Morgunblaðið - 09.07.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978
Dómpallurinn í Skógarhólum
hefur verið færður til og var
þessi mynd tekin við það tæki-
færi. Hann er nú að sunnan-
verðu við hlaupabrautina og vár
því hægt að lengja beinu
hlaupabrautina um 50 metra og
er hún nú 350 metrar. Ljósm.
Kristján.
Skógarhólar um næstu helgi:
Um 500 hross keppa á
landsmóti hestamanna
LANDSMÓT hestamanna hið áttunda í röðinni, verður haldið um
næstu helgi í Skógarhólum í Þingvallasveit. Gert cr ráð fyrir að fjöldi
hestamanna leggi lcið sína á mótið og þegar er vitað um hópa, sem
lagðir eru af stað ríðandi á mótið, s.s. frá ísafirði, Skagafirði,
Eyjafirði og Homafirði. Tii keppni á mótinu koma nærri 500 hross
en um fjölda ferðahesta sem komið verður með á mótið, er erfiðara
að segja fyrir um og varðandi hugsanlegan fjölda mótsgesta hafa
forsvarsmenn mótsins látið þau orð falla að þeir eigi von á um 15
þúsund manns á mótið verði veður hagstætt.
Mótið verður sett laust upp úr
hádegi á föstudag, eða kl. 13.30, af
Albert Jóhannssyni, formanni
Landssambands hestamannafé-
laga, en stóðhestar, sem sýndir
verða á mótinu, verða hins vegar
dæmdir á miðvikudag 12. júlí,
kynbótahryssur verða dæmdar
fyrir hádegi á fimmtudag, kl. 13 á
fimmtudag verða gæðingar í B-
flokki dæmdir með spjaldadómum,
hross á hrossamarkaði verða
kynnt kl. 15 og kl. 20 á fimmtu-
dagskvöldið verða undanrásir
kappreiða í 250 metra, 350 metra
og 800 metra stökki. Klukkan 13 á
föstudaginn verður öllum einstak-
lingskynbótahrossum riðið inn á
völlinn.
Að lokinni setningu mótsins á
föstudag eða kl. 14 verða gæðingar
í A-flokki, alhliða gæðingar,
dæmdir með spjaldadómum,
Happdrætti SVFÍ:
Bóndi fékk
bifreiðina
STEINÞÓR Þórðarson bóndi að
Hala í Suðursveit hreppti vinning-
inn, Chevrolet Malibu 1978, í
happdrætti Slysavarnafélags ís-
lands 1978. Sonarsonur Steinþórs
og nafni, Steinþór Torfason, veitti
bifreiðinni viðtöku af Gunnari
Friðrikssyni forseta SFVÍ og
Guðjóni Jónatanssyni fulltrúa í
happdrættisnefnd SVFÍ. Enn eru
ósóttir vinningar, er komu á
eftirtalin númer: 4767, 7966, 23503,
28657 og 44779.“
seinna um daginn verða kynbóta-
hryssur og stóðhestar kynnt,
klukkan 15 fer fram unglinga-
keppni 10—12 ára, klukkan 18
verða milliriðlar í 350 metra
stökki og 1500 metra brokk, fyrri
sprettur, og klukkan 20 fer fram
gæðingaskeið. Bæði föstudags- og
laugardagskvöld fara fram kvöld-
vökur og er dagskrá þeirra fjöl-
breytt.
Á laugardag hefst dagskrá
mótsins kl. 13 með því að dómum
stóðhesta verður lýst og kl. 14
verður keppt til úrslita í tölti og
þannig rekur hvert dagskráratrið-
ið annað, s.s. lýsing dóma kynbóta-
hryssa, unglingakeppni 13 til 15
ára, brokkkeppni, seinni sprettur,
skeið fyrri sprettur, milliriðlar í
800 metra stökki og klukkan 18 á
laugardag fer fram söluuppboð á
hestum á hrossamarkaði mótsins.
Klukkan 11 á sunnudag verður
helgistund í Hvannagjá þar sem
biskup íslands, Sigurbjörn Einars-
son, predikar og Skálholtskórinn
leiðir söng. Eftir hádegið fer
hópreið hestamanna um mótsvæð-
ið og flutt verða ávörp. Þá verða
verðlaunaafhendingar og að síð-
ustu fara fram úrslit kappreiða.
