Morgunblaðið - 20.05.1978, Side 20

Morgunblaðið - 20.05.1978, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1978 Ég spyr þig, hr. Emil Gilels, eru 7 ár í þrælkunar- vinnu og 5 ár í útlegð jafngild orðum Orlovs og eru þjóðir Sovétríkjanna stoltar yfir þessum dómi? Fyrir mér er þessi dómur smánun á sovézkum heiðri en Orlov eina vonin um að íbúar þinnar voldugu þjóðar séu ekki múlbundnir hræsn- arar og tal ykkar um lýðræði Undir skugga Orlovs Hr. Emil Gilels. Það má vera, að það skipti yður ekki miklu, frekar en klapp hljómleikagesta sl. fimmtudagskvöld, hvaða stefnu einn smákarl uppi á íslandi setur þér og auk þess ekki víst, að orð mín berist þér. Þegar ég var ungur nam ég við móðurkné sögu alþýðu- konunnar, sem réttlaus var skotspónn ranglátra þjóð- félagshátta. í þeirri sögu réð ég þær rúnir er af spratt trú mín á „sósíalistískt" lýðræði. Sú framtíðarsýn var dregin fögrum litum og línum. Smám saman fældust inn á myndflötinn skrýtin mynd- form, óljós og oflýst, en bundust þó myndinni. Þessi gagnsæju form urðu skýr og æpandi þegar „félagi Krútsjoff" dró þær línur, er mörkuðu grunnform þessara tákna. Síðan þá hafa hugtök eins og mannréttindi leitað mjög á huga minn. Sjálfsagt verður erfitt að finna samfélagsform, þar sem mannréttindi eru full- virt og slík draumsýn ef til vill verða flokkuð sem óraun- sæ trúardella. En eins og lausn þessa máls virðist vera fráleitur draumur, verður andstæða hans skýrari og þar hafa stjórnmálamenn Sovétríkjanna verið öllum iðnari að svívirða þá hugsjón réttlátra og fagurra lífshátta er spratt upp úr neyð alþýð- unnar og neisti byltingarinn- ar nærðist á. Það má vera, þegar núver- andi ofbeldis valdhafar um allan heim eru dauðir, komi einhver „Krútsjoff" og segi Tðnllst eftir JÓN ASGEIRSSON sannleikann og þeir sem ofsóttir voru verði þá færðir til í gröfum sínum. Við slík tíðindi vaknar sú spurning hvort slíkir „Krútsjoffar" séu ekki jafn sekir þeim, er þeir ákæra og yfir hverju þeir eigi að vera stoltir. í málatilbúnaði þeirra, sem stunda ofsóknir, í smá- um sem stórum stíl og um allan heim, er heiðri og eru teflt fram gegn efasemdum og mótmælum. Heiðri og æru Sovétþjóðanna stafar ekki hætta af orðum Orlovs, Pasternaks eða Rostropovits heldur pólitískum skríl valdamanna, sem svívirðir þjóð sína og sögu. Orlov, Pasternak, Rostropovits og allir þeir, sem hafa haft hugrekki til að tjá hug sinn, eru tákn þess að pólitísk skoðanakúgun studd af ærandi vélveldi nútímans í milljónföldu margfeldi er ekki þess megnug að þagga niður einradda hróp þess, sem vill ekki beygja hugsun sína undir ofbeldi hugmyndanna, sem grimmd manna nærist á. Tónleikarnir hófust á 12. sinfóilíu Sjostakovits, sem samin er fyrir kommúnista- flokk Sovétrríkjanna og fjallar um einstaka atvik og í siðasta þættinum, um hugsjónir byltingarinnar. Hugsjónir verða til sem andstæður upplifaðs rang- lætis og birtast í hugmynd- um eins og álfatrú, trúnni á þúsunda ára ríkið og þörf- inni fyrir réttlátt samfélag. lygar. Það er á þessum grunni, sem menn deila um gildi 12. sinfóníunnar eftir Sjostakovits, en ekki um meistaralegt handbragð hans. Innihald verksins hljómar mér eins og öfug- mælavísa, sem minnir óþægilega á sífellda endur- ritun rússneskrar sögu, en yfir