Morgunblaðið - 04.04.1978, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978
Janus kennir knattspymu
Á síðastliðnu ári skauzt Hafnfirðingurinn
Janus Guðlaugsson með miklum hraða upp á
stjörnuhimin íslenzkra íþrótta er hann lék sina
fyrstu landsleiki í handknattleik og knatt-
spyrnu. FH-ingurinn Janus stóð fyrir sínu í
fyrstu landsleikjunum og ekki fór á milli mála
að þessi framtíðarmaður íslenzkra íþrótta var
verðugur þess að leika í landsliði fyrir íslands
hönd. Þess má geta að aðeins sárafáir
íþróttamenn hafa náð þeim áfanga að vera
valdir í landslið í tveimur íþróttagreinum.
Janus Guðlaugsson er lærður íþróttakennari,
lauk prófi sem slikur frá íþróttakennaraskól-
anum á Laugavatni vorið 1976. Veturinn á eftir
kenndi hann verðandi íþróttakennurum um
boltaíþróttir í skólanum á Laugarvatni. Nú
starfar Janus sem íþróttakennari við Lækjar-
skólann í Hafnarfirði.
í Morgunblaðinu í dag
birtist fyrsti fræðsluþáttur Janusar um
knattspyrnu og fleiri fylgja í kjölfarið á næstu
vikum, samtals um 10 þættir.
Knattspyrnuþættir þessir eru einkum ætlaðir
yngstu knattspyrnumönnunum, en einnig, og ef
til vill ekki síður, leiðbeinendum þeirra. Efni
þáttanna hefur Janus samið og safnað að sér
úr ýmsum áttum.
Hluta þeirra notaði hann við
kennsluna á Laugarvatni, en eðlilega eru þeir
endursamdir og aðlagaðir að dagblaði eins og
þeir birtast í Morgunblaðinu. Lesendum skal
bent á að halda þáttunum saman, því sem ein
heild koma þeir að mestu gagni.
Knattmeöferðin
Eitt grundvallaratriði knattspyrnunnar er
knattmeðferðin. í þjálfun unglinga skal hún
því vera höfuðatriði. Að hafa fullkomið vald
á knettinum undir hinum breytilegu
kringumstæðum sem leikurinn hefur upp á
aö bjóða er takmarkiö meö þjálfun
knattmeðferðar.
Hreyfingar í hinum ýmsu þáttum knatt-
meðferðar verður að æfa vel og lengi, uns
leikmennirnir geta framkvæmt þær „vél-
rænt“ — umhugsunarlaust. Vélræn knatt-
meðferð hefur m.a. tvo stóra kosti í för með
sér:
1. Framkvæmd hinna tæknilegu leikatriða
verður léttari og eðlilegri.
2. Leikmaðurinn getur notað meira af
athygli sinni til að skoða leikstöðuna —
yfirlit hans yfir leikinn verður betra.
Spyrnur
Hvað er spyrna? Jú, spyrna er meðvituð
snerting fótarins við knöttinn. Hún er
grundvallartækniatriöi knattmeöferöar og á
henni byggist knattspyrnan. Við æfingar
skal því leggja sérstaka áherslu á hinar
mismunandi spyrnur og uppbyggingu þeirra
fyrir byrjandann.
Leikmaður sem hefur ekki fullt vald á
knattraki, leikbrellum (gabbhreyfingum) eða
kollspyrnu (skalla) mun oft á tíðum ekki ná
því út úr leiknum sem efni standa til. En
leikmaður sem hefur ekki hæfileika í að
spyrna knetti eða taka á móti honum,
stöðva hann, getur varla talist knattspyrnu-
maður.
Mike Smith, welskur knattspyrnufrömuð-
ur og framkvæmdastjóri welska landsliðs-
ins, segir m.a. þetta um spyrnur: „Getirðu
ekki spyrnt — þá geturðu ekki leikið“.
Sþyrnan og leyndardómur hennar er
verðmætasti tæknieiginleiki leikmannsins.
Spyrnan kemur að notum í nær flestum
þeim aðstæðum sem skapast í leiknum.
Kunnátta í kollspyrnum, knattraki og
leikbrellum hafa takmarkaö notkunargildi
og er aðeins hægt að beita við sérstakar
aðstæður.
Spyrnan er eitt dýrmætasta vopn varnar-
innar og einnig í undirbúningi og fram- ■'
kvæmdsóknar.
Kostir spyrnunnar liggja aðallega íþví að
Knatt-
spyrnu-
þættir
i«
Janus Gudlaugsson tók saman
1
y *
Myndir 1-4
einnig aö athuga vel aö fylgja spyrnunni
eftir.
3. Með bol og örmum hjálpum viö til viö
jafnvægið og hreyfingar fóta. Við undirbún-
ing spyrnunnar höllum við bolnum yfir
knöttinn, en um leið og spyrnan er
framkvæmd er bolurinn undinn gegn
spyrnuhreyfjngunni. Sjóninni beinum viö að
knettinum. A skýringarmyndum 1—4 getum
við athugað ofantalin atriði sem og
hreyfingar handa við spyrnuna.
Spyrnan æfó:
Eftir að hafa kynnt sér öll veigamestu
atriði í sambandi við að spyrna knetti
innanfótar, er komið aö því aö æfa þaö og
ná góðum tökum á því. Athuga ber vel aö
fjölbreytileiki hennar er næstum ótak-
markaður. Við getum spyrnt knetti á
margan hátt, og fjölbreytt notkun spyrnunn-
ar eykur mjög gildi hennar.
