Morgunblaðið - 04.04.1978, Síða 22

Morgunblaðið - 04.04.1978, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978 AUSTFIRÐINGAR OG ÞINGEY- INGARSETTU MESTAN SVIP Á LANDSFLOKKAGLÍMUNA LANDSFLOKKAGLÍMAN var háð í 30. skipti á sunnudag- inn og að þessu sinni var glímt í íþróttahúsi Kennaraháskól- ans. Keppendur voru 27 í fullorðins- og unglingaflokkum. Mest var þátttakan í drengjaflokki en þar mættu 9 drengir til leiks. I öðrum flokkum var þátttaka minni og í sumum voru aðeins þrír keppendur. Ef á heildina er litið var keppnin skemmtileg og margar góðar glímur voru þar glímdar. Það vakti sérstaka athygli að þessu sinni að Austfirðingar og Þingeyingar tefldu fram mjög góðum unglingasveitum og virðist mest gróska vera í glímu í Mývatnssveit og á Reyðarfirði um þessar mundir. Austfirðingar (ÚIA) hlutu tvo íslandsmeistara, Þingeying- ar (IISÞ) tvo, Ármann einn og KR einn íslandsmeistara. Sigurvegarnir í Landsflokkaglímunni 1978 og þar með íslandsmeistarar í sínum flokkum þetta árið. Talið frá vinstrn Hjörtur Þráinsson HSÞ, Ólafur H. Ólafsson KR, Auðunn Gunnarsson UÍA, Þóroddur Ilelgason UÍA. Guðmundur Freyr Halldórsson Ármanni og Ingi Þ. Yngvason HSÞ. Ljósm.i RAX. Úrslit í einstökum flokkum urðu sem hér segin YFIRÞYNGD (YFIR 84 KG) vinningar 1. Ingi Þ. Yngvason HSb 2, 2. Guómundur Ólafsson Á 1 3. Ingvar Engilbertsson Víkv. 0 Urslitaglíman í þessum flokki var milii Inga og Guðmundar og lagði Ingi Guðmund eftir snörp átök. Tvíburabróðir Inga, Pétur, var einnig skráður til leiks en hann forfallaðist vegna veikinda. MILLIÞYNGD (75-84 KG) vinningar 1. Guðmundur Freyr IIalldórs.son Á 3'k 2. Eyþór Pétursson HSÞ 3 3. ómar Úlfarsson KR 2 4. Hjálmur Sigurðsson Vfkv. \'k 5. Árni Bjarnason KR 0 Mesta athygli í þessum flokki vakti slök frammistaða nýbakaðs skjaldarhafa Hjálms Sigurðsson- ar. Hann var í einhverju óstuði og var aðal baráttan milli Guðmund- ar og Eyþórs. Síðustu glímuna í þessum flokki glímdu þeir Guðmundur og Hjálmur og leit út fyrir að jafngli'mi yrði, en þá hefði þurft að fara fram auka- glíma milli Guðmundar og Éyþórs. En rétt áður en bjalla tímavarðar gall kom Guðmundur bragði á Iljálm, sem hann virtist geta varizt cn í gólfið fór hann og Guðmundur varð sigurvegari. Hann var vel að sigrinum kominn en gaman heíði verið að sjá þá eigast við Guðmund og Eyþór í aukaglimu, en viðureign þeirra í keppninni hafði lokið með jafn- glími. Guðmundur er gamal- rcyndur glimumaður en Eyþór kornungur gh'mumaður, mjög sterkur og fimur í vörn en helst til ragur að reyna fyrir sér með brögð. Ómar Ulfarsson var nú með að nýju eftir nokkurt hlé og var kappsfullur sem fyrr. LÉTTÞYNGD (UNDIR 75 KG) vinnin«ar 1. Þóroddur Helgason UÍA 2 2. Jón Magnússon KR 1 3. Halldór Konráðsson Víkv. 0 Enginn vaíi var með úrslit í þessum flokki. Þóroddur var áberandi beztur. Hann er sérstak- lega skemmtilegur glímumaður, senm vonandi á eftir að