Morgunblaðið - 19.11.1976, Side 26

Morgunblaðið - 19.11.1976, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÖVEMBER 1976 Henning Bjarnason flugstjóri ásamt kvikmyndahóp brezka sjónvarps- ins BBC, á flugvellinum (Glasgow. BBCkvikmynd- ar í íslandi Fullur steypu- bíll valt Akureyri, 18. nóvember. STEYPUBÍLL, fullhlaðinn steypu, fór fram af tveggja metra hárri vegarbrún nálægt Malar- og steypustöðinni klukkan 13.40 í dag, valt hálfa veltu og staðnæmdist á hvolfi. I fyrstu var óttazt að ökumaður hefði slasast og var hann þvi fluttur í skyndi i sjúkrahús. Sem betur fer kom í ljós að hann hafði aðeins skorizt á enni og marizt á fæti, en var ekki alvarlega meiddur. Nauðsynlegt reyndist að skera tromluna af steypubílnum til þess að rétta hann við og ná honum upp á veginn aftur. Öllum kunnugum ber saman um, að hér hafi átt í hlut afar gætinn og þaulvanur ökumaður. — Sv.P. Ráðstefna um þjóðveldið FÉLAGSVÍSINDAFÉLAG Islands boðar til ráðstefnu um islenzka þjóðveldið sunnudaginn 21. nóvember I stofu 301 í Árna- garði og hefst hún kl. 14. Fram- sögumenn verða Haraldur Ólafs- son lektor, og Sveinbjörn Rafns- son sagnfræðingur. Almennar umræður verða og taka þátt I þeim m.a. Björn Þor- steinsson prófessor, dr. Jakob Benediktsson, Jón Hnefill Aðal- steinsson, Sigurður Líndal prófessor og Sigurður Þórarins- son prófessor. — Bundið slitlag Framhald af bls. 27 gera nánast ekki neitt, eða taka lán til framkvæmdanna, innlent eða erlent. Innlent lán gæti verið í sama eða svipuðu formi og lög frá 16. maí 1975 kváðu á um, um happ- drættislán rikissjóðs fyrir hönd vegasjóðs vegna framkvæmda við Norðurveg og Austurveg. Erlend lán til framkvæmdanna er sjálfsagt auðvelt að fá, en ég bendi sérstaklega á þá leið að kannaðir verði möguleikar hjá Norræna fjárfestingarbankanum. Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að ræða frekar fjármögnunina. Ég vænti þess að sú nefnd, sem fær tiilögu þessa til meðferðar kanni þann þátt sérstaklega. STAÐAOKKAR MIÐAÐ VIÐ AÐRA Staða Íslands meðal annarra þjóða að því er varðar slitlag á vegi, er fyrir neðan allt, sem ég þekki. Á þingi F.Í.B. fyrir skömmu voru lagðar fram upplýs- ingar um framkvæmdir Færey- inga í vegagerð, samanborið við okkur. Sennilega eru Færeyingar teknir til vtmanburðar vegna þess að þeir . u fámennari en við og mætti ætla að geta þeirra væri einnig minni í Ijós kernur þó, að heildarafk' t okkar í lagningu varanlegs sli!la;;s síðustu 15 ár er um 2/3 af ársgetu Færéyinga og við ættum að lcggja á 800 km á ári miðað við þessa framdur okkar. Auk þessa haf-a Færeyingar full- komnari ferjur milli staða en við. Og enn aðrar þjóðir hafa byggt upp samgöngukerfi sitt með járn- brautarlestum, fyrir utan full- komna vegi Staða okkar er því heldur aum, svo ekki sé fastar kveðið að orði, er við berum okk- ur saman við aðra, og kominn tími til að snúa nú við blaðinu og hefja það átak f lagningu bundins slit- lags, sem við böfum svo lengt beð- 'ð eftir BREZKA sjónvarpið BBC vinnur nú að gerð kvikmyndar um sam- skipti og samvinnu flugumferðar- stjóra og flugmanna, manna, sem sjaidan hittast en vinna þó á sam- eiginlegum vettvangi. Hefur BBC fengið leyfi nokkurra flugfélaga um samvinnu við gerð myndar- innar og eru það Flugfélag Íslands, Aer Lingus, British Airways og Logan Air. Fyrir tveim vikum var fyrri hluti þáttarins um Flugfélag Flóamarkaður Ananda Marda ANANDA Marda sem er jóga- hreyfing, sem hér hefur