Morgunblaðið - 19.11.1976, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.11.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1976 2 7 — Litasjónvarp Sparar fjármuni og fyrirhöfn: Kosið samtímis til þings og sveitarstjórna RlKISSTJÖRNIN láti kanna, hvort ekki sé æskilegt, að regluiegar kosningar til Alþingis og sveitarstjðrna fari fram samtfmis. Þetta er meginefni tillögu til þingsályktunar, er Jðn Skaftason (F) hefur flutt. I greinargerð vekur Jón Skaftason athygli á þvl að slíkt fyrir- komulag skerði á engan hátt þegnrétt hins almenna borgara. Hins vegar spari það bæði fjármuni og tíma að haga málum á þennan hátt. I greinargerð segir ennfremur: Flm. er kunnugt um, að árið 1970 var í Svíþjóð tekið I lög það ákvæði að kjósa samtimis til þjóðþings (riksdagen), landsþinga (landsting) og sveitar- og bæjarstjórna (kommun). Þessi skipan gekk í gildi um leið og einnar deildar kerfi var komið á í þjóðþing- inu. Kjördagur þar er þriðji sunnudagur i september þriðja hvert ár. Áður höfðu gilt svipuð ákvæði og hér, þ.e. að kjörtimabilið var fjögur ár og kosningar annars vegar til þjóðþingsins og hins vegar til landsþinga og sveitar- og bæjarstjórna voru aðskildar og fóru ekki fram á sama ári. Það er fullrar athygli vert fyrir Isiendinga — frá tæknilegu sjónarmiði séð — að athuga, hvernig sænskir kjósendur fara að þvi að kjósa. Ég nefni nokkur atrið: 1. Þar sem I raun er um þrennar ólikar kosningar að ræða, eru kjörseðlarnir í mismunandi litum til aðgreiningar, þ.e. gulir (riksdag), bláir (landsting) og hvitir (kommun). 2. Hér er þvi svo farið, að kjósandinn fær við kosningu afhentan kjörseðil með nöfnum frambjóðenda allra flokka, og honum er síðan ætlað að krossa við bókstaf þess lista, sem hann styður. I Sviþjóð eru á hinn bóginn gefnir út sér kjörseðlar fyrir hvern þeirra flokka, sem I framboði eru, og sjá flokkarnir um að senda þá til kjósenda fyrir kosningar. Hver kjósandi fær þvi i hendur a.m.k. 15 kjörseðla (5 flokkar x 3 kosningar) og fleiri þar sem fleiri flokkar en núverandi þingflokkar bjóða fram. Auk þess geta þeir kjósendur, sem þess óska, fengið eyðukjörseðla á kjörstað. Hafi kjósandi — einhverra hluta vegna — ekki fengið I hendur kjörseðla þess flokks, sem hann óskar að kjósa, þá er vaninn sá, að fulltrúar flokkanna standa utan við kjörstað allan kosningadaginn og deila út kjörseðl- um. Þar að auki liggja kjörseðlar frammi á kjörstað. 3. Á kjörstað fær kjósandinn bara I hendur þrjú umslög (eitt fyrir hvern þeirra kjörseðla, sem hann tekur með sér i kjörklefann). Siðan fer hann inn í sjálfan kjörklefann og stingur niður í umslagið kjörseðli þess lokks, sem hann óskar að kjósa. Að síðustu afhendir hann umslögin þrjú og um leið er merkt við á kjörskrá að við- komandi hafi kosið. Á umsiagahornunum eru smágöt, þannig að hægt er að sjá lit kjörseðlanna og fylgjast með þvi, að hver kjósandi hafi aðeins kosið einu sinni í hverjum kosningum, svo og að sjá til þess að hver kjörseðill lendi I réttum kjörkassa, þ.e. gulur i þjóðþingskjörkassanum o.s. frv. Að sjálfsögðu gerir þetta kjósandanum kleift að greiða mismunandi flokkum atkvæði i kosningunum þremur, þannig að hann getur t.d. kosið miðflokkinn