sjást oft á mótum. UNGLINGAFLOKKUR vinningar 1. Auðunn Gunnarsson UKÍA 2 2. Helgi Bjarnason KR 1 3. Ásgeir Víglundsson KR 0 Það er á engan hallað þótt þvi' sé slegð föstu að Auðunn hafi verið skemmtilegasti glímumað- ur mótsins. Hann vann báðar sínar glímur einkar fallega og auðveldlega. Það var verst að ekki voru fleiri keppendur í flokknum, svo áhorfendur hefðu getað séð Auðun gli'ma fleiri glímur. Auðunn er Reyðfirðingur eins og Þóroddur og mátti sjá á glímum þeirra eins og annarra Austfirðinga að þeir hafa haft góðan glímukennara. Mun það vera Aðalsteinn Eiríksson, sem á mestan heiður að góðri glímu- kunnáttu Reyðfirðinganna. DRENGJAFLOKKUR vinningar 1. Ólafur H. Ólafsson KR 7 2 Gústaf ómarsson UÍA 6‘A 3. Geir Gunnlaug.sson Víkv. 5lÆ 4. Geir Arngrímsson HSÞ 5 5—6. Karl Karlsson Víkv. 3V4 5—6. Þrándur Þorkelsson HSÞ 3V4 7—8. Bergsteinn Helgason HSÞ 2 7—8. Börkur Kjartansson HSÞ 2 9. Ragnar Þórisson Víkv. 1 Keppni í þessum flokki var mjög skcmmtileg. Aðalkeppnin var milli Ólafs H. Ólafssonar KR og Gústafs Ómarssonar UÍA. Þegar kom í næst síðustu umferð- ina hafði Gústaf hálfum vinningi meira en Ólafur og sigurinn virtist blasa við honum. En í þessari umferð tapaði Gústaf óvænt fyrir Geir Gunnlaugssyni og þar með komst Ólafur hálfum vinningi upp fyrir Gústaf og hann sigraði. Voru þrír efstu drengirnir í flokknum áberandi beztir og reyndar mjög efnilegir glímumenn. SVEINAFLOKKUR vinningar 1. Hjörtur Þráinsson SÞ 2>k 2. Bryngeir Stefánsson UÍKA 2lÆ 3. Hreinn Sipmarsson UÍA 1 4. Kristján Asmundsson HSÞ 0 í þessum flokki voru glímu- mennirnir ákaf%ega kappsamir og höfðu áhorfendur mikla skemmtun af viðureignum þeirra. Aukaglíma þurfti að fara fram milli þeirra Hjartar og Bryngeirs og fór svo að Hjörtur sigraði eftir fjöruga viðureign. I mótslok afhenti Helgi Seljan alþingismaður sigurvegurunum sigurlaunin. Dómarar voru Sigurður Jónsson, Gunnar R. Ingvarsson og Arngrímur Geirs- son en Sigtryggur Sigurðsson var glímustjóri. — SS. Frá keppni 1' milliþyngd. Eyþór Pétursson HSÞ leggur Arna Bjarnason KR. Ljósm.i Kristján Elíasson. Á föstudagskvöldið var mikiö um dýrðir hjá Körfuknattleiksmönnum. Ekki var Þó verið aö leika körfubolta, heldur hélt KKÍ öllum 1. deildarliöunum í karla- og kvennaflokki hóf í Hreyfilshúsinu við Grensásveg. Var Þar saman kominn álitlegur hópur og Þrátt fyrir að hart hafi veriö barist í aflan vetur fór vel á með mönnum og virtist sem allir væru Þar mættir sem sigurvegarar. HOCKENOS LEIKMAÐUR MÓTSINS Megintilgangur hófsins var að afhenda leikmönnum liða verðlaun sín auk einstaklingsverölauna mótsins. Fyrstur var kallaöur fram Dirk Dunbar ÍS. Hann fékk verðlaun fyrir langbesta vítahittni í mótinu, skoraði úr yfir 90% tilrauna sinna og er slíkt vafalaust með bestu vítahittni í heiminum og að sjálf- sögðu íslandsmet. Dunbar var einnig stigahæsti leikmaður ís- landsmótsins og setti auðvitað met í Þeim