Morgunblaðið - 27.05.1978, Síða 35

Morgunblaðið - 27.05.1978, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MAI 1978 35 Bragi Michaelsson, bæjarfulltrúi: X-D í Kópavogi Hitaveitan sparar okkur 900 milljónir króna á ári í þeirri kosningabaráttu sem nú er aö ljúka hefur mest verið rætt um tvö höfuðmál hér í Kópavogi. Annað þessara mála er hitaveitan, sem í dag sparar okkur Kópavogs- búum 900 milljónir á ári, eða 75% af öllum útsvörum Kópavogsbúa á þessu ári. Þessi mikla kjarabót, sem við fengum er hitaveitan kom, er nú sem óðast að koma fram. Daglega sjáum við á þessum vordögum að íbúar Kópavogs eru að snyrta hús sín og lóðir. Ástæða þess að þetta mál hefur borið svo mjög á góma nú er hin margum- talaða afstaða Eggerts Steinsen í bæjarstjór n Kópavogs er samn- ingurinn um hitaveituna við Reykjavík kom til afgreiðslu. Hann greiddi atkvæði gegn þess- um samningi og meira að segja sagði sig úr meirihluta bæjar- stjórnar vegna þessa mesta hags- munarmáls Kópavogsbúa fyrr og síðar. Þessi furðulega afstaða kom, að vonum flatt upp á Kópavogsbúa og í dag skilur hann enginn. Eggert er í dag einn á báti eins og hann var 1972. En hvað vildi Eggert 1972? Það er von að slík spurning vakni á vörum bæjarbúa. 1972 vildi Eggert Steinsen, að Kópa- vogsbúar hæfu sjálfir rekstur hitaveitu. Jafnvel þótt þeir keyptu vatnið á sama verði og við fáum það í dag, þá yrði að selja vatnið mun dýrara en við kaupum það nú, og sparnaður okkar yrði þá mun minni. Það er ennfremur ljóst, að ef Kópavogsbúar hefðu sjálfir farið að leggja hitaveitu hefði farið miklu lengri tími í fram- kvæmdirnar. Bæjarsjóður hefði einnig orðið að taka á sig veruleg- ar skuldbindingar, sem seinkað hefði öllum öðrum framkvæmdum í bænum, en sem við höfum nú lokið við. Hvað kjósa Kópavogsbúar? Nú á sunnudaginn göngum við að kjörborðinu og veljum okkur bæjarstjórn til næstu 4 ára. Það er afar mikilvægt að þá velji Kópa- vogsbúar rétt. Ef til vill álykta einhverjir sjálfstæðismenn sem svo, að það sé allt í lagi að velja þennan S-lista.- En ég spyr: Vilja Kópavogsbúar vinstri stjórn í okkar bæ? Ef við sjálfstæðismenn sundrum kröftum okkar á sunnu- daginn er vinstri stjórn. í okkar bæ, Kópavogi, orðin staðreynd, sem við höfum engin áhrif á. Margir álíta ef til vill, að nái Guðni Stefánsson kjöri í bæjar- stjórn, verði hann einn af fulltrú- um okkar sjálfstæðismanna. Því miður er ég hræddur um, að svo sé ekki. Á sunnudaginn setja flestir Kópavogsbúar x við D. Bilasala Guðfinns hefur opnað útibú á horni Borgartúns og Nóatúns og er hún því að sögn Guðfinns Halldórssonar orðin stærsta bílasalan í Reykjavík. Starfa hjá báðum bílastölunum alls 8 sölumenn og sagði Guð- finnur að með þessu nýja útibúi væri ætlunin að geta veitt betri þjónustu. en bíll sem skráður er tii sölu á öðrum staðnum er um leið skráður á hinum og hafa menn því strax tvo möguleika. sagði Guðfinnur. Bflasala Guð- finns hefur nú starfað í 5 ár. A myndinni eru Guðfinnuc Ilalldórsson t.v. og Þórir Ilalldórsson sem er útibússtjóri. Hitaveita Reykjavíkur á Nesjavöllum: Rannsóknir í full- an gang áríð 1980 „Þaö er við háhitasvæðið í Grafningi sem við bindum mestar vonir varðandi næstu stórvirkjun fyrir hitaveitu Reykjavíkur,“ sagði Jóhannes Zoega hitaveitu- stjóri í samtali við Mbl. í gær. „Við höfum gert nokkrar rann- sóknir á svæðinu