Morgunblaðið - 09.07.1978, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JULI 1978
Gamanmál
og spurningar
bæði fyrir fólk, sem situr inni í lokuðum bíl á fleygiferð
í moldviðri og ryki, og fyrir þá, sem njóta frístunda sinna
á annan hátt!
Hlaðan hans Jóns bónda hafði brunnið til ösku og fulltrúi frá
tryggingarfélaginu var að reyna að útskýra það fyrir honum, að
hann fengi ekki endurgreiðslu í peningum.
„Lesið þér tryggingarskírteinið," sagði hann. „Þá sjáið þér, að
við skuldbindum okkur til þess að byggja hlöðu nákvæmlega
einsog þá, sem eyðilagðist." Jón bóndi varð ævareiður og
öskraði:
„Ef þið ætlið að hafa það svona, þá er best að afturkalla strax
líftrygginguna á konunni rninni!"
- O —
1) Tveir indíánar voru á göngu gegnum skóginn. Annar þeirra
var lítill, og hann var sonur stóra indíánans. En sá stóri var ekki
faðir litla indíánans! Hvernig gat þetta átt sér stað
2) Hvaða bogi er það, sem enginn getir nokkru sinni spennt?
3) Hvað er það sem þú kastar, þegar þú þarfnast þess, en dregur
það til þín, þegar þú þarft ekki á því að halda?
Svör á síðunni
Ferðalangur!
Ferðalangurinn á myndinni er glaður og hýr
á svipinn. En hann á samt langa leið fyrir
höndum. Það kann meira að segja að vera, að
hann sé orðinn hálf ráðavilltur. Þó má ráða bót
á því með smá aðstoð við hann. Ef þú fyllir út
reitina með punktunum í með einhverjum lit eða
blýanti, kemur í ljós borgin, sem hann ætlar til.
Það er höfuðborg í Evrópu.
Hand-
knatt-
leikur
Það getur vel verið, að
það sé auðvelt að sjá, að
á myndunum tveimur eru
þeir að leika handknatt-
leik. Að vísu vitum við
ekki hvort þetta er einn af
leikjunum úr fyrstu deild
Islandsmótsins — en þeg-
ar við aðgættum nánar,
þá sáum við, að myndirn-
ar eru alls ekki alveg eins.
Það er fimm mismunandi
atriði, sem eru öðruvísi!
Geturðu fundið þau áður
en ein og hálf mínúta er
liðin?
TröUabamið
á Kr ákueyj u
Framhaldssaga ÍX
Vestermann lítur allt í
kring um sig.
„Eg sé ekki neitt," segir
hann. „Ég held, að þú sért
að gera gys að mér.“
„Ég held nú síður," segir
Skotta sannfærandi og
dregur sitthvað upp úr vasa
sínum. „Sjáðu bara! Hér er
apinn!"
í sömu andrá lyftir hún
litlum spegli upp að nefi
Vestermanns og hann virðir
fyrir sér andlit sitt, hrukk-
ótt og sólbrennt.
„Þetta þykir mér einum of
langt gengið.... það sem
betra var: Hann er hættur
við refaveiðarnar þennan
daginn.
Skotta snýr aftur til
hinna barnanna, sem sitja
enn við refagrenið.
„Vestermann er farinn
heim,“ segir hún til skýring-
ar.
„Hann kemur bara aftur
seinna," segir Palli, sem er
engan veginn rólegur. „Og
þá skýtur hann vesalings
yrðlingana. Hvað eigum við
að gera?“ Palli er hugsi.
„Maður eins og Vestermann
ætti alls ekki að hafa
byssuleyfi! Nú veit ég, hvað
við gerum! Við brjótumst
inn hjá honum í nótt og
rænum byssunni hans! Þá
getur hann ekki skotið
yrðlingana!"
„Já, en heldurðu að það
takist?" spyr Skotta skelk-
uð.
„Já, ef við verðum hepp-
in,“ segir Palli. „Hittumst
öll þrjú í kvöld, þegar hin
éru háttuð! Þá fremjum við
innbrot hjá Vestermann!"
III.
Síðla kvölds, nokkru eftir
háttatíma á Krákueyju,
skríða Palli, Skotta og Stína
út um glugga hvert á sínu
heimili. Enginn veitir ferða-
lagi þeirra eftirtekt, og þau
hittast skömmu síðar fyrir
framan hús Vestermanns
sjómanns. Nú ætla þau að
framkvæma ákvörðun sína.
Skotta hefur notað tímann
fram að þessu til þess að
hugsa nánar um hana, og