Morgunblaðið - 04.04.1978, Page 5

Morgunblaðið - 04.04.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978 Fuglasláturhús rís í Mosfellssvfeit; Á að geta slátrað 500 fuglum á klst. nú er í undirbúningi að hefja bygginarframkvæmdir við fugla- sláturhús í Mosfellssveit. Þegar hefur verið fengin þar lóð fyrir húsið, teikningar eru tilbúnar og leitað hefur verið tilboða í véla- samstæðu er getur slátrað 500 kjúklingum á klukkustund miðað við iágmarksafköst. Fuglasláturhús þau sem hér hafa verið starfrækt á vegum ýmissa einstaklinga eru orðin úr sér gengin að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá bygginga- nefnd fuglasláturhússins og hafi það viðhorf orðið ofan á að byggja eitt sláturhús með félagslegu framtaki á breiðum grundvelli, og þá að því stefnt að það geti annazt slátrun fyrir allt Suður- og Vesturland. Hefur því hópur einstaklinga er framleiðir fugla- kjöt myndað með sér samtökin Félag kjúklingabænda og fengið til liðs við sig félagið Hreiður hf. um að hefja framkvæmdir við umrætt sláturhús er starfrækt skal vera flesta virka daga ársins. Miðað við afköst vélasamstæðu sláturhússins þarf einnig að koma til annar samræmdur búnaður til kælingar og hraðfrystingar á staðnum. Á teikningu að húsinu er þessara atriða gætt svo og annarra geymsluskilyrða og aðstöðu fyrir allt starfsfólk. Fleiri þættir koma einnig inn í myndina, svo sem farartæki og flutningskassar til að sækja fugl- ana heim til bænda og flytja á Þorlákshöfn: Mikil vinna en lítill afli Þorlákshöfn 3. apríl VETRARVERTÍÐ hér hefur verið mjög iéleg hvað snertir bæði afiabrögð og gæftir það sem af er. Afli bátanna hefur verið mjög misjafn. Þeir bátar sem hafa verið á heimamiðum hafa sáralítinn afla fengið en hinir sem sækja iengra og landa þar af leiðandi sjaldnar bera af með aflamagn. Það segir að sjálfsögðu ekki alla söguna um tilkostnað og afla- gæði. Miðað við mánaðamót eru þrír aflahæstu bátarnir nú þessiri Jón á Hofi með 583 tonn, Höfrungur III. með 580 tonn og Friðrik Sigurðsson með 541 tonn. Hins vegar er fjöldinn af bátunum með þetta 100—250 tonn. Þá má segja að bátarnir séu varla komnir almennilega af stað aftur eftir veiðibannið um páskana. Það er mikil vinna að draga allt upp og leggja síðan aftur að nýju því þorskveiðibannið var virt hér að því er bezt er vitað alveg 100%. Á land hafa borizt 11635 tonn af loðnu í Síldar- verksmiðju Meitils en í fyrra voru það 19 þús. tonn. I frystihúsi Meitilsins voru fryst loðnuhrogn fyrir Japansmark- að, alls 236 tonn, sem er dýr og eftirsótt vara. Við þetta var mikil vinna, unnið allan sólar- hringinn á vöktum á tímabilinu frá 7. marz til 23. marz. Nú er talið að loðnan sé með öllu gengin hjá. Vinna í frystihús- inu hefur verið góð og svo er loðnunni fyrir að þakka. Það er von manna að aprílmánuður verði fengsæll eins og oft áður og hann bjargi því sem bjargað verður hér. — KaitnhciAur. At’(il.VsiN(»ASÍMINN KK: 22480 JR*rí)nnl<I«tiib slátrunarstað. Allt kerfið er mótað eftir fullkomnustu nútíma fyrir- myndum erlendis, að því er segir í fréttatilkynningu byggingar- nefndarinnar, og öll meðferð fuglanna og síðan vörunnar er í samræmi við fullkomnustu heil- brigðis- og hreinlætisráðstafanir sem á okkar tímum er krafizt. I fréttatilkynningunni kemur fram, að allmargir aðilar hafa unnið að undirbúningi málsins, en nú sé ætlunin að gefa fleiri framleiðendum alifuglaafurða kost á þátttöku í félagsskapnum. Til þess að gera grein fyrir málinu hefur bygginganefndin því boðað til fundar og umræðu um bygg- ingaáformin að Hótel Esju nk. laugardag kl. 13.30 og þess vænzt að eggja- og fuglakjötsframleið- endur komi á þann fund. Söngleikar þúsund kórfélaga í Rvík. í TILEFNI aí 40 ára afmæli L.B.K. mætast í Reykjavík 14. og 15. apríl um 1000 söng- menn, karlar og konur, sem ástunda það í frítíma sínum að syngja f kór. Haldnir verða tvennir söngleik- ar þar sem fram koma um 20 kórar með um 1000 félögum. Fyrri söngleikarnir verða í Háskólabíói Richter-Haaser leikur hjá Tónlistarfélaginu Tónlistarfélagið í Reykjavík heldur tíundu tónleika fyrir styrktarfélaga í kvöld. Flóttamenn í Portúgal: t>r jú hús byggd fyrir íslenzkt fé ÞRJÚ HÚS fyrir heimilislausa flóttamenn í Portúgal verða byggð fyrir fé frá Islandi. Rauði kross íslands hefur nýlega sent 2.543.000 krónur til hjálpar flóttamönnum í Portúgal; 2.168.000 krónur voru ágóði af sölu hljómplötu Flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna