Morgunblaðið - 20.05.1978, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAI 1978
þar sem við gerðum hagkvæman
samning við Reykjavíkurborg um
að hitaveita Reykjavíkur sæi um
lagningu hitaveitunnar og ræki
þannig að Kópavogsbúar sætu við
sama borð og Reykvíkingar. Afnot
Kópavogs af hitaveitunni spara
bæjarbúum hátt í sömu upphæð og
nemur allri útsvarsbyrði þeirra
miðað við svipaða olíunotkun og
hér var.
Þegar þessu mikla verki var
lokið var augljóst að fullnaðargerð
gatna var næsta stórmál. Því var
það strax að þessum framkvæmd-
um loknum, eða 1976, að hafist var
handa við varanlega gatnagerð
með endanlegum frágangi, undir-
byggingu gatna, slitlagi, gang-
stéttum og gatnalýsingu. A s.l.
kjörtímabili var lagt slitlag á um
12.5 kílómetra af undirbyggðum
götum, gerðar gangstéttir að lengd
6.5 km og gengið frá lýsingu við
þessar götur. Auk þess var bundið
slitlag lagt á óundirbyggðar götur
7,3 km að lengd.
Þá hafa miklar athuganir verið
gerðar og hönnun hófst á holræsi
í Kópavogsdal á kjörtímabilinu.
Auk þess sem margvíslegar endur-
bætur hafa verið gerðar á hol-
ræsakerfi bæjarins.
Hvað varðar framtíðina, stefn-
um við að áframhaldandi átaki í
gerð varanlegrar gatnagerðar,
gerð gangstétta og gatnalýsingum
og er það von okkar að takast megi
að ljúka stærstum hluta þess sem
eftir er á komandi kjörtímabili. Á
nokkrar götur, sem nú eru malar-
götur verði lagt rykbundið slitlag
til bráðabirgða, þótt þær séu ekki
Kópavogur ekki lengur svefn-
bær nágrannabyggðanna heldur
einn mesti iðnaðarbær landsins
Miklar framkvæmdir og upp-
gangur hafa vcrið í Kópavogi s.l.
8 ár. í bæjarstjórn Kópavogs hafa
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur myndað meirihluta.
Axel Jónsson. f.v. alþingismaður
skipar nú efsta sæti á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins til bæj-
arstjórnar Kópavogs og hefur átt
sæti í' stjórn bæjarins undanfarin
16 ár. Á næsta kjörtímabili
verður Axel Jónsson væntanlega
sá fulltrúi sem lengst hefur setið
í bæjarstjórn Kópavogs. Morgun-
blaðið ræddi við Axel fyrir
skömmu um hclztu framkvæmdir
í Kópavogi og aðra starfsemi á
vegum hæjarins á undanförnum
árum og viðfangsefnin framund-
an. Fer samtalið hér á eftir.
Stjórnun og fjármál
Ein ánægjulegasta breytingin,
sem hefur orðið hér s.l. 8 ár, er að
ekki er lengur hægt að tala um
Kópavog sem svefnbæ nágranna-
sveitarfélaganna. Hann er nú
orðinn einn mesti iðnaðarbær
landsins, þá fyrst og fremst vegna
mikils átaks bæjarstjórnarinnar
sem hefur kappkostað, að hafa
ætíð til lóðir fyrir atvinnufyrir-
tæki. Sem dæmi um þessa breyt-
ingu vil ég nefna að samkvæmt
könnun sem gerð var á s.l. ári, þá
er um 40% alls starfsfólks í
fyrirtækjum hér i Kópavogi að-
komufólk.
Okkar helzta gagnrýni þegar við
vorum í minnihluta hér í bæjar-
stjórn, gagnrýndum við það mjög
að umsamdar lausaskuldir bæjar-
ins væru óhóflega háar að okkar
mati, um og yfir 80% af öilum
skuldum bæjarsjóðs. I þessu efni
hefur orðið grundvallabreyting
undir forystu sjálfstæðismanna
undanfarin tvö kjörtímabil og í
dag eru lausaskuldir bæjarins
aðeins um 40-50% af heildar-
skuldabyrðinni. Við stefnum auð-
vitað að því að koma þessu neðar
og vonum í því sambandi að
veruleg bót verði, þegar stað-
greiðslukerfi skatta verður orðið
að veruleika.
