Morgunblaðið - 10.06.1978, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1978
Lengstu, fjölmennustu,
og f jölbreyttustu
tónleikar á Listahátíð
íslenzkir tónlistarmenn á Listahátíd ’78
Ragnar Ingólfsson skrif-
stofustjóri hér í bæ sagði, er
hann var inntur eftir því af
hverju honum var falið af
framkvæmdaráði Lista-
hátíðar að skipuleggja svo-
kallaða maraþontónleika í
Laugardalshöll, að Samband
íslenskra karlakóra, sem
hann veitir forstöðu, hafi
upphaflega ætlað að halda
upp á 50 ára afmæli sam-
bandsins með venjulegum
hætti, en hætt við þar eð slík
hátíðarhöld hafi þótt skjóta
skökku við á miðri Lista-
hátíð. Það var þá sem það
kom til tals að þessir tón-
leikar Karlakórasambands-
ins yrðu liður í Listahátíð
’78. Einnig var ákveðið að
fela Ragnari að skipuleggja
þessa maraþontónleika, þar
eð mestur þungi tónleikanna
hvíldi á honum hvort sem
var: Um 11 karlakórar koma
fram, en það munu vera um
400 söngvarar. Undir-
búningur einstakra kóra
hófst sl. haust, en formlegur
undirbúningur undir mara-
þontónleikana nú í mars.
Ragnar sagði, að hann hefði
notið fulltingis Björns
Guðjónssonar hljómsveitar-
stjóra og tónlistarkennara
við undirbúning tónleikanna.
Hlutur „! A>ahljómsveita á
þessari fjölmenuj samkomu
er stór. Björn sagði að þrátt
fyrir mikla grósku á þessu
sviði tónmennta væri því
miður ekki til samband
þeirra kennara og nemenda
er stjórnuðu og lékju í
skólahljómsveitum. Því væri
það oftast að þar pukraðist
hver í sínu horni. Björn taldi
þessa tónleika stórt skref í
framfaraátt, og lagði til að
stofnað yrði samband skóla-
hljómsveita af þessu tilefni.
Það er sannarlega full
ástæða til að taka undir
þessa tillögu því alls munu
um 30 skólahljómsveitir vera
starfræktar í landinu.
Annars er rétt að geta þess
strax, að þrátt fyrir mikinn
karlakórssöng og leik skóla-
hljómsveita, verður margt
annað á boðstólum. Hér á
eftir fylgir listi yfir öll
helstu atriðin á Maraþontón-
leikunum, en þeir fara fram
í Laugardalshöll í dag kl.
13:00 og standa nær sleitu-
laust til kvölds, eða til kl.
21:00.
Tónhvísl
eftir GUÐMUND
EMILSSON
Ragnar Ingólfsson
DAGSKRÁ
kl. 13:00 Skólahljómsveitin
Skólahljómsveit
Garðabæjar
Skólahljómsveit Mos-
fellssveitar
kl. 13:30 Landssamband
blandaðra kórai
Kór Trésmiðafélags
Reykjavíkur
Kór Söngskólans í
Reykjavík
kl. 14:30 Skólahljómsveitiri
Lúðrasveitin Svanur
— Unglingadeild
kl. 15:00 Samband
íslenskra karlakórai
Karlakór Akureyrar
Karlakórinn Geysir á
Akureyri
Karlakórinn Jökull frá
Höfn í Hornafirði
Karlakór Stykkis-
hólms
Karlakór Keflavíkur
Karlakór Selfoss
Karlakórinn Stefnir í
Mosfellssveit
Karlakórinn Svanir á
Akranesi
Karlakórinn Fóst-
bræður í Reykjavík
Karlakór Reykjavíkur
Karlakórinn Þrestir
úr Hafnarfirði
Kórarnir syngja hver um sig
tvö lög, en í lok efnisskrár-
innar mun Sinfóníuhljóm-
sveit íslands leika undir í
nokkrum lögum sem sungin
verða af kórunum öllum
sameiginlega.