Strangar kröfur eru að þessu
sinni gerðar til kosta og gæða
þeirra hrossa, sem til keppni koma
á Landsmótinu og hafa t.d. verið
sett ákveðin lágmörg varðandi
þann árangur, sem kappreiðahross
verða að hafa náð til að mega
keppa á mótinu, kynbótahrossin
eiga að vera nær eingöngu fyrstu
verðlauna hross og gæðingar eiga
að hafa náð ekki lægri einkunn en
7,60. Varðandi fjölda hrossa í
einstökum keppnisgreinum má
nefna að um 80 gæðingar keppa í
hvorum flokki, sýnd verða um 100
kynbótahross, nærri 130 hross
taka þátt í kappreiðum, unglingar
keppa á 40 hestum í sérstakri
unglingakeppni, 25 hestar taka
þátt í töltkeppninni og 10 hestar
keppa í gæðingaskeiðinu. Meðal
keppnishrossa í kappreiðum móts-
ins eru nær öll bestu hlaupahross
landsins um þessar mundir og það
sama má segja um vekringana.
Margvíslegar lagfæringar hafa
verið gerðar á mótssvæðinu og má
þar nefna að gert hefur verið
upphækkað áhorfendasvæði, dóm-
pallurinn hefur verið fluttur yfir
hlaupabrautina og beina brautin
þannig lengd í 350 metra og þá
hafa verið gerðir þrír hringvellir
innan stóra hringvallarins. Er
ætlunin að á þessum hringvöllum
fari fram dómar kynbótahrossa,
dómar gæðinga, unglingakeppni,
töltkeppni o.fl.
Landsmótið hefur fengið afnot
af landinu í Svartagili og hefur
túnið þar verið girt og er ætlunin
að þar verði beitt langferðahross-
um. Auk þess hafa verið girt tvö
beitarhólf utan mótssvæðisins, á
völlunum við Svartagilslæk og á
Leirdalnum. Þá hafa reiðleiðir að
Þingvöllum verið lagfærðar s.s.
leiðin um Fellsendaflóann, gerð ný
reiðleið frá Grafningsvegamótum
að mótssvæðinu og ný leið gegnum
þjóðgarðinn frá Vatnsvíkinni um
Skógarkot og Langastíg eftir
gömlu leiðinni upp á vellina fyrir
ofan Þingvöll.
Á vinnufundi sem haldinn var
að Laugarvatni dagana 4.-8.
júli, á vegum Iláskóla Sameinuðu
Þjóðanna(HSÞ) var samþykkt
tilboð íslenzku ríkisstjórnarinnar
um þjálfunarnámskcið í jarðhita-
fræðum hér á landi. Endanleg
ákvörðun býður nú samþykkis
íslenzkra stjórnvalda á því fyrir
komulagi sem samþykkt var á
fundinum. Af hálfu HSÞ og
sérfræðinga hér á landi er ekkert
því til fyrirstöðu að starfsemin
hefjist á næsta ári.
Háskóli Sameinuðu Þjóðanna
stóð fyrir fundinum og bauð til
hans erlendum gestum og nokkr-
um íslenzkum sérfræðingum, sem
unnið hafa að undirbúningi
hugsanlegrar jarðhitaþjálfunar á
vegum Sameinuðu Þjóðanna hér á
landi.
Aðdragandi fundarins að
Laugavatni var sá, að í janúar
1976 sendu islenzk stjórnvöld
erindi til hins nýstofnaða HSÞ,
þar sem reifaðar voru hugmyndir
um starfsemi hér á landi í
tengslum við háskólann. 1 lok júní
1977 kom hingað til lands dr.
Walther Manshard, aðstoðar-
rektor HSÞ, ásamt ráðunaut
sínum. Þeir lýstu þeirri skoðun
sinni; að eðlilegt væri að miða
fyrst um sinn einkum við þjálfun
styrkþega í rannsóknum varðandi
vinnslu á nýtingu jarðhita, og yrði
þjálfunin fólgin í þátttöku í
hagnýtum verkefnum og fræðslu í
tengslum við þau. Niðrustaða
viðræðnanna varð sú, að hér yrði
athugað umfang og skipulag
hugsanlegrar þjálfunarstarfsemi
af þessu tagi á vegum Orkustofn-
unar í samvinnu við Háskóla
íslands og stefnt yrði að ákveðnum
tillögum sem lagðar vrðu fyrir
HSÞ.
