Morgunblaðið - 19.12.1976, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 197«=
19
FRÁ LEIBBEININGASTÖfl HÚSMÆBRA
Innkaup ognýtmg
á nautakjöti
Á jólunum hafa flestir áhuga
á að gera sér dagamun í matar-
æði. Matarinnkaupin verða um-
fangsmeiri, enda er úrvalið í
matvöruverslunum yfirleitt
mjög fjölbreytt dagana fyrir
jólin.
Hér á Islandi kaupum við
helst lambakjöt, enda hefur
það verið fremur ódýrt miðað
við annað kjöt. En nú er svo
komið, að nautakjöt er í mörg-
um tilvikum ódýrara en lamba-
kjöt og þvi hagkvæmt fyrir
neytendur að matbúa oftar
rétti úr nautakjöti en gert hef-
ur verið undanfarna áratugi.
Keutakjöt hefur fram að þessu
verhi, talinn fremur dýr varn-
ingur neytendur einungis
hafa keypt þegar eitthvað sér-
stakt stendur til. Neytendur
hafa yfirleitt litla reynslu i þvi
að matbúa nautakjöt, enda hef-
ur í matvöruverslunum verið
talið að best sé að selja nauta-
kjötið sem hakk, skorið i fer-
strenda bita í smásteik (gull-
asch) eða sem buffsneiðar.
En úr nautakjöti er unnt að
matreiða margvislega rétti, og
verða hér nefnd nokkur dæmi.
Nautabóg og bringu mætti t.d.
nota i súpu. Best er að sjóða
ýmiskonar grænmeti í súpunni,
helst þarf að vera i henni selju-
rót, hún gefur svo góðan keim.
Kjötið mætti bera fram með
súpunni ásamt kartöflum og
piparrótarsósu. Vonandi verður
piparrót á boðstólum fyrir jól-
in. Einnig mætti salta nautabóg
eða bringu með því að láta það
liggja I 5—6 daga í saltlegi sem
búinn er til úr 200 g af salti og
25 g af sykri fyrir hvern lítra
vatns. Kjötið er þá einungis
léttsaltað en þykir herramanns-
matur víða erlendis og er borið
fram með hvítkáli í jafningi.
Hækil og bóglegg mætti skera
í 3 sm þykkar sneiðar og mat-
búa úr þeim rétt sem erlendis
er kallaður „osso buco“. Sneið-
unum er velt upp úr hveiti og
steiktar á pönnu, siðan soðnar í
potti þar til kjötið er meyrt um
llÁ — 2 klst. Alls konar græn-
meti er látið í soðið eins og t.d.
laukur og niðursoðnir tómatar,
og það þykir ljúffengt að láta
hvítvín eða eplasafa f soðið.
Einnig mætti steikja nauta-
steik í ofni I stað þess að skera
ætið kjötið frá hryggbeinunum
og nota það í buff. Nautasteik á
ekki að steikja nema 30 — 40
mín. fyrir hvert kg eftir að lok-
ið er við að brúna það i ofnin-
um, en lambakjöt hins vegar
40—50 min. Nautasteik verður
hins vegar ekki ljúffeng nema
kjötið hafi hangið um það bil í
þrjár vikur eftir að slátrað var.
Kjötið þarf að sjálfsögðu að
hanga í kæliklefa þar sem er
0—4° C. Ef kjötið fær ekki að
hanga í hæfilegan tima verður
steikin og buffið seigt.
Að sjálfsögðu er þá kjötið
ekki lengur með ferskum rauð-
um lit, heldur er það dökkt og
matt og þvi ekki eins fallegt að
sjá, og verða neytendur að gera
sér grein fyrir því. Menn hafa
að visu vanist því, að kindakjöt-
ið sé rautt og fallegt, þegar það
er best og hafa menn því til-
hneigingu til að álíta, að þannig
eigi nautakjöt einnig að líta út,
en svo er ekki.
