Morgunblaðið - 04.04.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978
Stefnt að því að
ljúka rannsókn
ávísanamálsins
í þessum mán.
STEFNT er að því að rann-
sókn ávísanamálsins ljúki i
þessum mánuði, samkvæmt
þeim upplýsinKum sem Hrafn
Bragason borgardómari veitti
Mbl. ígær, cn hann hefur sem
kunnugt er stjórnað rannsókn
þessa umfangsmikla máls.
Nú sem stendur er unnið að
tölvuvinnslu málsins hjá
Reiknistofnun bankanna og
miðar því verki vel áfram. Auk
Hrafns hafa þrír rannsóknar-
lögreglumenn unnið við
rannsóknina. Þegar vinnslu
málsins lýkur verður það sent
ríkissaksóknara til
ákvörðunartöku.
Hrafn Bragason hefur verið í
leyfi frá Borgardómi nú um
nokkurra mánaða skeið á með-
an rannsóknin hefur staðið
yfir. Leyfinu lýkur hinn 1. maí
n.k.
Helgi vann í
fyrstu umferð
í Lone Pine
Lonc Pino. 3. aprfl.
írá Marjíoiri Póturssynii
ALÞJÓÐASKÁKMÓTIÐ í
Lone Pine í Bandaríkjunum
hófst í gærkvöldi og var þá
fyrsta umferðin tefld.
Þátttakendur eru alls 68 í
mótinu, þar af 23 stórmeistar-
ar. Tefldar eru 9 umferðir
samkvæmt svissneska kerfinu.
Kjórir íslenzkir skákmenn eru
meðal þátttakenda en þeir eru
auk ofanritaðs þeir Helgi
Ólafsson, Haukur Angantýsson
og Jónas P. Erlingsson.
Guðmundur Sigurjónsson ætl-
aði að vera með en hætti við
þátttöku á síðustu stundu og
Ásgeir Þ. Árnason, sem einnig
ætlaði að vera með, náði ekki til
mótsins í tæka tíð.
1 fyrstu umferð urðu úrslit
þau, að Helgi vann Bandaríkja-
manninn Youngworth örugg-
lega með svörtu, Margeir og
alþjóðameistarinn Mestel frá
Englandi gerðu jafntefli, Jónas
gerði jafntefli við Bandaríkja-
manninn Peters en Haukur
tapaði fyrir Weinstein, sem
einnig er Bandaríkjamaður.
Jónas var mjög óheppinn að
vinna ekki í sinni skák, hann
hafði lengst af miklu betra tafl
og Haukur var sömuleiðis
óheppinn. Hann lék mjög illa af
sér í tímahraki.i
I 1. umferðinni vakti það
mesta athygli að Bent Larsen
tapaði óvænt fyrir ungum
skákmanhi að nafni Spielman
og sömuleiðis tapaði Timman
fyrir ungum skákmanni að
nafni Seirawan. Sovézku skák--
mennirnir Polugaevsky og
Petrosjan eru álitnir sigur-
stranglegir og þeir unnu skákii
sínar örugglega.
Mál Eyjabát-
anna til
saksóknara
SKIPSTJÓRAR Eyjabátanna
fjögurra, sem Landhelgisgæzl-
an kærði um páskana fyrir
meint brot á reglum um þorsk-
veiðibann, hafa nú allir gefið
skýrslur fyrir dómi hjá bæjar-
fógetanum í Vestmannaeyjum.
Málin voru í gær send ríkissak-
sóknaraembættinu til
ákvörðunartöku.
Smjörlíki
hækkar
HEIMILUÐ hefur verið 7%
hækkun á smjörlíki og hefur
hækkunin þegar tekið gildi.
Austurlandskjördæmi:
Fimmefstusætin á
framboðslista sjálf-
stæðísmannatílkynnt
Hólmatíndur tíl sölu
EINN af skuttogurum lands-
manna var auglýstur til sölu í
Morgunblaðinu á sunnudaginn og
í gær fregnaði Morgunblaðið að
togarinn, sem væri til sölu, væri
Hólmatindur frá Eskifirði, en
hann er næst elztur íslenzku
skuttogaranna, keyptur frá Frakk-
.landi í ársbyrjun 1971, og var
upphaflega smíðaður þar árið
1967. Var Morgunblaðinu tjáð að
eigandi togarans, sem er Hrað-
frystihús Eskifjarðar h.f., væri að
athuga með kaup á skuttogaranum
Júlíusi Geirmundssyni frá ísafirði,
en útgerðarfélag þess togara á von
á nýjum skuttogara frá Noregi í
sumar. Upphaflega mun hafa verið
gert ráð fyrir því, að Júlíus
Geirmundsson gengi upp í kaupin
á nýja togaranum, en hér mun
hafa orðið einhver breyting á.
TILKYNNT hefur verið skipun í
fimm efstu sæti framboðslista
Sjálfstæðisflokksins vegna kom-
andi alþingiskosninga. Listinn var
samþykktur á kjördæmisráðsfundi
á Reyðarfirði á sunnudaginn.
