Morgunblaðið - 05.03.1977, Síða 44
AlKíLÝSINííASÍMINN EK:
22480
AL’ÍÍLYSINLASIMINN ER:
22480
ZHorflunbtntiit)
LAUGARDAGUR 5. ÍVIARZ 1977
Nemendur 9. bekkjar grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu mótmæltu í
gær fyrirkomulagi samræmdu prófanna sem þeim var gert að taka í
febrúar, og jafnframt mótmæltu þeir framkvæmd þeirri sem notuð
var við einkunnagjöf fyrir prófin.
Sjá nánar myndir og frásögn á bls 3. (Ljósm.oi.K.M)
Almannavarnir með viðbúnað og
jarðýtuflutninga á hættusvæðið
„ÞAÐ Ifður óðum að ein-
hverjum viðburðum á
Kröflusvæðinu, það eru
allir sammála um það sem
fylgst hafa með málum, en
hvað það verður veit eng-
inn ennþá,“ sagði Guðjón
Petersen hjá Almanna-
vörnum í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Sagði hann að jarðfærð-
ingar reiknuðu með að
eitthvað myndi gerast í
samhandi við landrisið þar
á tfmabilinu frá hádegi f
dag og til hádegis á mánu-
dag.
Sagði Guðjón að Almannavarn-
Rannsókn á LSD-máli lokið:
Erlendur ferðamaður
í 3ja mánaða fangelsi
DÓMUR hefur verið felldur f
máli gegn erlendum ferðamanni,
sem staðinn var að þvf að hlutast
til um innflutning á samtals 255
skömmtum af ofskynjunarlyfinu
LSD. Samtals tókst að dreifa 90
skömmtum af lyfinu, en 165
skammtar féllu f hendur lögregl-
unnar. Maðurinn hlaut 3ja mán-
Rúmeníuskjálfti
á Kröflumœhim
Jarðskjálftakippurinn sem
varð skammt frá Búkarest í
Rúmeníu laust eftir kl. 19 í
gærkvöldi, kom fram á jarð-
skjálftamælum við Kröflu kl.
19.27. Styrkleiki sjálftans var
um 7,2 stig á Richterskvarða,
en þegar snarpi jarðskjálfta-
kippurinn í Tyrklandi varð í
nóvember s.l. kom hann fram á
mælum við Kröflu. Sá kippur
mældist 7,3—7,4 stig á Richter.
aða fangelsisdóm og honum var
gert að greiða 300 þúsund krónur
f sekt og málskostnað.
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá Sakadómi f
ávana- og fíkniefnamálum, sem er
svohljóðandi:
„Lokið er hjá Sakadómi í ávana
og ffkniefnamálum einni þeirra
rannsókna, sem yfir hafa staðið
að undanförnu. Erlendur ferða-
maður reyndist hafa hlutazt til
um, að hingað til lands var í janú-
ar og febrúar s.l. sent með al-
mennum pósti frá Bandaríkjun-
um ofskynjunarlyfið LSD. Fyrst
90 skammtar, sem að mestu var
dreift til nokkurra aðila, næst 15
skammtar, sem féllu í hendur lög-
reglu og loks 150 skammtar, sem
lögregla lagði einnig hald á.
Dæmt hefur verið í máii nefnds
ferðamanns og hóf hann afpiánun
í framhaldi af gæzluvarðhalds-
vistun. Hann hlaut 3 mánaða
fangelsi, 300.000 kr. sekt og máls-
kostnað."
ir hefðu gert venjulegar undir-
búningsráðstafanir eins og áður
þegar landrisið hefur orðið það
mikið að hætta hefur verið talin
stafa af. M.a. er búið að kynna
Mývetningum æskileg viðbrögð ef
eitthvað ber út af á hættusvæð-
inu. Þá hafá forráðamenn Kfsil-
iðjunnar gert ráðstafanir til þess
að geta stöðvað verksmiðjuna í
skyndi. Flutningatæki með tvær
stórar jarðýtur eru nú á leið til
Kröflu frá Akureyri, en að auki
eru tvær jarðýtur og veghefill á
svæðinu, ,,en þessi tæki verða til
staðar við gerð varnargarða gegn
hraunrennsli ef til kemur,“ sagði
Guðjón.
S.l. sólarhring voru 76 jarð-
skjálftar á Kröflusvæðinu og
hafði þeim heldur fjölgað frá því í
fyrradag.
Hreyfing hefur orðið á
sprungusvæðinu í Gjástykki síð-
ustu daga, en ekki hefur orðið
vart við slíka breytingu síðan rétt
fyrir eldgosið 1975.
Um2500tonn af
f ry stum fiski til
Sovétríkjanna
VIÐBÓTARSAMNINGUR
um sölu á frystum fiskflök-
um til Sovétríkjanna var
undirritaður í sfðustu
viku. Voru þá seld 2.575
Búizt er við tíðindum
við Kröflu um helgina
Spánskt
lið vill fá
r
Asgeir
keyptan
MORGUNBLAÐIÐ hefur
fregnað að eitt af beztu
spænsku 1. deildar liðunum f
knattspyrnu, sýni nú mikinn
áhuga á þvf að fá Ásgeir Sigur-
vinsson knattspyrnumann
keyptan frá belgfska liðinu
Standard Liege.
