Morgunblaðið - 10.06.1978, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1978
17
hann þekkti betur þarfir fólksins en
það sjálft og því engin ástæða til
óánægju með neyzluvöruskortinn
sem flestir þeir sem heimsótt hafa
Sovétríkin telja að öðru fremur setji
svip sinn á daglegt líf almennings
þar. Allt er það í samræmi við-vilja
hinnar landsföðurlegu forsjár, sem
ein þekkir hinar raunverulegu þarfir
fólksins.
Söngsveitin á
Skólavörðustíg 14
Ýmsir kunna nú að segja sem svo,
að þeir Napóleon, Hitler og Stalín
tilheyri sögunni og umræða um þá
o£ allt þeirra athæfi sé án tengsla
við vandamál liðandi stundar.
Þetta er þó á misskilningi byggt.
Það eru ekki til nein „hrein"
efnahagskerfi í þeirri merkingu, að
annað hvort séu allar ákvarðanir
teknar af hálfu yfirvalda eða
markaðirnir séu allsráðandi. Fyrra
dæmið myndi helzt vera að finna í
ættflokkasamfélagi á steinaldar-
stigi, þar sem ættarhöfðinginn
ræður öllu og síðara fólkið er ekki
til. Alls staðar eru til einhverjar
samneyzluþarfir, sem sjá verður
fyrir utan markaðarins.
Jafnvel í Sovétríkjunum er til
frjáls markaður og í Ungverjalandi
er verulegur hluti þjóðarbúskaparins
rekinn á markaðsgrundvelli.
ísland er talið kapitalískt ríki, sem
hljóti sem slíkt að byggja á markaðs-
búskap. En núlifandi kynslóð hefir
þó kynnzt því, að markaðurinn hefir
verið tekinn úr sambandi um lengri
eða skemmri tíma. Við skulum í
þessu sambandi sleppa heims-
styrjaldarárunum því að stórstyrj-
öld hlýtur alltaf að gera markaðsbú-
skap meira og minna óvirkan. En
við, sem komin erum á miðjan aldur
og þar yfir, munum glöggt friðar-
tíma þegar landsföðurleg forsjá
hefir verið látin víkja markaðinum
sem dreifingarkerfi til hliðar. Svo
var á kreppuárunum 1932-1939 og
e.t.v. þó í enn ríkara mæli á
skömmtunar- og vöruskortstímabil-
inu 1947-50. Með efnahagsráðstöfun-
um þeim, sem Sjálfstæðisflokkurinn
og Framsóknarflokkurinn stóðu að
vorið 1950 var stórt skref tekið í þá
átt að koma aftur á virkum
markaðsbúskap og með efnahagsráð-
stöfunum Viðreisnarstjórnarinnar
1960 mátti segja að skrefið væri
tekið að fullu og hefir ekki síðan
orðið á veruleg breyting, þrátt fyrir
pólitíska sviptivinda.
Það sem einkenndi ofangreind
tímabil var m.a. það, að kaupmáttur
launa ákvarðaðist ekki eins og nú af
hlutfallinu milli kaupgjalds og
vísitölu framfærslukostnaðar, held-
ur af því hvað leyft var að flytja inn
og hvað stjórnvöldum á hverjum
tíma þóknaðist að skammta. Þeir
sem ákvarðanir tóku í því efni voru
þeir sem skipuðú það sem ég kalla
hér „söngsveitina" á Skólavörðustíg
14, sbr. lofkvæði Djambúls frá
Kasakistan um Stalín.
Söngsveitin var mismunandi stór,
stundum kvartett, stundum kvintett
og allt ofan í dúett. Nú var það síður
en svo að í nefndinni á Skólavörðu-
stíg sem hét ýmsum nöfnum þótt
valdsvið hennar breyttist lítt, væri
skipuð einhverjum vanmetakindum.
Hún var að jafnaði skipuð hinum
mestu heiðursmönnum. Það að
óvinsældir kerfisins bitnuðu oft á
þessum mönnum persónulega með
aðdróttunum um mútuþægni o.þ.h.
var mjög ómaklegt.
