Morgunblaðið - 09.07.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978 5
Fjórir ungir
listamenn f rá
Norðurlöndum
„Stóra harmoníkan" eítir Anders Áberg
Óvenjuleg sýning stendur nú
yfir á Kjarvalsstöðum. Þar eru
sýnd verk eftir 4 unga lista-
menn frá Norðurlöndum, en
eitt þeirra er ekki með, það er
Finnland. Þessi sýning er upp-
runalega gerð af Heine Onstad
safninu í Noregi og á að sýna
þátttöku Norðurlandanna í
Æsku-Biennal í París 1977, en
þangað er aðeins boðið lista-
mönnum undir 35 ára aldri, og
höfum við íslendingar verið þar
þátttakendur hérumbil frá
fyrstu tíð. Það hefur komið
fram í fjölmiðlum, að gagnrýn-
endur velji sýnendur á
Æsku-Biennalen í París, en ég
er hræddur um, að fáir gagn-
rýnendur hérlendis hafi komið
þar við sögu. Þetta vil ég
leiðrétta hér til að forða okkur,
sem um myndlist skrifa, frá
allri ábyrgð, hvað þetta fyrir-
tæki snertir og þá einkum og
sér í lagi þessa sýningu á
Kjarvalsstöðum. Það er nægi-
legt, sem gagnrýnendur hafa á
sinni könnu, þótt ekki séu þeir
bornir fyrir hlutum, sem þeir
hafa ekki komið nálægt. Sem
sagt, hér með leiðrétti ég þetta
atriði, hvað Island varðar
a.m.k.
Nýlistarmenn eru hér á ferð,
eða það sem eitt sinn var kallað
framúrstefnu-menn. Hér sjáum
við unnið í fjölda efna, og ekki
vantar hugmyndaflugið hjá
þessum ungu listamönnum.
Þeir útskýra einnig hver fyrir
sig í sýningarskrá, hvað þeir
eru að fara, og ekki veitir af.
Þátttakandi íslands, 06Ólafur
Lárusson, hefur þar sérstöðu.
Texti hans er stuttur og hnit-
miðaður og því honum til sóma,
þegar borið er saman við það,
sem sumir af félögum hans á
þessari sýningu hafa að segja.
Mestar eru útskyringarnar, þar
sem minnst er að gera í
listaverkinu. „Big smoke, no
fire,“ sagði Indíáninn.
Ólafur Lárusson á þarna einn
þeirra félaga, concept verk, sem
hanga á vegg. Það eru allt
ljósmyndir og kasta fram til-
gátum, sem hver og einn verður
síðan að skilja eftir sinni getu.
Ég held, að hann hafi sýnt
þessar myndir hér heima áður,
en má vera, að ég muni ekki
rétt. Anders Áberg frá Svíþjóð
á ef til vill skemmtilegasta
verkið á þessari sýningu. Það er
„Stóra harmoníkan," sem hægt
er að fara inn í belginn á, og þá
blasa við manni þjóðvísur. Að
utan er landsbyggðin og fleira.
Ég hafði skemmtun af þessu
verki, og mér fannst það spegla
humanistíska tilfinningu, sem
er stundum vandfundin í því,
sem nú er kallað nýlist. Daninn
Björn Nörgaard notar ýmis
efni til að búa til sitt sand-
kassaland. Þar má finna möl,
hraun, plast, gips, húsgögn,
raflampa og sjónvarp. Svo
kemur það manni óneitanlega á
óvart, að verkið skuli vera til
orðið fyrir áhrif úr okkar
gömlu og góðu Eddu.
Snorra-Edda er mjög myndrík
bók — þar er öllu lýst á stuttan
og laggóðan hátt. Þesskonar
myndríki hef ég einnig reynt að
stefna að í þessu verki," segir
listamaðurinn, og þá hafið þið
skilið verkið, góðir hálsar. Ég
skal fúslega játa, að ég var litlu
nær, þrátt fyrir þessa yfirlýs-
ingu listamannsins, og verkið í
heild verkaði heldur ruglings-
legt á jafn úrkynjaðan gaml-
ingja og maður er víst orðinn.
Þá er einn listamaður eftir, það
er Norðmaðurinn Viggo Ander
sen, sem byggt hefur sérstakt
herbergi inni í sýningarsalnum,
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
og þar getur heldur fátt að líta:
rafmagnsperur fyrir enda her-
bergisins og nokkrir munir
aðrir innan veggja, ekki veit ég
alveg, hvað Andersen er að
fara, en þetta er allt snyrtilega
upp sett. Það er svolítil til-
hneiging til hreinleika og ein-
földunar í formi, sem gefur
þessu verki gildi.
í heild varð ég ekki uppnum-
inn af þessari sýningu, en það
var þó skemmtilegt að sjá hvað
jafnfræg listastofnun og Heine-
Onstad safnið fæst við og lætur
Norræna menningarmálasjóð-
inn senda vítt og breitt um
Norðurlönd. Mig grunar, að hér
sé um visst snobberí að ræða,
sem óneitanlega minnir á, að
það var á Norðurlöndum, sem
H.C. Andersen skrifaði „Nýju
fötin keisarans." Það hafa oft
verið skringileg hlaup eftir
strætisvagninum í listasögu
Norðurlanda, því óvissan og
vankunnáttan hafa gert marga
að viðundri af hræðslu við að
missa af vagninum. Því ekki að
hafa það eins og vitringur einn,
sem spurður var hvort strætis-
vagninn væri farinn framhjá.
Já, en það gerir ekkert til, það
kemur alltaf annar, svaraði
drenghnokki, sem sullaði í
pollinum sínum í haustrigning-
unni.
v
Nýtt bílaumboó á íslandi
Viö höfum nú hafiö innflutning á bílum frá Rúmeníu. Rúmenskir bílar hafa
getiö sér gott orö í Evrópu og veröiö getur enginn staöist.
5 gerðir þar af 2 pick-up 2ja, 3ja og 5
dyra. 4 hjóla drif. ARO jeppinn hefur
m.a. unniö Afríku safari keppnina.
Sýningarbíll
á Bílasölu Alla Rúts.
ROMAN
— 40 til 51
manna rútur
Alklæddur meö
sætum, sjón-
varpi, stereo-
hljómtæki o.fl.
o.fl.
Verö frá ca. kr.
24.000.000.
TV — Mini Bus
í 12 mismunandi geröum t.d. litlir og
stórir sendibílar pallbílar, sjúkrabílar.
12 til 14 manna farþegabílar alklæddir.
Verð á farþegabílum frá ca. kr. 5.5 millj.
Bílarnir eru meö drifi á öllum hjólum.
Bensín eða diesel.
— umboöið, sf.
BÍLASÖLU ALLA RÚTS
Hyrjarhöföa 2 — Sími 81666 Reykjavík.
J