Morgunblaðið - 10.07.1977, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JULI 1977
r
I sandkassanum
Höfundur: Þóra Bryndís 6 ára.
Þegar Halli var úti að labba, sá hann
Kalla í sand-kassanum á leikvellinum.
Hann hljóp til háns og sagði: má ég vera
meó þér í sand-kassanum?
Kalli svaraði ekki. Hann var í vondu
skapi af því að það var strákur að skemma
fyrir honum það, sem hann bjó til. Hann
fór að gráta í hvert sinn, sem strákurinn
skemmdi fyrir honum. Og svo varð hann
reiður. En Halli fór bara heim til sín og
sagði mömmu sinni frá öllu saman.
5ar»g$^
RuTMsa^a
O-
Þörir S. Guðbergsson
Rúna Gfsladóttir
Barna- og íjölskyldasíðan
— Hreinn
Framhald af bls. 15
ur endist hann. Þetta ætti að
koma mér til góða, því ekki eru
nema 10 ár síðan ég byrjaði að
æfa kúluvarp.“
— „Annars veit ég ekkert hvað
ég endist lengi í þessu og hvort ég
á eftir að bæta árangur minn.
Framtíðin verður að skera úr um
það. Eins og ég segi þá tek ég
hlutina eins og þeir koma,“ segir
Hreinn Halldórsson að lokum og
brosir."
spölinn. Ég hef bætt mig 1 ár um
tæpan metra og þegar maður er
kominn með þennan árangur, er
ekki auðvelt að bæta sig um
marga sentimetra frá móti til
móts. Hvort ég næ einhvern tíma
22 metrum skal ósagt látið,
reynslan verður að skera úr um
það.“
„Heimsmetið í kúluvarpi er nú
liðlega 22 metrar, en árið 1980
gæti það verið orðið 23 metrar.
Það kæmi mér þó á óvart, en
tækninni fleygir fram i þessu sem
öðru. Hver kúluvarpari hefur
sinn stfl, sína tækni, engir tveir
kasta kúlunni eins. Sjálfur heyri
ég það oft að ég kunni hreinlega
ekki að kasta kúlunni, siðast nú i
vikunni skrifar sænskur blaða-
maður um þetta, en blaðamenn
hafa sjaldnast nokkurt vit á
tækni."
Eins lengi og maðnr
nennir
— „Það háir manni mikið að fá
ekki fleiri tækifæri til að keppa á
stórmótum, en hvað mig snertír
hefur þetta að visu lagazt i sumar.
Reynslan hefur gífurlega mikið
að segja og reynsluleysi getur
gert margar mánaða æfingapuð
að engu. Það er t.d. ekki þægilegt
að vera í harðri kúluvarpskeppni
á stórmóti, vera búinn að úthugsa
atrennuna og einbeitingin
kannski I hámarki þegar tugir
þúsunda af áhorfendum byrja allt
í einu að fagna 100 metra hlaup-
ara sem kemur i markið. Þá er um
að gera að geta útilokað sig frá
öllu utanaðkomandi, ef ekki, er
hætt við að árangurinn verði ekki
sem skyldi."
— „Kúluvarpari getur næstum
þvi haldið áfram að bæta sig með-
an hann nennir að æfa sig af
kappi. Guðmundur Hermannsson
er bezta dæmið um þetta, hann
var á toppnum í iþrottinni um
fertugt. Þá held ég lika að þvi
seinna, sem kúluvarparinn byrji
að æfa íþróttina, þeim mun leng-
Hringflug
í samvinnu við Flugfélag Norðurlands og Flug-
félag Austurlands hagar Flugfélag íslands
áætlunum sínum þannig að þú getur farið flug-
leiðis fjórðunga á milli, sparað þér þann tíma
og fyrirhöfn, sem bílferð útheimtir og geymt
kraftana til að skoða þíg vel um á hverjum stað.
Það má gista á hóteli, hjá vinum eða notast
við tjaldið og svefnpokann. Lent er á ísafirði,
Akureyri, Egilsstöðum, Höfn og í Reykjavík.
Hringfluginu má ljúka á einni viku, en frjálst er
að dveljast lengur á hverjum stað og skemmta
sér að vild.
Jæja, nútímamaður, hvernig væri að*fljúga
hringinn í sumar?
FLUCFÉLAC ÍSLAJVDS
INNANLANDSFLUG