Morgunblaðið - 04.04.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978
3
Rætt við dr.
Frank Herzlin yfirlækni
Freeport-spítalans
Kosta áfengisvandamál íslenzku
þjóðina 3,7 milljarða á ári hverju?
Helgason formaður Samtaka áhugafólks um áfengismál.
Ljósm. Ól. K. M.
Hér á landi er nú
staddur dr.
Frank Herzlin
yfirlæknir á
Freeport Hospital
í New York, en
hann er upphafsmaður að
stofnun spítalans, hinum fyrsta
sinnar tegundar í Bandaríkjun-
um. Er hann brautryðjandi á
sviði lækninga drykkjusjúkl-
inga, en fyrir um það bil sextán
árum hóf hann afskipti af þeim
máium og hefur aðallega helg-
að sig þeim störfum síðan.
Dr. Frank Herzlin sagðist
hafa haft allmikil kynni af
íslendingum, um það bil 300
hefðu verið til meðferðar á
Freeport Hospital. Væri hann
nú hingað kominn til að aðstoða
þá aðila hérlendis sem hefðu
með lækningu drykkjusjúklinga
að gera, en hann sagði að hér
væru aðstæður góðar og að hér
á landi væri hægt að þróa
aðferðir, sem gætu gefið góðan
árangur. Stæðu samtök áhuga-
fólks hérlendis mjög vel að vígi
hvað það snerti.
Á fundi með fréttamönnum
ræddi dr. Herzlin nokkuð um
einkenni drykkjusýki, sem hann
sagði að væri vissulega ekki
geðrænn sjúkdómur, en það
væri vitað að einn af hverjum
tíu sem drykkju áfengi ættu það
á hættu að lenda í vanda. Væri
hann að því leyti arfgengur að
hjá sumu fólki væri fyrir hendi
ákveðin einkenni sem gætu leitt
til drykkjusýki ef viðkomandi á
annað borð neytti áfengis.
— Það hefja allir drykkjuna
af sömu ástæðum, sagði dr.
Herzlin, t.d. félagslegum ástæð-
um, til að geta gert þetta og hitt,
sem þeir telja sig annars -ekki
geta gert, sem lækningu við
streitu og fleira, en aðeins sumir
lenda í ógöngum. Þeir þurfa að
drekka meira og meira til að
finna til sömu áhrifa og smám
saman fara að koma fram
líkamleg og hegðunarieg ein-
kenni, sem benda til þess að
viðkomandi sé orðinn háður
áfengi án þess að hann sjálfur
geri sér e.t.v. grein fyrir því
strax.
— Líkamleg einkenni eru
meltingartruflanir, minnkandi
matarlyst, lifrin getur orðið
fyrir skemmdum og sjúklingur-
inn fer síðan að hegða sér
öðruvísi en almennt gerist, hann
Mkóhólistinn sem gerðist hóf-
drykkjumaður er textinn undir
þessari mynd sem hékk á vegg
í Leitarstöð SÁÁ í Lágmúla.
drekkur meira og meira, getur
illa stundað sína atvinnu,
einangrast smám saman og
leitar uppi drykkjufélaga, á í
erfiðleikum með samskipti sín
við fjölskylduna og nágranna og
hann skammast sín fyrir hvern-
ig er ástatt með hann.
Dr. Frank Herzlin sagði að oft
hefði reynzt erfitt að taka
drykkjusjúklinga til meðferðar,
skilningur á þeirra sjúkdómi
væri svo takmarkaður að líkja
Dr. Frank Herzlin t.h. og Hilmar
mætti því við berkla eða holds-
veiki á árum áður, menn voru
teknir og einangraðir. — Nú er
ekki talað um það lengur og á
sama hátt verður fólk að láta af
hleypidómum sínum gagnvart
drykkjusjúklingnum, hann
hegðar sér auðvitað öðruvísi, en
hver hegðar sér ekki afbrigði-
lega þegar hann er drukkinn?
spurði dr. Herzlin.
Nokkuð var rætt um hver
kostnaður væri af völdum
drykkjusýki og sagði dr. Herzlin
að í Bandaríkjunum væri talið
að kostnaður væri um það bil 15
milljarðar dala og sumir vildu
nefna töluna 20 milljarða. Væri
þá allt talið með, fjarvistir frá
vinnu, slys t.d. af völdum
ölvunar við akstur, sjúkrahúss-
og tryggingakostnaður. Ef þetta
væri reiknað yfir í íslenzkar
aðstæður mætti segja að talan
væri um það bil 3,7 milljarðar
króna. — Fyrir 16 árum var
þessi tala 2 milljarðar dala og
hefur hún því hækkað verulega,
en við trúum því að með aukinni
menntun, upplýsinga- og
fræðslustarfsemi megi benda
fólki á að á þetta verður að
ráðast, á þann hátt lýkst það
bezt upp fyrir fólki hversu mikið
vandamál hér er á ferðinni.
