Morgunblaðið - 19.12.1976, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 19.12.1976, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976 37 — Gárur Framhald af bls. 21 ómannlega velferöarþjóðfélag- ið, þar sem kerfið á að sjá oper- sónulega um manneskjurnar. Aldursmörkin eru sifellt að færast aftar. Við á íslandi mun- um vera komin með einn hæsta meðalaldur í veröldinni, rúm 76 ár fyrir konur og yfir 70 fyrir karla. Við teljum eftirsóknar- vert að lifa lengi. En jafnframt er i samfélaginu gert ráð fyrir þvi að eftir vissan aldur eigi manneskjan ekki að taka þátt í lifinu i kring um sig nema i þykjustunni, eins og krakkarn- ir segja í leik. Þetta aldurstak- mark er alltaf verið að færa niður (Nýlega sá ég i skýrslu sálfræðings að hann hóf könn- un á öldruðu fólki um fimmt- ugt). I sívaxandi mæli er gert ráð fyrir að eftir vissan aldur eigi fólk bara að hafa það gott einhvers staðar afsíðis. Eftir 67 ára aldur eða sjötugt er reiknað með að áhuginn á öllu því, sem gert var fram að þeim tíma, slökkni snarlega. Nú þráir at- hafnasami gamli maðurinn það eitt að fá að gera ekki neitt, og gamla konan með lifsþróttinn og kjarkinn vilji ekki lengur sinna daglegu amstri. Báðum finnist bezt að fá að drepa tím- ann. Lifum við þá til að drepa timann? Það sýnist gárunganum, sem lagfærði svo meinlega gamla Irska máltækið um mannkæv- ina, sem vitnað var í hér í upp- hafi og hafði það svona: Tuttugu ár að vaxa, 20 ár i hvíldarstöðu, 20 ár í afturför og 20 ár, þegar engu máli skiptir hvort maður er hér eða ekki. — Dómkirkjan Framhald af bls. Í7. styrk til þessarar viðgerðar a Dómkirkjunni. Saga Dómkirkjunnar er nán- ast samofin sögu Islands s.l. 180 ár. Flestir stærri atburðir sög- unnar hafa komið það við með einhverju móti, hvort heldur hefur verið I gleði eða sorg. Sérstaklega hefur Dómkirkjan þó átt sterk ítök í Reykvíking- um. Það hafa þeir oft sýnt, og við treystum því, að svo verði enn. Þess vegna leitum við óhræddir til þeirra eftir hjálp. Þeam, sem heimilisfang eiga innan sóknarmarkanna sendum við því bréf þetta og giróseðil óútfylltan, hvað snertir fjár- upphæð og sendanda. Við hon- um mun tekið útfylltum ásamt framlagi þeirra, er þetta vilja styðja, í hvaða banka eða póst- afgreiðslu sem er. Þeir, sem kynnu að vilja leggja hér lið, en vildu siður nota giróseðilinn, geta komið framlögum sínum til dóm- kirkjuprestanna, sr. Hjalta Guðmundssonar og sr. Þóris Stephensen eða dómkirkju- varðarins, Jóhannesar B. Magnússonar. Við minnum á, að allar gjafir til Dómkirkjunnar er heimilt að telja til frádráttar á skatt- framtali. Reykvíkingar, sameinumst um að gera okkar gömlu, ást- sælu Dómkirkju sem vegleg- asta. Undir bréfið skrifa Dóm- kirkjuprestarnir sr. Hjalti Guð- mundsson og sr. Þórir Stephen- sen. — Form. sóknarnefndar, Þór Magnússon, og form. fram- kvn. söfnunarinnar Erling Aspelund. MS MS MS MS SVf MY Adnlst AUGL V^J/TEIKr ISIDAM ræti 6 simi MS ÝSINGA- SIISTOFA ÓTA 25810 Kínverskar 3 stærðir. Verð frá kr. 1.350.— .... .j........ UF og UFSVIDHORF JÓN AUÐUNS Fjórtán þættir um fiskimenn og farmenn, skráðir af börnum þeirra. Þeir voru kjarnakarlar, þessirskipstjórar,allir þjóðkunnir menn, virtir og dáðir fyrir kraft og dugnað, farsælir í störfum og urðu flestir þjóðsagnapersónur þegar í lifanda lífi. - Ósvikin og saltmenguð sjómannabók. Séra Jón Auðuns, frjálshyggju- maður í trúmálum, orðsnjall í ræðu sem riti, rekur hér æviþráð sinn.Hann segir frá uppvaxtar- og námsárum, afstöðu til guðfræði- kenninga, kynnum af skáldumog menntamönnum og öðru stór- brotnu fólki og hversdagsmann- eskjum, sem mótuðu lífsviðhorf hans og skoðanir. WmSrnmmim. 1 WmmíBm f h, til - * - ' : ' " ..■■■■: E4ÐIR/MINN SKIPSTJÓRSNN l>ÓKOni)LK HÚSFREYJAN A SANDI Fagur óður um móðurást og makalausa umhyggju, gagnmerk saga stórbrotinnar og andlega sterkrar og mikilhæfrar alþýðu- konu, saga mikilla andstæðna og harðrar en heillandi lífsbaráttu, þar sem togaðist á skáldskapurog veruleiki, því Guðrún Oddsdóttir var eiginkona skáldbóndans Guð- mundar á Sandi. GLITRAR GULLIÐ hwMiIom uoiritkórfr iaqui or liio *v*nry»«oíM!Hn» «8 Iniúni l«rn »kr-ln«) InunionA. Opinskáar og tæpitungulausar sögur úrfórumævintýramannsins og frásagnarsnillingsins Sigurðar Haralz, mannsins sem skrifaði Emigranta og Lassaróna. Fjöldi landskunnra manna kemur við sögu, m.a. Brandur í Ríkinu, Sigurður í Tóbakinu, Þorgrímur í Laugarnesi og þúsundþjalasmið- urinn lngvar fsdal. Jóhannes fer hér höndum um sjóferðaminningar Ólafs Tómas- sonar stýrimanns frá þeirri kvöld- stund að hann fer barn að aldri í sína fyrstu sjóferð á Mótor Hans og til þeirrar morgunstundar að þýzkur kafbátur sökkti Dettifossi undir honum í lok síðari heims- styrjaldar. - Hér er listileg frásögn og skráð af snilld. Einn allra mesti fjallagarpur og ævintýramaður heims segir frá mannraunum og hættum. Bók hans er skrifuð af geislandi fjöri og leiftrandi lífsgleði og um alla frásögnina leikur hugljúfur og heillandi ævintýrablær, tær og ferskur eins og fjallaloftið. - Þetta er kjörbók allra, sem unna tjall- göngum og ferðalögum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.