Morgunblaðið - 19.12.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976
7
í fangabúðum
SÍÐASTA sunnudag skild-
umst við við Jóhannes skír-
ara þar sem hann er fangi
Heródesar konungs í
Makkeruskastalanum. Nú
skulum við vitja hans á þeim
skuggalega stað og rifja upp
ömurlega sögu, sem
guðspjallið segir. Þargengur
yfir hann ógurleg raun.
Sonur eyðimerkurinnar,
barn hins ferska fjallalofts og
frelsis, þjáist í daunillum,
loftlausum fangaklefa i fjötr-
um. Þar brotnar þrek hins
sterka manns um stund. Þá
sorgarsögu kunnum við af
mörgum öðrum sannleiks-
vottum að segja, sem fjötrað-
ir þjáðust i fangaklefum harð-
stjóranna.
Af öllum mætti sinnar
máttugu sálar hafði
Jóhannes trúað því að hinar
gömlu en sívakandi
messíasarvonir þjóðarinnar
væru að rætast, frelsari
mannanna stæði nú þegar
mitt á meðal þeirra. Af
heilögum eldmóði hafði hann
lýst yfir þvi, að það væri sitt
hrós, sinn heiður að vera
auðmjúkur fyrirrennari hans,
ekki verðugur þess að leysa
skóþveng hans en trúað þó
fyrir því vegsamlega hlut-
verki að greiða honum veg
og nema burt hvassasta
grjótið úr götu hans.
En nú eru orðin ömurleg
veðrabirgði. í fúlum fanga-
klefa Heródesar virðist
viðnámsþróttur hins þrek-
mikla manns hafa brotnað og
nistandi efi um það, sem
hann hafði trúað á sem sitt
stóra hlutverk, hafði læðzt að
sálu hans. Hann sendir
nokkra lærisveina sína, sem
hann náði til, á fund Jesú
með spurn, sem brann i sálu
hans: „Ert þú sál, sem koma
á, eða eigum vér að vænta
annars?"
Sú eldraun hefur yfir
marga aðra sannleiksvotta
gengið i myrkrastofum
harðstjóranna, að þrekið
brotnaði, þeir fóru að efa
sjálft köllunarverkið og
afneita því, sem þeir voru
sannfærðir um meðan þeim
var að öllu sjálfrátt. Sú
sorgarsaga er gömul og við
þekkjum hana enn á síðustu
árum. í eldraun fangaklefans
fóru menn að játa það, sem
þeir hefðu aldrei goldið
jákvæði áður, og jafnvel að
játa á sig sakir, sem þeir
höfðu aldrei verið sekir um.
Píslartólin geta lamað hinn
sterkasta vilja. Glæpsamlega
notuð deyfilyf og innilokun
heilbirgðra manna i geð-
veikrahælum geta brjálað
dómgreindina. Dæmin eru
bæði gömul og ný. Galdra-
brennurnar geyma margar
skuggalegar sögur. Pólitískir
valdhafar hefa drýgt og
drýgja margan slíkan dökkan
glæp. Og i nafni kristni og
kirkju hafa mörg slík voða-
verk verið unnin.
Þegar ein af furðulegustu
persónum mannkynssögunn-
ar, mærin frá Orleans, ennþá
barn að aldri, kannaði djúp
mannlegra þjáninga, ein á
valdi ruddalegra fjandmanna
i skuggalega kastalanum í
Bretagne, bugaðist þrek
hennar um sinn og hún fór
að efa köllunarverk sitt og
raunveruleik hinna himnesku
radda, sem hún hafði heyrt.
Raunar náði hún aftur valdi á
sjálfri sér, dó eins og hetja og
hrópaði hárri röddu: JESÚS!
meðan hún hneigði deyjandi
höfði í eldslogunum. En í
kvölum fangaklefans hafði
þrek hennar brostið um sinn.
„Ert þú sá, sem koma á,
eða eigum vér að vænta
annars?" Þessa sáru spurn
bera nokkrir lærisveina
JóhannesarJesú, og hann
sendir þá til Skírarans aftur
með svar, sem hann vonar
að lækni efasemdir hans, svo
að stormasálin finni frið.
En þá átti Jóhannes
skammt eftir ólifað. Þá lauk
þessi stórbrotni maður lifi
sínu, fyrir böðulshendi eins
og fjölmargir sannleiksvottar
fyrr og siðar.
Þessa manns lætur kirkjan
okkur minnast þegar líður að
jólum. Hann var fyrirrennar-
inn, einn þeirra mörgu i ald-
anna rás sem sáu á undan
öðrum bjarmann af nýjum
degi. Allir dóu þeir áður en
dagurinn reis í fullum Ijóma
Við minnumst Jóhannesar,
en við hugsum þó fyrst og
fremst um hann, sem
aðventan boðar að nú sé i
'nánd. Hann er sólin, sem
allar stjörnur lýsir. En á þess-
um sunnudegi erum við
einnig minnt á Jóhannes og
marga aðra, sem trúir allt til
dauða greiddu sannleikanum
veg.
Blessaður sé morgunroð-
inn, sem boðar að brátt sé
sólarvon. Morgunroðinn er
ekki sólin sjálf en hann er
blik af hennar blessaða Ijósi.
LAPPONIA skartgripir frá Finnlandi
KJARTAN ÁSMUNDSSON gullsmiður — Aðalstræti 8.
B3
Z 325
Electrolux
ryksugan hefur
ir 850 watta mótor,
if Snúruvindu,
if Rykstillir
o.fl. o.fl. kosti
VERÐ AÐEINS
KR 55.400 —
V
Vorumarkaðurinn hí.
Ármúla 1A,
húsg.deild s. 86-112. Matvörudeild s. 86-111,
vefnaúarvörud. s. 86-113,
heimilistækjadejld s. 81680.
/
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum:
Verðtryggð spariskirteini rikissjóðs
1966 1 flokkur Kaupgengi pr. kr. 100.— 1544 76
1966 2 flokkur 1450 67
1 967 1 flokkur 1363 74
1967 2 flokkur 1355 16
1968 1 flokkur 1 187 68
1968 2 flokkur 1117 57
1969 1. flokkur 835 72
1970 1 flokkur 768 76
19 70 2. flokkur 567 61
1971 1. flokkur 538 1 7
1972 1 flokkur 471 96
1972 2 flokkur 408 70
1973 1 flokkurA 31 7 70
1973 2 flokkur 293 70
1974 1. flokkur 203 96
1975 1. flokkur 163 59
1 975 2 flokkur 1 24 85
Happdrættisskuldabréf rikissjóðs
1972 A Kaupgengi pr. kr. 100.— 369 72 (10% afföll)
1974 E 169 74 (10% afföll)
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
Verðtryggð spariskírteini rikissjóðs:
Sólugengi pr. kr. 100.—
1965 1 flokkur 1928 44
1976 2 flokkur 100 00
Happdrættisskuldabréf rikissjóðs:
Sólugengi pr. kr. 100.—
1974 D 244.14 (8.4% afföll)
Verðskuldabréf:
3ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (36% afföll)
5 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum (45% afföll)
PJÁnPEfTinCARPÉIflC ÍflAflÐS Hft
Verðbréfamarkaður
Lækjargötu 12, R (Iðnaðarbankahúsinu)
Sími20580
Opið frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.
KONICA
Áfast leifturljós
Sjálfvirk á hraða
Sjálfvirk á Ijósop
Sjálfvirk á flash
Öll þægindi í einni lítilli vél