Morgunblaðið - 11.01.1977, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1977
39
Rannsókn á máli
Ofers hætt 1 ísrael
Jerúsalom — 10. janúar
— Reuter
Israelsstjórn gaf f dag fyrir-
mæli um að hætt skyldi rannsókn
á málum Avraham Ofers, hús-
næðismálaráðherra, sem stytti
sér aldur í sfðustu viku. en hon-
um hafði verið borið á brýn að
hafa misfarið með aimannafé.
Aharon Barak, dómsmálaráð-
herra, lýsti því yfir að landslög
mæltu svo fyrir, að bundinn
skyldi endi á lögreglurannsókn
þegar henni væri beint gegn
fólki, sem ekki væri lengur í tölu
lifenda, en hann sagði jafnframt,
að haldið yrði áfram rannsókn á
hendur þeim sem tengdir hefðu
verið málinu.
Ofer, sem var 55 ára að aldri,
féll fyrir eigin hendi 3. janúar s.l.
og skyldi eftir sig orðsendingu
um að ásakanirnar á hendur hon-
um væri úr lausu lofti gripnar.
Útför hans var gerð á kostnað
ríkisins.
Tveir mannréttindasáttmálar:
Ekki enn stad-
festir á íslandi
1 JANÚAR og marz á þessu ári
tóku tveir nýir sáttmálar um
mannréttindi gildi. Báðir tveir
eru þeir tilkomnir vegna þess, að
þörf var talin á því að gera ákveð-
in atriði lagalega bindandi. Um
fjörutfu lönd hafa fullgilt þessa
sáttmála. (Þeirra á meðal Noreg-
ur, Danmörk, Finnland og Svf-
þjóð, en hinsvegar ekki tsland).
Þessir sáttmálar fjalla um félags-
leg, efnahagsleg og menningarleg
réttindi og borgaraleg og pólitísk
réttindi, og hefur þeirra beggja
áður verið allítarlega getið f þess-
um bréfum.
1 síðarnefnda sáttmálanum er
gert ráð fyrir að komið verði á fót
nýrri mannréttindanefnd. Skal
hún fjalla um skýrslur frá öllum
þeim löndum er fullgilt hafa sátt-
málann um það hverjar reglur
þau hafi sett til þess að tryggja að
ákvæði sáttmálans verði virt inn-
an landamæra þeirra. Þá getur
þessi nefnd einnig fjallað um
kærumál, er kunna að rfsa vegna
brota á sáttmálanum, en til þess
að svo geti orðið verða bæði eða
öll ríkin sem f hlut eiga að viður-
kenna lögsögu nefndarinnar um
þrætuefnið. Skipað var í þessa
nefnd f september sfðastliðnum,
og eru nefndarmenn 18 talsins.
Þeirra á meðal eru tveir norður-
landabúar, danski prófessorinn
og þingmaðurinn Ole Espersen og
Norðmaðurinn Thorkel Opsahl,
en hann er yfirmaður stofnunar
við Oslóháskóla sem fæst við
rannsóknir á þjóðarétti.
Þrettán ríki, þeirra á meðai
fyrrnefnd fjögur Norðurlönd
hafa einnig staðfest viðauka við
þennan sáttmála, og fá þessari
nefnd þar með vald f hendur til
þess að fjalla um kærumál ein-
staklinga á þessu sviði, en til þess
að einstaklingar geti skotið mál-
um sfnum til nefndarinnar verða
þau að vera búin að fara fyrir öll
dómsstig f viðkomandi landi.
Staða Nkomos og
Mugaba styrkist
Lusaka 10. janúar Reuter
LEIÐTOGAR blökku-
manna í Rhódesíu, Joshua
Nkomo og Robert Mugabe,
sem standa saman að
„föðurlandsvinahreyfing-
unni“, fengu í gær mikil-
vægan stuðning þegar leið-
togar þeirra rfkja í Afríku
sunnanverðri, sem láta sig
Rhódesíumálið mestu
varða, lýstu yfir fullri sam-
stöðu með bandalagi
þeirra.