Gæði nautakjöts eru undir
ýmsum öðrum atriðum komin,
meðal annars aldri skepnunnar
og kyni hennar. Þótt flestum sé
illa við fituna skal ekki kaupa
kjöt sem er algjörlega án fitu,
þvi það er annaðhvort af göml-
um skepnum og þvi seigt eða þá
af alltof ungum skepnum og þá
er kjötið vatnsmikið og bragð-
laust. Hvort kjötið er af ungri
eða gamalli skepnu má best sjá
með því að skoða liðamótin. A
ungri skepnu eru liðamótin að-
eins rök, brjóskkennd og blá-
leit, en á gamalli skepnu er allt
brjóskið horfið og liðamótin
þurr og grágul á lit.
Hér á landi metur kjötmats-
maður allt kjöt eftir að slátrað
er og er merkimiði festur við
hvern skroklc sem gefur til
kynna íegundarheiti kjötsins
og gæðaflokksmerki, en þegar
kjötið er keypt sundurlimað I
verslunum er erfitt að sjá i
hvaða gæðaflokki það er.
Þegar kjöt er keypt i neyt-
endaumbúðum úr kæliborði
eða úr frystikistu þyrftu að
vera greinilegar upplýsingar
um hvers konar kjöt er í pakk-
anum. Ennfremur þyrfti neyt-
andinn að fá vitneskju um kiló-
verð kjötsins, þyngd þess og
verð, einnig væri æskilegt að
getið væri um pökkunardag
ekki sist ef um kjöthakk er að
ræða sem liggur i kæliborði.
Kjöthakk má t.d. ekki liggja
lengur en i 12 klst. í kæliborði,
en það er mjög viðkvæmur
sölusvarningur, sem skemmist
fljótt.
S.H.
Skór fyrir
ungu stúlkuna
Frúarskór
mjúkt leður D breidd.
Verð kr. 4020 -
Litur rauð/brúnt.
Verð 5730.-
Fóðruð stígvél
með góðum gúmmisóla.
Verð 8290,-
Verð 5470.
Stærðir 36—40. Laugavegi 60, sími 21270.
Það kann að virðast erfitt
að velja göða bók í öllu
jólaflóðinu, en er það svo?
FRIDÞJÓFUR
NANSE^
ÍS
ISAFOtD
Islandsferðin 1907
För Friðriks konungs áttunda
og ríkisþingmanna til Færeyja
og íslands. Tveir danskir blaða
menn, Svenn Poulsen og Holger
Rosenberg, fylgdust með kon-
ungi og skrifuðu bók þessa sem
er um 330 bls og i henni eru
um 200 myndir.
Harpa minninganna
Minningar Árna Thorsteinsson-
ar tónskálds sem Ingólfur
Kristjánsson færði i letur í ævi-
sögu þessa aldna Reykvikings
blandast þróun fæðingarborgar
hans og afskipti hans af menn-
ingarmálum og þá sérstaklega
tónlistamálum landsmanna
Látleysi og góðlátleg kimni ein-
kenna frásögnina. sem iðar af lífi
og glaðværð í bókinni eru um
80 myndir af einstaklingum og
hópum. en Árni starfaði um ára-
bil sem Ijósmyndari
I ís og myrkri
eftir Friðþjóf Nansen í ferða
bók þessari segir frá frækilegasta
þætti Fram-leiðangursins norska
{1893—96) þegar Friðþjófur
Nansen fór við annan'mann frá
leiðangursskipinu, og gerði til-
raun til að komast á norður-
heimskautið en sneri siðan suður
á bóginn og komst eftir fimmtán
manaða svaðilför og mannraunir
til Franz-Jósefslands Bókin er
yfir 300 bls með fjölmörgum
myndum
Þetta eru þrjár bækur sem hafa verið ófáanlegar um langt árabil, en
eru nú til í mjög takmörkuðu upplagi.
Nú, það er ekki erfitt að
velja góða bók,
Isafoldarbók er góð bók.
»#*#****************$***^