Morgunblaðið - 02.12.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1976
meira i anda rómantíska skeiðsins
á nitjándu öld og minntu á löngu
horfna snillinga eins og Morphy
og Andersen. Oft var eins og
frumkvöðlar varnartaflmennsk-
unnar, Steinizt og Lasker, hefðu
aldrei komið við sögu í skáklist-
inni, þegar Tal stýrði liði sínu til
vinnings, með því að fórna hverj-
um manninum á.fætur öðrum.
Skákmeistarar nútimans stóðu
uppi ráðþrota gegn þessum ósköp-
um.“ Tal segir ljómandi skemmti-
lega frá hvernig hann undirbjó
sig fyrir sjálft einvígið og siðan
hugrenningar sínar meðan á þvf
stóð og undirbúningi sínum fyrir
hverja einstaka skák. Bókin er í
einu orði sagt, stórskemmtileg, og
jafnframt fróðleg hverjum áhuga-
manni í skák.
SKÁKVERIÐ, EFTIR
JtJRt AVERBAK OG
MIKAEL BEILIN.
Þetta er nýútkomin kennslubók
fyrir byrjendur, en þýðendur eru
þeir Bragi Kristjánsson, Bragi
Halldórsson og Ragnar Ragnars-
son. Bókin er tilkomin vegna
skorts á kennslubók í skák, en
hálfur annar áratugur er nú síðan
bók Friðriks og Ingvars kom síð-
ast út (1958). Guðmundur Arn-
lausson ritar formála og segir svo:
„Ég held að hver meðalgreindur
unglingur geti lært að tefla af
henni án annarrar tilsagnar, og
mér sýnist hún þannig úr garði
gerð, að ýmsir myndu eiga örðugt
með að slíta sig frá henni fyrr en
lokið er.“ Undir þetta má taka, en
bókin er jafnframt ákaflega hent-
ug fyrir leiðbeinendur í skák og
þá um leið alla þá sem kynnast
vilja nauðsynlegustu þekkingar-
atriðum skáklistarinnar.
skAldskapur A
SKÁLBORGÐIEFTIR
GUÐMUND ARN-
LAUGSSON
Þetta er bók, sem unnin er upp
úr greinum (greinaflokki) um
skákdæmi og tafllok, sem birtust i
tímaritinu Samtfðin á árunum
Framhald á bls. 31
Lausn á tafllokum:
•jjed ja jnjJBAS
8o jbqxq f, ‘zpm — ia8M S iXMa
•uindnifsiq jnuiiaAj paui jbjjui
jnjjAq 8o jBxg -f. ubqjs 8o ;a8M
C ‘QI« — ‘iM Z '£MM — +E3*a I
Þakkað
fyrir áheit
og gjafir
LÖNGUM hefur Islendingum ver-
ið hugleikað að heita á helgar
stofnanir sér til heilla. Þessa
virðist Neskirkja njóta í siaukn-
um mæli. Þótt ekki hafi verið f
hámælum haft hafa áheit og gjaf-
ir borizt vfðs vegar að af landinu
að undanförnu.
Nýverið kom t.d. trúfastur
kirkjugestur, kona, sem ekki vill
láta nafns sfns getið, með áheit að
upphæð eitt hundrað þúsund
krónur, og nú fyrir fáeinum dög-
um kom ungur maður og færði
málefni drottins tiund sína og
móður sinnar.
Fýrir hönd safnaðarins færi ég
gefendum alúðarþakkir fyrir
rausnarlegar gjafir sem og til
allra hinna mörgu, sem hafa sýnt
Neskirkju hlýhug og vinsemd á
undanförnum árum bæða með
peninga- og blómagjöfum jafnt
stórum sem smáum.
Guð blessi glaða gjafara.
Frank M. Halldórsson.
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480
2M«r0wnblabiti
15
íslensk tónlist inniheldur að vísu
áhrif víða aðkomin, en samt bland-
ast engum hugur um að tónlist sú
sem flutt er á þessum fjórum hljóm-
plötum er íslensk tónlist. Að reyna
að flokka þessar hljómplötur undir
eitthvert ákveðið tónlistarform er
lífsins ómögulegt, því tónlistin sem
þær innihalda er mun fjölbreyttari
en hvað þær eru margar.
Diabolus In Musica:
Hanastél á Jónsmessunótt
,,Hanastél“er öðru-
vísi. Léttdjössuð kammer
músík með ramm
íslensku ívafi. í sjálfu
sér skiptir ekki máli
hverju nafni tónlist Dia-
bolus in Musica er nefnd,
öllu máli skiptir hvað
eyrað nemur. Enginn
skyldi láta Hanastél fara
fram hjá sér, því Hanastél
á við öll tækifæri.
Spilverk Þjóðanna:
Götuskór.
Óhætt er að fyllyrða
að með „Götuskóm“ er
stigið eitt stærsta skref
sem tekið hefur verið af
íslensku tónlistarfólki um
áraraðir.
Götuskórersúhljómplata
sem hvað mest á eftir að
gleðja alla unnendur ís-
lenskrar tónlistar því
Götuskór er frumleg en
umfram allt einstaklega
skemmtileg.
Áætlaður útgáfudagur 2.
des. ’76.
Stuðmenn:
Tívolí.
Allir landsmenn
þekkja Stínu Stuð, Kalla,
Bimbó, Frímann Flug-
kappa, Ólínu' og Hveiti-
björn. Allir landsmenn
þekkja Stuðmenn. Tívolí
er frábær hljómplata sem
nú þegar hefur selst í 5000
eintökum, tala sem talar
sínu máli.
Jakob Magnússon:
Horft í Roðann.
Lengi hefur verið beð-
ið eftir þessari hljómplötu
Jakobs Magnússonar og
við miklu búist, enda
ástæða til. „Horft í Roð-
ann“ fer fram úr villt-
ustu vonum og er án efa
eitt merkasta framlag
einstaklings til íslenskrar
pop/rokk/jass tónlistar
fyrr og síðar.
Aætlaður útgáfudagur 8.
des.’76.
itðÍAQf hf
Hljómplötuútgáfan Laugavegí66