til þings, jafnaðarmenn til landsþings og kommúnista til sveitar- stjórnarstarfa. Framhald af bls. 22 manna á miðum. Bann við innflutningi litasjónvarpstækja gæti og leitt til smygls, sem rændi ríkissjóð og sjónvarp innflutningstekjum sem og ið- gjöldum. Sigurlaug taldi eðlilegt að tolla litasjónvörp allnokkuð, til að þeir, sem þau keyptu, flýttu betur fyrir möguleikum hinna til sjónvarpsmóttöku, er enn nytu ekki þessa fjölmiðils. Aftur úr grárri forneskju. Ellert B. Schram (S) þakkaði stuðning Sigurlaugar en taldi sjónarmið Jónasar komin aftur úr grárri forneskju. Eðlilegt væri að menn hefðu skiptar skoðanir um ágæti sjónvarps, enda hefði það bæði kosti og galla. En fólk á að ráða því sjálft, hver og einn, hvort það horfir á sjónvarp, hvaða dag- skrárliði horft er á, hvort horft er á svart-hvitt sjónvarp eða lit- auðugra, eða yfirleitt hvern veg það ver sínum tómstundum. Aðrir kunna að telja sig til þess kjörna, að segja fólki fyrir um, hvað það má og má ekki um menningarlega neyzlu eða í afþreyingu. Innflutningstekjur af svart-hvítu Einar Ágústsson utanrikisráð- herra sagðist hafa verið hvetjandi stofnunar íslenzks sjónvarps á sinni tíð, fyrst og fremst af þeim sökum, að fyrir var í landinu sjón- varp á hendi útlendra. Eftir að hinu útlenzka sjónvarpi hefði verið lokað fyrir Islendingum, skipti hið íslenzka minna máli i sínum augum. — Hinsvegar fæ ég ekki séð hvers vegna sjónvarpið getur ekki haft innflutnings- tekjur af svart-hvitum sjónvörp- um eins og litasjónvörpum. (Jtsending í lit kostar peninga. Jónas Árnason (Abl) sagðist vilja leiðrétta; íslenzka sjónvarpið væri ekki plága i dag, en gæti hins vegar orðið það, ef við öpuðum allt eftir útlendum. Hann sagðist myndu gjöra hvað hann gæti til að koma í veg fyrir veganna sé fullnægjandi, sem það þó ekki er. Viðhaldskostnaður þeirra vega, sem lagt er á bundið slitlag, lækk- ar, þrátt fyrir aukna umferð, sem ætíð fylgir í kjölfar bættra vega, en hin aukna umferð hefur aftur í för með sér auknar tekjur í Vega- sjóð og raunar ríkissjóð lfka. Sam- kvæmt upplýsingum, sem ég hef frá Sænsku vegagerðinni, er það reynsla þeirra að viðhaldskostn- aður malarvega með 1.000 bfla umferð á dag sé nálægt helmingi meiri en þeirra, sem lagðir hafa verið olíumöl. Bifreiðaeigendur eru einn fjölmennasti neytenda- hópurinn f landinu. Þeir eru yfir 70 þúsund að tölu og geta þannig boðið öllum landsmönnum í öku- ferð, 3.4 íbúar eru um hverja fólksbifreið. Það má því eins segja að þessi neytendahópur sé öll þjóðin vegna þess að allir nota vegakerfið. Einhvern tima hefur verið hlaupið til fyrir fámennari þrýstihóp og orðið við kröfum um úrbætur. BYGGÐAÞRÖUN í fjórða lagi má svo nefna, að bættir vegir bjóða upp á auðveld- ari samskipti milli landshluta, til hagsbóta fyrir alit atvinnulíf í landinu og byggðaþróun yfirleitt. Með bættu samgöngukerfi er dregið úr aðstöðumuninum milli dreifbýlis og þéttbýlis. Leggja ber mikla áherzlu á þessa félagslegu þætti, sem tengdir eru bættu vegakerfi. Þcssi eru helstu rökin, sem við færum fram í greinargerð með tillögunni. Sjálfsagt vega þau mis- jafnlega mikið, en sé litið á þau í heild ættu þau að sannfæra alla það. Jónas sagði að útsending i lit kostaði peninga. Tollun litasjón- varps gæti orðið til þess að hinir ríku einir nytu. Hann endurtók að þetta mál væri hégómaskapur og fordild. Ekki undir eðlilegum kringumstæðum. Karvel Pálmason (SFV) sagðist ekki hafa móti innflutningi lita- sjónvarpa undir eðlilegum kringumstæðum. Nóg væri hins vegar annað með gjaldeyri að gjöra — þó þessi flóðgátt yrði ekki opnuð. Keppa bæri hins vegar að því :ð koma svart-hvítu sjónvarpi til sjómanna á fiski- miðum. 