Morgunblaðið - 20.05.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.05.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1978 Frá vinstrii Valgcrður, Ásrún. Matthildur og Þórunn Halia. Ljósmynd Mbl. Friðþjófur. Söngskólatónleikar í Norrœna húsinu: ffAð takaþáttí sörtgn- um af lífi og sál” Á Söngskólatónleikum í Norræna húsinu laugardaginn 20. maí kl. 14.30 syngja þær Valgcrður J. Gunnarsdóttir sópran, Matthildur Matthías- dóttir alt og Ásrún Davíðsdótt- ir sópran. Undirleikarar eru Jórunn Viðar og Krystyna Cortes. í stuttu samtali við Morgun- blaðið sögðust þær vera mjög ánægðar með veruna í skólan- um, þetta væri eins og ein stór fjölskylda. Ásrún: Við sem erum að útskrifast nú erum þau fyrstu og eiginlega hefur starf skólans verið sniðið eftir okkur og við eftir honum, en það hefur verið skemmtilegt að taka þátt í þessu og má segja að allir hafi gert það af lífi og sál. Matta: Venjan er sú að talsverð afföll verði á fólkinu eftir fyrstu lotuna, en hjá okkur hefur hópurinn haldist vel saman. Annars er ég að hugsa um að draga mig í hlé í vetur, er húsmóðir og ætla að einbeita mér að því, en þó ætla ég að dunda við píanóið því mér finnst ég vera á eftir í því sambandi við nám í kennaradeild. Valgerður: Eg hef hugsað mér að fara í kennaradeildina og halda svo áfram eins og hægt er, en þó verður maður líklega að sjá til hvernig þetta stokkast. Þær stöllur kváðust bjartsýn- ar á framtíðina og aðspurðar kváðust þær hafa verið mjög ánægðar að heyra álit brezka prófdómarans á Söngskólanum og nemendum, en prófdómarinn, prófessor John Street, kvað mjög mikla breidd í söng nemenda skólans og árangur mjög góðan, enda er fall- prósenta með því lægsta sem þekkist í söngskólum þótt ströngustu prófdómarar séu valdir til skólans. K ennar adeild í Söngskólan- um næsta vetur F’IMMTA starfsári Söngskólans í Reykjavík er senn að ljúka. í vetur stunduðu 75 nemendur nám við skólann, í söng, tón- heyrn, nótnalestri, tónfræði, tónlistarsögu og píanóleik. Að vanda kom prófdómari frá Konunglega tónlistarskólanum í London, (Royal Schools of Music), og var það að þessu sinni prófessor John Streets, yfirmað- ur óperudeildarinnar í Konung- lega tónlistarháskólanum í London, (Royal Academy of Music). Alls var tekið 71 próf í vor, og var það í eftirtöldum greinum: Söng, ásamt tónheyrn og nótna- lestri IV — VIII stig, tónfræði I — V stig, hljómfræði VI og VII stig, píanó I — V stig, og svo tónlistarsögu. í fyrsta sinn í sögu skólans þreyttu nemendur próf í VIII í söng, en því stigi þarf að ná meðal annars til að komast í kennaradeild skólans, sem tekur til starfa á næsta skólaári. 15 nemendur tóku prófið, og stóð- ust 13. Sérmenntaðir söngkennarar við íslenska tónlistarskóla eru fáir, og því þörfin mikil. Því hefur verið stefna Söngskólans frá upphafi að opna kennara- deild við skólann, og er því marki nú náð, því næsta skólaár verður slík deild opnuð við skólann. Ennfremur verður sett á stofn óperudeild, ljóðadeild og námskeið fyrir kórfólk. í samtali við Morgunblaðið sagði Garðar Cortes skólastjóri í tilefni af því að útskrifað er eftir 8. stig í fyrsta skipti: „íslenzka óperan" „Senn líður að því að „íslenska óperan" taki til starfa í raun. Þar sem bæði nemendur og kennarar Söngskólans eru að miklu leyti stofnfélagar óper- unnar, auk Sinfóníuhljóm- sveitarinnar í Reykjavík og ýmissa einsöngvara þykir mér tilhlýðilegt að kynna þetta fyrirtæki lítillega og undirbúa þannig jarðveginn fyrir íslenska óperustarfsemi. Fyrsta óperan verður La Traviata eftir Verdi og ætti enginn að verða svikinn af því vali, því að sú ópera er viður- kennd sem vinsælust allra ópera fyrr og síðar. Ætlunin er að setja á svið minnst tvær óperur á ári og sýna þær bæði í Reykjavík og úti á landi. Óperuflutningur í Þjóðleik- húsinu hafði legið niðri um árabil þar til núverandi þjóð- leikhússtjóri, Sveinn Einarsson, tók við embætti, en síðan hefur Þjóðleikhúsið sett upp eitt meiriháttar verk á ári. Hann hefur sýnt nýstofnaðri „ís- lenskri óperu" mikinn áhuga, sem sést best á boði hans um að hún fái aðstöðu í Þjóðleikhúsinu í sept. 1978 með sína fyrstu óperuuppfærslu. Leikstjóri, búninga- og leik- tjaldamálari hafa verið fengnir frá Covent Garden óperunni í London. í þessum nemendahópi sem nú þreytir þá raun að „syngja tónleika," sem hluta af sínu námi er vonandi að finna framtíð „Islensku óperunnar“. Óska ég þeim alls hins besta og til hamingju með áfangann." Jón Kjartansson. semgegnt hefur formennsku í Siglfirðingafclaginu í 15 ár, tekur við heiðursskjali frá núverandi formanni félagsins, Olafi Ragnarssyni. Siglfírðingar á höfuðborgarsvæðinu: Minnast 60 ára kaupstaðarafmæl- is á fjölskyldudegi Siglfirðingar á höfuðborgar- svæðinu munu á laugardaginn minnast þess, að fiO ár eru liðin frá því að Siglufjörður hlaut kaupstaðarréttindi og 160 ár frá því að staðurinn var löggiltur verslunarstaður. Afmælisdagur inn er 20. maí, en þann dag er árlegur fjölskyldudagur Sigl- firðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni. Þá munu Siglfirðingar hittast í Kristalssal Hótels Loft- leiða, þar sem siglfirskar konur munu selja kaffi og kökur og stutt ávörp verða flutt. Þá mun vcrða kvikmyndasýning fyrir börnin í kvikmyndasal hótelsins. Framhald á bls. 30. Sauðburður í kulda í Hreppunum Syðra-Langholti 17. maí SAUÐBURÐUR er alls staðar haf- inn hér um slóðir og gengur yfirleitt vel. Ær bera á húsi, því gróður er ekki nægur ennþá. Síðustu daga hefur verið hér kuldi og snjóað í byggð og þar af leiðandi viðrað illa fyrir lambfé. Frjósemi virðist ætla að verða í meðallagi en vissulega er hún misjöfn eftir bæjum eins og gengur. Víðast er 60 til 80% tvílembt. Mikil vinna er hjá bændum um sauðburðinn og hafa sumir tekið þann kostinn að halda til í fjárhús- unum allan sólarhringinn, því oft má lítið út af bera þannig að ekki fari illa. Jörð er að mestu kallaus og má því ætla að gróður tæki vel við sér ef hlýnaði. Nokkuð er búið að bera á af tilbúnum áburði og nokkrir bændur eru farnir að sinna jarðvinnslu. Sig. Sigm. Sauðburðurinn er í hugum margra af yngri kynslóðinni til sveita einhver skemmtilegasti tími ársins. Hér má sjá tvo félaga í einu fjárhúsinu í Ilrunamannahreppnum. Ljósm. Sig. Sigm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.