nýlega haslað áer völl, efnir til flóamarkaðar í Ingólfscafé á laugardaginn og hefst hann klukkan 11 árdegis. Ágóði rennur til barnaheimilis, sem hreyfingin hyggst koma á fót og enn hefur ekki tekizt að fá húsnæði undir. Að sögn félagsmanna í jógahreyf- ingunni verður margt eigulegra muna á boðstólum á flóamarkaðinum, bæði nýir og gamlir. Trúnaðarmenn hjá ísal styðja aðgerðir í kjaramálum Á FUNDI trúnaðarmanna verka- lýðsfélaganna hjá Isal í Straums- vík var samþykkt eftirfarandi: Fundur trúnaðarmanna verka- lýðsfélaga sem samningsaðild hafa við Isal, haldinn miðviku- daginn 17. nóvember 1976, lýsir yfir fyllsta stuðningi og samstöðu við ályktun trúnaðarráðs Verka- mannafélagsins Hlífar, um að verkalýðssamtökin hefji aðgerðir og sóknarbaráttu fyrir bættum kjörum og noti til þess hverja þá aðferð sem lfkleg er til árangurs. — Dómkirkjan Framhald af bls. 2 basarinn öllum opinn. kaffiveit- ingarnar verða f salnum niðri f Tjarnarbúð, en basarinn f sölunum uppi. — Konurnar vænta þess, að þessi breyting mælist vel fyrir. Basarinn er stór og óvenju fjöl- breyttur. Að venju er mikið hægt að fá af prjónlesi og mörgu öðru, einnig kerti, pappísvörur og smávarning ýmiss konar. Þá verða á basarnum ódýrar teppa- mottur og sfðast en ekki sfst verður þar dálftill kökubasar. Allur ágóði af þessu, sem ann- arri fjáröflun Kirkjunefnd kpnawómkirkjunnar, fer nú til þeirra viðgerða og endurbóta, sem fyrirhugaðar eru á Dómkirkj- unni. Ég vænti þess því, að sem ílestir velunnarar Dóm- Islands myndaður um borð í þotu félagsins á leiðinni milli Glasgow og Kaupmannahafnar og sá siðari á fimmtudag á leiðinni frá Kefla- vík til Glasgow. Sömu flugliðar voru í báðum tilfellum við stjórn þotunnar, Henning Bjarnason flugstjóri, Garðar Steinarsson flugmaður og Ásgeir Magnússon flugvélstjóri. Einnig var kvik- myndað í Hveragerði og Garðabæ. Ráðgert er að frunisýna myndina í brezka sjónvarpinu í febrúar og væntanlega víðar eftir það. kirkjunnar leggi leið slna I Tjarnarbúð á sunnudaginn til að eiga þar ánægjulega stund I kaffi- salnum og geti jafnframt keypt á hagkvæmu verði nytsama hluti til eigin nota eða jóiagjafa. Kirkjunefnd kvenna hefur unnið ómetanlegt starf fyrir Dóm- kirkjuna á undanförnum árum. Það vil ég þakka, um leið og ég ítreka ósk mina um, að Reykvík- ingar sæki basarinn og kaffisöl- una og stuðli jafnframt að svo ágætu málefni, sem hér er á ferð. Þórir Stephensen. — Frönsk Framhald af bls. 2 Aðgöngumiðar að tónleikunum eru seldir við innganginn og kosta þeir 400 krónur, en hægt er að fá áskriftarskírteini, sem gilda á alla tónleikana og kosta þau 2 þúsund krónur. Það er tónleikanefnd Háskól- ans, sem gengst fyrir tónleika- haldi þessu, en nefndin mun jafn- framt gangast fyrir sýningum á óperukvikmyndum í samvinnu við félagið Germaníu. kvikmyndir þessar eru gerðar í Hamborgaróperunni undir stjórn Rolfs Liebermanns. Þær verða sýndar í Nýja bíói og er aðgangur að sýningunum ókeypis. Nýlega var sýnd óperan Brúðkaup Fígarós eftir Mozart, en eftir ára- mót er ætlunin að sýna Töfra- skyttuna eftir Carl Maria von Weber og Meistarasöngvarana frá Niirnberg eftir Wagner. — Sigalda Framhald af bls. 25 fengist í gegn á tímabili nema með skyndiverkföllum. Lélegt öryggiseftirlit. „öryggiseftirlit á vinnustað var aldrei nógu gott, og á öryggiseftirlit ríkisins þar stóran hlut að máli. Það fylgist mjög slælega með umbeðnum breytingum, en sem betur fer urðu engin alvarleg óhöpp á meðan framkvæmdum stóð, fyrir utan tvö umferðarslys." Aðspurðir um tröllslegar launasögur verkamanna í Sigöldu sögðu Hilmar og Sigurður, að launin hefðu ekki byggst á samningum þeim sem verkalýðsfélagið hefði gert, heldur miklu fremu á óeðlilegri bónusgreiðslu. 