Nýlega sprakk sprengja í bfl í Belfast og eru þetta verksummerkin. Skömmu áður sprakk sprengja þar
sem fimmtán mánaða drengur lét lffið. Drengurinn var fyrsta fórnarlamb óaldarinnar á Norðui-trlandi á
hinu nýbyrjaða ári. Móðir hans liggur enn þungt haldin í sjúkrahúsi.
Ríkin eru Zambía, Tanzanía,
Mósambique, Botswana og
Angóla, og er yfirlýsing þjóðar-
leiðtoganna talin mikili ósigur
fyrir Muzorewa biskup og séra
Sithole, sem veita forstöðu öðrum
hópum blökkumanna í Rhódesiu.
Þá er talið að yfirlýsingin muni
styrkja mjög samningsstöðu
Nkomos og Mugabes i viðræðum
við Ivor Richard um myndun
bráðabirgðastjórnar, sem verður
við völd í landinu þar til komið
hefur verið á meirihlutastjórn
blökkumanna.
Brezkir neytendur
hrifnir af kolmunna
Gæti komid í stað þorsks innan fárra árra
Lundúnum — 10. janúar — AP.
f BLAÐINU Fishing
News, sem út kom fyrir
helgina, er haft eftir
stjórnarstofnun, sem hef-
ur það verkefni að endur-
skipuleggja og hafa
stjórn á veiðum á djúp-
sjávarfiski, að kolmunni
muni innan fárra ára
geta komið í stað þorsks-
ins, og að með því að nýta
þessa fisktegund megi
koma í veg fyrir atvinnu-
leysi, sem stafað geti af
því að Bretar hafa nú
verið útilokaðir frá hin-
um auðugu þorskmiðum
innan 200 mílnanna við
ísland.
Segir að tilraunir með
kolmunnann meðal
brezkra húsmæðra hafi
leitt í ljós að 94% þeirra
séu ánægð með þessa
fisktegund. Hófust til-
raunir þessar á árinu
1975, og auk þess að kol-
munni var reyndur á
heimiium, fór fram könn-
un í matstofum, sem hafa
á boðstólum steiktan fisk,
skólum og sjúkrahúsum,
og á öllum þessum stöð-
um fékk kolmunninn
ágætar viðtökur.
Stofnunin segir kol-
munnann ganga á grunn-
mið á vorin, en auk þess
bendi ýmislegt til þess að
hægt sé að veiða hann í
verulegu magni á fjar:
lægari miðum á öðrum
árstímum.
Þá kemur fram, að kol-
munni sé mjög svipaður
þorski á bragðið, og hafi
aðeins fáir neytendur
treyst sér til að fullyrða
um hvora fisktegundina
hafi verið að ræða þegar
könnun fór fram. Smá-
bein i kolmunna hafi ekki
reynzt vandamál, því að
þau megi nema brott með
viðeigandi vélum.
Niðurstaða stofnunar-
innar er sú, að greinilega
geti brezkir neytendur
sætt sig við kolmunna, —
bæði í flökum og staut-
um, en þó þurfi að bæta
vinnsluaðferðir og flokka
fiskinn eftir stærð og
gæðum frekar en gert
hafi verið til þessa.
Talið ólíklegt að ísraels-
menn fái Daoud framseldan
Parfs — 10. janúar — Reuter
FRAKKAR munu að öllum
líkindum hafna kröfu
Mike Burton í jólaboðskap til brezkra sjómanna:
Við munum lifa
t desember-hefti Trs i.ing Times, tímariti brezkra togaraeig-
enda, birtist jólaboi >kapur Landssambands brczkra útvegs-
manna, Mike Burtons, svohljóðandi:
Það væri alrangt að hafa þenn-
an hefðbundna boðskap í anda
vongleði og bjartsýni. Svo er þeim
í Whitehall, Westminster og
BrUssel fyrir að þakka að við
togaramenn höfum átt við fá-
dæma erfiðleika að stríða, og
skriffinnar og stjórnmálamenn
virðast staðránir i þvi að sjá okk-
ur fyrir enn frekari vesöld á ár-
inu, sem í hönd fer.