Dæmi um þessa grundvallar-
breytingu get ég nefnt, að 1970 var
yfirdráttur bæjarsjóðs við Búnað-
arbankann um 20% af heildar-
veltu bæjarsjóðs, en í dag er þessi
yfirdráttur komin niður í 3% af
veltunni, og segir það sína sögu.
Þjónustan hefur verið aukin
stórlega með bættri stjórnun og
má þar nefna m.a. að tekið hefur
verið upp nýtt leiðakerfi strætis-
vagna með stóraukinni tíðni ferða,
5 nýir strætisvagnar voru keyptir
á kjörtímabilinu. Aldraðir fá fríar
ferðir með SVK. Hafin hefur verið
samvinna við Reykjavík um að
skiptimiðar gildi jafnt í strætis-
vögnum beggja sveitarfélaganna.
Þetta leiddi til þess að við urðum
að lækka verð miða í strætisvagna
Kópavogs miðað við það sem áður
var. Til að þetta geti gengið
snurðulaust fyrir sig verður bæj-
arsjóður Kópavogs að niðurgreiða
þessa þjónustu árlega um 110-120
milljónir króna.
Margs konar endurskoðun á
stjórnkerfi bæjarins hefur farið
fram á kjörtímabilinu, eins og
ávallt er nauðsynlegt. Keypt var
tölva og öllu bókhaldskerfi bæjar-
ins og fyrirtækja hans komið í
tölvuvinnslu og þar með stóraukið
og flýtt upplýsingastreymi um öll
fjármál bæjarins út um bæjar-
kerfið og til bæjarfulltrúa.
Hitaveita og
varanleg gatnagerð
Stærsta hagsmunamáli Kópa-
vogsbúa, hitaveituframkvæmdun-
um, var lokið á kjörtímabilinu eða
árið 1975. Þetta reyndist mögulegt
Rætt við Axel Jónsson bæjarfulltrúa í Kópavogi sem skipar
efsta sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins par.
..i i 5 \ \ r^.iW%3vitnmi*rn, avram.
Hinn nýi miðbær Kópavogs. Stefnt er að því að ljúka byggingum austan Hafnarfjarðarvegar á næsta
kjörtimabili, en langtímaverkefni er siðan að byggja yfir Ilafnarfjarðarveginn og halda áfram vestur,
í samfelldri byggð.
undirbyggðar til að bæta það
slæma ástand, sem þar ríkir nú.
Þá stefnum við að því að hefjast
handa við byggingu holræsisins í
Kópavogsdal.
Fræðslumál
í fræðslumálum hafa skólabygg-
ingar alltaf verið stærsta verkefn-
ið, í því sambandi vil ég nefna að
á s.l. kjörtímabili var lokið við
byggingu áfanga við Kópavogs-
skóla og Þingholtsskóla, þar sem
fyrstu skólaeldhúsin í Kópavogi
voru innréttuð. Byggður var
stærsti áfanginn hingað til við
Digranesskóla með ýmsum sér-
kennslustofum, sem hefur stórlega
bætt alla aðstöðu í skólanum.
Snælandsskóli var smám saman
stækkaður eftir þörfum með laus-
um kennslustofum og jafnframt
hannaður nýr heilstæður grunn-
skóli og fyrsti áfangi hans er nú
í byggingu og verður tilbúinn á
þessu sumri.
I fyrsta sinn er nú að mestu
fullnægt kennsluskyldu í leikfimi
við grunnskólann í Kópavogi, þótt
hluti kennslunnar fari fram í
leiguhúsnæði. Nú er í byggingu
stórt íþróttahús við Digranesskóla
og verður það fokhelt á þessu
sumri.
Þá má nefna að Bókasafn
Kópavogs er 25 ára um þessar
mundir. Bókakostur þess hefur
vaxið ört síðustu ár og er nú um
30.000 bindi. Starfsemi bókasafns-
ins hefur aukist hröðum skrefum
og er nú svo komið að húsakynnin
í Félagsheimilinu eru orðin alltof
lítil. Hefur í því sambandi verið
ákveðið að safnið fái inni í
húsnæði kaupstaðarins að Fann-
borg 3-5 og verður það flutt
þangað á þessu ári.
Það sem brýnast er á komandi
kjörtímabili er að haldið verði
áfram byggingu Snælandsskóla,
byggður verði lokaáfangi við
Digranesskóla, stofnaður verði
Hjallaskóli með lausum kennslu-
stofum frá Snælandsskóla ef þörf