En þetta breytir engu um það, að
þessir menn voru ekki fremur en
aðrir gæddir neinu sjötta skilningar-
viti, þannig að þeir gætu skynjað
hagsmuni þjóðarinnar, alþýðunnar
eða hvað það er nú kallað. I því efni
höfðu þeir ekki frekar en aðrir neina
viðmiðun aðra en eigin þarfir og
smekk að því viðbættu að vafalaust
hefir oft verið látið undan þrýstingi
frá stjórrimálaleiðtogum, sem beittu
áhrifum sínum til þess að leystur
yrði vandi einstaklinga og fyrir-
tækja sem studdu þann stjórnmála-
flokk, sem hlut átti að máli.
í framkvæmd leiddi kerfið til mjög
óskynsamlegrar ráðstöfunar gjald-
eyris miðað við það að markaðurinn
hefði verið látinn ráða.
Á Skólavörðustígnum var raunar
búinn til matseðill þjóðarinnar á
grundvelli smekks og þarfa þeírra
fáu, sem markaðinn bjuggu til.
Afnumið var í rauninni hið frjálsa
neyzluval með þeirhi stórfelldu
kjaraskerðingu sem af slíku leiðir.
Þá leiddi af kerfinu, að tekin var
upp ritskoðun, þar sem leyfi þurfti
til áð flytja inn erlendar bækur. Ég
sótti einu sinni á þessum árum um
leyfi til þess að flytja inn nokkrar
erlendar bækur til afnota við
kennslu mína, en fékk blákalda
synjun. Það leiðréttist þó fljótlega
fyrir tilstilli góðkunningja míns, sem
sæti átti í nefndinni. Kollega minn,
sem þá var, próf. Guðmundur
heitinn Thoroddsen átti þó ekki
sama láni að fagna því að hann sagði
einu sinni þegar við hittumst á
förnum vegi, að nú gæfist hann upp
við að sækja til gjaldeyrisnefndar
um leyfi, til innflutnings vísindarita
í læknisfræði, því að slíku hefði
alltaf verið synjað.
Þá fól fyrirkomulagið í sér átt-
hagafjötra, því að enginn gat farið
til útlanda án leyfis nefndarinnar.
Það vakti töluverða athygli þegar
það skeði, að mig minnir árið 1948,
ólafur Björnsson.
að nokkrir menn kærðu til mann-
réttindadómstóls S.Þ. yfir því að
þeim hefði verið synjað um ferða-
gjaldeyri.
Ágallar kerfisins voru því ekki að
kenna þeim, sem framkvæmdu það,
sem eins og fyrr segir voru yfirleitt
mestu heiðursmenn, heldur lágu þeir
í kerfinu sjálfu.
En áðurnefnd dæmi ættu að sýna
það, að ekki þarf að fara austur fyrir
járntjald til þess að finna dæmi um
skerðingu mannréttinda af þessu
tagi, slíkt verður alltaf fylgifiskur
slíkrar skipanar efnahagsmála.
Markaðsbúskapur
og kjaramál
I kosningabaráttunni á yfirstand-
andi vori hafa kjaramálin eðlilega
borið mjög á góma. Ekki er ætlunin
hér að leitast við að kryfja þau til
mergjar, en mér koma þessi mál svo
fyrir sjónir, að kjarni þess, sem um
er deilt sé sá, að það hafi verið mat
ríkisstjórnarinnar og sérfræðinga
þeirra, sem að efnahagstillögunum
frá því í febrúar stóðu, að ef auka
ætti neyzluna eða kaupmátt launa í
samræmi við þá kjarasamninga, sem
í gildi voru, þá myndi það kosta svo
mikinn niðurskurð fjárfestingar að
veruleg hætta yrði á atyinnuleysi.
Annar kostur gat verið sá, að auka
viðskiptahallann við útlönd, en allir
Virtust sammála um, að það kæmi
ekki til greina.