Efstu sætin skipa:
1. Sverrir Hermannsson, alþingis-
maður, Reykjavík.
2. Pétur Blöndal, forstjóri,
Seyðisfirði.
3. Egill Jónsson, ráðunautur,
Seljavöllum, A-Skaftafellssýslu.
4. Jóhann D. Jónsson, umdæmis-
stjóri, Egilsstöðum.
5. Tryggvi Gunnarsson. skip-
stjóri, Vopnafirði.
Álverð hefur ekki
hækkað að marki
MARKAÐSVERÐ á áli hefur lítið breyzt að undanförnu, þótt menn
hafi búizt við því að heimsmarkaðsverð hækkaði, m.a. vegna verðbólgu
og eins þess að orkuverð hefur hækkað. í Evrópu er skráð vcrð á pundi
51 sent, en í Bandaríkjunum 53 sent, þar sem það hefur verið yfirleitt
örlítið hærra. Spár hafa verið um að verðið hækkaði í um 60 sent hvert
pund. í Evrópu cr markaðsverð talsvert lægra en skráð verð eða 45
til 48 scnt.
Sjálfstæðismenn í Hveragerði:
Fimmtán í prófkjöri
til hreppsnefndar
Ragnar Halldórsson, forstjóri
íslenzka álfélagsins h.f., sagði í
gær að töluvert auðvelt væri að
selja ál á þessu lága verði, en hann
Víðast fært
á aðalvegum
GÓÐ FÆRÐ er á öllu Suðurlandi
og ailt til Egilsstaða austur um.
Þá cr fært um Oddsskarð til
Neskaupstaðar, en Fjarðarheiði
er lokuð.
Um allt Vesturland er ágæt
færð og í Reykhólasveit.
Á Vestfjörðum var fært í gær
milli Þingeyrar og Flateyrar og
unnið var við að opna aðrar leiðir
milli byggða, en þungfært er á
fjallvegum.
Fært var norður Strandir allt til
Drangsness og á Norðurlandi var
víða fært á aðalvegum og austur
um til Austfjarða.
kvað ekki hægt að sjá fyrir að
makáðurinn myndi breytast mikið.
Þó kvað hann menn bera slíkar
vonir í brjósti , að fyrsti og annar
ársfjórðungur verði heldur lélegir,
en þegar fari að síga á seinni hluta
ársins muni verðið hækka eitt-
hvað.
Morgunblaðið spurði Ragnar að
því, hvað verðið þyrfti að stíga
mikið til þess að stækkun áivers-
ins í Straumsvík kæmist á við-
ræðustig. Hann taldi að það yrði
að fara í 56 til 58 sent pundið, en
þó þyrfti það ekki að fara svö hátt,
ef rætt væri um lenginu á skála 2
um 10 þúsund tonn. En til þess að
rætt yrði í alvöru um skála 3, þá
þyrfti raunverulegt verð að fara
Framhald á bls. 30.
PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna í
Hveragerði til hreppsnefndar-
kosninga fer fram í Hveragerði
n.k. laugardag og sunnudag, en
alls eru 15 í framboði. Kjörfundur
verður í húsi Rafbæjar að Austur-
mörk 2. Þeir sem hafa rétt til að
kjósa eru allir stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins og fer kjör
þannig fram að kjósandi verður að
merkja með tölustöfum við fæst 5
menn til þess að kjörseðill sé
gildur og ekki fleiri en 10. Á
fimmtudagskvöld verður kjörstað-
ur opinn frá 21—22 fyrir þá sem
ekki verða heima um helgina.
Frambjóðendur eru þessiri
Aage Michelsen, Hraunbæ. Aðal-
steinn Steindórsson, Hvera-
hvammi. Björk Gunnarsdóttir,
Dynskólgum 6. Friðgeir Krist-
jánsson, Heiðmörk 77. Guðjón H.
Björnsson, Heiðmörk 32. Gunnar
Kristóíersson, Bláskógum 9. Haf-
steinn Kristinsson, Þelamörk 61.
Helgi Þorsteinsson, Borgar-
hrauni 16. Margrét Björg Sigurð-
ardóttir, Dynskógum 26. Ólafur
Óskarsson, Reykjamörk 1A. Sig-
rún Sigfúsdóttir, Laufskógum 31..
Svava Hauksdóttir, Klettahlíð 4.
Svavar Hauksson, Klettahlíð 7.
Sæmundur Jónsson, Friðarstöð-
um. Ævar Már Axelsson, Kamba-
hrauni 23.
Sjálfstæðismenn á Sauðár-
króki skipa í 7 efstu sætin
Sauðárkróki 3. aprfl.