flutningi verksins hvíldi skugginn af Orlov. Það má vel vera, að þér sjáið ekki samband milli veru yðar hér á landi og dómsins yfir Orlov. Á sama tíma og hann er fluttur í fangelsi eruð þér sendur um heim allan sem sýnisblóm rússneskrar hámenningar og prúðbúnir vestrænir borgar- ar njóta heimsfrægðar þinn- ar og snilli og hafa á meðan hljótt um ánauðugan bróður austur í Sovét. Hr. Emil Gilels. Snilli yðar er óumdeilanleg, en þér eruð sendisveinn fyrir járn- grímuklætt ofbeldið og þess vegna mun ég ekki, þó að það skipti yður litlu, koma á tónleika yðar hjá tónlistar- félaginu í dag. Um tónleikana er það helzt að segja, að í heild voru þeir stórglæsilegir. Karsten Andersen átti þarna stóran dag og hljómsveitin var í sínu bezta formi, t.d. lék Viðar Alfreðsson 1. hornisti mjög fallega með Gilels í hæga kafla Griegkonserts- ins. Frammistaða stjórnand- ans Karsten Andersen og hljómsveitarinnar var slík, að ástæða væri til nákvæm- ari umfjöllunar á þessum kkonsert en undir skuggan- um af Orlov, verða fangnaðarlæti og klapp eins og samþykki við ofbeldið. Jón Ásg. Björg Árnadóttir: Danskan illskiljanleg öðrum Norðurlandaþjóðum Hér í blaði hafa að undanförnu verið birtar greinar með og á móti dönsku-kennslu í skólum. Eg leyfi mér í þessu sambandi að birta þýðingu úr „Vi i Norden" — tímariti norrænu félaganna — nr. 4—73: „Sameiginlegt mál allra Norðurlandabúa er ekki til. Að frátald'ri finnsku og íslensku er danskan eins og við var búist það talmál, sem erfiðast er að skilja. Ekki einu sinni helmingur Svía skilur dönsku, aðeins 7 af hundr- aði Finna sögðust skilja hana, en 79 af hundraði Norðmanna." Þessi niðurstaða fékkst þegar norrænu félögin könnuðu hvernig norrænar þjóðir skildu talmál hverrar annarrar. Niðurstaðan var eins og við var búist mjög óhagstæð fyrir danskt talmál. I Ivers vegna halda kennslu-yfir- völd hér á landi þó áfram að auka donsku-kennslu? . Danskan er óhentug sem norrænt hjálparmál fyrir íslendinga Ástæðuna fyrir óvinsældum dönsku-kennslunnar og lökum árangri hennar hér á landi er alls ekki að finna í lélegri kennslu, óhentugu námsefni eða þess hátt- ar. Málið sjálft er óhentugt sem norrænt hjálparmál fyrir Islend- inga. Danskan fer þeim afar illa í munni, og lærist þeim seint ef nokkurn tíma. Ég held að þar skipti litlu máli þó að dönskunám- ið yrði umfangsmeira, eða skóla- börnin yrðu að horfa á dönsku- kennslu í sjónvarpi á hverjum degi. Um daginn kom danskur íþróttaþjálfari til landsins. Unglingarnir sem hann átti að sinna höfðu 6—8 ára nám í dönsku að baki. Kom strax í ljós að fæstir skildu hann. Voru greidd atkvæði um hvort málið skyldi notað á námskeiðinu, danska eða enska, og kusu flestir íslensku unglinganna að nota ensku í samskiptum við hann. Togstreitan milli dönsku og enskukennslu um hylli nemenda Þó að dönskukennslan yrði minnkuð, þýðir það ekki sama og að Island segði skilið við norræna samvinnu. Danir, Norðmenn og Svíar hafa ensku sem umfangs- mesta erlenda túngumálið í sínum skólum, og þeir éru nú áfram Nórðurlönd. Það er heldur ekki Mægt að lólía augúilum fytir þeirri staðreynd að enska er og verður sennilega áfram eitt helsta heims- málið. Plr nú ekki kominn tími til að líta með raunsæi á tungumála- kennslu á Islandi? Dönskukennsl- an