200 m.kr. af 60.000 m.kr. Ellert Schram (S) sagði tillögu sína miða að hóflegum innflutningi. Gert væri ráð fyrir u.þ.b. 2000 tækja árlegum inn- flutningi, sem kostaði nálægt 200 m.kr. í gjaldeyri af um 60.000 milljóna gjaldeyriseyðslu okkar. Þessi innflutningur gæti hins vegar gefið 200—300 m. kr. — tekjur á ári til að bæta dreifi- kerfið og koma sjonvarpi til fólks, sem ekki gætti þess kost i dag. Litasjónvörp, áfengi og hass. Óiafur Þórðarson (F) sagði að hvitt og svart væru litir. Hann sæi ekki skaðsemi þess að útsent sjónvarpsefni væri i meira litaúrvali. Hóflegur inn- flutningur litasjónvarpstækja myndi flýta fyrir úrbótum í út- sendingu og útvíkkun dreifi- kerfis, með tekjuöflun í þær framkvæmdir. Þær vörutegundir, sem gæfu ríkissjóði (og eða útvarpi) mest • í formi tolla, innflutnings- og vörugjalds, sölu- skatts og annarra eyðsluskatta væru með slíkri sköttun háðai vissum innflutningshömlum Ólafur sagðist ekki sjá rökin fyrir því að leyfa svo til frjálsan almennan innflutning, þ.á m. á áfengi og tóbaki, en setja þessa einu vörutegund, litasjónvarp, á bannlista með hassi og öðru slíku. Hann sagði að margt af því sjón- um hvílíkt nauðsynjamál er hér á ferðinni. Ástand vegakerfisins er vægast sagt bágborið, viðhaid er aiis ófullnægjandi og raunar óverj- andi að kasta svo miklu fé á glæ sem þyrfti, ef viðhald hinna fjöl- farnari malarvega ætti að vera svo, sem raunveruleg þörf er á. LENGD VEGAKERFISINS — VERKEFNIÐ SJÁLFT Lerrgd þjóðvega er nú 8.485 km. Auk þess teljast sýsiuvegir vera 3.208 km. Samtals eru því þessir vegir 11.693 km. Heildarlengd þeirra vega, sem falla myndu undir tillöguna, er um 2.300 km. Þar af eru nú með bundnu slitlagi aðeins 160 km. Vegagerð ríkisins telur, að vegakaflar, sem lítinn undirbúning þurfi til þess að lagt verði á þá bundið slitiag, séu um 830 km. Eftir standa þá um 1.300 km, sem þarfnast meiri eða minni endurbyggingar, áður en lagt er á þá slitiag. Þetta er stærð verkefn- isins. Ef við föllumst á, að 10—15 ára framkvæmdatími sé hæfileg- ur, þýðir það að leggja þarf slitlag á 150—200 km árlega. Ymsum kann að vaxa það i augum, þegar haft er í huga, að við ætlum okkur að framkvæma á einu ári jafnmik- ið og við höfum gert til þessa i lagningu slitlags. í því sambandi legg ég áherslu á, að ekki er verið að tala um framkvæmdir i sama gæðaflokki. Við tölum um lagn- ingu olíumalar, en ekki stein- steypu eða malbik. Við töium um að leggja slitlagið á vegina nánast eins og þeir eru, ekki hina vönd- uðu og dýru undirbyggingu, sem við þekkjum til þessa. Á þessu er varpsefni, sem keypt væri er- lendis frá, væri i litum, og eðlilegt að landsmenn fengju að njóta þess sem slíks. Einnig væri auð- veldara að selja unnið