Það verður erfitt.
En þrátt fyrir það tjóar ekki að
örvænta. Togaramenn gefast ekki
upp svo léttilega. Einbeitni og
hugrekki eru eiginleikar, sem
sjaldgæfir eru hjá mönnum á
valdastólum, en þeir eru til I rík
um mæli hjá þeim, sem vinna við
togaraútgerð.
Þar eru auðvitað togarasjó-
menn í broddi fylkingar, og þeir
eru áreiðanlega tiu sinnum fleiri
en skriffinnarnir, sem reyna af
fremsta mætti að eyðileggja líf
þeirra, þótt vafasamt sé að þeim
takist það. Hver togarasjómaður
er svo sannarlega jafnmikils virði
og tíu þessara andlitslausu
manna.
Hin augljósa tilhneiging leið-
toga okkar til að láta sffellt i
minni pokann getur orðið smit-
andi, en meðan við höfum á að
skipa mönnum eins og þeim, sem
eru á togurunum, þá mun þessi
atvinnuvegur verða síðastur til að
taka þennan sjúkdóm.
öllum togarasjómönnum, öll-
um, sem veita þeim stuðning í
landi, og eiginkonum og fjölskyld-
um þeirra, sem sjó stunda, send-
um við innilegar hátfðarkveðjur.
Eins og ég hefi sagt, þá getum við
ekki vakið falskar vonir, en ef við
höfum boðskap til að koma á
framfæri þá hlýtur hann að verða
þessi með hiiðsjón af þvf hvaða
mönr.um við höfum á að skipa:
Við munum lifa.
— Mike Burton,
forseti Landssambands
brexkra útvegsmanna.
ísraelsstjórnar um framsal
palestínska skæruliðafor-
ingjans Abu Daoud, sem
grunaður er um að hafa
skipulagt fjöldamorð á
ísraelsmönnum á Ólympiu-
leikvanginum í Miinchen
árið 1972. Abu Daoud var
handtekinn á hóteli í París
s.l. föstudag, og er nú talið
að Frakkar kunni að senda
hann til Vestur-Þýzkalands
er ósk berst þaðan.
Arabariki hafa sum hver mót-
mælt handtökunni og telja hana
„óvinsamlega aðgerð“ af hálfu
Frakka, en opinberleg tilkynning
var gefin út i Parfs í dag þar sem
sagði, að handtakan væra f sam-
ræmi við alþjóðlega handtöku
skipun, og hefði lögreglan ákveð-
ið að fara eftir henni. Málið væri í
höndum lögreglunnar én ekki
frönsku stjórnarinnar og afleið-
ingar málsins væru á ábyrgð við-
eigandi yfirvalda. Talið er, að
málið geti haft i för með sér óþæg-
indi fyrir frönsku stjornina gagn-
vart Aröbum, en með hinni opin-
beru tilkynningu frá Elisée-höll
virðist franska stjórnin leggja
áherzlu á að málið sé ekki stjórn-
málalegs eðlis.
Samkvæmt frönskum lögum er
stjórnum, sem kunna að óska eftir
framsali Daouds, gefinn 18 daga
frestur til að koma slfkri ósk á
framfæri, en enn hafa ekki aðrir
en Israelsstjórn óskað eftir fram-
sali.
Talsmaður dómsmálaráðu-
neytisins í Bonn sagði f dag, að
fáeinum klukkustundum eftir
handtöku Daouds s.l. föstudag,
hefði saksóknarinn í Bæjaralandi
gefið út handtökuskipun, en
myndi ákveða á morgun hvort far-
ið yrði fram á að Daoud yrði fram-
seldur.
Daoud var kominn til Parisar til
að vera viðstaddur útför
Mahmoud Saleh, sem einnig var
Palestínuskæruliði, en hann var
myrtur á götu i Paris fyrir viku.
ERLENT