1 tímavinnu voru greitt sömu laun og f byggð, en að auki staðaruppbót sem var 1,3 klst. á dag. Vinnu- timinn hefði ávallt verið 12 klst. á dag og unnið aðra hverja helgi. Verst sögðu þeir að sam- skiptin v.ið Energoprojekt hefðu verið í fyrrahaust, en verktakinn ákvað að setja aldurstakmörk 18 — 20 ára á þá sem fengju vinnu í Sigöldu. Þessu hefði verkalýðsfélagið hnekkt fyrir dómi, en ekki hefði eingöngu verið við Júgóslavana að sakast, heldur einnig Vinnuveitendasamb- andið og verkalýðshreyfinguna, en að lokum hefðu allir sæst.! Fá fyrirtæki í heiminum hefðu þoiað þetta tap Milutin Kojic hefur verið ræðismaður Júgóslavfu á Islandi frá 1966, eða í 10 ár. Hann segir, að fá fyrirtæki i heiminum hefðu þolað það tap, sem Energoprojekt hefur orðið fyrir vegna framkvæmdanna f Sigöldu. „Það hugsa kannski margir á Islandi þannig, að Energoprojekt sé ríkisfyrirtæki og því skipti tap þess ekki öllu máli. Svo er ekki, það er eign fólksins, sem vinnur hjá fyrir- tækinu og er algjörlega óháð júgóslavneska ríkinu. En það sé stærð verksins sem hafi komið fyrirtækinu til góða f erfiðleik- unum í Sigöldu. Sigölduvirkjun er alls ekki stór framkvæmd í augum forráðamanna fyrir- tækisins. T.d. má benda á að Energoprojekt byggði 2200 MW virkjun í hinu fræga járnhliði Dóná, milli Júgóslavfu og Rúmeníu, en Sigölduvirkjun er ekki nema 150 MW.“ Kojic segir að Energoprojekt hafi mikinn áhuga á að semja um Hrauneyjarfossvirkjun og það sem fyrst, þ.e. áður en farið yrði með öll hin dýrmætu tæki úr landi, og raunar væri hægt að hefjast strax handa við virkj- un Hrauneyjarfoss. Stærsta dælustöð f N-Evrópu. „Vandamálin sem komu upp f Sigöldu, voru mörg, en eitt það stærsta var hinn mikli vatns- elgur í stöðvarhúsgrunninum. Vatnselgurinn reyndist vera þrisvar sinnum meiri en gert hafði verið ráð fyrir og af þeim sökum varð að leigja sérstakar flugvélar til að koma með dælu- búnað til landsins og við stöðvarhúsið er nú stærsta dælustöð í N-Evrópu. Það yrði ánægjulegt ef hægt yrði að halda áfram með verk hér á landi. Samskipti Islands og Júgóslavíu hafa alltaf verið góð. Júgóslavía studdi Island er fiskveiðilögsagan var færð út í 50 mílur og var eitt fyrsta land- ið, sem studdi útfærsluna í 200 mflur,“ sagði Kojic að lokum. — Fólksflótti Framhald af bls. 2 fram f júnfmánuð. Sá aðili, sem tók að sér umsjón með verkinu kom aðeins til þess að yfirlíta verkið á 2ja mánaða fresti og var uppbyggingarstarfið þvf að mestu stjórnlaust. Var verkinu skilað í september en þá hvfldi á frysti- húsinu 10 milljón króna skulda- hali, sem ekki hefur tekizt að létta af húsinu. Hvíla m.a. launa- kröfur á húsinu, sem gera það að verkum að ekki er unnt að hefja rekstur f því. Hins vegar hefur það verið vinnsluhæft síðan í ágúst. Þá skýrði Theodor frá því að í apríl hefði verið keyptur til Bíldudals og gerður út í sumar bátur. Var útgerð hans rekin með miklum myndarskap, en löndun fór fram i Bolungarvfk. Þegar uppbygging frystihússins var langt komin sfðla sumars var báturinn sendur í slipp til þess að gera hann sem beztan, þegar húsið tæki til starfa. Fjármagns- fyrirgreiðsla vegna endurbóta á bátnum hefur tafizt og er hann enn f Reykjavík, þar sem nú er raunar verið að leggja siðustu hönd á vinnu við hann. Er vonast til að hann geti verið kominn til Bfldudals eftir helgi. Þá er unnið að þvf hjá Byggðasjóði að leysa vandamál frystihússins og greiða úr þeirri 10 milljón króna skulda- flækju, sem hvílir á þvf. „Vonum við,“ sagði Theodor „að eftir næstu helgi geti hjólin hér farið að snúast á ný.