Morgunblaðið - 09.07.1978, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978
Vinsældalistar og fréttir
11 -r»
L4 i_
poDDneiTninum.
Kemnr brezka
hljómsveitín
MagpaGarta
tíl íslands?
Eins og lesendur rekur ef-
laust minni tii var eitt af
markmiðunum með hljómleik-
um StranKÍers hér á landi í maí
að opna augu erlendra hljóm-
sveita fyrir íslandi. Að ein-
hvcrju leyti virðist þetta hafa
tekizt, því fyrir skömmu var
staddur f Reykjavik umboðs-
maður brezku hljómsveitarinn-
ar Majjna Carta og lýsti hann
miklum áhuga á að koma með
hljómsveitina hingað á næsta
sumri og halda í viku hljónr
leikaferðalag um landið.
Umboðsmaðurinn Sigfrid
Birdsen, sem er norskur, sagði
að næsta sumar héldi hljóm-
sveitin í hljómleikaferðalag til
Færeyja og væri nú í athugun
hvort ekki væri hægt að koma
við á Islandi í leiðinni. Er
ætlunin þá að fara með ferjunni
Smyrli og flytja allt magnara-
kerfið og annað hafurtask
hljómsveitarinnar sjóleiðina. A
íslandi er hugmyndin að hafa
vikuviðdvöl og halda hljómleika
víða á landinu. En þessar
hugmyndir eru enn mjög í lausu
lofti og enn hefur lítið verið
rætt við innlenda aðila um þessi
mál. En áður en lengra er haldið
er rétt að segja frá hljómsveit-
inni og sögu hennar.
Magna Carta var í upphafi
dúett og skipuðu hann þeir
Chris Simpson og Glen Stuart.
Hljómlistin sem þeir léku var
enskt þjóðlagarokk og fyrst í
stað komu þeir eingöngu fram í
þjóðlaga-klúbbum. Fyrsta plata
dúettsins Magna Carta kom út
árið 1969 og nefndist hún
„Times of change." Platan hlaut
dræmar viðtökur, enda lítið til
hennar vandað af hálfu útgáfu-
fyrirtækisins. Hún þjónaði þó
þeim veigamikla tilgangi að ýta
hljómsveitinni fram í dagsljósið
og var góð kynning á Magna
Carta.
„Seasons" nefndist næsta
plata hljómsvietarinnar og er sú
plata talin af mörgum það bezta
sem frá Magna Carta hefur
komið. Nafn sitt dregur hljón-
platan af verki, sem fjallar um
árstíðirnar fjórar og tók það
verk um 20 mínútur í flutningi.
Á „Seasons" aðstoða þeir Danny
Thompson og Rick Wakeman þá
Simpson og Stuart, en Gus
Gudgean sá um að útsetja lögin.
Plata þessi gerði Magna Carta
fræga í einu vetfangi og í kjölfar
hennar hélt hljómsveitin hljóm-
leika í Albert Hall í London.
Hljómleikarnir voru hljóðritað-
ir, en upptökurnar týndust og
var því ekki hægt að gefa
hljómleikana út á plötu eins og
ætlunin hafði verið.
Davy Johnstone, gítarleikari,
gekk nú í Magna Carta og er
hann á plötunni „Songs from
Wastes Orchard.“ Það átti þó
ekki að liggja fyrir Johnstone að
vera lengi í hljómsveitinni, því
eftir skamma hríð gekk hann í
hljómsveit Eltons Johns.
Við sæti Johnstones í Magna
Carta tók Stan Gordon og stuttu
eftir að hann gengur í hljóm-
sveitina kemur fjórða plata
hennar út, „Lord of the ages.“
Upphaflega átti platan að heita
„Frozen optimist", þar sem á
plötunni er lag sem nefnist „Sun
ain’t gonna rise.“ En illa tókst
til með lagið í upptöku og það
varð úr að platan var skírð
„Lord of the ages.“
Sakir ágreinings hljómplötu-
útgáfufyrirtækisins og umboðs-
manns Magna Carta varð nokk-
uð hlé á því að hljómsveitin léti
frá sér fara nýja plötu. Sú kom
ekki út fyrr en 1974 og nefndist
„Martin’s cafe,“ en platan var
tekin upp árið áður. En nú var
umboðsmaður Magna Carta bú-
inn að fá nóg og stakk af til
Ástralíu, en hljómsveitin sat
uppi með mikla skuldasúpu. Til
að bjarga málunum seldi Chris
Simpson hús sitt og tókst síðan
með aðstoð lögfræðings að rétta
hag hljómsveitarinnar við.
Ný plata fylgdi í kjölfarið og
bar hún titilinn „Putting it back
together." Nú 'var Glen Stuart
hættur í hljómösveitinni og í
hans stað kom Tom Hoy. Tveir
KATE
BUSH
VINSÆL
I
JAPAN
Kate liush. söngkonan unga sem sló í gegn með lagi sínu
„Wuthering IIeights“ íyrr á árinu. hafnaði í öðru sæti í
söngvakeppni sem nýlega var haldin í Tokyo.
Lagið sem hún söng nefnist „Moving" og er af plötu hennar „The
Kick Inside“. Keppninni var sjónvarpað beint til 35 milljón manna
í Japan. en lagið „Moving“ er nú í 42. sæti japanska
vinsaldalistans. Þá má geta þess að annað lag eftir Kate Bush er
í 11. sæti vinsældalistans í Bretlandi og nefnist það „Man With
The Child In IIis Eyes".
