Morgunblaðið - 19.11.1976, Síða 24

Morgunblaðið - 19.11.1976, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÖVEMBER 1976 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sfmi 22480 Áskriftargjald 1100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasolu 60.00 kr. eintakið. Togarakaup og staðbundin vandamál Talið er, að á næstu mánuðum muni 8—9 skuttogarar bætast í fiski- skipastól landsmanna. Þar að auki munu liggja fyrir beiðnir um kaup á 15 nýj- um skuttogurum til viðbót- ar. Geir Hallgrímsson for- sætisráðherra skýrði frá því í ræðu á Alþingi fyrr í vikunni að ekki yrðu veitt- ar ríkisábyrgðir fyrir kaup- um á fleiri skuttogurum er- lendis frá. Þessi afstaða ríkisstjórnarinnar er hár- rétt og sýnir, að hún er reiðubúin til þess að sporna gegn vanhugsaðri fjárfestingu enda þótt þrýstingurinn sé mikill frá ýmsum aðilum, einstakl- ingum og sveitarfélögum. Það er auðvitað fráleitt að kaupa fleiri togara eins og sakir standa. Eins og ástandi fiskstofna okkar er nú háttað er ljóst, að sá togarafloti sem fyrir er getur auðveldlega veitt þann afla, sem talið er fært að taka og raunar er veiði- geta fiskiskipaflotans mun meiri en við þurfum á að halda nú. í ljósi þess kem- ur auðvitað ekki til mála að festa þúsundir milljóna í nýjum togurum, sem mundu aðeins bætast við þann umframflota, sem nú þegar er til staðar. Þessi ásókn í að kaupa 15 nýja skuttogara enda þótt sá togarafloti sem fyrir er geti hæglega hagnýtt leyfi- legan afla er eitt af mörg- um dæmum um þá vit- leysu, sem ríkir í fjárfest- ingarmálum okkar Islend- inga. Það er eins og menn séu aldrei reiðubúnir til þess að hugsa heila hugsun til enda, þegar fjárfesting er annars vegar og gildir þá einu, hvort um er að ræða togarakaup, eða ýms- ar opinberar framkvæmd- ir. Um skeið hafa menn einblínt mjög á þá stað- reynd, að krónutala launa er nú mun lægri hér en í nágrannalöndum. Nauð- synlegt er að brjóta það mál til mergjar og finna þær skýringar, sem á því eru. Flestir þeir, sem um það hafa hugsað, munu þó sammála um, að ein af ástæðunum er hin ofboós- lega og oft óarðbæra fjár- festing, sem við höfum ráð- izt í. En sjálfsagt eru skýr- ingarnar fleiri. Umræður um togara- kaup hafa spunnizt í sam- bandi við staðbundin at- vinnuvandamál í tveimur byggðarlögum, Bíldudal og Ólafsvík. Bersýnilegt er, að atvinnuástand á Bildudal er alvarlegt en atvinnu- rekstur hefur lengi staðið höllum fæti í þvi byggðar- lagi af einhverjum ástæð- um, þrátt fyrir margvís- lega fyrirgreiðslu, eins og glöggt kom fram í ræðu forsætisráðherra á AI- þingi. í Ólafsvík er fremur um að ræða slæmar horfur í atvinnumálum á næst- unni en að teljandi at- vinnuleysi sé þar nú skv. þeim upplýsingum, sem fram komu í umræðum á Alþingi. Það er nauðsynlegt að finna leiðir til þess að út- rýma atvinnuleysi á Bíldu- dal og skjóta traustari stoð- um undir atvinnurekstur þar. Og það er nauðsynlegt að koma í veg fyrir, að at- vinnuleysi fái að festa ræt- ur í Ólafsvík. Það hefur verið eitt aðal markmið þeirrar ríkisstjórnar, sem nú situr í landinu að koma í veg fyrir atvinnuleysi, þrátt fyrir þá erfiðleika, sem að hafa steðjað. Og þegar atvinnuleysi skýtur niður í einstökum byggðar- lögum verður að bregðast skjótt við. Atvinnuleysið er mesta bölið og það verður að hafa forgang að upp- ræta það. En togarakaup bæta þar ekki úr, þegar ekki er nægilegur fiskur í sjónum til þess að standa undir hagkvæmri útgerð þeirra togara sem fyrir eru. Meiri ástæða er til að reyna að dreifa hráefninu meira á milli byggðarlaga en nú er gert. Þetta ætti að vera framkvæmanlegt, þegar það er svo, að í sumum byggðarlögum kallar afl- inn sem að landi berst á óhóflega vinnu fólks en í öðrum byggðarlögum skortir hráefni. Hér þarf til að koma náin samvinna milli nærliggjandi byggða um dreifingu og vinnslu hráefnis. Það er svo, að sjávarþorpin í kringum landið byggja fyrst og fremst á útgerð og fisk- vinnslu og það er ákaflega hæpið að hægt sé að leysa atvinnumál þeirra með öðrum hætti en í tengslurn við sjávarútveginn. En þá þarf til að koma hagkvæm- ari nýting þeirra atvinnu- tækja, sem til