kl. 17:00 Skólahljómsveitiri
Skólahljómsveit Nes-
kaupstaðar
Skólahljómsveit Ár-
bæjar- og Breiðholts-
hverfis
kl. 17:30 Skólahljómsveitiri
Skólahljómsveit Kópa-
vogs
kl. 18:00 Skólakórari
Kór Barnaskólans á
Akranesi
Kór Gagnfræðaskól-
ans á Selfossi
kl. 18:30 Skólahljómsveitiri
Allar ofangreindar
skólahljómsveitir
koma fram aftur
kl. 20:00 „Góða veislu gjöra
skal!“
Félagar úr Þjóðdansa-
félagi Reykjavíkur
koma fram ásamt
söngflokknum Hljóm-
eyki og nokkrum
hljóðfæraleikurum.
Fjölbreytt efnisskrá.
kl. 21:00 Lokaatriðii
Skólahljómsveit Kópa-
vogs leikur létt út-
göngulög.
Þótt sérstök efnisskrá hafi
ekki verið tilbúin er þetta fór
í prentun, liggur ljóst fyrir,
að margt nýstárlegt og fróð-
legt mun verða flutt á
þessum lengstu, fjölmenn-
ustu og fjölbreyttustu tón-
leikum á Listahátíð ‘78. Má
þar nefna nýtt tónverk, sem
Leifur Þórarinsson samdi
sérstaklega fyrir Skóla-
hljómsveit Kópavogs, og
nefnist Tveir þættir fyrir
lúðrasveit( Kórali og
Tnvention. Að sögn var þetta
tónverk pantað af Leifi
ærstaklega af þessu tilefni.
rð telst einnig til tíðinda,
ao hljómsveitin hyggst
greiða tónskáldinu íslenskar
krónur fyrir ómakið, en slíkt
og þvílíkt er fremur fátítt í
íslenskum tónverka--
viðskiptum. Einnig verður
frumflutt nýtt tónverk eftir
Jón Ásgeirsson, er nefnist
Þjóðlífsmynd. Það er Kór
Gangfræðaskólans á Selfossi
er stendur að því. Einnig er
að geta þess, að Guðmundur
Jónsson, óperusöngvari með
meiru, mun syngja einsöng í
tónverkinu Landkenning
eftir E. Grieg, en tónverk
þetta mun eitt þeirra verka
ér karlakórarnir syngja
sameiginlega við undirleik
Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands.
Það má með sanni segja,
að Maraþontónleikarnir
verði eins konar þverskurður
af tónlistarstarfsemi tón-
listarnema og áhugafólks um
tónlist í landinu. Ef að líkum
lætur hugsa sér margir gott
til gióðarinnar, enda sækja
um 6 þúsund manns árlega
styrktartónleika karlakór-
anna tveggja í Reykjavík,
hvað þá er 11 karlakórar
koma fram í einu. Er ekki aö
efa, að karlakóraunnendur
muni mæta til leiks með bros
á vör.
Björn Guðjónsson
Opiö í dag
Endaraðhús Otrateig
Góð húseign á tveim hæöum á
1. hæð: eru stofur, eidhús og
snyrtiherb. Uppi: 4 svefnherb.
og baöherb. Góður bílskúr
fylgir. Verð 25 millj. útb. 17
millj.
Grundarstígur
4ra herb. íbúð á 3. hæð. Verð
11 millj.
Njálsgata
Góð 3ja herb. íbúð á 1. hæð,
tvö aukaherb. í kjallara fylgja.
Útb. 6,5 millj.
Otrateigur
2ja herb. kjallaraíbúð. Verö 5,5
millj.
Æsufell
2ja herb. íbúð á 3. hæð um 60
ferm. Mikil sameign. Útb. 6
millj.