Magna Carta, eins og hljómsveitin er skipuð í dag, talið
frá vinstri: Robin Thyne, sem leikur á flautur, gítar og
syngur, Chris Simpson, gítar og söngur, Jee Abbot,
bassaleikari og Tom Hoy, gítar og söngur.
aðrir hljóðfæraleikarar, Robin
Thyne og Jee Abbat gengu í
hljómsveitina og Magna Carta
var nú orðinn kvartett. „Putting
it back together" kom út hjá
GTO-útgáfufyrirtækinu, en
Chris Simpson og félagar hans
í, Magna Carta voru ekkert yfir
sig hrifnir af samskiptum sínum
við það félag. Töldu þeir að
forráðamenn GTO hefðu mestan
áhuga á að útsetja tónlist
hljómsveitarinnar í diskó-stíl og
varð það úr að hljómsveitin
skipti um útgáfufélag. Nýja
félagið var Phonogram, en það
félag gaf út allar plötur hljóm-
sveitarinnar nema „Putting it
back together."
I haust er síðan væntanleg á
markaðinn sjöunda plata Magna
Carta, „Prisoners on the line.“ Á
þeirri plötu er verk í anda
„Seasons" og nefnist það
„Prisoners on the line.“ Hvort
það á eftir að vekja sömu
vinsældir og „Seasons" er annað
mál og aðeins tíminn getur
skorið þar úr.
En sem sagt, hver veit nema
okkur íslendingum veitist tæki-
færi til að sjá Magna Carta á
hljómleikum á íslandi næsta ár.
Það væri ekki amalegt.
Vinsældalistar
Aðeins tvö ný lög eru á brezka vinsældarlistan-
um þessa vikuna og eru þessi lög flutt af
nýbylgjuhljómsveitinni Boomtown Rats og af
söngkonunni Kate Bush. John Travolta og Olivia
Newton-John tróna sem fyrr í efsta sæti, en
Rolling Stones hafa hrapað úr 3. sætinu f það 4.
í Bandaríkjunum er allt með kyrrum kjörum
og er ekki að sjá að bandaríski listinn muni
breytast mikið í bráð.
LONDON.
1. ( 1) You’re the one that I want —
John Travolta og Olivia Newton-John.
2. ( 2) Smurf song — Father Abraham.
3. ( 4) Annie’s song — James Galway.
4. ( 3) Miss you — Rolling Stones.
5. ( 6) Airport — Motors.
6. (11) Man with the child in his eyes —
Kate Bush.
9. (10) Dancing in the city — Marshall Main.
8. (20) Like clockwork — Boomtown Rats.
9. ( 5) Making up again — Goldie.
10. ( 7) Rivers of Babylon — Boney M.
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
NEW YORK.
1. ( 1) Shadow dancing — Andy Gibb.
2. ( 2) Baker street — Gerry Rafferty.
3. ( 3) It’s a heartache — Bonnie Tyler.
4. ( 6) Miss you — Rolling Stones.
5. ( 5) Take a chance on me — ABBA.
6. ( 7) Use to be my girl — O’Jays.
(11) Still the same — Bob Seger.
8. ( 8) Dance with me — Peter Brown.
9. (10) You belong to me — Carly Simon.
10. (12) The groove line — Heatwave.
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
AMSTERDAM.
1. ( 2) You’re the one that I want — John
Travolta og Olivia Nwton-John.
2. ( 1) Rivers of Babylon — Boney M.
3. ( 4) Miss you — Rolling Stones.
4. ( 3) Lady MacCorey — Band Zonder Naam.
5. ( 8) Whole lotte rosie — AC/DC.
6. ( 5) Golden years of rock’n roll —
Long Tall Ernie.
( 6) If you can’t give me love — Suzie Quatro.
8. (12) Hold your back — Status Quo.
9. (17) Dance across the floor —
Jimmy „Bo“ Horne.
10. (9) Piece of the rock — Mother’s finest.
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
BONN.
1. ( 1) Rivers of Babylon — Boney M.
2. ( 2) Night fever — Bee Gees.
3. ( 3) Stayin alive — Bee Gees.
4. ( 5) Oh Carol — Smokie.
5. ( 4) Take a chance on me — ABBA.
6. ( 9) If you can’t give me love — Suzi Quatro.
( 8) Eagle - ABBA.
8. ( 7) Runaround Sue — Leif Garrett.
9. ( 6) Love is like oxygen — Sweet.
10. (10) Lay love on you — Luisa Fernandez.
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
HONG KONG.
1. ( 5) With a little luck — Wings.
2. ( 2) I was only joking — Rod Stewart.
3. ( 4) Moving out — Billy Joel.
4. ( 1) Night fever — Bee Gees.
5. ( 3) If I can’t have you — Yvonne Elliman.
6. ( 7) Baker street — Gerry Rafferty.
( 6) You’re the one that I want — John
Travolta og Olivia Newton-John.
8. (10) Rivers of Babylon — Boney M.
9. (12) Dust in the wind — Kansas.
10. (—) Miss you — Rolling Stones.
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Boomtown Rats, nýbylgjuhljómsveitin sem segist hafa innleitt nýbylgju-tónlistarstefnuna í Dyflinni.