Morgunblaðið - 19.12.1976, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19.DESEMBER 1976
39
Forn frægðarsetur
Níu þættir um forn höfuðból og kirkju-
staði eftir síra Agúst Sigurðsson
Ný ljóðabók:
Leyndarmál
steinsins
SKAKPRENT hefur sent frá sér
ljóðabókina „Leyndarmál steins-
ins,“ eftir Hafstein Stefánsson.
Hafsteinn Stefánsson er frá
Högnastöðum við Eskifjörð, og
fluttist ungur til Vestmannaeyja.
Hann sat í bæjarstjórn Vest-
mannaeyja frá 1970—1974 og tók
mikinn þátt i félagsmálum
sjómanna I Eyjum.
Leyndarmál steinsins er alls
176 bls. að stærð og er I vönduðu
skinnbandi. Helgi Sæmundsson
sá um útgáfuna og Guðjón Ólafs-
son hefur myndskreytt. Bókin er
prentuð og sett hjá Skákprenti,
en Bókbindarinn hefur bundið
bókina. ____
Firmakeppni
TR að ljúka
FIRMAKEPPNI Taflfélags
Reykjavfkur lýkur um helgina. I
dag verður teflt ( undanúrslitum í
skákheimilinu við Grensásveg og
hefst keppnin klukkan 14. Urslit-
in fara fram á sama stað n.k.
mánudagskvöld klukkan 20.
Alls tóku 256 firmu þátt i
keppninni, og eru 45 eftir. Meðal
keppenda eru Friðrik Ólafsson og
Guðmundur Sigurjónsson, og eru
þeir að sjálfsögðu enn með i
keppninni. Firmakeppnin mun
hjálpa TR nokkuð I fjárhagserfið-
leikum félagsins.
— Skattalaga-
frumvarp
Framhald af bls. 1.
kerfi, þar sem ákveðnir lið-
sér laun og tap af slikum
rekstri fæst nú ekki lengur
til frádráttar launatekjum.
0 Þá er framkvæmd skatt-
lagningarinnar öll styrkt.
Gert er ráð fyrir að ríkis-
skattanefnd verði nú skip-
uð mönnum, sem hafa það
að aðalstarfi og verður hún
sem eins konar dómstóll f
skattamálum. Viðurlög við
skattsvikum eru verulega
þyngd.
Aðdragandi að gerð
þessa frumvarps er orðinn
alllangur — að því er segir
í greinargerð með
frumvarpinu. Gerð þess
hófst upphaflega að til-
hlutan Magnúsar Jóns-
sonar fjármálaráðherra,
en sfðan lét Halldór E.
Sigurðsson halda verkinu
áfram. Matthías Á. Mathie-
sen leggur nú frumvarpið
fram.
Eins og áður segir er ein megin-
breytingin í skattlagningu hjóna
sú að framtöldum tekjum er nú
skipt niður á milli þeirra til
helminga við útreikning á skattin-
um. I stað 50% frádráttarins, sem
nú er í gildi og kona hefur haft
vegna útivinnu sinnar, kemur
ákvæði sem segir að vinni þau
sameiginlega meira en 12 mánuði
á ári, skuli þau fá svokallaðan
heimilisafslátt. Skiptir ekki leng-
ur máli — samkvæmt frumvarp-
inu, hvort hjónanna vinnur úti,
kyngreining er ekki lengur fyrir
hendi. Auk þess fólks sem vinnur
úti meira en 12 mánuði og á börn,
fær það sérstakan barnabótaauka
vegna kostnaðar við að hafa börn
á barnaheimili.
Meginhluti frádráttarkerfisins,
sem gilt hefur verið, er felldur
niður. Er t.d. hætt við að reikna
mönnum eigin húsaleigu af
íbúðarhúsnæði og gjöld vegna
húsnæðisins eru jafnframt felld
niður. Viðhaldskostnaður af
ibúðarhúsnæði er þó í frumvarp-
inu í mynd viðhaldsvinnuafslátt-
ar. I stað frádráttarkerfisins kem-
ur afsláttarkerfi frá skatti, er
hann hefur verið reiknaður út. I
63. gr. frumvarpsins eru þessir
afslættir tilgreindir. Launaaf-
sláttur er t.d. 2% af tekjum
manna. Heimilisafsláttur er 60
þúsund krónur hjá hjónum sam-
eiginlega enda hafi þau vinnu
sem nemur 24 mánuðum á tekju-
ári, en hver mánuður er þar met-
inn á 5 þúsund krónur. Sama
heimilisafslátt hefur einstætt for-
eldri með barn undir 16 ára aldri.
