveitarfélög stofni þau og reki eins og aðrar uppeldisstofnanir og skóla þjóðfélagsins, svo að öll börn geti átt aðgang að þeim. Ennfremur telur ráðstefnan æski- legt að stéttarfélögin beiti sér fyr- ir þvf að tekið verði inn I kjara- samninga þeirra að atvinnurek- endur greiði ákveðið gjald í dagvistun- næstu viku byggingarsjóð dagvistunarstofn- ana til að flýta fyrir framkvæmd- um.“ Sérstakur starfshópur var stofnaður um málið að ráðstefn- unni lokinni og hefur nú verið ákveðið að efna til sérstakrar kynningarviku dagana 21—28 nóvember til að vekja athygli á hvernig staðan er I þessum efn- um. I fréttatilkynningu starfshóps- ins segir m.a. að verið sé að vinna að allsherjarkönnun á þörf fyrir dagvistunarstofnanir á öllu land- inu. Biðtími eftir plássi f leikskól- um og dagheimilum er nú frá hálfu ári upp í þrjú ár og f Reykjavík eru nú 1043 börn á biðlasta eftir leikskólaplássi og liðlega 400 börn bíða eftir dag- heimilsplássi og eru það eingöngu börn forgangshópanna tveggja einstæðra foreldra og náms- manna. Þorsteinn Matthías- son skrifar um íslend- inga í Vesturheimi komendur þeirra er að finna í bókinni og fjölda mynda. Fyrir- hugað er að framhald verði á skrifum Þorsteins um land- nemana í Vesturheimi og er ráð- gert að önnur bók um sama efni komi út á næsta ári. Þorsteinn Matthfasson Gosbrunnurinn í Tjörninni tekinn upp á næstunni ÝMSIR byrjunarerfiðleikar hafa f sumar verið við gosbrunninn í Tjörninni og bilanir komið fram í rafmagnsútbúnaði, sem stjórnar gosinu i brunninum eftir vind- hraða og stöðvar það alveg ef ein- hver vindur er að ráði. A næst- unni mun gosbrunnurinn verða tekinn upp og tæki hans sett I geymslu yfir vetrarmánuðina. Næsta vor mun hann hins vegar aftur verða settur á sinn stað og búnaður hans þá verða betrum- bættur og gerður fullkomnari. Vitni vantar MILLI klukkan 3.30 og 4 á mið- vikudaginn voru systkin, 7 ára stúlka og 11 ára drengur, á leið suður yfir Miklubraut á gang- braut við Háaleitisbraut, austanmegin. Einnig kom Austin- mini bifreið suður Háaleitisbraut og beygði austur Miklubraut. Ökumaður stöðvaði ekki fyrir börnunum, heldur ók rakleitt áfram og stórskemmdi hjól, sem drengurinn leiddi, en börnin sluppu ómeidd sem betur fer. Er ökumaður bifreiðarinnar beðinn að gefa sig fram við lögregluna og sömuleiðis vitni, ef einhver eru. Sigurður Bjarna- son afhenti trúnað- arbréf í Nígeríu Hinn 15. nóvember s.l. afhenti Sigurður Bjarnason Olusegun Obasanjo hershöfðingja trúnaðar- bréf sitt sem sendiherra Islands í Nígeríu. Á 17. landsþingi Slys'avarnafélags Islands, sem haldið var á sfðast- liðnu vori var samþykkt ályktun varðandi umdæmisskiptingu bjsv. SVFl. 1 ályktun þessari var ákveðið að skipta landinu f 10 umdæmi og síðan hverju um- dæmi f ákveðin leitar- og björgunarsvæði með tiiliti til staðsetninga björgunarsveitanna og eftir ábendingu og ákvörðun þeirra. Að undanförnu hefur erindreki SVFÍ Öskar Þór Karlsson unnið að stofnun þessara umdæma, ásamt fulltrúum landsfjórðung- anna í stjórn SVFÍ. Haldnir hafa ve’rið fjölmargir fundir slysa- varnadeilda og björgunarsveita, þar sem þessi mál hafa verið rædd og undirbúin. Um mánaða- mót fór fram fjölmenn samæfing björgunarsveitanna í V- Skaftafellssýslu, Vestmanna- eyjum og Rangárvallasýslu, en 10. SVFÍ umdæmi mun spanna yfir þetta landssvæði. Var æfingin þríþætt:' Björgun manna úr sjávarháska, „flugvéla- leit“ í óbyggð, skyndihjálp og flutningur slasaðra. Að Iokinni æfingu var fundur björgunar- sveitamanna, þar sem slysavarna- og björgunarmál voru til um- ræðu. Reynir Ragnarsson var kjörinn umdæmisstjóri 10. um- dæmis SVFl, en hann hefur um árabil verið formaður bj.sv. Vík- verji í Vík í Mýrdal. 