Morgunblaðið - 27.05.1978, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1978
Þetta gerðist
Sadat kallar
Amsterdam 17 Skýjaó
AÞena 30 bjart
Berlín 21 sól
Brtissal 15 skýjaö
Chicago 30 skýjað
Kaupm.höfn 20 sól
Frankturt 16 rigníng
Ganf 15 skýjað
Helsinki 21 sól
Jóh.borg 19 sól
Lissabon 22 sól
London 18 sól
Los Angeles 21 skýjað
Madrid 18 skýjað
Miami 29 rigning
Moskva 20 bjart
Nýja Delhi 40 bjart
New York 24 bjart
Ósló 18 sól
París 12 léttskj.
Rómaborg 17 rigníng
San Fransc. 16 bjart
Stokkh. 19 sól
Tel Aviv 25 bjart
Tókíó 26 bjart
Toronto 27 bjart
Vancouver 16 skýjað
Vínarborg 20 léttskj.
Myndin er frá setningarathöfn afvopnunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna á þriðjudaginn. Ráðstefnan
mun standa í fimm vikur eins og frá hefur verið sagt og tilgangur hennar að reyna með öllum ráðum
að hægja á vopnakapphlaupinu f heiminum sem kostar þjóðir heims um það bil 400 milljarða dollara
á ári hverju.
Kanadamenn af-
VEÐUR
víða um heim
heim blaðamenn
Kiveli
látinn
vopna flugher sínn
kjamorkuvopnum
Gromyko harðorður í garð Vesturveldanna
hefur við rök að styðjast, að
í greinum þeirra hafi komið
fram gagnrýni á stjórn
Sadats forseta, að því er
blaðið A1 Ahram sagði í dag.
Flestir blaðamannanna
starfa i Evrópulöndum, en
nokkrir einnig í öðrum
Arabarfkjum.
Þessi ákvörðun fylgir í
kjölfar þeirrar miklu
stuðningsyfirlýsingar sem
úrslit þjóðaratkvæðisins í
Egyptalandi sl. sunnudag eru
óneitanlega fyrir Sadat, en
þar var kosið um tillögur
Sadat um að brjóta á bak
aftur kommúnista og aðra
andstöðumenn stjórnar hans,
svo og þá blaða- og fjölmiðla-
menn sem hefðu í frammi
óréttmætan málflutning um
störf Sadats og stjórnar hans
eins og það var orðað.
New York. 2fi. maí.
Reuter. AP.
PIERRE Elliott Trudeau,
forsætisráðherra Kanada,
sagði í dag f ræðu á auka-
fundi Allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna um afvopn-
unarmál, að Kanadastjórn
hefði ákveðið að afvopna
flugher sinn kjarnorkuvopn-
um, en hluti kanadíska
flughersins hefur verið
búinn bandarískum kjarn-
orkjusprengjum.
Trudeau sagði, að kjarnorku-
vopnin hefðu þegar verið fjarlægð
úr kanadískum flugvélum, sem
bækistöðvar hefðu í Evrópu, og
ihnan skamms yrði skipt um
vopnabúnað í flugvélum flughers-
ins í Norður-Ameríku og þær
búnar venjulegum vopnum í stað
kjarnorkuvopna. Sagði Trudeau að
Kanadamenn væru eina þjóðin,
sem hefði yfir að ráða þekkingu til
að framleiöa kjarnorkusprengjur
en ákveðið að gera það ekki. Hann
skoraði á þjóðir heims í ræðu sinni
að hætta frekari smíðum kjarn-
orkuvopna og lækka útgjöld sín til
hermála.
Andrei Gromyko, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, réðst í ræðu
sinni á aukafundinum í dag
harkalega á Vesturveldin fyrir að
vantreysta Sovétríkjunum og
beina vopnum sínum að þeim.
Krafðist hann þess, að komið yrði
á alþjóðlegu banni gegn nifteinda-
1941 — Brezki flotinn sökkvir
„Bismarck" úti af Frakklands-
ströndum.
1936 — Jómfrúrferð „Queen
Mary“ yfir Atlantshaf.
1927 — Bretar slíta stjórnmála-
sambandi við Rússa eftir fund
skjala varðandi sovézkt iaumuspil
gegn Bretum.
1918 — Þjóðverjar gera ofsaharða
árás á 25 mílna víglínu og sækja
yfir Aisne.
1860 — Garibaldi gerir innrás í
Kairó 2fi. maí Reuter.
ÞRJÁTÍU egypskir blaða-
menn sem vinna utan
Sadat
Egyptalands hafa verið
kvaddir til Kairó, þar sem
kannað verður hvort það
sprengjunni, sem hann sagði
Bandaríkjastjórn hafa 1 hyggju að
framleiða og staðsetja í Evrópu.
Gromyko sagði, að á fundi ráða-
manna NATO, sem haldinn verður
í Washington í næstu viku, ætti að
leggja á ráðin um aukin hernaðar-
útgjöld landanna á næsta áratug.
En Gromyko, þrátt fyrir harka-
legan tón ræðu sinnar, sagðist
vongóður um að ná mætti sam-
komulagi við Bandaríkin um tak-
mörkun framleiðslu gereyðingar-
vopna í svokölluðum SALT-við-
ræðum. Sú niðurstaða Gromykos
kemur heim og saman við það, sem
áreiðanlegar heimildir innan
bandaríska utanríkisráðuneytisins
létu hafa eftir sér í dag þess efnis,
að Bandaríkjastjórn væri nú
reiðubúin að semja um fimm ára
algert bann við öllum kjarnorku-
tilraunum. Gromyko fer á morgun
til Washington til viðræðna við
Carter Bandarikjaforseta, og er
búizt við að þetta mál komi til
umræðu þar, en Gromyko átti í
morgun fund með Vance utan-
ríkisráðherra.