Vaxtaafsláttur kemur í stað
vaxtafrádráttar og eru vaxtagjöld
framteljanda þá umreiknuð í
þennan afslátt, þannig að 25%
eða fjórðungur vaxtaútgjalda.
Þetta veldur því að vextir lenda
því ávallt I sama skattþrepi og
vega því jafnmikið hjá hátekju-
mönnum sem lágtekjumönnum.
Viðhaldsvinnuafsláttur er einnig
fjórðungur útlagðs viðhaldskostn-
aðar ibúðarhúsnæðis, en þar er
sett hámark 5 þúsund fyrir ein-
stakling, en 10 þúsund krónur
fyrir hjón. Um söluhagnað
íbúðarhúsnæðis gilda þær reglur
að hver einstaklingur má eiga 3
íbúðir og er söluhagnaður þeirra
ekki skattiagður, hafi viðkomandi
átt eignirnar lengur en 5 ár.
Ibúðarhúsnæði, sem er umfram 3
ibúðir, eða söluhagnaður af því
verða skattlögð sem söluhagnaður
í atvinnurekstri.
1 eigin atvinnurekstri verða
menn samkvæmt frumvarpinu að
reikna sér tekjur og færa laun til
gjalda i atvinnurekstrinum og til
tekna sem launatekjur. Tap á
atvinnurekstri fæst ekki til frá-
dráttar launatekjum og þvi þurfa
menn að reikna sér laun og sé tap
á atvinnurekstrinum fæst það
ekki til frádráttar öðrum launum.
Menn koma þvf til með að greiða
skatt samkvæmt frumvarpinu,
þrátt fyrir taprekstur. Tapið fæst
hins vegar yfirfært til næsta árs
eða þar til það er uppurið á móti
atvinnurekstrartekjum.
Reglur um meðferð fyrninga
breytast verulega og er það kerfi,
sem frumvarpið gerir ráð fyrir,
mun einfaldara en það kerfi, sem
í gildi er. Meginbreytingin er að
fyrningar af lausafé manna eru
reiknaðar í einu lagi af bókfærðu
verði, þ.e.a.s á nettóverði, upphaf-
legu kostnaðarverði af frádregn-
um áðurfengnum fyrningum.
Áður voru fyrningar ávallt reikn-
aðar af kostnaðarverði. Fyrn-
ingarreglurnar eru mjög tengdar
söluhagnaðarreglum og með
öðrum hætti en i núgildandi
lögum. I raun er gert ráð fyrir
meiri skattlagningu söluhagnaðar
I atvinnurekstri.
Margar breytingar og miklar
eru I frumvarpinu, er kannski
varða ekki svo mjög hinn al-
menna skattborgara, en þar er
verið að umsemja ýmis atriði er
varða framkvæmd, svo sem áður
er getið. Eru þar atriði er varða
framkvæmd, innheimtu og
ábyrgð á skattgreiðslum.
Um skattstiga manna segir í
frumvarpinu að af fyrsta 900.000
króna skattstofni skuli reiknast
20% tekjuskattur, en af þvi sem
er umfram það mark 40% tekju-
skattur. Persónuafsláttur ein-
staklings er 163.000 krónur en
fyrir hvort hjóna 115.000 krónur.
Siðan er fjallað um skattaafslætti
þá, sem hér hafa áður verið gerðir
að umræðuefni, en síðan er fjall-
að um barnabætur. Með fyrsta
barni eru barnabætur 47.700
krónur, en 71.100 með hverju
barni umfram eitt.
I ákvæðum frumvarpsins um
eignaskatt segir að af fyrstu 6
milljónum króna greiðist enginn
eignaskattur sé um einstakling að
ræða, en 0.8% af þvi sem umfram
er 6 milljónir. Sé um hjón að ræða
er upphæðin, sem ekki greiðist af,
4,5 milljónir, en umfram hana er
eignaskattur 0.8%. Lögaðilar, þ.e.
skattskyld fyrirtæki, greiða 1,4%
í eignaskatt af eignaskattsstofni.
I lokagrein frumvarpsins, sem
er númer 121 segir að lög þessi
öðlist gildi þegar í stað og komi til
framkvæmda við álagningu
skatta á árinu 1978 vegna tekna á
árinu 1977 og eigna í lok þess árs.