Barónsstígur
3ja herb. íbúð á 3. hæð 90
ferm. Verð 11 millj.
Grettisgata
Hæð og hálfur kjallari 5 herb.
125 ferm. Útb. 8,5 millj.
Maríubakki
4ra herb. íbúð á 1. hæð um 108
ferm. Utb. 9 millj.
Asbraut Kóp.
4ra herb. íbúð á 1. hæð um 100
ferm. Verð um 13 millj.
Kvisthagi
3ja herb. íbúö á jaröhæö um
100 ferm. Sér inng. Sér hiti.
Verð 11 millj.
Lágmúli
400 ferm. skrifstofuhúsnæöi.
Tilbúið undir málningu og
tréverk. Verð 125 þús. á ferm.
Óskum eftir öllum stærðum
fasteigna á söluskrá.
Pétur Gunnlaugsson, lögfr
Laugavegi 24.
símar 28370 og 28040.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
5 herb. íbúö á 2. hæö viö
Rauðalæk 112 fm. Tvískipt
stofa, hol og 3 svefnherb.
Tvennar svalir. Bílskúrsréttur.
Útb. amk. 10 millj.
5—6 herb. raöhús eöa íbúö
óskast í Laugarneshverfi, eða í
skiptum fyrir 4ra—5 herb. íbúð.
Til sölu
4ra—5 herb. íbúö á 1. hæö í
sambyggingu viö Vesturberg.
4—5 herb. íbúö á 1. hæö í
blokk viö Eskihlíö, laus nú
þegar.
Dr. Gunnlaugur Þóröarson
hrl.
Bergstaöastræti 74A,
fastur viðskiptatími kl. 11—17 sími
16410.
28611
Opið í dag
frá kl. 2—5.
Óðinsgata
2ja herb. 60 ferm. mjög góð efri
hæð (1. hæð) í tvíbýlishúsi.
Þvottahús í kjallara. Verð 10.5
millj., útb. 7 millj.
Bergstaðastræti
Lítil en mjög snotur ósamþykkt
einstaklingsíbúð í kjallara. Þrí-
býlishús. íbúöin er veöbanda-
laus. Verð 5 millj., útb. 3.5 millj.
Lindargata
25 ferm. ósamþykkt einstakl-
ingsíbúð í kjallara. Allt sér.
Verð 4 millj., útb. 3 millj.
Nýlendugata
3ja herb. mjög góð íbúð á 1.
hæð í tvíbýli. Steinhús. Útb.
6.5—7 millj. Góð greiöslukjör
ef samið er strax.
Spítalastígur
3ja herb. um 70 ferm. ágæt
íbúð í tvíbýli. Allt sér. Utb.
7—7.5 millj.
Ásbraut
4ra herb. 102 ferm. íbúð á 4.
hæö. Allar innréttingar vandað-
ar. Verð 13—13.5 millj.
Háaleitisbraut
4ra herb. 108 ferm. íbúð á
jarðhæð.
Lítil efnalaug í
fullum rekstri til sölu
Ágæt tæki. Eignin er skuldlaus.
Verð 3.5—4 millj. Möguleiki á
skiptum á einstaklingsíbúö eöa
góöri bifreið.
Eyrarbakki
Lítið gamalt einbýlishús til sölu.
Verö 2.5 millj. Hentug sem
sumarbústaöur.
Stokkseyri
Lítiö eldra einbýlishús, hæö og
ris. Verð 3.5 millj. Hentugt sem
sumarbústaöur.
Ný söluskrá
er komin út.
Eitt símtal og: hún fæst
heimsend.
Fasteignasalan
Hús og eignir
Bankastræti 6
Lúðvlk Gizurarson hrl.
Kvöldslmi 1 7677
„Morgunblaðið óskar
eftir blaðburðarf ólki
Vesturbær
Ásvallagata frá 52—79
Upplýsingar í síma 35408
iS>r0iwí»Iabiti»