Mun félagið vera tilbúið að
greiða fyrir Ásgeir mun hærri
upphæð en gengur og gerist í
sölu atvinnumanna f knatt-
spyrnu, en sem kunnugt er þá
eru nokkur spænsk knatt-
spyrnulið mjög auðug og hafa
sýnt á undanförnum árum, að
þau eru tílbúin að greiða geysi-
legar upphæðir fyrir leikmenn
sem þau hafa áhuga á. Þannig
keyptu t.d. liðin FC Barcelona
Framhald á bls. 24.
Álitlegt bod,
sagði Ásgeir
tonn af ufsa-, karfa- og
keiluflökum. Hafa þá verið
seld til Sovétrfkjanna frá
áramótum 12.075 tonn af
frystum fiski.
Samkvæmt upplýsingum
Benedikts Guðmundssonar
hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna var sama verð á
þessum afurðum og áður
hafði verið samið um.
Skipting þessa sölusamn-
ings er þannig: 1.300 tonn
af karfaflökum, 1.000 tonn
af ufsaflökum og 275 tonn
af löngu-, keilu-, steinbíts-
og grálúðuflökum.
Gjaldeyrisstaðan:
Versnaði í
janúar um
1202 millj.
GJALDEYRISSTAÐA
bankanna nettó á genginu
31. janúar 1977 var
neikvæð um 1.627 milljónir
króna og hafði lækkað frá
áramótum eða i janaúar-
mánuði um 1.202 milljónir
króna.
Staða bankanna um áramót á
sama gengi var neiðkvæð um 425
milljónir króna.
Þessar upplýsingar fékk
MOrgunblaðið í gær í Seðlabanka
íslands. Samanburðartölur fyrir
janúar 1976, reiknaðar á sama
gengi eru að þá versnaði staðan
um 1.570 milljónir króna. Versnar
því staðan ekki eins hratt og hún
gerði i fyrra.
Rannsókn handtöku-
málsins er að ljúka
RANNSÓKN handtökumálsins
svokallaða er nú lokið — að því er
Steingrímur Gauti Kristjánsson
héraðsdómari skýrði Morgunblað-
inu frá í gær. Eftir er aðeins sagði
Steingrfmur að ganga frá nokkr-
um „lausum endum“. Steingrím-
ur kvaðst myndu gera grein fyrir
rannsókn málsins með fréttatil-
kynningu eftir helgina.
Iscargo fær flugleyfi án tak-
markana til Bandaríkjanna
ISCARGO h.f. fær feyfi til flugs
milli Islands og sex borga f
Bandarfkjunum án takmarkana
um áframhaldandi flug til
Evrópu. Hallgríniir Jónsson,
framkvæmdastjóri Iscargo,
skýrði frá þessu f samtali við
Morgunblaðið f gær. Sagði hann
að fyrirtækinu hefði borist bréf
sfðastliðinn miðvikudag, þar sem
segir að bandarfska flugmála-
stjórnin hefði mælt með leyfinu
en forsetaskrifstofan gefur það
út.
Flugleyfið er fyrir óreglubund-
ið leiguflug með vörur á milli
Islands og eftirfarandi sex borga
f Bandarfkjunum: New York,
Boston, Phifadelphia, Hartford f
Connecticut, Harrisburgh f Phila-
delphiu og Norfolk f Virginiu.
Upphaflega hafði flugmála-
stjórnin mælt með því að Iscargo
fengi flugleyfið með þeim tak-
mörkunum að aðeins væri um að
ræða flutninga á vörum, sem eiga
upphaf eða endi á tslandi. Var
þessi takmörkun sett vegna þrýst-
ings frá Pan American, sem taldi
Iscargo geta orðið óæskilegan
keppinaut. Lögfræðingur Iscargo
í Bandaríkjunum áfrýjaði þessum
úrskurði, og hefur flugmála-
stjórnin dregið í land með þessa
takmörkun þannig að nú er félag-
inu heimilt að fljúga áfram til
Evrópu með vörur sé sótt um leyfi
fyrir hvert flug.
Hallgrímur sagði að lögfræðing-
ur Iscargo f Bandaríkjunum túlk-
aði þetta aöeins sem formsatriði,
sem ekki fælist f nein takmörkun
f raun.
Hallgrímur sagðist búast við þvf
að skrifstofa Bandaríkjaforseta
gæfi út flugleyfið innan tveggja
vikna, en eftir væri að ganga frá
nokkrum öðrum forms- og undir-
búningsatriðum áður en flug hæf-
ist. Iscargo hafa þegar borist
pantanir á flutningum til Banda-
rfkjanna, þar á meðal frá Sam-
bandinu á flutningi á 25 hestum.