Sem fyrr segir er Frank
Herzlin m.a. hingað kominn til
að eiga viðræður við ýmsa aðila
er starfa að áfengismálum og
mun hann á miðvikudagskvöldið
tala á opnum fundi AA-samtak-
anna og um næstu helgi þ.e.,8.
og 9. apríl kl. 10—12 og
13.30—16 á Hótel Sögu, mun
hann halda eins konar námskeið
eða fyrirlestra á vegum
Freeport-klúbbsins þar sem
hann ræðir um starfsemi Free-
port Hospital og hvernig mönn-
um sé ráðlagt að lifa og starfa
til nýtara lífernis, eða eins og
efnið heitir á ensku, The Free-
port philosophie of succesful
life. Er þessi ráðstefna opin
öllum áhugamönnum um
áfengismál.
Lítið tOHt tekið til sjón-
armiða Verzlunarráðs
— segir Hjalti Geir Kristjánsson
um verðlagsfrumvarpið
VERZLUNARRÁÐ íslands kom
saman til fundar f gærdag til að
fjalla um frumvarp það um
vcrðlag, samkeppnishömlur og
óréttmæta viðskiptahætti, sem
lagt var fram á Alþingi nýlega.
Að sögn Hjalta Geirs Kristjáns-
sonar, formanns ráðsins, var ekki
lokið á þessum fundi að fjalla um
afstöðu Verzlunarráðs til frum-
varpsins heldur er að því stefnt að
halda annan fund um frumvarpið
síðar í vikunni, enda væri hér um
flókið og umfangsmikið mál að
ræða.
Hjalti Geir sagði, að Verzlunar-
ráð hefði á sínum tíma gert
ítarlegar athugasemdir við verð-
Nígeríumenn ætla að kaupa skreið:
Seljendur utan til að
ganga frá samningum
„ÞÆR fréttir hafa borizt til
okkar frá Nígeríu, að í fjárlaga-
frumvarpi stjórnarinnar, sem
lagt var fram 1. apríl s.l., sé gert
ráð fyrir, að á þessu fjárhagsári
verið keypt skreið, en hve mikið
stjórnvöld ætla sér að kaupa, er
okkur ekki kunnugt um, sagði
Bragi Eiríksson framkvæmda-
stjóri Samlags skreiðarframleið-
enda þegar Morgunblaðið ræddi
við hann í gær.
Bragi kvaðst gera ráð fyrir að
fulltrúar íslenzkra skreiðarfram-
leiðenda héldu á næstunni til
Nígeríu til að ganga frá samning-
um um skreiðarsölu og hve mikið
yrði selt. Þá sagði hann, að það
hefði legið í loftinu, að stjórnvöld
í Nígeríu settu einhverja inn-
flutningstolla á skreiðina, en
honum fyndist það einkennileg
ráðstöfun, ef á það væri litið, að
stjórnvöld ætluðu nú sjálf að
flytja skreiðina inn, þ.e. að þau
tolluðu sig sjálf.
lagseftirlitsfrumvarp sem þá var á
döfinni, en lítið tillit virtist hafa
verið tekið til sjónarmiða
Verzlunarráðs því að frumvarpið
nú væri með litlum breytingum
frá því sem þá var, að dómi
verzlunarráðsmanna. Hjalti Geir
sagði ennfremur, að Verzlunarráð-
ið hygðist hafa náið samráð við
önnur samtök verzlunarinnar um
afstöðu og athugasemdir við verð-
lagsfrumvarpið sem nú væri á
dagskrá.
Að sögn Gunnars Snorrasonar,
formanns Kaupmannasamtak-
anna, munu þau fjalla um málið á
fundi í dag, en Félag ísl. stórkaup-
manna mun fjalla um frumvarpið
einhvern næstu daga að sögn
skrifstofu félagsins. ! i
Heimaey
selur í Hull
HEIMAEY VE frá Vest-
mannaeyjum selur um 70
lestir af fiski í Hull á
morgun, miðvikudag. Stór
hluti aflans er ýsa og hluti
hans umframafli frá fisk-
vinnslustöðvunum í Vest-
mannaeyjum.
Erró
París. „Ég vinn nú af
fullum krafti og það er
númer eitt. Ég reikna með
að koma heim til íslands í
kringum 20. maí til þess
að setja upp sýninguna
fyrir Listahátíðina.“
Um þessar mundir er
Iceland Review að láta
prenta bók um Erró á
Italíu og kvaðst Erró
fylgjast náið með þeirri
framkvæmd. „Það eru 100
litmyndir í þeirri bók og
hún er mjög vel gerð og
150 Errómyndir
á leið til íslands
„ÞAÐ er búið að pakka
niður 150 myndum sem
eru nú á ' leiðinni til
íslands,“ sagði Erró list-
málari í samtali við
Morgunhlaðið í gær þar
sem hann var staddur í
mikið til hennar vandað.
Það er líka búið að vinna að
útgáfunni í tvö ár, en
reiknað er með að bókin
komi út á Islandi um svipað
leyti og sýningin verður
opnuð."
Mývetningar fóru suð
ur öræfi á vélsleðum
Björk. Mývatnssveit. 3. apríl.
UM HELGINA fóru 5 Mývetning-
ar í leiðangur suður á öræfi. Lagt
var af stað á laugardag og haldið
í Svartárkot í Bárðardal og gist
Framhald á bls. 31.