Morgunblaðið - 20.05.1978, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1978
45
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL 10 — 11
FRÁ MANUDEGI
• „Ég ætla ekki
að kjósa“
„Þetta heyrist oft sagt og til
skýringar er látið fylgja: af því að
allir stjórnmálaflokkar eru
brenglaðir eða: það munar ekkert
um eitt atkvæði.
Þessar hugsanir eiga engan rétt
á sér, því þótt margt megi finna
að öllum flokkum þá eru þeir
misjafnlega brenglaðir. Og þar
sem segir að ekkert muni um eitt
atkvæði þá er ekki með öllu
útilokað að eitt atkvæði geti ráðið
úrslitum.
Fyrir og um síðustu aldamót
höfðu þeir einir kosningarétt sem
greiddu ákveðna upphæð til sveit-
ar. Seinna var kosningaréttur
miðaður við aldur. En þá var kosið
í heyranda hljóði svo sumir
neyddust til að greiða atkvæði
gegn vilja sínum til að forðast
andúð eða annað verra.
Eftir áralanga baráttu voru sett
lög um leynilega atkvæðagreiðslu
við kosningar til alþingis og
sveitarstjórna og var það oft
talinn „helgur réttur“ enda var þá
kjörsókn oft með ágætum. Seinna
bættist við kosningaréttur kvenna.
Að þessu athuguðu ættu kjós-
endur allir að gera sér grein fyrir
mismun á mönnum eða málefnum
og láta engan utanaðkomandi
áróður trufla sig og að því loknu
fara á kjörstað og greiða atkvæði
því sem hann eða hún álítur
skömminni til skást, en fyrst og
fremst gegn því sem hann álítur
verst.'
Allir að kjósa.
7836-8039“
• Þakkir fyrir
vorkvöld
„Kæri Velvakandi.
Nú langar mig til þess að
’skrifa nokkrar línur, en ritfær er
ég ekki og kannski sérð þú þer ekki
fært að birta þessar línur mínar.
En löngun mín er svo sterk til þess
að þakka sjónvarpinu fyrir þáttinn
„Á vorkvöldi", sem bæði hefur
verið fjölbreyttur og sérlega
skemmtilegur, og vil ég sérstak-
lega þakka Lorange og félögum
hans fyrir góða skemmtun því
mikið var ánægjulegt að heyra
gömlu góðu lögin frá því maður
var á sínum yngri árum. Eg held
að fólk á miðjum aldri horfi
fremur á sjónvarpið um helgar og
ég held að við eigum líka rétt á að
fá að heyra það sem er að okkar
mati skemmtilegast enda finnst
mér að þessi þáttur hafi reynt að
gera öllum til hæfis. Og við
almenningur gerum okkur ekki
grein fyrir því hvað svona þættir
kosta mikla vinnu og heilabrot. Vil
ég því færa Tage og Ólafi góðar
þakkir fyrir mjög góða skemmtun.
Eyjá Þorleifsdóttir.“
• Klukkan í
gang eða ...
„Ég sem svo margir aðrir
Morgunblaðslesendur hef tekið
eftir því, að blaðið hefur verið að
reyna að vekja athygli allra
þeirra, sem Torgklukkan á Lækj-
artorgi heyrir undir, á því niður-
lægjandi ástandi sem sú klukka er
í og látin vera svo dögum og vikum
skiptir. — Ekki hefur þetta borið
neinn sjáanlegan árangur enn.
Nú vil ég birta í „opnu bréfi til
Birgis ísleifs Gunnarssonar borg-
arstjóra í Reykjavík", — gegnum
þína dálka Veívakandi, áskorun
þess efnis: Að hann í krafti síns
embættis og i nafni bæjarbúa gefi
fyrirskipun um annað tveggja: Að
rífa klukkuna án tafar og fyrir
kjördag borgarstjórnarkosning-
anna. — Eða að hann fyrirskipi og
sjái sjálfur um framkvæmdir:
Viðgerð nú þegar og að henni verði
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á búlgarska meistaramótinu í
fyrra sem haldið var í Sofia í
^desember kom þessi staða upp í
skák þeirra Arnaudovs og
Bohosjans, sem hafði svart og
átti leik.
31.... Dxe4!, 32. fxe4 - IIxf2+,
33. Kh3 - h5, 34. Dd7 - Bf6,
35. g4 — Be5, 36. gxh5 —
Hxh2+, 37. Kg4 - Hf4+ og
hvítur gafst upp.
Þeir Inkiov og Kadulov urðu
jafnir og efstir á mótinu, en
Radulov sigraði síðar í auka-
keppni um titilinn.
lokið fyrir kjördag borgarstjórn-
arkosninganna 28. maí.
Miðbæingur.“
• Óþrif við
hitaveitustokk
Austurbæinguri
— Ég hef orðið nokkuð vör
við það að sumt fólk er farið að líta
á hitaveitustokkinn nánast sem
ruslahaug. Fyrir hefur komið að
fólk sem er að tína rusl og taka til
í görðum sínum gerir sér lítið fyrir
og fleygir því beint út fyrir lóðina
og að hitaveitustokknum, helzt
þeim megin sem ekki snýr að eigin
lóð að sjálfsögðu. Ég hefði haldið
að svona tiltekt væri lítils virði,
enda blasir ruslið við allra augum
eftir sem áður. Nú er allir hafa
eigin bíla er varla mikið mál að
aka ruslinu í Gufunes ef það er of
mikið til að koma því í tunnurnar.
Finnst mér að fólk þyrfti að
athuga þetta, þetta er lóð borgar-
innar og varla á hún að þurfa að
taka til eftir trassaskap annarra.
HÖGNI HREKKVÍSI
©1978
McNauftht Syod., loe.
\W/
Þetta er svindl! Boltarnir frá honum eru sleipir
af bölvuðu munnslefi!
Til sölu
M/Benz 508D m/vökva-
stýri. Verö 4,2 m. Góö
kjör.
Uppl. á Braut símar
81510 — 81502 —
76146.
Yfirkjörstjórn
Austurlandskjördæmis
mun hafa aösetur á skrifstofu formanns, Erlends
Björnssonar, sýslumanns á Seyöisfiröi, viö
alþingiskosningar sem fram eiga aö fara
sunnudaginn 25. júní næstkomandi.
Framboöslistum ber aö skila til formanns
yfirkjörstjórnar ekki síöar en miövikudaginn 24.
maí næstkomandi klukkan 24.
Yfirkjörstjórnin kemur saman á skrifstofu
formanns fimmtudaginn 25. þ.m. klukkan 14 til
aö úrskuröa um framboðslista, sem borist hafa
og gefst umboðsmönnum listanna kostur á aö
vera viöstaddir.
F.h. yfirkjörstjórnar
A us turlandskjördæmis
Seyöisfiröi, 18. maí 1978
Erlendur Björnsson.
ÞÓR^
SÍMI 815QO-ÁRIVIÚLA11