Helmut Sehmidt, kanzlari Vest-
ur-Þýzkalands, sem einnig tók til
máls á aukafundinum í dag, sagði
að vígbúnaður NATO-ríkjanna
væri einvörðungu ætlaður til
varnar en ekki árása. Kanzlarinn
sagði, að trúnaðartraust Evrópu-
þjóða í milli hefði aldrei verið
meira frá stríðslokum en nú, en
engu að síður væri hvergi jafnmik-
ill vopnaviðbúnaður og þar. Hann
sagði að Evrópuþjóðirnar ættu að
tryggja öryggi sitt og festu í
álfunni með minni viðbúnaði en nú
væri fyrir hendi. Schmidt lagði
áherzlu á, að sett yrði algert bann
við notkun efnafræðilegra vopna,
hvar sem væri í heiminum.
A-I>jódverjar
sleppa f öngum
ast fyrir mannréttindum og
kenna sig við þréttánda ágúst, en
þann dag var hafin bygging
Berlínarmúrsins á sínum tíma. I
yfirlýsingunni sagði að í hópi
þeirra sem hefðu verið látnir
iausir væru sautjan Vestur-Þjóð-
verjar sem hefðu verið handtekn-
ir fyrir að taka þátt f að hjálpa
Austur-Þjóðverjum að flýja land-
ið.
Ekki var nein skýring gefin á
því hvers vegna austur-þýzka
stjórnin hefði allt í einu tekið upp
á því að leysa fangana úr haldi.
Flestir þeirra voru dæmdir fyrir
undirróðursstarfsemi gegn rík-
inu.
Heimildir í Vestur-Þýzkalandi
staðhæfa að Bonnstjórnin greiði
háar fjárupphæðir Austur-Þjóð-
verjum fyrir að sleppa pólitískum
föngum, en talsmenn Bonnstjórn-
arinnar hafa jafnan neitað að
segja nokkuð um málið.
Borlín 2fi. maí. AP.
AUSTURþýzka stjórnin hefur
sleppt úr haldi 125 pólitískum
föngum síðustu tvær vikur og
látið flytja þá til Vestur-Þýzka-
lands. að því er segir í yfirlýsingu
vestur-þýzkra samtaka sem berj-
Sikiley og tekur Palermo.
Innlenti Skipaðar húsvitjanir
1746 — F. Þormóður Torfason
1636----F. Oddgeir Stephensen
1812.
Orð dagsinsi Vertu kæruleysisleg-
ur til fara ef þú vilt, en vertu
snyrtilegur tii sálarinnar — Mark
Twain, bandarískur rithöfundur
(1835-1910).
Mágkona Folkerts
handtekin í Paris
Frankfurt. 2fi. maí. AP. Routpr.
MÁGKONA þýzka hryðjuverka-
mannsins Knut Folkerts,
Marion-Brigitte Folkerts að
nafni, var í dag handtekin á
Orly-flugveiii í París og framseld
vestur-þýzkum yfirvöldum, sem
gruna hana um að vera viðriðna
starfsemi Baader-Meinhof-hryðju-
verkahópsins.
Eiginmaður konunnar og bróð-
ir Knut Folkcrts situr í fangelsi
og hefur verið ákærður fyrir
aðild að hryðjuverkasamtökum
og búizt er við að konan verði
einnig ákærð fyrir sömu sakir.
Hún var á Icið frá Miðausturlönd-
um þegar franska lögrcglan
handtók hana. í farangri hennar
fundust ýmis skjöl tengd starf-
semi japanska Rauða hersins,
hrvðjuverkasamtaka sem bera
ábyrgð á ýmsum óhæfuverkum
undanfarin ár. Talið cr, að
Marion-Birgitte Folkerts hafi
verið félagi í Baader-Mein-
hof-samtökunum frá því á árinu
1976. en hún hvarf úr landi í
ágúst 1977.
Knut Folkerts situr í fangelsi í
Hollandi, en þar var hann dæmdur
í 20 ára fangelsi fyrir að hafa myrt
lögreglumann. Vestur-þýzk yfir-
völd hafa óskað eftir því að fá
hann framseldan til að geta ákært
hann fyrir aðild að morðunum á
Siegfried Buback ríkissaksóknara,
Júrgen Ponto bankastjóra og
Hanns-Martin Schleyer.
1974 — Embættistaka Giscard
D'Estaings forseta — Jacques
Chirac skipaður forsætisráðherra.
1973 — Þjóðaratkvæði boðað um
framtíð konungdæmis í Grikk-
landi.
1971 — Rússar gera 15 ára
samning við Egypta.
1%4 — Nehru deyr (74 ára) og
Shastri tekur við.
1960 — Menderes-stjórninni
steypt í Tyrklandi og Gursel
hershöfðingi verður forseti.
Aþonu 26. maí AP.
KIVELI. hin háaldraða og heims-
fræga gríska leikkona, lézt í gær,
fimmtudag. Ilún var níræð að
aldri. Ilún hlaut mikla viður-
kenningu fyrir túlkun sína í
frægum grískum harmleikjum og
hélt áfram að leika unz hún af
heilsufarsástæðum dró sig í hlé
fyrir aðeins tíu árum. Hún hóf
feril sinn fyrir sjötíu og sjö árum
eða 1901, þá 13 ára gömul og lék
þá hlutverk Júlíu í leikriti
Shakespeares, Rómeo og Júlíu.
Hún var um nokkurra ára bil gift
George heitnum Papandreu,
fyrrv. forsætisráðherra Grikk-
lands.
ERLENT