staðar eru í sjávarútvegi. „Ég ber ekki á móti því að Energoprojekt hefur mikinn áhuga á að byggja Hrauneyjarfossvirkjun. Hér erum við með fjöldann allan af dýrmætum tækjum, sem nota þarf við framkvæmdir eins og f Hrauneyjarfossvirkjun og eins eigum við mikið af byggingarefni á fslandi. Þetta með öðru gerir það að verkum að við getum örugglega boðið mun lægra en aðrir í þá virkjun. Ef Hrauneyjarfossvirkjun kostar t.d. um 50 millj. dollara samkvæmt áætlunum, þá getur Energoprojekt byggt hana fyrir 43 — 44 millj. dollara,“ sagði Lazac Zakula framkvæmdastjóri Ener- goprojekt f Sigöldu er blaðamaður Mbl. ræddi við hann. Framkvæmdum Energoprojekt við Sigöldu er nú lokið, að vfsu á eftir að fara fram Iftilsháttar jarðvegs- vinna, en ekki verður hægt að framkvæma hana fyrr en í vor, og mun Landsvirkjun sjá um það eins og komið hefur fram f fréttum. Júgóslavarnir eru þvf á förum úr Sigöldu og mikill hluti þeirra manna, en eftir eru menn við niðursetningu véla o.fl. Rafalar og aðrar vélar f stöðvarhús koma frá Brown, Boveri og Cie f V-Þýzkalandi og Energomachexport f Sovétrfkj- unum. Er nú lögð mikil áherzla á að ljúka við frágang á vélum fyrir áramót, þannig að framleiðsla með túrbfnu 1. geti hafist f janúar, en f stöðvarhúsinu verða alls þrjár túrbfnur og á hver um sig að geta framleitt 50000 kw, eða 50 MW, þá er gert ráð fyrir að bæta megi við f jórðu túrbínunni. Sigölduvirkjun Stöðvarhúsið f Sigöldu. t haksýn sjást aðr Steypan hef í 8400 einb — Viljum gjarnan taka að okkur fram- kvæmdir við Hrauneyjarfossvirkjun — segja forráðamenn Energoprojekt Verkið á krossgötum „Vissulega eru það tímamót, þegar aðalverktaki þessara miklu framkvæmda skilar verk- inu af sér. Energoprojekt er nú svo til búið með það verk er það átti að vinna. Inntaksmannvirk- in eru tilbúin til að taka við vatni, sömu sögu er að segja af frárennslisskurðinum, hann er tilbúinn, þá er stöðvarhúsið til- búið af hálfu verktakans, og því er ekki óeðlilegt að Ener- goprojekt hætti nú störfum, enda hávetur að koma,“ sögðu verkfræðingar Landsvirkjunar í Sigöldu þeir Egill Skúli Ingi- bergsson og Páll Ólafsson. „Áður en framleiðsla rafmagns getur hafist með fyrstu túrbín- unni þarf að reynslukeyra hana um nokkurn tíma og er vonast til að það verði í desember, og ætti framleiðsla að geta hafist skömmu eftir áramót. Mikil áherzla er lögð á að rafmagns- framleiðslan geti hafist sem fyrst, þar sem ýmissa aðgerða er þörf í Búrfellsvirkjun, en hverflar Búrfellsstöðvarinnar verða teknir upp, þegar fram- leiðsla er hafin hér.“ 650 manns þegar flest var Þegar starfsmenn voru flestir við Sigölduvirkjun unnu þar um 650 manns, en í sumar hafa unnið þar 400 manns. I gær var mönnum fækkað um 200—250, þannig að eftir eru ekki nema 150—200 manns, og verða næsta úthaldstímabil sem endar 2. desember. Þá verður aftur fækkað mönnum, og eftir það verða fáir við vinnu í Sig- öldu. Á vegum Landsvirkjunar vinna 40 manns við niður- setningu véla, og um 30 eru við önnur störf. Eins og 8400 einbýlishús. „Það er samdóma álit allra að samvinna verktakans og Lands- virkjunar hefur verið mjög góð að undanförnu og verkið því gengið vel. Þau markmið sem sett hefðu verið hefðu náðst og allt gengið áfallalaust. Þegar verkið byrjaði, gekk á ýmsu, verkföll voru og mannskapur- inn hljóp brott, en það breytir ekki heildarmyndinni. Þá hefur tíðin verið mjög góð í haust, en hins vegar er ekki nóg að vera með gott tíðarfar ef ekki er hægt að nýta sér það,“ sögðu Egill Skúli og Páll. Steypuframkvæmdir við mannvirkin í Sigöldu voru gífurlega miklar. AIls voru steyptir 84 þúsund rúmmetrar, en það er álíka mikil steypa og fer í 8400 meðal einbýlishús. 43 þús. tonn af sementi voru notuð og 5000 tonn af steypustyrktar- járni. Grafnir voru 3.3 millj. rúmmetrar af jarðvegi og 2.1 millj. rúmmetrar af fyllingar- efni notað. Asfaltkápan á varnargarðinum er 52.500 fer- metrar og fóru 2000 tonn af asfalti í hana. Aðeins 2 gæzlumenn „Það er hugmyndin að í fram- Verið er að ljúka við að steypa kringum túrl Séð út eftir aðrennnslisskurðinum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.