efnum, en fyrra metið átti Curtis „Trukkur" Carter. Dunbar fer svo sannarlega ekki tómhentur heim, Því auk Þessara einstaklings- verðlauna varð Dunbar bikarmeist- ari með ÍS og hefur auk Þess gert ÍS-stúlkurnar að Reykjavíkur- og bikarmeisturum og aö öllum líkind- um íslandsmeisturum einnig. Þá var komið að eftirsóttustu verðlaunum mótsins, Leikmaður íslaridsmótsins 1978. Kom það sjálfsagt engum að óvart að valinn var Valsmaðurinn Rick Hockenos. Hann hefur sýnt jafna og góða leiki í allan vetur auk þess, sem hann hefur náð fram því besta í Vals- mönnum þótt ekki hafi unnist titill í ár. Kosning Leikmanns Islands- mótsins fór þannig fram að fyrirliði hvers liðs valdi hver 5 leikmenn og fengu stig eftir því í Hvaða sæti þeir voru settir. Rick Hockenos fékk 35 stig, en fast á hæla honum kom IS maðurinn Dirk Dunbar með 34 stig. í 3. sæti var Jón Sigurðsson KR með 29 stig og í næstu tveimur sætum voru Mark Christiansen og Andrew Piazza. Körfuknattleiksblaðið Karfan hefur undanfarin ár veitt einhverj- um einum leikmanni verðlaun auk verðlauna til besta dómarans. Valinn var körfukóngur í ár og hlaut þann titil verðskuldað KR-ingurinn Jón Sigurðsson. Besti dómarinn í ár var valinn Jón Otti Ólafsson. Fékk hann 3 atkvæði, Kristbjörn Albertsson 2 atkvæði, Hörður Túliníus 1 atkvæði, en tveir fyrirliðar töldu sig ekki gc-ta gert upp á milli hver dómara væri bestur. Jón Otti hefur verið mjög umdeildur dómari í vetur og hefur sætt harðri gagnrýni frá Njarðvíkingum og stúdentum og létu þeir viðeigandi hijóð frá sér er úrslit voru gerð kunn. Þessi útnefning ætti þó að kveða nokkrar þessara radda niður. Jón Otti hefur nú ákveðið að hætta öllum afskiptum af dómarastörfum en Jón hefur einnig verið formaður dómaranefndar KKÍ og unnið þar ómetanlegt starf. Það er því mikill missir að þessi maður lætur nú af störfum fyrir óvægna gagnrýni aðila, sem sjálfir búa í glerhúsum. Væri réttast að skylda þá Njarðvík- inga og stúdenta til að finna hæfan mann til að koma í stað Jóns, en slíkt myndi þó vafalaust reynast þeim um megn því ekki eru þessi félög mjög virk hvað þátttöku í störfum KKI varðar. Undirritaður telur að sú gagnrýni, sem beint var gegn Jóni, hafi verið ósanngjörn. Vissulega má gagnrýna störf dómara almennt í vetur, en um leið verður að benda á leiðir til úrbóta, en ekki skella skuldinni á þann mann, sem mestu hefur fórnað. Ef Jón er talinn bestur, en verður að hrökklast frá starfi sínu vegna nokkurra „blaðurskjóða", hvar standa þá aðrir dómarar okkur“. Telja þeir sér fært að halda starfi sínu áfram og verða næsta fórnar- lamb orðhákanna? Að lokinni afhendingu verðlauna las Guðni Kolbeinsson annál ársins og var lesturinn vel metinn, enda maðurinn meinfyndinn. GG. TVEIR SNJALLIR - Rick Hockenos leikmaður (lands- mótsins í körfuknattleik og Jón Sigurðsson „körfukóngur“. il

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.