í prófkjöri sjálfstæðismanna um
síðustu helgi vegna væntanlegra
bæjarstjórnarkosninga tóku þátt
206 kjósendur. Úrslit urðu þau að
flest atkvæði í 1. sæti fékk
Þorbjörn Árnason lögfræðingur,
97 atkvæði. Árni Guðmundsson
framkvæmdastjóri fékk í 1. og 2.
sæti 67 atkvæði. Friðrik J. Frið-
riksson héraðslæknir fékk í 1,—3.
sæti 81 atkvæði. Björn Guönason
húsasmíðameistari fékk 115 at-
kvæði í 1.—4. sæti. Pálmi Jónsson
verktaki fékk 111 atkvæði í 1.—5.
sæti og Jón Ásbergsson fram-
kvæmdastjóri fékk í 1,—6. sæti 73
atkvæði. Þess skal getið að sá
síðastnefndi, Jón Ásbergsson, var
ekki á prófkjörslistanum og fékk
hann flest atkvæði í 2. sæti. —jón.
Samband fískvinnslustöðva:
©
INNLENT
Sjómanna-
samningar
lausir frá
1. maí n.k.
FLESTÖLL sjómannafélög
landsins munu nú hafa sagt upp
samningum sjómanna frá og með
1. maf næstkomandi, en Sjó-
mannasamband íslands og Far
manna- og fiskimannasamband
íslands létu tilmæli til félaga út
ganga um að þau segðu upp
samningum sem og önnur sam-
bönd innan Alþýðusambands ís-
lands.
Óskar Vigfússon formaður
Sjómannasambandsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
sjómenn vildu hafa allt á hreinu
áður en næst yrði ákveðið fiskverð.
Því hefði verið ákveðið að
samningar yrðu lausir frá og með
1. maí næstkomandi.
Ríkisstjómin útvegi
ográðstafí 500 millj-
ón króna lánsfénu
Á aðalfundi Sambands fisk-
vinnslustöðva, sem haldinn var í
Reykjavík 31. marz sl„ var
samþykkt að skora á ríkisstjórn-
ina að útvega og ráðstafa þvf
sérstaka lánsfé, að upphæð 500
milljónir króna, sem stjórnin
hafði áður heitið. Ennfremur var
skorað á stjórnvöld að hraða
úthlutun 350 millj. kr„ sem
safnast f gengismunarsjóði.
í fréttatilkynningu sem Mbl.
hefur borizt frá Sambandi fisk-
vinnslustöðva segir, að vegna
slæmra rekstrarskilyrða fisk-
vinnslufyrirtækja, vilji aðal-
fundurinn vekja athygli alþjóðar á
stöðu þessarar mikilvægu atvinnu-
greinar. Um alllangt skeið hafi
talsmenn fiskvinnslufyrirtækj-
anna bent á neikvæða þróun
varðandi rekstrarskilyrði fyrir-
tækja sinna, þrátt fyrir hækkandi
afurðaverð. Innlendur kostnaður
hafi hækkað örar en tekjur, sem
aðallega séu í formi erlends
gjaldeyris. Auk þessa vanda hafi
fyrirtæki á Suður- og Vesturlandi
þurft að glíma við vanda, er stafi
af minnkandi afla og lélegri
aflasamsetningu. Þriðja meiri
háttar orsök núverandi vanda
fiskvinnslufyrirtækja sé mjög
óhagstæð þróun markaðsmála á
skreiðarmörkuðum, og einnig ríki
mikil óvissa á saltfiskmörkuðum
okkar í dag.
Þá segir að skammtímalausnir
séu skamntgóður vermir, og því sé
brýn þörf á að gera ráðstafanir til
þess að draga úr misræmi í þeirri
þróun innlends og erlends verð-
lags, sem við blasi, með öllum
tiltækum ráðum.
Þrátt fyrir gengisbreytingar. og
hækkun viðmiðunarverðs í hinum
Framhald á bls. 30.
Flúorrannsókn í Hafnarfirði:
All há gildi en ekki
ástæða tilaðvarana
„Það komu fram nokkuð há
gildi á grænmeti í görðum við
Herjólfsgötu og rifsberjum á
Hvaleyrarholti, en það er ekki
talin heilsufarsleg hætta af græn-
metinu, en rifsberin eru varasam-
ari og því ætti ekki að neyta
þeirra án þess að skola þau
fyrst,“ sagði Grímur Jónsson,
héraðslæknir í Hafnarfirði, er
Mbl. spurði hann um niðurstöður
rannsókna á fluormagni í græn-
meti, scm tekið var á nokkrum
stöðum í Hafnarfirði í haust.
Grfmur sagði, að ekki hefði þótt
ástæða til aðvarana vegna niður-
staðna rannsókna.
„Það er nauðsynlegt að þessum
rannsóknum verði haldið áfram,"
sagði Grímur. „Mér er tjáð, að þa'ð
séu mjög miklar sveiflur í fluor-
magni í loftinu í grennd við álverið
og því tel ég nauðsynlegt að
rannsóknum á grænmeti og öðrum
gróðri sé haldið áfram og þær
gerðar eins víðtækar og unnt er.“