Morgunblaðið - 29.04.1978, Side 16

Morgunblaðið - 29.04.1978, Side 16
16 .. MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978 Ágúst Einarsson viðskiptafræðingur: í grein í Morgunblaðinu í apríl 1977 eftir undirritaðan, var leitast við að svara þeirri spurningu hverjar afleiðingar kröfur Alþýðu- sambands Islands, sem settar voru fram á A.S.I. þingi í nóvember 1976, myndu hafa á hag fiskveiða og vinnslu, næðu þær fram að ganga. M.a. kemur fram í grein þessari að hugsanleg afleiðing, ef kröfur A.S.I. yrðu að veruleika væri gengislækkun, en sú leið hefur ætíð verið notuð við svipuð skilyrði á undanförnum árum. Ennfremur kemur fram, að hvort hér verði um eina stóra gengis- breytingu að ræða eða margar litlar, skipti ekki höfuðmáli. Þá kemur einnig fram í greininni, að útflutningstekjur frystingar, sölt- unar og herzlu námu í ársbyrjun 1977 ca. 44.2 milljörðum króna, og ennfremur að útflutningstekjurn- ar þyrftu að hækka um ca. 27% til að vega upp þann útgjaldaauka sem 30% launa- og hráefnishækk- un hefði í för með sér. Með öðrum orðum þýrftu þessar vinnslugrein- ar að fá 27% meira fyrir þann gjaldeyri, sem þær afla en var í ársbyrjun 1977. Þau varnaðarorð, sem sett voru fram í framan- greindri blaðagrein, hafa öll átt við rök að styðjast. Meðan á samningaviðræðum vinnuveitenda og A.S.I. stóð, lagði V.S.Í. fram áætlun um þróun gengis m.v. sáttatilboð sáttanefnd- ar, en hinir endanlegu samningar voru nær samhljóða því. I þessari gengisspá kemur fram eftirfarandi: \hrif sáttatilboAs á ttenKÍ bandarikjadoll- ars samninKstímabilið. kr. Þáverandi Kentd .................. 192.50 I. ájfúst 1977 .................. 206.80 1. desember 1977 ............... 236.85 1. marz 1978 .................. 259.60 1. júní 1978 .................... 290.30 1. septemb. 1978 ............... 324.60 1. nóvemb. 1978 ................ 349.50 Hér að framan hefur verið rakin spá um þróun gengis frá því í maí 1977 þar til 1. nóvember í ár, þ.e. til loka samningstímabils. Hér er um 18 mánaða tímabil að ræða og skyldi því engan undra, að einhver frávik yrðu, en í Ijós kom, að raunverulegt gengi bandaríkja- dollars þann 1. marz s.l. var 252.90 kr. þ.e. spáin gerir ráð fyrir 34.9% hækkun á því tímabili, en raunin hefur orðið 31.3% hækkun. Með öðrum orðum, það sem er að gerast í dag ætti engum að koma á óvart og allra sízt Alþýðusam- bandsforystunni. Hér að framan er spáin sýnd allt til loka samningstímabilsins, þó að forsendur hafi breyzt við breyting- ar á vísitölulið samningsins. Ég hef sett framanritað hér niður til þess að reyna enn einu sinni að opna augu manna fyrir því, að séu vissar forsendur fyrir hendi, þá er tiltölulega auðvelt að spá fyrir um þróun í framtíðinni. Útgerðin Frá því á árinu 1973 hefur afkoma útgerðarinnar verið mjög bágborin. Þannig sýna reikningar, að tap útgerðar fyrir beina skatta var á árinu 1973 7% af tekjum 1974 7.7%, 1975 13.8%, 1976 10.9% og áætlunin fyrir árið 1977 gerir ráð fyrir því að tapið verði 1.2% af tekjum. Hér er um heildaraf- komu að ræða, þ.e. samánlagða