íslenzkt efni út, ef í litum væri unnið. Ríkisútvarpið öreigi Stefán Jónsson (Abl) sagði m.a. að fjárhagsstaða ríkisútvarps væri slík að það væri i raun öreigi. Hann sagði og útvarp heyrðist ekki á viðunandi hátt i heilum landshlutum. Hann vitnaði til bónda, sem svo hefði um sjónvarp talað, að hann vonaði að sá „skítur" kæmi ekki í sina sveit. Hann lagði til að tillag- an um Htasjónvarp væri felld. Afla mætti tekna til dreifikerfis með öðrum hætti, sum sé með því að hækka árlegt iðgjaid notenda í þeim mæli, sem til fram- kvæmdanna þyrfti. Hann sagði það og álit erlendra kunnáttu- manna, að dagskrá hefði hvergi batnað við litaútsendingu. Fólk á að hafa valkosti — ekki menningarlega skömmtunarstjóra. Halldór Blöndal (S) sagði það ekki vansalaust, að sjónvarp skyldi ekki þegar ná til allra byggðra bóla á landinu sem og fiskimiða okkar. Slikt væri sjálf- sögð jafnréttiskrafa bænda og sjómanna. Jafneðlilegt væri að Alþingi hygði að því í alvöru, hvern veg litasjónvarpi yrði komið á i þágu allra landsmanna. Hann sagði það stærilæti Jónasar og Stefáns, sem hygðu sig geta ofan frá skýrt og skammtað „menningarlegt" viðurværi almennings, sem og að vilja ráða þvi í hvað þegnarnir verðu fjár- munum sínum. Þetta minnti á til- tekið stjórnarfar, sem ekki ætti upp á pallborðið hjá íslendingum. Sjálfkjörnir postular ættu ekki að ráða yfir valkostum fólks, hvern veg það eyðir tómstundum í fróð- leik eða skemmtan, heldur ætti hver að vera frjáls að vali eftir smekk og áhugamálum. Halldór sagði hina afturhaldssömu af- stöðu þessara tveggja þingmanna til litasjónvarps vera tima- skekkju, sem ekki mætti hafa áhrif á framvindu mála á Alþingi Islendinga. reginmunur að því er fjármagn varðar og nýtingu þess. Þeir vegir, sem hér um ræðir eru hringvegurinn, sem er um 1.420 km, og svo hinir fjölfarnari vegir út frá honum, til hinna ýmsu þéttbýlisstaða á Iandinu. Á þeim framkvæmdatíma, sem hér er nefndur, 10—15 ár, myndi ef- laust verða einhver breyting á umferð, þannig að vegir, sem ekki falla nú undir tillöguna, kæmu inn á tímabilinu. Og endurbygg- ing þeirra vega, sem eru krókóttir og lágir, þannig að þeir teppast I fyrstu snjóum, heldur að sjálf- sögðu áfram, og myndi samþykkt þessarar tillögu þar engin áhrif hafa. Þeir vegir, sem þegar er hægt að leggja slitlag á, eru að sjálf- sögðu í öllum landshlutum og við gerum ráð fyrir I tillögunni, að framkvæmdir verði einhverjar í hverjum landshluta hvert ár og eftir því, sem hagkvæmt myndi teljast. Við leggjum áherslu á þennan þátt tillögunnar til þess að hver landshluti njóti að sínum hluta hins bætta vegakerfis strax. KOSTNAÐUR Mjög erfitt er að áætla hver kostnaður v-erður við allt þetta verk, þar sem svo mjög er mis- jafnt hve mikið þarf að lagfæra þá rúmlega 1.300 km sem endur- byggingar þurfa við. Hins vegar ber að hafa í huga, að endurbygg- ing þeirra vega hlýtur að eiga sér stað á næstu árum, burt séð frá því, hvort þessi tillaga verður samþykkt eða ekki. Þvf er ástæðulaust f sjálfu sér að vera að velta því svo mjög fyrir sér, hver undirbúningskostnaður- inn er, við komumst einfaldlega ekki hjá því að endurbyggja þá vegi, sem veikastir eru. Samkvæmt þeim tölum,. sem við höfum