og eina djúpa og erum að eindurbæta okkar að- stöðu þarna, þvi að svæðið þarf að rannsaka betur. Ég reikna ekki með það við komumst í neinar umtalsverðar framkvæmdir á Nesjavöllum á næsta ári, en úr því ætti að komast skriður á rannsóknirnar. Það sem næst kemur á verkefna- skránni er að ljúka borunum í Mosfellssveit, en þar eigum við eftir þrjár holur, sem ég býst við að verði lokið við á næsta ári. Þá er byrjað á tveimur djúpum holum í Reykjavík og er ætlunin að fullkanna jarðhitasvæðin í borg- inni og þessar tvær fyrstu holur ættu að gefa okkur vísbendingu Jón Magnússon, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna: Um hvað er kosið? Það hefur vakið eftirtekt, að við þær bæjar- og sveitarstjórnar- kosningar, sem nú fara í hönd er mikið af ungum frambjóðendum á listum Sjálfstæðisflokksins um land allt. Þess eru jafnvel dæmi, í stórum bæjarfélögum, að fram- bjóðendur Sjálfstæðisflokksins, sem skipa aðal- eða baráttusæti séu allir úr röðum ungra sjálf- stæðismanna. Framboðslistar flokksins voru flestir valdir með opnum prófkjörum og það traust sem það unga fólk sem nú skipar sæti á listum Sjálfstæðisflokksins hlaut í prófkjörunum er metið af ungum kjósendum. Enginn annar flokkur en Sjálf- stæðisflokkurinn getur því með jafn miklum rétti kallað sig flokk unga fólksins. Ungir sjálfstæðismenn hafa um árabil lagt áherzlu á valddreifingu og talið eðlilegt að fólkið sjálft hefði sem mest áhrif á sín eigin mál. Við höfum í því sambandi bent á nauðsyn þess, að ríkisvaldið sleppti hendinni af ýmsum mála- flokkum, en bæjar- og sveitar- stjórnir standa venjulega nær borgurunum en ríkisvaldið og af þeim sökum hafa þeir meiri áhrif á gang þeirra mála, sem heyra undir sveitarstjórnir en á lands- mál almennt. Með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn er því stuðlað að framgangi þessarar stefnu. Traustasta vígi Sjálfstæðis- flokksins hefur frá stofnun flokks- ins, verið Reykjavík. Það kemur því ekkert á óvart, að enn sem fyrr Jón Magnússon skuli andstæðingar okkar neyta flestra bragða til að fella meiri- hluta Sjálfstæðismanna þar. — Valkostirnir í Reykjavík eru meirihluti Sjálfstæðisflokksins eða meirihluti vinstri flokkanna. Kjósendur eiga um það að velja, hvort þeir vilja að unnið sé að málum á sama hátt og gert hefur verið, undir traustri og öruggri forystu Birgis ísleifs Gunnarsson- ar eða við taki ósamstæð stjórn minnihlutaflokkanna. Minnihlutaflokkarnir hafa urn margt ólík viðhorf, það liggur því fyrir að samstarf þeirra mundi einkennast af sífelldum hrossa- kaupum og málamiðlunum. Slík forysta í borgarmálum er líkleg til um, hvert áframhaldið verður. Þá er einnig ætlunin að rannsaka möguleikana í Korpúlsstaða- og Blikastaðalandi. Að undanförnu hafa verið mikl- ar framkvæmdir hjá hitaveitunni í nágrannabæjunum en nú er svo komið að veitukerfið verður ekki öllu stærra í bili, nema þessi eðlilega stækkun sem verður með vaxandi byggð. Við ætlum því að nota hléið til að bæta þjónustu fyrirtækisins, styrkja kerfið og auka öryggið gagnvart kuldaköst- um óg minnka hættuna á truflun- um. Smíð nýrra vatnsgeyma við Reykjaæð til aukinnar miðlunar og bygging dælustöðvar við þá eru nærtæk verkefni. Við hugsuðum okkur fyrst að setja þá á Grafarholtið. Vonandi getum við hafizt handa á næsta ári og komið upp geymi þá og síðan haldið stöðugt