Morgunblaðið - 19.11.1976, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 19.11.1976, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1976 39 Sjúkraliðafélag tslands heldur hátfðlegt tfu ára afmæli sitt að Hótel Sögu f kvöld, en félagið var stofnað 21. nðvember 1966. t tilefni þessa ræddi Morgun- blaðið stuttlega við Ragnheiði Guðmundsdóttur, lækni og Ingibjörgu Agnars, núverandi formann Sjúkraliðafélags tslands. Starf- semi Ingibjörg Agnars, formaSur Sjúkraliðafélags íslands, og Ragnheiður Guðmundsdóttir læknir. Ijósm. Mbl. Rax. sjúkrahúsa óhugs- andi án sjúkraliða Það var Ragnheiður Guðmundsdóttir, sem upphaf- lega kynnti starfsemi sjúkra- liða hér á landi, en hún hafði kynnzt starfsemi þeirra, er hún var við nám I Bandaríkjunum 1962. Það sama ár skrifaði hún grein í Morgunblaðið, nánar til- tekið 28. október 1962. Bar sú grein fyrirsögnina: Er þetta leiðin til að ráða bót á hjúkrunarkvennaskortinum? „Ég held að alveg óhætt sé að fullyrða nú tfu árum síðar, að svo sé“, sagði Ragnheiður. Ingi- björg Agnars, formaður félags- ins, bætti því við, að það væri samdóma álit allra er til þekkja, að starfsemi sjúkra- húsa væri óhugsandi án sjúkra- liða. Svo veigamikið væri hlut- verk þeirra innan hjúkrunar- stéttarinnar. I fyrrnefndri grein kynnti Ragnheiður Guðmundsdóttir starf og nám sjúkraliða. Sagði hún að þá hefði á tslandi sem vfðar verið gífurlegur skortur á hjúkrunar- konum eða hjúkrunar- fræðingum, eins og sú stétt kallast nú. „Til að ráða bót á þessum skorti f Bandaríkjun-’m höfðu verið farnar ýmsar leiðir," sagði Ragnheiður. „Ein leiðin var sú að þjálfa fólk í almennum hjúkrunarfræðum, með þó styttri námstfma en nám í venjulegum hjúkrunar- skólum tekur og er þessi starfs- grein í Bandaríkjunum köiluð „practical nurses“, sem hér á tslandi hlaut svo nafnið sjúkra- liðar.“ Ragnheiður lagði jafn- framt til í grein sinni um sjúkraliða að slík stétt hjúkrunarfólks yrði menntuð á tslandi. „Um þetta leyti var Borgarspftalinn f smfðum og verið var að byggja við bæði Landakots- og Landspftalann — segir formað- ur Sjúkraliða- félags Islands og svo og voru sjúkrahús í smíðum víðsvegar um landið," heldur Ragnheiður áfram. „Af þessu var augljóst að skortur hjúkrunarkvenna yrði enn til- finnanlegri og því bráðnauð- synlegt að finna einhverja lausn á vandanum og fannst mér þessi liggja beinust við. Taldi ég Rauða kross tslands þann aðila er lfklegastur væri til að hrinda þessu f fram- kvæmd.“ Á stjórnarfundi Rauða krossins í október, 1962 kynnti hún starf sjúkraliðanna og í febrúar 1963 kom Ragn- heiður siðan með ákveðnar til- lögur um að menntun sjúkra- liða yrði sett á laggirnar. A vegum Rauða krossins hafði einu sinni verið rekinn forskóli fyrir hjúkrunarkonur. Árið 1964 var lagt fram stjórnarfrumvarp um nám og störf sjúkraliða. Frumvarpi til hjúkrunarlaga var sfðan breytt 1965 og kom starf sjúkraliða þá inn f áttundu grein fyrrnefndra laga. Sjúkraliðafélag Islands var sfðan stofnað f nóvember 1966 eins og fyrr var getið. „Landakotsspítalinn varð fyrstur til að sækja um að fá að mennta sjúkraliða á sfnum vegum og hófst kennsla þar 1. október 1965,“ sagði Ragn- heiður. Ásamt príorinnunni á Landakoti, systur Hildegardis, og Guðrúnu Margeirsdóttur sá Ragnheiður um alla skipu- lagningu sjúkraliðanámsins þar. „Á Landakotsspítala kenndi ég allar almennar kennslugreinar f samfellt sjö ár og hafði mikla ánægju af því,“ sagði Ragnheiður ennfremur. „Kennslan var að mestu leyti byggð upp á bandarísku fyrir- myndinni. Námstími var átta mánuðir og inntökuskilyrðin skyldunám." Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hóf kennslu fyrir sjúkraliða í septembermánuði 1965. Ingibjörg R. Magnús- dóttir, þáverandi forstöðukona sjúkrahússins, sá um alla skipu- lagningu námsins þar, en hún kynntist starfsemi sjúkraliða, þegar hún var við nám í Dan- mörku. I grein, sem Ingibjörg R. Magnúsdótir hefur ritað fyrir Sjúkraliðafélag Islands, segir hún að það hafi verið eitt af sfnum fyrstu verkum, þegar hún hóf störf sem deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu, að endurskoða reglugerðina um nám sjúkra- liða. 1 desemberlok 1971 leit svo ný reglugerð þvf viðvíkjandi dagsins ljós. Aðal- breytingarnar frá þeirri fyrri voru þær, að námið var lengt um fjóra mánuði og skyldi stundum fjölgað upp i 208. „Haustið 1975 var Sjúkraliða- skóli Islands stofnaður," sagði Ingibjörg Agnars, formaður félagsins. „Voru þá samfara nýrri reglugerð um nám og störf sjúkraliða sett ný inntöku- skilyrði, en flestum höfðu þótt hin fyrri ófullnægjandi. I stað skyldunámsins áður var nú krafizt 5. bekkjar gagnfræða- skóla á hjúkrunarkjörsviði eða 1. bekkjar fjölbrautaskóla. Það má geta þess,“ sagði Ingibjörg, að þegar störf sjúkraliða voru kynnt upphaflega, var sagt að þau væru aðallega fólgin i því að létta störf lækna og hjúkrunarkvenna og vinna undir þeirra eftirliti, sem er rétt. En þróunin, sem sýnir f sjálfu sér mikilvægi sjúkraliða, hefur leitt til sífellt meira og nánara samstarfs milli allra þessara aðila. Á þeim tíu árum, sem nú eru liðin frá stofnun Sjúkraliðafélags tslands, hafa sjúkrahús hér á landi braut- skráð samtals 939 sjúkraliða og af þeim eru um sex hundruð f starfi. Auk þess hefur heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytið veitt átján sjúkraliðum sem stundað hafa nám erlendis, leyfi til þessa starfs hér. Þær Ingibjörg og Ragnheiður voru báðar sammála um það f lokin, að fjöldi starfandi sjúkraliða á Islandi sýndi glögglega mikilvægi stéttar- innar meðal hjúkrunarfólks. Og sú staðreynd, að starfsemi sjúkrahúsanna væri óhugsandi án framlags sjúkraliða, bæri þess bezt vitni að hafizt var handa um menntun þeirra f tæka tfð. Grein Ragnheiðar Guömundsdóttur I MorgunblaSinu 28. nóv. 1962. Prentarar mótmæla frum- varpi um nýja vinnulöggjöf FUNDUR f fulltrúaráði Hins fsl. prentarafélags mótmælir frum- varpi til laga um nýja vinnulög- gjöf sem stjórnvöld áforma að leiða f lög, segir f frétt frá félag- inu. Síðan segir: Frumvarpið er samið samkvæmt einhliða óskum og samþykktum Vinnuveitenda- sambands Islands á tveimur sfð- ustu ársfundum þess, og miðar að þvi að skipa innri málum verka- lýðshreyfingarinnar þannig að frelsi þeirra verði skert á þann veg sem einungis þekkist f lönd- um þar sem verkalýðshreyfing er leyfð aðeins að nafninu til. Þá lýsir félagið sig fylgjandi þeirri stefnu ASI að mótmæla öll- um breytingum á vinnulöggjöf- inni sem gerðar væru án vilja og samþykkis verkalýðshreyfingar- innar. STAPI Allir í Stapa Munið nafnskirteinin. Sætaferðir frá B.S.Í. Stapi STRIMLAGLUGGA TJÖLD LUXAFLEX ERU: Vönduðustu strimlagluggatjöldin. Kynnið yður verð og gæði. Gerum verðtilboð yður að kostnaðariausu. ÓLAFUR KR.SIGURÐSSON &Co. SUÐURLANDSBRAUT 6 s: 83215

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.