Morgunblaðið - 04.04.1978, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 04.04.1978, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1978 29 Holskefla ríður yfir Leó skiimmu eftir að báturinn fór á hlióina, en þá höfóu tilraunir Ægis við að ná skipinu út. mistekizt TILRAUNIR til að ná vélbátnum Leó frá Vestmannaeyjum af strandstað á Þykkvabæjarfjörum hafa mistekizt en báturinn strandaði þar á sunnudagsmorgun. Leó er liðlega 100 tonna stálbátur, smíðaður 1959. í gær fór Leó á hliðina í fjörunni þegar varðskipið Ægir reyndi að draga bátinn út, en þá var kominn nokkur sjór bæði í lestar skipsins og vélarrúm. 5 manna áhöfn á Leó var um skeið um borð í bátnum, en fór í land í fyrrakvöld þegar veður fór versnandi á strandstað. Allan tfmann höfðu björgunarsveitir SVFÍ á Hvolsvelli og í Landeyjum verið til staðar á strandstað. ókunnugt er um orsökina fyrir strandi Leós, en báturinn var með trollið aftan í sér þegar hann strandaði. Varðskip var komið á staðinn skömmu síðar og reyndi eftir hádegi á sunnudag á draga Leó á flot, en það bar ekki árangur. Sjópróf hafa ekki farið fram vegna strandsins. ■ Leó að leggjast á hliðina í Þykkvabæjarfjöru, en fyrir utan bíður varðskipið Ægir átekta. Björgunarmenn SVFÍ eru í fjörunni. Leó Oskarsson skipstjóri á Leó ásamt föður sínum öskari Matthfassyni útvegsbónda í Vestmannaeyjum. í baksýn er happaskipið Leó á hliðinni í brimrótinu, en þau eru ófá tonnin sem þeir feðgar báðir hafa aflað á þennan bát. Fólk úr nágrenni strandstaðarins kom margt á strandstað til að fylgjast með og fá sér fisk úr Leó í soðið. glænýja ýsu og þorsk. Það er ekki oft sem Þykkvabæingum gefst tækifæri til að fiska á þurru landi, en menn nýttu vel rekann úr Leó. f fjörunni er traktor að fara með kaðal vegna björgunarstarfsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.