Morgunblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.04.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978 11 neitt líknar- og hjálparstarf að ræða. — Við vorum búnir að kanna það nokkuð hvar fólkið byggi og finna staði fyrir flugvelli og ætlunin var síðan að heimsækja þessa staði reglulega og þar sem gífurlega langt er á milli þeirra og engir vegir þá var ráðgert að nota flugvélar við starfið. Það verður þó naumast úr því þar sem félaginu er annaðist þetta flug hefur verið bannað að starfa og verðum við því að ferðast fótgangandi að mestu. Jónas sagði að mikill vilji væri fyrir því hjá hinni innlendu kirkju að ná til nýrra staða og hefur kirkjan t.d. beðið um að sendir væru fleiri kristniboðar til lands- ins, hann sagði að fólkið þekkti til starfs kristniboðanna og treysti þeim. Jónas var spurður hvort engum þætti neinn glannaskapur að fara með mörg börn til óróasams lands: — Við erum nú ekki að fara út í neina óvissu, við höfum þegar dvalið í Eþíópíu í 4 Vi ár og þékkjum orðið aðstæður þar og þekkjum fólkið. Eins og ég sagði áðan líka þá er ekki um óróleika að ræða í þeim landshluta sem við dveljumst í. Um kostnað starfsins í ár kvaðst Jónas ekki geta sagt náknæmlega, hann væri á milli 15 og 20 milljónir króna og væri hann allur borinn uppi af frjálsum framlög- um kristniboðsvina. Jónas sagði að markmið starfsins væri að gera Kristniboðana sem mest óþarfa og því væri lögð áherzla á að innlendir starfsmenn tækju við störfum kristniboðanna, þeir leit- uðu nýrra staða eftir því sem hægt væri og síðan tækju þeir innlendu við. Að lokum var hann spurður hvers vegna hann starfaði sem kristniboði: — Menn starfa að kristniboðs- starfi fyrst og fremst vegna köllunar sinnar, en ekki af ein- hverri ævintýramennsku. Við kristniboðar og kristniboðsvinir trúum því að kristniboðsskipunin sé í fullu gildi og því eigi að boða fagnaðarerindið og gera eins og Kristur gerði: að boða,' kenna og lækna, en hann lét ekkert mann- legt afskiptalaust. Þess Vegna er þessum þremur þáttum sinnt af kristniboðinu — og únnið í anda Krists. Vil ég í því sambandi hvetja þá sem vilja styðja kristni- boðið að muna eftir því í bænum sínum, það efu erfiðir tímar fyrir hina kristnu kirkju í Eþíópíu og nú er mikil vakning og gróska á mörgum stöðum og mikið starf framundan. I kvöld sunnudagskvöld, verður sérstök kveðjusamkoma á vegum S.Í.K. í húsi KFUM og K að Amtmannsstíg, en Jónas og Ingi- björg halda utan mánudaginn 8. maí. Samtíma málverk af Sir Isaac Nevvton kenningar hans óhnekktar allt fram á 20. iildina. Ilann kvart- aði þó oft undan því að vísindastiirf hans hindruðu hann í starfinu sem forstöðu- maður myntsláttunnar og svo aftur að það starf tefði hann við rannsóknir hans á Biblí- unni. Er ekki seinna vænna en að svona þckktur og afkasta- mikill vísindamaður fái mynd af sér á seðil hjá Bretum. Golfinn er vakur vagn sem notar hvert tœkifœri til að sanna húsbónda sínum getu sína og hoUustu. Jafnvel þó það kunni að valda öfund og afbrýðt Hann mœtir hverri þraut með lipurð og léttleika eins og fólksvagns er von og vísa. «!»«BORGARBILL Betri borgarbíl finnurðu varla. Golf er léttur og lipur í umferðinni - bíla8tæði8vandamálum þarftu vart að kvíða - finnirðu smugu kemurðu Golfinum inn - hann er sniðinn fyrir þröng stœði. Úti á landi stendur Golfinn sig, þægilegur í akstri og liggur vel. Hugvit8amleg hönnun hans veldur því að innra rýmið er mikið og drjúgt, bæði fyrir farþega og farangur. Farangursrýmið er 379 l. en með þreföldun á því verður Golfinn ... — ••• FLUTNINGABILL fjölskyldunnar á augnabliki, með 1100 l. flutningsrými. ÞRENNTÍ VIÐBÓT Golfinn er sparneytinn og þú getur valið um bensín eða dieselvél. Og svo er það hin landsfræga varahluta- og viðgerðarþjónusta Heklu - ekki má gleyma henni - því það er eitt að kaupa bíl - annað að reka hann. HEKLA HF Laugavegi 170-172 Sími 21240

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.