Að tillögunum unnu fulltrúar
menntamálaráðuneytis, iðnaðar-
ráðuneytis, utanríkisráðuneytis,
Orkustofnunar, Háskóla íslands,
Rannsóknaráðs ríkisins og
íslenzku UNESCO nefndarinnar. I
tillögunum, sem samþykktar voru
nú á fundinum, er gert ráð fyrir
því, að íslendingar standi straum
af meginhluta þess kostnaðar, sem
beint er tengdur innlendri aðstöðu
og innlendum mannafla, en HSÞ
standi straum af dvalarstyrkjum
og erlendum kostnaði styrkþega
ásamt þeim hluta af árlegum
kostnaði, sem beint er tengdur
hinum erlendu styrkþegum, svo
sem ferðum þeirra innanlands.
Litið er á kostnað ríkissjóðs af
starfsemi þessari sem hluta af
framlagi íslands til aðstoðar við
þróunarlöndin.
Sérfræðingar frá Orkustofnun
og Háskóla íslands hafa starfað
undanfarnar vikur við að semja
starfsáætlun fyrir þjálfun í jarð-
hitafræðum á íslandi á vegum
HSÞ. Þeirra tillögur hlutu jákvæð-
ar viðtökur allra fundarmanna.
Framhald á bls. 46.
Opna málverkasýn-
ingar á Akureyri
Listmálararnir Helgi Vil-
berg og Óli G. Jóhannsson
opnuðu í gær sameiginlega
myndlistarsýningar í Gall-
erý Háhól á Akureyri. Helgi
sýnir þar 32 myndir, nokkur
olíumálverk, en flestar eru
samsett myndverk. Óli sýn-
ir 29 myndir, flestar akrýl-
myndir.
Sýningarnar standa til
16. júlí og eru opnar kl.
20—22 virka daga, en kl.
15—22 um helgar. Sv.P.
Helgi Vilberg
Óli G. Jóhannsson
Gengisspáin hefur stað-
izt í öllum höfuðatriðum
GENGISSPÁ sú, sem starfs-
menn L.Í.Ú., Sambands fisk-
vinnsiustöðva og Vinnuveit-
endasambands íslands gerðu í
maí á s.l. ári, eða nokkru áður
en „sólstöðusamningarnir“ svo-
kölluðu voru gerðir, hefur
staðizt í öiium höfuðatriðum.
Gengisspáin var byggð á reikn-
jngum frystihúsanna í maí
1977 og var þá miðað við
sáttatilboð sáttanefndar, en
endanlegir samningar voru
byggðir á því. Gengisspáin er
miðuð við gengi dollara og
sýnir hvað gengið þyrfti að
vera á hverjum tíma til að
tryggja hallaiausan rekstur
frystihúsanna.
Samkvæmt gengisspánni ætti
gengi bandaríkjadollars nú að
vera 303.90, en samkvæmt þeim
upplýsingum sem Mbl. hefur
aflað sér þyrfti gengið að vera
306 kr. til að tryggja hallalaus-
an rekstur húsanna.
Þá gerir gengisspáin ráð fyrir
að ef sömu fiskverðs- og kaup-
hækkanir verða til loka október
n.k. og gert er ráð fyrir í
samningum, þá þyrfti gengi
dollars að vera 349.50 kr.
Ágúst Einarsson starfsmaður
L.I.Ú. var einn þeirra sem vann
að þessari gengisspá og þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær sagði hann, að gengisfelling
eins og fram kæmi í spánni
kæmi sér mjög illa fyrir útgerð-
ina í landinu, þar sem lang-
stærsti hlutinn af gjaldaliðum
útgerðarinnar væri háður er-
lendu gengi, eins og t.d. veiðar-
færi, olía, viðhald og ennfremur
væru núorðið öll lán til fiski-
skipakaupa gengistryggð, þann-
ig að gengisfelling kallaði á
hærra fiskverð, sem síðan þýddi
útgjaldaaukningu fyrir fryst-
inguna, og sem síðan kallaði á
enn frekari leiðréttingu.
Sagði Ágúst, að þegar þessi
gengisspá hefði verið lögð fram
hefðu fæstir tekið mark á henni,
allra sízt verkalýðsleiðtogarnir
en það sem væri að gerast nú.
Framhald á bls. 46.
Aðstoð íslands við þróunarlöndin:
Síðasta landsmót hestamanna var haldið á Vindheimamelum í
Skagafirði 1974. Meðal hrossa, sem sýnd voru á síðasta landsmóti
var stóðhesturinn Hylur frá Kirkjubæ og sést hann hér með
afkvæmum sínum.
Þjálfunamámskeið
í jarðhitafræðum
hér á vegum HSÞ