1 þessu umdæmi eru starfandi 9 björgunarsveitir, en nýstofnuð er björgunarsveit í Skaftártungum. A síðasta áratug hafa bjsv. þess- ar bjargað 97 ísl. og erlendum sjómönnum ú strönduðum skipum, auk þess sem þær hafa tekið þátt í mörgum leitar- og björgunaraðgerðum bæði í byggð og óbyggð Á strandlengjunni frá Skeiðará að Hjörleifshöfða starfrækir SVFI 9 skipbrotsmannaskýli, auk þess sem skýli eru í Faxaskeri og Surtsey. Þá eru björgunarskýli við Hafursey, skammt frá veg- inum yfir Mýrdalssand, sem oft reynist ferðamönnum erfiður í vetrarferðum og einnig er björg- unarskýli við neyðarflugvöllinn á Sprengisandsleið. Þá hafa björg- unarsveitirnar á Hvolsvelli og í Vík reist veglegar og velbúnar björgunarstöðvar vegna starfsem- innar. Mikill áhugi er meðal björgunarsveitamanna um aukið samstarf, æfingu og þjálfun á sem breiðustum vettvangi. I lok sam- æfingarinnar og fundarins bauð Kristinn Sigurðsson frá Björgunarfélagi Vestmannaeyja til næsta umdæmisfundar og æf- ingar í Vestmannaeyjum og var því fagnað innilega. Erindreki SVFl flutti fram- söguerindi á fundinum og meðal gesta, sem fundinn sóttu, voru Jón Þórisson, frá Reykholti, full- trúi Sunnlendinga í aðalstjórn SVFI og Ragnar Þorsteinsson frá Höfðabrekku, sem u a ártuga- skeið var í hópi fremstu slysa- varna- og björgunarmanna í V- Skaftafellssýslu. Á þessu korti sést hvernig björgunarsveitarumdæmi Slysavarnafélags- ins skiptast niður eftir landshlutum. Eins og sést á kortinu er ekki farið eftir hinni hefðbundnu skiptingu landsins, heldur eftir þvf hvað er heppilegast I sambandi við björgunarmálefni. ÆGISÚTGÁFAN hefur gefið út bókina Islendingar I Vesturheimi — land og fólk eftir Þorsteinn Matthfasson. I bókinni er að finna frásagnir af landnámi íslendinga fyrir vest- an haf og Þorsteinn greinir frá þeim erfiðleikum sem land- nemarnir áttu við að stríða. Fjöldi viðtala við landnema og af- Gullastokkurinn nefnist leikfagnasafn sem Lions-klúbburinn Muninn í Kópavogi færði Kópavogshæli aðgjöf nýlega. Lions-klúbburinn Muninn gefur Kópa- vogshæli leikföng LIONS-KLÚBBURINN Muninn f Kópavogi afhenti nýlega Kópa- vogshæli leikföng að gjöf fyrir yngri vistmenn hælisins. Á veg- um Lions-klúbbsins Munins starf- ar Ifknarnefnd og gerir hún til- lögur um fjárveitingar til Ifknar- mála. Hefur klúbbiirinn á undan- förnum árum stutt fjölskyldur sem hafa átt við fjárhagserfið- leika að stríða, lagt öldruðum lið, og stutt starfsemi skáta f Kópa- vogi og Handknattleiksféiags Kópavogs. S.l. laugardag gaf Muninn Kópavogshæli leikföng og voru þau valin i samráði við Auði Hannesdóttur þroskaþjálfara eft- ir ábendingu stjórnar hælisins. Friðrik Haraldsson, formaður líknarnefndar Lions-klúbbsins, afhenti gjöfina og var leikfanga- safninu valið nafnið Gullastokk- urinn eftir tillögu eins félaga Munins. Lions-klúbburinn Muninn var stofnaður í apríl 1971 og var Frið- rik Haraldsson fyrsti formaður hans. Núverandi formaður er Helgi Magnússon, ritari er Einar Long Siguroddsson og gjaldkeri Ásgeir Kristinsson. Björgunarsveitarum- dæmi S.V.F.Í. stofnuð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.