“ Theodor Bjarnason sveitar- stjóri sagði að ef ekki rættist úr nú hið skjótasta ætti byggðarlagið á Bíldudal enga framtfð fyrir sér. Þegar hafa flutzt á brott 17% þeirra íbúa, sem voru á skrá þar hinn 1. desember f fyrra eða um 60 manns. Bitnar þessi fækkun illa á byggðarlaginu, því að þegar slfk skriða losnar, virðist ekkert stöðva fólk á flóttanum og það hleypur frá eignum sfnum og öllu. Því þarf — sagði Theodor ekki aðeins að kasta I uppbygg- inguna hér einhverju smælki — gera þarf stórátak og helzt þyrftu að verða gerðir út héðan 2 bátar eða lítill skuttogari. Gallinn er bara sá að slík skip liggja ekki á lausu í dag — sagði Theodor Bjarnason sveitarstjóri. — Beirút Framhald af bls. 1. Bardagarnir hófust hins vegar eftir að Saiqa reyndi að ná stöðvunum með vopnavaldi f stað þess að bfða eftir að DFLP afhenti þær. Sveitir Sýrlendinga hótuðu að blanda sér í leikinn. Komu sýrlenskar hersveitir til búðanna og vöruðu báða aðila við og hótuðu að bæla niður bardagann. PLO sendi skilaboð til Eliasar Sarkis, forseta Lfbanons, og yfir- manna sýrlenzku sveitanna og krafðist þess að Sýrlendingar hefðu sig úr búðunum. Var þannig komið á veg fyrir afskipti þeirra. — Spánn Framhafd af bls. 1. lagi við hið sterka hægri sinnaða Þjóðarsamband, sem hótaði að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna ef kosið yrði hreinni hlutfalls- kosningu til neðri deildarinnar. Sagði Þjóðarsambandið að slfkt myndi leysa upp þingið og veikja stjórnina. — Fasteignasala Framhald af bls. 48 Ástandið einkennist nú af mjög miklu framboði á fasteignum og meira en verið hefur um langan tima, þannig að fasteignasalar staðhæfa að sjaldan hafi verið eins auðvelt að finna góðar eignir fyrir hvern og einn og einmitt nú. Fasteignasalar telja að þetta ástand á markaðinum megi rekja til óvissu, svartsýni og peninga- leysis, þar sem útlánatak- markanir bankanna hafi vafalitið sitt að segja, enda þótt bankarnir hafi aldrei verið taldir stór liður i fjármögnun ibúðakaupa. „Mér finnst næstum þvf eins fyrir okkur að spá um ástandið og fyrir jarðfræðingana að spá um Kröflu,“ sagði einn fasteigna- salanna f viðtali við Morgun- blaðið, „það er mikil ólga undir niðri, það hrannast upp ibúðir hjá okkur og það hrannast upp vanda- mál hjá fólki út um allt sem þarf að fara að skipta um húsnæði, og ég held að fyrr en varir muni eitthvað gerast, stiflan bresta og hreyfing komast á málin." Afleiðing alls þéssa er sfðan sú, að I þeim tilfellum sem um sölur er að ræða á fasteignum hefur útborgun f þeim yfirleitt lækkað nokkuð og dreifist nú á lengri tlma en áður var reglan. Ibúða- verðið sjálft er aftur á móti all stöðugt en er engu að sfður hlut- fallslega lægra en oftast áður ef miðað er við brunabótamat eign- anna, eins og stundum er gert til viðmiðunar. Salan nú er aðallega í minni fbúðum og sfðan aftur I stórum eignum, jafnvel óvenju- lega-mikil og telja fasteignasalar að það megi rekja til þess að nú megi fá slíkar eignir á mjög hag- stæðum kjörum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.