hér á landi og 375.000 krónur voru framlag ríkistjórnarinnar til Flóttamannaráðs íslands. í frétt frá RKÍ segir, að fulltrúi Alþjóðasambands Rauða kross félaga, Erik Krum-Hansen, sem staðsettur er í Portúgal, muni hafa eftirlit með því að féð renni til byggingar þessara þriggja ákveðnu húsa, sem verða auðkennd sem framlag frá RKÍ. þriðjudag, klukkan 7 í Austurbæjarbíói. Þýzki píanóleikarinn Hans Richter-Haaser leikur á þessum tónleikum verk eftir Beethoven, Schumann, Brahms og Schubert. Hans Richter-Haaser fæddist í Dresden árið 1912 og hlaut menntun sína í píanóleik og hljómsveitarstjórn þar í borg. Einleikaraferill hans hófst 1954 en hann hefur síðan leikið víða um heim og undir hljómsveitarstjórn manna svo sem Sir John Barbir- olli, Ferenc Ficsay, Eugen Jochum, Rudolf Kempe og Herbert von Karajan. Hann hefur leikið inn á fjölmargar hljómplötur. föstudaginn 14. apríl kl. 21.00, en þeir seinni verða í Laugardalshöll laugardaginn 15. apríl kl. 14.00. Fimmtán kórar flytja sjálfstæða söngskrá. Samsöngvunum lýkur með söng 900 manna samkórs L.B.K. Sinfóníuhljómsveit íslands ásamt hljóðfæraleikurum úr Hljómsveit Tónlistarskólans og Sinfóníuhljómsveitinni í Reykja- vík, samtals um 100 manns, mun standa að flutningi tveggja tón- verka á þessari sameiginlegu söngskrá. Líklegt er að blandaður kór frá Þrándheimi í Noregi, ásamt hljómsveit, samtals um 1000 manns, taki þátt í söngleikunum. Söngleikum L.B.K. lýkur síðan í Laugardalshöll að kvöldi laugar- dags með afmælisfagnaði, þar sem verður sameiginlegt borðhald og fjölbreytt skemmtan fram eftir nóttu með þeim brag, sem söng- fólki einu er lagið. Formaður L.B.K. er Garðar Cortes, én framkvæmdastjóri Söngleika ‘78 er Sverrir Kjartans- son. o Prófkjör Alþýðuflokks í Grindavík: Svavar Árnason hlaut flest atkvæði INNLENT í PRÓFKJÖRI Alþýðuflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Grindavík greiddi alls 261 íbúi atkvæði en í síðustu bæjarstjórn- arkosningum þar hlaut Alþýðu- flokkurinn 217 atkvæði. Prófkjörið var bindandi fyrir fimm efstu sætin, en samkvæmt reglu prófkjörsins þurfti fram- bjóðandinn að hljóta 20% af kjörfylgi flokksins við síðustu sambærilegar kosningar til að kosning yrði bindandi. Flest atkvæði í þessu prófkjöri hlaut Svavar Árnason í fyrsta sætið eða 122 atkvæði, annar varð Jón Hólmgeirsson er hlaut 101 atkvæði í 1. og 2. sætið, þriðji varð Guðbrandur Eiríksson sem hlaut 109 atkvæði í fyrstu 3 sætin, þá kom Sigmar Sævaldsson með 111 atkvæði í öll sætin og fimmta varð Sæunn Kristjánsdóttir með 130 atkvæði. Rauði krossinn: 50 kr. spila- kassar í gagnið RAUÐI kross Islands er nú að undirbúa uppsetningu nýrrar tegundar af spilakössum víða um land í stað þeirra gömlu sem verið hafa í gangi undan- farin ár. Spilað hefur verið með 10 kr. peningum í gömlu kössunum og hafa þeir verið aðaltekjulind Rauða krossins á landinu, en t.d. áríð 1976 var veltan í kössunum tæpar 63 millj. kr. og skiluðu þeir þá 36 milljónum kr. í hagnað. í nýju spilakössunum verður spilað með 50 kr. peningum þannig að reikna má með að veltan aukizt mjög mikið ef notkun þeirra verður með svipuðu sniði. Á landinu eru nú í notkun um 110 spilakassar hjá Rauða krossin- um og miðað er við að þeir gangi úr sér áður en nýju kassarnir koma í gagnið. HER ER HUN! salkura Sakura er nafnið á þessari frábæru litfilmu, sem gefur þér ótal nýja möguleika (sem þú hefur ekki kynnst áður). Sakuracolor er fram- leidd af Konishiroku-verksmiðj- unum í Japan, sem einnig standa á bak við hinar viðurkenndu Konica ljósmyndavélar. 24 myndir á rúllu. Það er alveg óþarfi að örvænta þegar búið er að taka 20 myndir. Filman er alls ekki búin, þú átt 4 myndir eftir, því Sakura gefur þér meira. Það eru 24 myndir á hverri Sakura- color filmu í stað 20 hjá öðrum. Og fyrir sama verð. 400% ljósnæmari. Hún er 4 sinnum ljósnæmari en venjuleg litfilma. Þú getur tekið myndir innanhúss án flass, og sólarlagsmyndirnar verða leikur einn. Og auðvitað hentar hún einnig við allar venjulegar aðstæður. Þessi filma er bylting. Hún gefur þér þúsund nýja möguleika. Tímaritin Amaterfotographer og Foto & Smalfilm dæma þessa filmu þá bestu á markaðinum í dag. Sakuracolor er fínkornuð. Ekki aðeins er hún ljósnæm. Hún er líka sérstak- iega finkornuð. Myndgæðin eru frábær, og gefa möguleika ástórumstækkunum. >/an HASTÞÓRf Suðurlandsbraut 20, Hafnarstræti 17, Reykjavík Sími 82733

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.