handbærar má ætla að það kosti um 5 milljónir kr. að leggja olíumöl á hvern kilómetra í vegi, sem aðeins þarf að jafna fyrir útlagningu. Samkvæmt þvi yrði kostnaður við lagningu olfumalar á þá kafla, sem þegar eru nægi- lega vel gerðir og eru, eins og áður segir, um 830 km. um kr. 4.150.000.00 en árlegt meðaltal f járhæða, sem til þessa yrði varið er þá 750—1.000 milljónir, ef lagt yrði slitlag á 150—200 km. Slitlag, efni og vinna, á þá 2.140 km sem hér um ræðir, myndi þá kosta rúma 10 milljarða króna. Ég sagði áðan, að mjög erfitt væri að gera sér grein fyrir end- úrbyggingarkostnaði þeirra vega, sem þarfnast verulegra lagfær- inga. En til þess að nálgast eitt- hvað þann kostnað má e.t.v. segja að hver km. kosti þar 3svar til fjórum sinnum meira, eða 15—20 milljónir og verkið allt þá 25—30 milljarða. FJÁRMÖGNUN 1 tillögunni nefnum við þrjár leiðir til að fjármagna fram- kvæmdirnar, þ.e. árlegt fjármagn úr Vegasjóði samkvæmt vegaáætiun, innlenda eða erlenda lántöku. Fyrst er þá rétt að gera sér grein fyrir, hverjar tekjur vega- sjóðs eru og þá um leið hvernig umferðin er skattlögð, þ.e. skatt- heimta af bifreiðum og rekstrar- vörum þeirra. Árið 1975 var þessi skattheimta kr. 7.489 milljarðar en af þeirri upphæð fékk vegasjóður kr. 3.718 milljarða kr. Mismunur er kr. 3.771 milljarðar. Árið 1976 er reiknað með að skattheimtan verði 9.898 milljarðar en til vega- sjóðs verði varið 4.714 milljörð- um. Mismunur er kr. 5.184 millj- arðar. Árið 1977 má sjálfsagt áætla skattheimtuna 12 milljarða en til vegasjóðs samkvæmt fjárlaga- frumvarpi eiga að fara 5.4 millj- arðar. Mismunur 6.6 milljarðar. Það skal tekið fram að sölu- skatturinn er reiknaður með í þessum tölum, enda er hann f þessu tilfelli skattur á umferðina. Mismunur skattheimtunnar og þess, sem fer í vegasjóð á þessum þremur árum er því um kr. 15.5 milljarðar og myndi sú upphæð duga til að leggja slitlag á þrjú þúsund km vega, sem engan sér- stakan undirbúning þyrftu, áður en lagt væri á þá slitlagið. Hér hefur nú verið gerð grein fyrir þeim tekjum, sem ríkissjóð- ur hefur af umferðinni, þ.e. bif- reiðum og rekstrarvörum þeirra. Oft hefur sú krafa heyrst að þess- ar tekjur allar eigi að renna til vegaframkvæmda. Sjálfsagt er það til of mikils mælst þar sem eðlilegt verður að teljast að bif- reiðaeigendur sem aðrir greiði hluta af ýmsum útgjöldum sem til er stofnað vegna þeirra. Má þar nefna hluta af kostnaði við lög- gæslu, svo eitthvað sé nefnt. Mín skoðun er sú, að meðan vegakerf- ið er svo bágborið, sem raun ver vitni, eigi að verja til muna meiri hluta af tekjum af umferðinni til vegamála. Ef menn vilja halda óbreyttum framkvæmdum á öðr- um sviðum, verður að taka lán til þeirra framkvæmda, ef skatt- heimta er ekki möguleg. Það má þvi segja með rökum að lántaka sé í sjálfu sér óþörf til þess að standa undir þeim fram- kvæmdum, sem tillaga þessi gerir ráð fyrir, ef Alþingi viðurkennir nauðsynina á því að verja meiru til vegabóta af því fé, sem ríkis- sjóður fær af umferðinni. Geri Alþingi það ekki, er um tvennt að velja, hjakka í sama farinu og Framhald á bls. 26 — Bundið slitlag Framhald af bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.