afkomu bátaflotans, loðnuflotans og skuttogara af minni og stærri gerð. Afkomumynd hinna ýmsu greina er þó mjög misjöfn og er afkoma bátaflotans án loðnuveiða og hinna stærri skuttogara lökust á framangreindu fimm ára tíma- bili. Astæðan er sú, að aflaminnk- un hefur orðið tilfinnanlegust hjá hinum almennu vertíðarbátum og olíuverðshækkunin kom verst við hina stærri skuttogara, þar eð þeir Áhrif eru með mjög olíufrekar vélar. Loðnuflotinn er sá hluti flotans, sem bezta akomu hefur haft undanfarin ár. Mjög verulegur hagnaður varð hjá honum á árunum 1973 og 1974, en árin 1975 og 1976 voru slæm og t.d. nam þá tap loðnuflotans á árinu 1975 10.4% af tekjum. Mjög góð afkoma varð hins vegar á loðnuflotanum árið 1977, en þá var metaflaár. Afkoma skuttogara af minni gerð hefur batnað verulega hin síðari ár og er afkoma' þeirra árið 1977 viðunandi. Ágúst Einarsson Staða útgerðar í ársbyrjun 1978 Um áramótin síðustu var af- koma hinna ýmsu greina útgerðar- innar tiltölulega bágborin. Fisk- verðshækkun hafði ekki orðið frá því 1. júlí 1977, en þá var fiskverð hækkað um 20%. M.v. allar þær kostnaðarhækkanir, sem dunið höfðu yfir síðustu mánuði ársins og þær, sem vitað var að kæmu til framkvæmda um áramót, var ljóst, að töluverð fiskverðshækkun þurfti að koma til þann 1. janúar. Ennfremur var ljóst, að sjó- mannasamtökin myndu krefjast kjarabóta fyrir félagsmenn sína, en kaup almennt hafði hækkað um ca. 14% í desember 1977. í ársbyrjun 1978 var áætlað að rekstrarskilyrði hinna ýmsu greina flotans væru sem hér segir: af tekjum Bátar án loðnu .......... tap 14.5% Loðnubátar .............. hagn. 8.1% Minni skuttog............ tap 1.8% Stærri skuttog........... tap 11.1% Eins og að framan segir var ljóst, að til töluverðrar fiskverðs- hækkunar myndi koma um ára- mótin og má víst telja, að fulltrúar fiskvinnslunnar í Verðlagsráði hafi gert sér fulla grein fyrir því. Á fundi yfirnefndar Verðlags- ráðsins þann 25. janúar var síðan samþykkt með atkv. oddamanns og fulltrúa seljenda, að fiskverð altoennt myndi hækka um 13% frá 1. janúar að telja. Eftir þá fiskverðshækkun batn- aði staða útgerðarinnar töluvert og má ætla, að afkoma hinna einstöku greina hafi verið sem hér segir: af tekjum Bátar án loðnuveiða ........... tap 7.7% Minni skuttog. .............. hagn. 2.2% Stærri skuttog.................. tap 3.3% Hvað loðnuflotann varðar var staða þeirra tiltöluléga jákvæð í upphafi árs, eins og fram hefur komið. Öllum aðilum, sem um efna- hagsmál fjölluðu, var fyllilega kjarasamninganna á sjávarútveginn ' . * ,'Cr v-' [ ""11nL'ií ÆTml jjy; Þegar þeir átu Seltfarnarnesið 14. MARZ s.l. var Slysavarnadeildin Bjarni Pálsson á Seltjarnarncsi 10 ára. í tilefni afmælisins voru nokkrum velunnurum slysavarnamála á Seltjarnarnesi færðir borðfánar sem þakklætisvottur. Meðal þeirra. sem fengu fána. var bæjarstjórn Seltjarnarness, sem á undanförnum árum hefur sýnt starfsemi Slysavarnadeildarinnar Bjarna Pálssonar og Björgunarsveitinni Albert mikinn vclvilja. Á afmælis- og aðalfundinum