Nú þegar alþingismenn fara í
jólaleyfi, er gert ráð fyrir því ‘að
fjárhagsnefndir beggja deilda fái
frumvarpið til skoðunar og er
jafnvel búizt við því að nefndirn-
ar muni skila I frumvarpsformi er
þing kemur úr jólaleyfi frum-
vörpum um þau atriðí frumvarps-
ins, sem hugsanlega gætu tekið
gildi við álagningu skatta á
gjaldaárinu, sem i hönd fer.
BÓKAMIÐSTÖÐIN hefur gefið
út bókina Forn frægðarsetur eftir
sfra Ágúst Sigurðsson á Mælifelli.
1 bókinni eru nfu þættir um sögu
fornra höfuðbóla og kirkjustaði.
Saga kirkjustaðanna er rakin,
Hyggst reisa
mótel í R.vík
Á FUNDI borgarráðs
Reykjavíkurborgar nú i vikunni
var lagt fram erindi Jóns
Ragnarssonar varðandi umsókn
um lóð undir mótel. Erindinu var
vísað til meðferðar löðarnefndar
og skipulagsnefndar.
STJÓRNSKIPAÐRI nefnd, sem
fjallar um málefni Islands og
Kanada, hefur verið falið að ráða
ritstjóra að blaði V-Islendinga,
„Lögbergi-Heimskringlu". Að
sögn Heimis Hannessonar, for-
manns nefndarinnar, hafa 13 sýnt
presta þeirra, sem mest kvaó að,
svo og ábúenda og kirkjuhaldara
fyrr á öldum og fram til vorra
daga.
Fjöldi teikninga eftir kunna
listamenn prýðir bókina, svo og
um tvö hundruð ljósmyndir og
uppdrættir.
Höfundurinn, sfra Ágúst
Sigurðsson á Mælifelli I Skaga-
firði, hefur ritað mikið um sögu
og þjóðlegan fróðleik í blöð og
tlmarit og er kunnur fyrir
útvarpsþætti um viðfangsefni
bókarinnar.
I bókinni fjallar hann um
Möðrudal á Efra-Fjalli, Vallanes á
Völlum, Klyppstað i Loðmundar-
firði, Breiðavíkurþing á Snæfells-
nesi, Breiðabólsstað á Skógar-
strönd, Breiðabólsstað i Vestur-
áhuga á starfinu, en nefndin mun
hafa fullt samráð við stjórn Blaða-
mannafélags tslands við ráðingu í
starfið. Sagði Heimir, að enn
hefði ekki verið tekin ákvörðun
um ráðningu ritstjóra, en þess
yrði ekki langt að bíða.
hópi, Mælafell í Skagafirði, Kvía-
bekk í Ólafsfirði og Svalbarð aí
Þistilsfirði.
Eldur í
vélarrúmi
Flosa SU
Skipverjum tókst
að slökkva eldinn
I GÆRMORGUN kom upp eldur i
vélarrúmi Flosa SU, þar sem
báturinn var staddur skammt suð-
ur af Hvltingum. Skipverjum
tókst að slökkva eldinn og ræsa
aðalvél á ný og komst báturinn
hjálparlaust til heimahafnar,
Fáskrúðsfjarðar, um hádegisbilið
í gær.
Hafnarradió I Hornafirði til-
kynnti um eldinn i Flosa kl. 4.42,i
gærmorgun og hafði tilkynningar-
skyldan þá samband við öll skip á
svipuðum slóðum, en þau reynd-
ust öll vera nokkuð langt undan.
Hvanney frá Höfn i Hornafirði
lagði af stað með slökkvidælur og
menn rétt rúmlega fimm og hélt í
átt til Flosa og stuttu siðar náði
Nes-radíó sambandi við varðskip
á Norðfjarðarflóa og lagða það
þegar af stað. Klukkan 5.15
tilkynnti Flosi að búið væri að
slökkva eldinn og klukkustundu
síðar lagði Flosi af stað til
Fáskrúðsfjarðar. Elsupptök voru
ekki kunn, þegar Mbl. fór i prent-
un
nS
Jólagjöf tí/ gagns og ánægju er
REIKNIVÉL
frá
Aöeins 7 m.m. þykkt. Hleöslutæki fylgir.
Engar rafhlööur.
Hljómdeild
(lljí) KARNABÆR
' LAUGAVEG 66 Simi *rá skiptiborði 28155
„Lögberg-Heimskringla”:
13 sýna áhuga á
ritstjórastarfi