Morgunblaðið - 19.12.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976
3
Þjóðsaga gefur
út 3 ljóðabækur
Kviku Steingerðar Guðmundsdóttur, Haugfé
Snæbjarnar Jónssonar og Hrímbogar og
Haftórur Einars frá Skammadalshóli
BÓKAUTGÁFAN Þjóðsaga hefur sent á markaðinn þrjár nýjar ljóða-
bækur Þær eru Kvika eftir Steingerði Guðmundsdóttur. Haugfé eftir
Snæbjörn Jónsson og Hrfmbogar og haftórur eftir Einar H. Einarsson.
Kvika, ljóðabók Steingerðar
Guðmundsdóttur, hefur að geyma
50 ljóð. Bókin er 128 blaðsíður.
Höfundurinn hefur áður gefið út
þrjár ljóðabækur auk leikrita.
Haugfé, eldri kvæði og nýrri,
ljóðabók Snæbjarnar Jónssonar,
hefur einnig að geyma 50 ljóð.
Bókin er tileinkuð síra Þorvaldi
Jakobssyni. Höfundur skrifaði
formála fyrir bókinni. Áður hafa
komið út 6 ljóðabækur eftir
Snæbjörn. Haugfé er tæpar 100
blaðsíður að stær£
Hrímborgar og haftórur, ljóða-
bók Einars H. Einarssonar frá
Skammadalshóli, skiptist í fimm
kafla: Undir hvolfi loftsins.
Annir dags — dvalir kvölds, I
baráttu dags og ára. Látið fjúka
og Þá ungur ég var.
Hrímbogar og haftórur er
fyrsta Ijóðabók Einars H. Einars-
sonar. Bókin er 90 blaðsíður.
Allar ljóðabækurnar þrjár eru
prentaðar í Prentsmiðjunni Odda
h.f. og bundnar í Sveinabókband-
inu. Útlitsuppdrætti gerði
Hafsteinn Guðmundsson. for-
stjóri Þjóðsögu.
Samdi orðalykil að Gamla
testamentinu og afhenti
guðfræðideild HÍ að gjöf
NVLEGA afhenti Björn
Magnússon, fyrrverandi
prófessor, guðfræðideild Háskóla
tslands að gjöf orðalykil að
Gamla testamentinu innbundinn
i skinn af honum sjálfum. Að
sögn Jóns Sveinbjörnssonar
prófessors við guðfræðideild Hl,
er þetta geysiverðmæt og kær-
komin gjöf fyrir deildina, og
sagði hann að deildin væri ákaf-
lega þakklát Birni fyrir þessa
stórhöfðinglegu gjöf. Björn hefur
áður samið orðalykil að Nýja
testamentinu og afhenti hann
guðfræðideildinni einnig þann
lykil að gjöf.
Jón Sveinbjörnsson sagði að
Björn Magnússon hefði unnið að
orðatalningu Gamla testamentis-
ins mörg undanfarin ár og lægi
geysileg vinna að baki þessu
verki. Ritaði hann orðin fyrst
niður á laus blöð en siðan útbjó
hann handrit að orðalyklinum og
batt sjálfur inn i skinnband. Er
Björn Magnússon,
fyrrv. prófessor
orðalykillinn mikið rit að vöxtum
eða um 1100 blaðsíður.
Jónas Sveinbjörnsson sagði að
lokum, að I athugun væri að gefa
út orðalykilinn að Gamla testa-
mentinu, því hann væri ákaflega
gagnleg handbók fyrir þá sem
lesa bibliuna. Orðalykillinn að
Nýja testamentinu var gefinn út á
sinum tima.
SABCO
teppa-
hreinsarar.
5 geróir.
cttt Mi iioik
SABCO
hreinsilögur.
Varahiuta-
þjónusta.
SÉRVERZLUN MEÐ GÓLFTEPPI
Grensásvegi 13.
83577 — 83430 ^
símar
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
Þl ACGLÝSIR l'M ALLT
LAN’D ÞEGAR Þlv AIG-
LYSIR I MORGUNBLAÐINl