Grundvallarframkvæmd
spyrnunnar
Spyrnur geta verið mjög mismunandi,
eftir því með hvaða hluta fótarins er spyrnt,
en grundvallaratriðin í framkvæmd hennar
eru þó svo hin sömu. Hún er samansett úr
eftirfarandi hlutum:
1. Staða leikmanns gagnvart knettinum.
2. Aftursveifla spyrnufótar.
3. Spyrnan sjálf — spyrnukraftur.
4. Spyrnunni fylgt eftir.
Áður en við byrjum aö tala um algengustu
spyrnurnar, skulum við sjá hvaða spyrnur
við höfum:
a) Innanfótarspyrna.
b) Bein ristarspyrna.
c) Innanverð ristarspyrna.
d) Utanverð ristarspyrna.
e) Utanfótarspyrna.
f) Táspyrna.
g) Hnéspyrna.
h) Hælspyrna.
Innanfótarspyrna
Ein algengasta og án efa nákvæmasta
spyrnuaðferðin í knattspyrnunni í dag er
innanfótarspyrna. Ef árangurs á að vænta
af samspili liðs (sérstaklega stuttu samspili),
verða leikmenn að hafa yfirráð yfir góðri
knattmeðferð og ber þar einna hæst
nákvæmar, vel tímasettar og vel fram-
kvæmdar innanfótarspyrnur. Við skulum því
athuga nánar framkvæmd spyrnunnar:
1. Jafnvægisfót (stöðufót) höfum við við
hlið knattar. Tær vísa í spyrnuátt. Fóturinn
skal ekki vera stífur, heldur lítið eitt boginn
í hnélið, mjúkur og fjaðrandi.
2. Spyrnufóturinn verðum viö einnig aö
athuga vel. Hann sveiflast aftur til undirbún-
ings undir spyrnuna. Honum er snúið út í
mjaðmarlið og myndar rétt horn (900) við
jafnvægisfót. Hnéð lítið eitt bogið og öklinn
stinnur. Fóturinn sveiflast síðan fram og
nemur við miðjan knöttinn. Við verðum
hafa æfingar ekki of erfiðar, heldur aö byrja
á léttum æfingum sem allir skilja og ná fljótt
tökum á. Ég ætla hér aðeins að nefna fimm
æfingar, en síðan getið þið sjálf bætt við
æfingum eða fundið upp nýjar sem hentar
ykkur betur sem og aðstæðunum sem þið
búið við.
1. Spyrnuhreyfingarnar sem lýst er hér áður
eru framkvæmdar án knattar.
2. Liggjandi knetti spyrnt úr kyrrstöðu til
félaga. (Ef félagann vantar má hæglega
notast við vegg).
3. Spyrna liggjandi knetti eftir að: a) hafa
stigið eitt skref að honum, b) hafa tekið
fárra skrefa tilhlaup. Mynd 5.
4. Núerhægtað æfa sigáaðspyrna
knettinum viðstöðulaust, þ.e.a.s. án
stöðvunar, annaðhvort til félaga eða í
vegg. Vandvirkni og einbeiting verður að
vera fyrir hendi ef vel á aö takast.
5. Þrír og þrír saman og mynda þríhyrning.
Þeir spyrna knetti á milli sín, bæði með
og án stöðvunar. Mynd 6.
„Ég hitti ekki, knötturinn fór á rangan fót“.
Hver kannast ekki viö setningu sem þessa eða
í svipuðum dúr. Komið því í veg fyrir að slíkt
hendi ykkur: Æfið ykkur aó spyrna bæói meó
hægra sem vinstra fæti, pá missið pió ekki
marks“.
• LUGI og DROTT, lið
Þeirra Jóns Hjaltalíns
Magnússonar og Ágústs
Svavarssonar, eru komin í
úrslit í sænsku 1. deildinni í
handknattleik. Lugi vann
báða leiki sína gegn Ystad
með markatölunum 16:14 og
geröi Jón 4 mörk í fyrri leik
liðanna, en 1 í þeim síðari.
Drott vann auðveldan sigur í
heimaleik sínum á móti
Heim, úrslitin urðu 29:21, en
fyrri leik liðanna vann Drott
23:22. Eins og fram hefur
komið má Ágúst Svavarsson
ekki leika með Drott í
pessari úrslitakeppni, par
sem hann hefur ekki búiö
nægilega lengi í Svípjóð.
• NÁGRANNAEINVÍGI fór
fram í Minden á sunnu-
daginn er Dankersen og
Nettelstedt léku í v-pýzku 1.
deildinni í handknattleik.
Svo fóru leikar að Danker-
sen vann 21:20 og hafði
undirtökin í leiknum allan
tímann. Axel Axelsson átti
stórleik með liði sínu og
geröi 9 mörk, Ólafur Jónsson
var einnig atkvæðamikill og
gerði 4 mörk. Dankersen
heldur sæti sínu sem nú er
3 í deildinni, en liðiö varð
sem kunnugt er pýzkur
meistari í fyrra. Göppingen
geröi jafntefli á heimavelli,
14:14, en Hannover tapaði
illilega á sínum heimavíg-
stöðvum, lá fyrir Grosswall-
stadt, 8:15. Vonir Einars
Magnússonar og félaga hans
í Hannover um sæti í 1.
deildinni næsta vetur eru
nær pví úr sögunni.