áfram, því að það verður einmitt út frá þessari stöð sem við tengjum beint yfir í Gufunesið, þegar það fer að byggjast. Stækk- un kyndistöðvarinnar við Bæjar- háls úr 35MW í 80MW er verkefni, sem áætlað er á árunum 1980 og 81. Auk þess sem við munum svo leggja dreifikerfi í ný hverfi og endurnýja kerfin í eldri bæjar- hverfum eru nokkur meiri háttar verkefni innanborgar, eins og að ljúka við Vesturbæjaræðina, sem gerð var í fyrra frá Melatorgi og vestur úr, lögnina í Grandann og Örfirsey og langningu æðar frá Elliðavogi í Laugarnes. Það verður framhald af æðinni sem nú er í iðnaðarherfinu við Elliðavog og á að fullnægja iðnaðar- og hafar- hverfinu við sundið og Laugarnes- herfinu," sagði Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri. að fresta ákvarðanatöku um mikil- væg mál og mundi valda því að nauðsynjamál kæmust ekki í framkvæmd. Minnihlutaflokkarnir hafa ekki fengist til þess að segja hvernig þeir munu starfa eftir kosningar ef þeir fá meirihluta nú. Það er því fullkomlega óljóst hvað verður upp á teningnum og þeir sem gefa þeim flokkum atkvæði sitt gera það án þess að geta gert sér grein fyrir því, hverskonar stjórn borgarmála þeir eru að kjósa. Valið er því auðvelt. Þeir sem vilja að áfram verði við völd framsækin en ábyrg stefna, kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Hinir sem vilja leggja út i óvissuna og eru í andstöðu við stefnu Sjálfstæðis- flokksins velja þá óvissu sem þeim hentar bezt. Málefnastaða sjálfstæðismanna í borgarstjórn er í dag svo sterk, að minnihiutaflokkrnir treysta sér ekki til að berjast við okkur á þeim vettvangi. Svo virðist sem and- stæðingarnir telji þá helzta von að hljóta fylgi, ef þeir þegja um þau málefni sem kosið er um en reyna þess í stað að setja á oddinn mál sem koma bæjar- og sveitarstjórn- arkosningum ekki við. Við þurfum því að herjast svo vel sem við getum og tryggja að sigur Sjálfstæðisflokksins verði að veruleika a' sunnudaginn kemur. — Merkið má ekki falla og við skulum verja vígið. — Við skulum verja Reykjavík. Höfum kaupendur að eftirtöldum veröbréfum: Verðtryggö spariskírteini ríkissjóðs: 1967 1. flokkur Kaupgengi pr. kr. 100- 2472.46 Yfirgengi miðað við inn- lausnarverð Seölabankans 53.9% 1967 2. flokkur 2455.91 32.9% 1968 1. flokkur 2139.43 17.7% 1968 2. flokkur 2011.91 17.0% 1969 1. flokkur 1500.21 17.1% 1970 1. flokkur 1379.14 53,5% 1970 2. flokkur 1006.82 17.2% 1971 1. flokkur 948.37 52.2% 1972 1. flokkur 826.50 17.2% 1972 2. flokkur 707.46 52.2% 1973 1. flokkur A 543.84 1973 2. flokkur 502.65 1974 1. flokkur 349.12 1975 1. flokkur 285.44 1975 2. flokkur 217.83 1976 1. flokkur 206.20 1976 2. flokkur 167.44 1977 1. flokkur 155.81 1977 2. flokkur 130.27 1978 1. flokkur 100.00 VEÐSKULDABRÉF*: 1. ár Nafnvextir: 26% 2 ár Nafnvextir: 26% 3 ár Nafnvextir: 26% *) Miðað er við auðseljanlega fasteign. Kaupgengi pr. kr. 100.- 79- 70- / 64- Höfum seljendur aó eftirtöldum verðbréfum: HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐS: prTm- 274.73 (10%afföll) 274.73 (10% afföll) 171.57 (19.3% afföll) 1974 — E 1974 — F 1975 — G HLUTABREF: Verslunarbankinn Kauptilboð óskast PJÁRPCmnGARPÉIAC úiardj Hft VERÐBRÉFAMARKAÐUR Lækjargötu 12 — R (Iðnaðarbankahúsinu) Sími 20580 Opið frá kl 1 3 00 til 1 6 00 alla virka daga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.