Morgunblaðið - 19.12.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.12.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976 31 Jólarós (Helleborus niger) 1 gamalli franskri helgisögn segir svo: Þegar vitringarnir þrír voru á leið til Betlehem, slóst í för með þeim ung bónda- stúlka sem hét Madelon og fylgdist með þeim að jötu jóla- barnsins. En þegar þeir báru fram dýrmætar gjafir sínar varð hún mjög hrygg þvi hún hafði ekkert fram að færa. Þá birtast henni engill sem tók í hönd hennar og leiddi hana út úr fjárhúsinu — og þar sem vængir hans snertu jörðina spruttu upp hin fegurstu blóm, fannhvít, þó á miðjum vetri væri, myrkt og kalt. Nú gat einnig unga stúlkan, Madelon, fært Jesúbarninu gjöf á þessari helgu nótt — vetrarbíómið bjarta: JÓLARÓSINA. Sú einkennilega náttúra þess- arar jurtar að blómstra á miðj- um vetri — um jólaleytið — á auðvitað sína eðlilegu skýringu. I heimkynnum hennar — kalk- steinsfjöllum Suðaustur- Evrópu — eru sumrin svo heit og þurr, að jurtin gerir ekki meira en rétt að tóra og hefur engan þrótt til þess að blómstra. Þegar svo haustar að með regn og svala daga færist hún öll í aukana og um jól hefur hún safnað svo miklum kröftum að blómgunin getur hafist. Hér á norðurslóðum verður þó oftast að hjálpa henni til með því að taka hana í hús, því öllu má ofbjóða og hér er heldur mikið af þvi góð(a — regni og kulda — jafnvel fyrir jólarósina. En þessi einkennilegi blóm- gunartími jurtarinnar hefur auðvitað ýtt undir hugarflug mannarTrú og hjátrú hafa ofið um hana sögur og sagnir í tuga- tali, öldum saman. Það mun meira að segja vera hægt að rekja slóð hennar inn í sálma- bókina okkar. Gamalt Máriu- vers frá 14. eða 15 öld. „Es ist ein Ros’ etsprungen" á sér þessa sögu: Munkur nokkur var sendur i erindum fyrir klaustur sitt til furstahallar i fjallahér- aði einu. I hallargarðinum færði ung stúlka honum nýút- sprungna jólarós og á heimleið til klaustursins um vetrarkald- an skóginn með blómið i hendi sér, samdi munkurinn ljóð og iag sem í útsetningu hins mikla kirkjutónskálds M. Prætoriusar hefur orðið vinsæll jólasálmur á Norðurlöndum og sem við þekkjum hér við sálm séra Matthíasar: Það aldin út er sprungið og ilmar sólu mót... Jólarósin er fræg lækningajurt og ótal sögur gamlar og nýjar eru sagðar af krafti hennar. Hún er t.d. stundum nefnd „hnerrarót" vegna þess að þurrkuð og mulin rótin var not- uð til þess að framkalla hnerra — en það að hnerra var talið afskaplega hollt því það hreins- aði heilann! Jurtin var lika forðum daga mikið notuð við geðveiki, samanber hið gamla latneska orðatiltæki: „Elleboro indigef' sem má þýða eitthvað á þessa leið: Honum (henni) veitti ekki af jólarósarrót eða með öðrum orðum: Sá (sú) er nú laglega vitlaus! Þetta kemur líka vel heim við það að jurtin var mikið notuð sem „fuga daemonum" (fjandafæla) þ.e.a.s. til þess að reka út illa anda eða til þess að forðast ásókn slíkra ára. Þá var jurtin einnig notuð til að lækna vatnssýka (bjúg) enda inniheldur hún sterk efni sem verka á hjartað. Hún getur þvi haft hættulegar eiturverkanir sé hún etin eins og raunar nafn- ið Helleborus bendir til, — en það er samsett úr grísku orðun- um: Hellein = að drepa og boro = matur eða fæða. Nafnið JÓLARÓS er oft rang- lega notað um aðra plöntu: Euphorbia eða Poinsettia sem ber krans eða stjörnu af rauð- um háblöðum. Hún heitir hins- vegar JÓLASTJARNA, alþekkt stofujurt og hafa henni áður verið gerð skil í þessum þátt- um. Ó.B.G. Góðir lesendur GLEÐILEG JÓL. Carter verður sjálfbjarga og ósnobbaður forseti New York 18. des. Ntb. JIMMY Carter hefur ekki hugsað sér að breyta 1 neinu klæðaburði sfnum þegar hann tekur við emb- ætti forseta 1 næsta mánuði og hann ætlar lfka að bera töskurnar sfnar sjálfur. Fólk á að fá á til- finninguna og trúa þvf að það hafi kosið sér ósnobbaðan og sjálfbjarga mann til að gegna æðsta embætti bandarfsku þjóðarinnar. Þessar upplýsingar voru gefnar í viðtali við Carter er „dýrasti blaðamaður heims“, Barbara Walters, hafði viðtal við Carter. Spurði hún Carter ýmissa þeirra spurninga sem óhugsandi hefði verið að aðrir hefðu borið fram, að sögn NTB-fréttastofunnar. Hún spurði meðal annars hvort hjónin Rosalynn og Jimmy Carter svæfu i sama rúmi og fékk játandi svar við þvi. Töluverð sýndar- mennska þótti einkenna viðtalið, en marir hafa gagnrýnt Barböru Walters upp á sikastið og þótt sem hún væri farin að ganga feti of langt í nærgöngulum spurningum um einkamál fólks. Auglýsing um góða islenska tónlist Lengi hefur verið beð- ið eftir þessari hljómplötu Jakobs Magnússonar og við miklu búist, enda ástæða til. „Horft í Roð- ann“ fer fram úr villt- ustu vonum og er án efa eitt merkasta framlag einstaklings til íslenskrar pop/rokk/jass tónlistar fyrr og síðar. sfcsÍAorhf Hljómplötuútgðfan Laugavegi66

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.