var boðið upp á all sérstæða afmælistertu, en hún var eftfrlíking af Seltjarnarnesinu og áreiðanlega stærsta terta, sem boðið hefur verið upp á í Félagsheimili Seltirninga. Sæmdir OBE-ordunni ELIZABETH Bretadrottning hefur heiðrað þrjá íslendinga með því að veita þeim orðuna ,;Order of the British Ernpire". Islendingarnir eru frú Ellen Sighvatsson, Ilannes Hafstein og Geir Zoega. Föstudaginn 21. aprfl afhenti sendiherra Breta á íslandi, Kenneth A. East. orðurnar við athöfn í brezka sendiráðinu. Meðfylgjandi myndir eru tekn- ar við það tækifæri. Landslagsarkitektar stofna félag Flateyri: Listi fram- farasinna 1 latevri 28. apríl FRAMBOÐSLISTI framfarasinna vegna komandi sveitarstjórnar- kosninga hefur verið lagður fram á Flateyri og skipa listann eftirfar andit 1. Eyvindur Bjarnason kennari, 2. Hjörleifur Guðmundsson verkamað- ur, 3. Bolli Olafsson bókari, 4. Guðbjartur Olafsson húsasmiður, 5. Þórarinn Kristjánsson verksmiðju- stjóri, 6. Björn Jónsson vélsmiður, 7. Jóhann Svavarsson rafvirki. Fróttaritari HINN 24. febrúar s.I. var stofnað í Reykjavík „Félag íslenskra Iandsarkitekta“, skammstafað F.Í.L. Markmið félagsins er að stuðla að þróun landslags- og garð- byggingarlistar með því að vinna að réttri meðferð og notkun lands, sem og mótun þess. Auk þess skal íélagið ga-ta hagsmuna félagsmanna. Félagar geta þeir einir orðið, sem lokið hafa námi og fullnaðar- prófi við menntastofnanir, sem félagið samþykkir, en þá er stuðst við samþykktir „Alþjóðasamtaka landslagsarkitekta" I.h'.L.A. (International federation of landscape architects). Starfsheitið „landslagsarkitekt" er hér með tekið upp í stað garðarkitekt eða skrúðgarðaarki- tekt, sem notað hefur verið fram að þessu. Þykir nýja starfsheitið ná betur starfssviðinu, auk þess sem þessi þróun er í samræmi við þá breytingu, sem átt hefur sér stað á starfsheitinu í' nágranna- iöndunum á síðustu árum. Hið sérstaka lífræna viðfangs- efni landslagsarkitektsins ér: a) Varðveisla núverandi verð- mæta lands og lífríkis þess. b) Mótun nýs lands í samræmi við nútíma lifnaðarhætti og vax- andi kröfur um bætt umhverfi. Starfssvið landslagsarkitekta er víðtækt, allt frá skipulagi lóða við einstakar bvggingar, til þátttöku í skipulagi á heilum landssvæðum. Nefna má sem dæmi: a) Útivistarsvæði við hýbýli manna. b) Iþróttasvæði, skrúðgarða og kirkjugarða d) Landslagsmótun, þar sem meiriháttar jarðrask og breyt- ingar á landi eru óumflýjanleg- ar, svo sem við byggingu raforkuvera, við vega- og brúargerð o.fl. c) Þátttaka í skipulagi bæja og gerð landnýtingaráætlana. Stærsta verkefni félagsins á þessu ári er undirbúningur undir ráðstefnu norrænna landslags- arkitekta, sem haldin verður hér á landi sumarið 1979. Undirbúningur ráðstefnunnar er mikið starf fyrir lítið félag, en stofnfélagar eru aðeins 5 talsins. Þeir eru: Auður Sveinsdóttir, Einar E. Sæmundsen, Jón H. Björnsson, Reynir Helgason og Reynir Vilhjálmsson, sem jafn- framt er formaður félagsins. (Fréttatilkynning).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.