Ég tel, að þungvæg rök liggi að
baki sjónarmiðum ríkisstjórnarinn-
ar og sérfræðinganna, þannig að það
hafi verið túlkun ráðstafanna, sem
farið hafi úrskeiðis, svo sem úrslit
bæjarstjórnarkosninganna sýna,
fremur en hitt að til hafi verið
valkostir, sem betur kæmu við hag
almennings, en allir þeir 13 sem sæti
áttu í verðbólgunefndinni voru
sammála um það, að hjá einhverjum
aðgerðum yrði ekki komizt.
Það hefir mikið verið birt af
skýrslum, sem fróðlegar eru aflestr-
ar fyrir sérfræðinga í efnahagsmál-
um, en alltof lítið um þetta sagt,
a.m.k. af viti á máli sem almenning-
ur skilur. Annað mál er, að vissulega
er það vandasamt að túlka nauðsyn
efnahagsaðgerða, sem valda kunna í
bili meiri eða minni kjaraskerðingu
fyrir almenningi.
Einn af forystumönnum danskra
sósíaldemókrata, hagfræðingur að
mennt, var hér á' ferð fyrir rúmum
20 árum. Komst hann þá eitt sinn
svo að orði: „Mikið megum við
danskir sósíaldemókratar öfunda
Vinstri flokkinn af því að eiga
Thorkil Kristensen. Hann getur
talað þannig um efnahagsmál, að
hver maður skilur það. Við eigum
engan slíkan.“ Munu þó fáir þing-
flokkar á Norðurlöndum a.m.k. vera
svo vel í stakk búnir sem dönsku
sósíaldemokratarnir að túlka efna-
hagsmál, svo mörgum færum hag-
fræðingum, sem þeir hafa á að skipa,
bæði innan þings og utan.
En því er hér minnst á kjaramálin
í tengslum við félaga Napóleon, að til
er að vísu ein leið enn ef leið skyldi
kalla, sem á pappírnum gæti fengið
það dæmi til að ganga upp, að skerða
ekki vísitölubætur, án þess að dregið
sé úr fjárfestingu eða skuldasöfnun
erlendis aukin, a.m.k. ekki fyrst í
stað. Hún væri sú að taka upp
innflutningshöft að nýju og kalla
einhverja „söngvara þjóðvísunnar"
til starfa að nýju. Auðvitað myndi
þetta hafa í för með sér meiri
skerðingu lífskjara launþeganna en
nokkur vísitöluskerðing sem til
umræðu hefir verið, en sú skerðing
yrði ekki mæld í tölum því að nú
væri vísitalan ekki lengur neinn
mælikvarði á kaupmátt launa. Þess-
ari aðferð mætti líkja við það að
ætla sér að lækna hitasótt með því
að brjóta hitamælinn.
Hinn frjálsi markaður er raunar
fjöregg kjarabaráttu launþeganna í
þeirri mynd, sem hún er rekin í þeim
löndum, sem á markaðarbúskap
byggja. Þegar tekin eru upp höft eða
skömmtun eru með því slegin úr
hendi launþeganna öll þau vopn er
samtök þeirra hafa yfir að ráða til
að auka kaupmátt launa sinna. Þeir
kunna að vísu að geta knúið fram
hærra kaup, en nú er það ekki lengur
kaupið sem ræður lífskjörunum
heldur hitt, hvað stjórnvöldunum
þóknast að skammta fólkinu. Austan
járntjalds eru frjáls launþegasam-
tök, þ.e. óháð ríkisvaldinu, sem
kunnugt er bönnuð.
En jafnvel þótt þau væru leyfð, þá
gætu þau litlu áorkað til þess að
tryggja fólki sínu neinar raunhæfar
kjarabætur. Telji stjórnvöld að ekki
sé grundvöllur fyrir því að kjörin séu
bætt, mættu þau kauphækkunum
með strangari skömmtun, svo að
kjörin standa í stað.
Það þarf þó ekki að fara austur
fyrir járntjald til þess að finna dæmi
um það sem hér hefir verið sagt.
