Morgunblaðið - 04.04.1978, Síða 7

Morgunblaðið - 04.04.1978, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978 7 Full atvinna Alvarlegasta mein- semd iðnríkja dagsins í dag er víðtækt atvinnu- leysi. Milljónir manna ganga atvinnulausir í OECD-ríkjum, sem eru flest lönd V-Evrópu, Japan, Bandaríkin og Kanada. betta atvinnu- leysi hefur bitnað sár- ast á ungu fólki og gildir þá einu hvort um sérmenntað vinnuafl hefur verið að ræða eða ekki. Eitt meginatriði stjórnarsáttmálans, sem núverandi ríkis- stjórn var grundvölluð á, var að tryggja at- vinnuöryggi um land allt. Þetta hefur tekizt. Eftirspurn eftir vinnu- afli hefur raunar verið nokkru meira en fram- boðið þegar á heildina er litið. Þess eru ófá dæmi að innflutt, erlent vinnuafI sinni störfum í fiskvinnslu hér á landi. Sú öra verðbólga, sem verið hefur og er hér á landi, hafði hins vegar kippt rekstrargrund- velli undan fiskvinnsl- unni f landinu. 60 til 70% kauphækkanir á árinu 1977, verulegar fiskverðshækkanir og annar kostnaðaraukki, án sambærilegra verð- hækkana á framleiðslu okkar erlendis, stefndi í 12.000 milljóna króna rekstrarhalla fisk- vinnslunnar á árinu 1978, eða rekstrarstöðv- un, án þeirra efnahags- ráðstafana, sem gripið var til, til að forða framleiðslustöðvun og atvinnuleysi. Þessar ráðstafanir hafa valdið nokkrum deilum f þjóð- félaginu en menn eru engu að sfður sammála um nauðsyn þeirra og tilgang. Það er og enn í minni manna, að Alþýðu- bandalagið, sem nú blæs að glóðum sundur lyndis með þjóðinni, stóð að sams konar og raunar enn harkalegri ráðstöfun árið 1974i gengislækkun, sölu- skattshækkun, hækkun á verðjöfnunargjaldi á raforku og síðast en ekki sízt afnámi vísi- töluákvæða kaupgjalds. í ljósi þeirrar reynslu verður gagnrýni þess nú léttvæg og lágkúru- leg. Landhelgi og fiskverndaraðgerðir Núverandi ríkis- stjórn færði fiskveiði- lögsögu okkar út f 200 sjómflur. Hún hélt og þann veg á málum að brezk og vesturþýzk veiðisókn í íslandsmið- um er nú úr sögunni eftir margra alda fisk- veiðar hér. Það að binda endi á brezka og vesturþýzka veiðisókn hér við land var lang mikilvægasta fisk- verndaraðgerðin, sem hægt var að grfpa til. Jafnframt tókst að halda þann veg á mál- um, að tollmúrar EBE- ríkja gagnvart fslenzk- um sjávarafurðum voru norður brotnar, þann veg að þær hafa mun greiðari leið á Evrópu- markað en áður. Þetta var mjög mikilvægt, ekki sfzt þegar þess er gætt, að EFTA- og EBE- rfki keyptu 'slenzkan varning fyrir 45.495 m. kr. á sl. ári eða 44,6% alls útflutnings okkar. Lfkur benda til að Evrópumarkaðir eigi eftir að gegna vaxandi hlutverki í milliríkja- verzlun okkar. Auk niðurskurðar nær allrar erlendrar veiðisóknar á íslands- miðum hefur f tíð þessarar rfkisstjórnar verið gripið til marg- þættari fiskverndarað- gerða en nokkru sinni fyrr í sögu þjóðarinnar. Má þar nefna lokun veiðisvæða, bæði til lengri og skemmri tfma, skyndilokanir veiðisvæða, tfmabundin veiðibönn, ströng ákvæði um möskva- stærð og tilraunaveiði og vinnslu áður lítt nýttra fisktegunda, til að beina veiðisókn frá þorskstofninum. Loðnu- veiði, sem spannar drjúgan hluta árs, er m.a. árangur þessarar viðleitni. Sú veiði hefur fært ýmsum hinna gömlu sfldveiðibæja, eins og t.d. Siglufirði, nýja velmegunartíma. Og þjóðarbúinu drjúg- an tekjuauka. Ý msar fiskverndar- raddir hafa krafizt enn stórtækari veiðibanna gagnvart þorskinum. Þær raddir eiga vissu- lega nokkurn rétt á sér. Uppbygging þorsk- stofnsins verður mun hægari með núverandi veiðisókn en ef ráð- leggingum fiski- fræðinga hefði verið fylgt út í yztu æsar. Atvinnulegar og efna- hagslegar forsendur í þjóðarbúinu ollu þvf hins vegar, að ekki þótti fært að höggva svo á þjóðartekjur og hætta atvinnuöryggi í sjávar- plássum sem slfku hefði verið samfara. Sjávar- útvegsráðherra hefur því beitt sér fyrir leið, sem tók mið af hvoru tveggjai fiskifræðileg- um athugunum og efnahagslegum og atvinnulegum staðreyndum þjóðar- búsins. Enginn sjávar- útvegsráðherra, hvorki fyrr né sfðar, hefur hins vegar beitt sér fyrir marktækari fisk- verndaraðgerðum en Matthías Bjarnason. Núverandi rfkisstjórn getur borið höfuðið hátt vegna frammistöðu sinnar á vettvangi landhelgis- og fisk- verndarmála. Tann ENSKIR PENINGASKÁPAR eldtraustir — þjófheldir heimsþekkt framleiðsla. A E. TH. MATHIESEN H.F. DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888 Spónlagðar lakkaðar viðarþiljur, gullálmur, eik og fl. Fæst enn á gamla verðinu Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTIG 1. SIMI. 18430 Dömur ath. Músík- leikfimi íþróttahúsinu Seltjarnarnesi Nýtt hressandi og styrkjandi 6 vikna námskeið í leikfimi fyrir dömur á öllum aldri hefst þann 10. apríl n.k. Kennt verður á mánudag og fimmtudagskvöldum í íþróttahúsinu Seltjarnar- nesi. Leikfimi — vigtun — mæling — mataræði — sturtur. Ath. Þetta verður síðasta námskeiðið Þar til í haust. Innritun og upplýsingar í síma 75622 eftir kl. 1 alla virka daga. Geymið auglýsinguna. Auöur Valgeirsdóttir. ÞÆGINDI KRUPS TÆKNI - Enn ein nýjung frá KRUPS kaffivél sem lagar kaffið beint á könnuna KRUPS rafmagnsheimilistæki fást um land allt. Umboðsmenn JÓN JÓHANNESSON & C0 S.F símar 15821 og 26988 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.