Morgunblaðið - 04.04.1978, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978
7
Full atvinna
Alvarlegasta mein-
semd iðnríkja dagsins í
dag er víðtækt atvinnu-
leysi. Milljónir manna
ganga atvinnulausir í
OECD-ríkjum, sem eru
flest lönd V-Evrópu,
Japan, Bandaríkin og
Kanada. betta atvinnu-
leysi hefur bitnað sár-
ast á ungu fólki og
gildir þá einu hvort um
sérmenntað vinnuafl
hefur verið að ræða eða
ekki.
Eitt meginatriði
stjórnarsáttmálans,
sem núverandi ríkis-
stjórn var grundvölluð
á, var að tryggja at-
vinnuöryggi um land
allt. Þetta hefur tekizt.
Eftirspurn eftir vinnu-
afli hefur raunar verið
nokkru meira en fram-
boðið þegar á heildina
er litið. Þess eru ófá
dæmi að innflutt, erlent
vinnuafI sinni störfum í
fiskvinnslu hér á landi.
Sú öra verðbólga, sem
verið hefur og er hér á
landi, hafði hins vegar
kippt rekstrargrund-
velli undan fiskvinnsl-
unni f landinu. 60 til
70% kauphækkanir á
árinu 1977, verulegar
fiskverðshækkanir og
annar kostnaðaraukki,
án sambærilegra verð-
hækkana á framleiðslu
okkar erlendis, stefndi í
12.000 milljóna króna
rekstrarhalla fisk-
vinnslunnar á árinu
1978, eða rekstrarstöðv-
un, án þeirra efnahags-
ráðstafana, sem gripið
var til, til að forða
framleiðslustöðvun og
atvinnuleysi. Þessar
ráðstafanir hafa valdið
nokkrum deilum f þjóð-
félaginu en menn eru
engu að sfður sammála
um nauðsyn þeirra og
tilgang.
Það er og enn í minni
manna, að Alþýðu-
bandalagið, sem nú
blæs að glóðum sundur
lyndis með þjóðinni,
stóð að sams konar og
raunar enn harkalegri
ráðstöfun árið 1974i
gengislækkun, sölu-
skattshækkun, hækkun
á verðjöfnunargjaldi á
raforku og síðast en
ekki sízt afnámi vísi-
töluákvæða kaupgjalds.
í ljósi þeirrar reynslu
verður gagnrýni þess
nú léttvæg og lágkúru-
leg.
Landhelgi og
fiskverndaraðgerðir
Núverandi ríkis-
stjórn færði fiskveiði-
lögsögu okkar út f 200
sjómflur. Hún hélt og
þann veg á málum að
brezk og vesturþýzk
veiðisókn í íslandsmið-
um er nú úr sögunni
eftir margra alda fisk-
veiðar hér. Það að
binda endi á brezka og
vesturþýzka veiðisókn
hér við land var lang
mikilvægasta fisk-
verndaraðgerðin, sem
hægt var að grfpa til.
Jafnframt tókst að
halda þann veg á mál-
um, að tollmúrar EBE-
ríkja gagnvart fslenzk-
um sjávarafurðum voru
norður brotnar, þann
veg að þær hafa mun
greiðari leið á Evrópu-
markað en áður. Þetta
var mjög mikilvægt,
ekki sfzt þegar þess er
gætt, að EFTA- og EBE-
rfki keyptu 'slenzkan
varning fyrir 45.495 m.
kr. á sl. ári eða 44,6%
alls útflutnings okkar.
Lfkur benda til að
Evrópumarkaðir eigi
eftir að gegna vaxandi
hlutverki í milliríkja-
verzlun okkar.
Auk niðurskurðar
nær allrar erlendrar
veiðisóknar á íslands-
miðum hefur f tíð
þessarar rfkisstjórnar
verið gripið til marg-
þættari fiskverndarað-
gerða en nokkru sinni
fyrr í sögu þjóðarinnar.
Má þar nefna lokun
veiðisvæða, bæði til
lengri og skemmri
tfma, skyndilokanir
veiðisvæða, tfmabundin
veiðibönn, ströng
ákvæði um möskva-
stærð og tilraunaveiði
og vinnslu áður lítt
nýttra fisktegunda, til
að beina veiðisókn frá
þorskstofninum. Loðnu-
veiði, sem spannar
drjúgan hluta árs, er
m.a. árangur þessarar
viðleitni. Sú veiði hefur
fært ýmsum hinna
gömlu sfldveiðibæja,
eins og t.d. Siglufirði,
nýja velmegunartíma.
Og þjóðarbúinu drjúg-
an tekjuauka.
Ý msar fiskverndar-
raddir hafa krafizt enn
stórtækari veiðibanna
gagnvart þorskinum.
Þær raddir eiga vissu-
lega nokkurn rétt á sér.
Uppbygging þorsk-
stofnsins verður mun
hægari með núverandi
veiðisókn en ef ráð-
leggingum fiski-
fræðinga hefði verið
fylgt út í yztu æsar.
Atvinnulegar og efna-
hagslegar forsendur í
þjóðarbúinu ollu þvf
hins vegar, að ekki
þótti fært að höggva svo
á þjóðartekjur og hætta
atvinnuöryggi í sjávar-
plássum sem slfku hefði
verið samfara. Sjávar-
útvegsráðherra hefur
því beitt sér fyrir leið,
sem tók mið af hvoru
tveggjai fiskifræðileg-
um athugunum og
efnahagslegum og
atvinnulegum
staðreyndum þjóðar-
búsins. Enginn sjávar-
útvegsráðherra, hvorki
fyrr né sfðar, hefur hins
vegar beitt sér fyrir
marktækari fisk-
verndaraðgerðum en
Matthías Bjarnason.
Núverandi rfkisstjórn
getur borið höfuðið hátt
vegna frammistöðu
sinnar á vettvangi
landhelgis- og fisk-
verndarmála.
Tann
ENSKIR
PENINGASKÁPAR
eldtraustir — þjófheldir
heimsþekkt
framleiðsla.
A
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888
Spónlagðar lakkaðar
viðarþiljur, gullálmur,
eik og fl.
Fæst enn á gamla verðinu
Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTIG 1. SIMI. 18430
Dömur ath. Músík-
leikfimi íþróttahúsinu
Seltjarnarnesi
Nýtt hressandi og styrkjandi 6 vikna námskeið
í leikfimi fyrir dömur á öllum aldri hefst þann
10. apríl n.k. Kennt verður á mánudag og
fimmtudagskvöldum í íþróttahúsinu Seltjarnar-
nesi.
Leikfimi — vigtun — mæling — mataræði —
sturtur.
Ath. Þetta verður síðasta námskeiðið Þar til
í haust.
Innritun og upplýsingar í síma 75622 eftir kl.
1 alla virka daga. Geymið auglýsinguna.
Auöur Valgeirsdóttir.
ÞÆGINDI
KRUPS
TÆKNI -
Enn ein
nýjung frá
KRUPS
kaffivél
sem
lagar
kaffið
beint
á könnuna
KRUPS rafmagnsheimilistæki
fást um land allt.
Umboðsmenn
JÓN JÓHANNESSON & C0 S.F
símar 15821 og 26988 Reykjavík.