Hvað gerðist hér á landi sumarið
1947? Þá um vorið var Dagsbrún í
mánaðarverkfalli og tókst að knýja
fram talsverða kauphækkun. En þá
um sumarið var tekin upp ströng
vöruskömmtun, sem gerði að engu
hinar áunnu kjarabætur og miklu
meira en það.
Einhver kann nú að segja sem svo,
að hafta og skömmtunarráðstafanir
komi að því leyti betur við en t.d.
vísitöluskerðingar, að fyrrnefndar
ráðstafanir gangi jafnt yfir alla.
Þetta er þó á algerum misskilningi
byggt. Vegna ólíkra þarfa einstakl-
inganna ganga einmitt engar kjara-
skerðingarráðstafanir eins ójafnt
yfir og skömmtun og höft. Jafnvel þó
um almenna nauðsynjavöru sé að
ræða eins og t.d. kaffi, þá mun
rosknu fólki það í minni frá
stríðsárunum hvernig kaffiskömmt-
unin bitnaði þá á því fólki, þar sem
aðeins var fullorðið í heimili, þar
sem barnafjölskyldur höfðu gnótt
kaffis. Ef um sérhæfðar vörur er að
ræða, kemur ójöfnuðurinn þó enn
skýrar fram. Á haftaárunum mun
innflutningur hljóðfæra yfirleitt
hafa verið bannaður (einhver undan-
tekning mun þó hafa verið leyfð að
því er snertir kirkjuorgel). Fyrir þá
ómúsíkölsku var þetta nánast
„kjarabót“, þar sem þeir losnuðu við
þá óþægilegan hávaða. En hins vegar
var hér um tilfinningalega skerðingu
lífsánægju og þá um leið lífskjara
söngelska fólksins að ræða. Ætti
þetta ekki að þurfa nánari skýringa
við.
Forða verður
kaupæði
og vöruskorti að
afstöðnum
kosningum
Því miður er „félagi Napóleon"
ekki nein Grýla miðað við ástæður í
íslenzku efnahagslífi í dag, heldur
þvert á móti Ijóslifandi ógnun við
lífskjör almennings, sem blasir við á
næsta leiti. Alvarlegar horfur í
gjaldeyrismálum þjóðarinnar, sem
ekki hafa batnað við langvarandi
útflutningsbann ætti að opna augu
allra fyrir hættunni á því, að
stjórnvöld hver sem þau verða eftir
kosningar kaupi sér gálgafrest í
Framhald á bls. 26.
Lelklist
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
skirrst við að höfða til þess sem
afbrigðilegt kallast í fari fnanna,
þess freistað að kalla á viðbrögð,
andsvör.
Aftur á móti létu reykvískir
borgarar ögranir Þjóðverjanna
ekkert á sig fá. Framandi tungu-
mál varð óbrúanleg gjá milli
leikaranna og áhorfenda.
Mikið var um börn sem fylgd-
ust áhugasöm með sýningunni, en
naumast var þátturinn um
syndaaflausnina við hæfi þeirra.
Trúðleikurinn var þeim hins
vegar fagnaðarefni, gervi leikar-
anna og sú nýbreytni að leika á
stultum. Skyndilega var fremur
hátíðlegt andrúmsloft borgarinn-
ar horfið og eitthvað tekið við
sem minnti á að mannkynsfrels-
arar hefðu náð völdum, fólk varð
að líta upp til þýskra uppreisnar-
manna í list og boðun. Þetta var
þægileg tilbreyting.
Das Freies Theater gerði okkur
að þátttakendum í evrópskri
leiklist sem byggir á gömlum
grunni, en hefur aldrei fest rætur
hér. Koma þeirra var áreiðanlega
með því forvitnilegasta á þessari
stjörnuhátíð.
Sandspyrnukeppni
Kvartmíluklúbbsins veröur haldin að Hrauni í Ölfusi
sunnudaginn 11. júní kl. 2 e.h.
■>