hefur hingað til gert lítið gagn, og síður en svo verið til að auka tengsl Islands við Norðurlöndin. Þvert á móti hafa nemendur haft svo lítinn áhuga á dönsku, að þeir hafa snúið sér að hinum ensku- mælandi heimi sem betri valkost. Þannig er kennsla í dönsku engin stoð fyrir norræna samvinnu í framtíðinni, heldur hindrun. Éger líka hrædd um, að með þessu áframhaldi í kennslumálum, þar sem danskan keppir við ensku um hylli nemenda, um aukna kennslu- tíma, um aukna fjárveitingu, verði ansi lítið eftir til að sinna móðurmálinu. Það verður því undir í baráttunni, og til þess er leikurinn ekki gerður, eða hvað? Það er þess vegna spurning, hvort tilboð danskra mennta- manna um aðstoð við að auka dönskukennslu bæði í skólum og fjölmiðlum sé ekki bjarnargreiði þegar allt kemur til alls. Danir nota hvert einasta tækifæri til að minna á það að Islendingar sjálfir hafi kosið að læra dönsku, þeir hafi sjálfir beðið um hjálp í þessu máli, frumkvæðið ætíð komið frá þeim o.sv.fr. Ég efast um að almenningur í landinu standi einhuga á bak við þessar beiðnir. Getur verið að hér sé um að ræða, að smá þrýstihópur með miðstöð í Norræna húsinu tali fyrir hönd atlra skólabarna í landinu? Dönskukennsluna út úr harnaskóla Að lokum leyfi ég mér að koma með- tillögur um lausn á þessu máli: Dönskukennsla út úr 4., 5. og 6. bekk barnaskóla. Kenna Norður- landamál frá 7. bekk, og leyfa að velja milli dönsku, norsku og sænsku. Skólakerfið stefnir hvort eð er í aukna fjölbreytni í kennslugreinum. Með þessu móti veldu nemendur má) það sem þeir hefðu áhuga á, og námið yrði Framhald á bls. 30. Edgar Guðmundsson Iðnaðarráðherra heíur skipað Edgar Guðmundsson verkfræð- ing stjórnarformann Rannsókna- stofnunar hyggingariðnaðarins. Ásamt honum voru skipaðir í stjórnina Gunnar S. Björnsson. skv. tilnefningu Landssambands iðnaðarmanna og Ilalldór Jóns- Kaffisala hjá Gudspeki- félaginu ÞJÓNUSTUREGLA Gpðspeki- félagsins heldur sína árlegu kaffi- sölu kl. 3 á sunnudag í Templara- höllinni á Eiríksgötu 5. Ágóðannm son framkvæmdastjóri sam- kvæmt tilnefningu Ráðgjafar- nefndar Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins. Edgar Guðmundsson rekur eigin verkfræðistofu á Ægissíðu í Reykjavík. Fyrri hluta verkfræði- prófi lauk hann 1964 frá Háskóla Islands en lokaprófi frá NTH í Þrándheimi 1966. Hann var bæjar- verkfræðingur á Ólafsfirði og Dalvík 1967—1969 og kennari við Tækniskólann frá 1970 og yið háskólann frá 1974. Er þar nú aðjunkt. Edgar átti m.a. sæti í umhverfismálanefnd ríkis- stjórnarinnar, og er ráðunautur Iðnaðarráðuneytisins í fjarhita- málum. Hann hefur ritað fjölda tækigreina í innlend og erlend blöð. Á árinu 1977 kom út fræðiritið Trévirki, svo og Tækni- mat húsa. Og nú vinnur Edgar að samningu bókar um timburplötur, sem kemur út á Norðurlöndum síðar á þessu ári. verður varið til viðhalds á húsi félagsins. Verður þar dagskrá. Ávarp flytur Sigvaldi Hjálmarsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir syngur með undirleik Ólafs Vignis Albertssonar og Gunnar Valdi- marsson og Karl Helgason lesa upp. Myndsýning verður frá Ind- landi. Þá geta menn fræðst um tilgang félagsins og starf. Skipaður stjórnar- formaður R.b.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.