Morgunblaðið - 09.07.1978, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 09.07.1978, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978 Guðbjartur og Samvinnubankinn Athugasemd bankaráðs BANKARÁÐ Samvinnubankans heíur beðið blaðið fyrir eftirfar- andi athugasemdt Halldór Halldórsson, blaðamað- ur, hefur tekið sér fyrir hendur að skrifa blaðagreinar í Dagblaðið í þeim tilgangi að breiða út róg og rakalaus ósannindi um Samvinnu- bankann og viðskipti Guðbjarts heitins Pálssonar við bankann. Iðja þessi virðist framhald af skrifum Kristjáns Péturssonar um sama efni, í ársbyrjun 1977, en grundvöll fyrir þessum skrifum átti að fá með handtöku Guðbjarts heitins, sem framkvæmd var af Hauki Guðmundssyni svo sem kunnugt er. Allt er þetta stærri saga, sem sýnir siðgæði og vinnu- brögð þeirra er að þessu standa. Þótt fjarstæður og ósannindi í greinum Halldórs ættu að liggja í augum uppi, telur bankaráðs Samvinnubankans óhjákvæmilegt að vekja athygli á eftirfarandi atriðum. 1. Til þess að skýra falsanir Halldórs, er rétt að benda á, að fái hann víxil í banka til 30 daga að upphæð ein milljón, og framlengi þennan víxil mánaðarlega í eitt ár, og greiði aðeins af honum vexti, þá hefur hann samþykkt víxla að upphæð 12 milljónir, en ekki fengið í hendur frá bankastofn- uninni nema hina upphaflegu milljón. Varla verður því trúað að Halldór Halldórsson sé svo fávís að hann viti þetta ekki. Hins vegar eru fjárhæðir í umræddum skrif- um fengnar með því að leggja saman framlengingarvíxla. Hlið- HANNES PÁLSSON — KVEÐJUORÐ Kveðja frá dóttursyni. Hann afi minn er dáinn. Er ég í fyrsta sinn fór í sveitina sem hann hélt svo mikið upp á og þar sem hann dvaldi oftast hjá sínu frændfólki, er tími gafst til frá daglegu amstri, þá kvaddi ég hann sjúkan, en í barnslegu eðli mínu hélt ég, að við myndum hittast aftur, en svo varð ekki, og mun því minningin lifa með mér um ókomin ár. Afi minn var mér svo mikils virði frá því fyrst er ég kom fárra daga gamall inn á heimili þeirra ömmu, að ég átti þar mitt annað heimili, og þar var hann alltaf tilbúinn, hvernig sem á stóð, til að hugsa um mig og hugga og margar voru þær næturnar sem hann gekk úr sínu rúmi fyrir „elsku vininn sinn“ og þess mun ég minnast núna á okkar kveðjustund. Einnig þegar við fengum okkur bíltúr niður að höfn til þess að athuga skipin hans og skoða mannlífið sem hann fræddi mig um. Systur mínar, Hanna Sigríður og Inga Hrönn, eiga líka sínar góðu minningu um afa þótt ungar séu, og við í sameiningu munum geyma hana um alla framtíð. Öll munum við minnast hans, einnig mamma og pabbi, því afi var okkur svo mikil stoð og stytta. Nú kveð ég afa minn og bið almáttugan guð að leiða hann hinn ljúfa veg og taka í sína arma. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Aska afa míns verður jarðsett í gröf móður hans í Prestbakka- kirkjugarði á Síðu. Ingimar Bragi. + Eiginkona mín og móðir okkar JÓHANNA EINARSDÓTTIR, Nóatúni 18, veröur jarösett frá Fossvogskirkju már.udaginn 10. júlí kl. 1.30. Blóm og kransar afbeöin, en þeir sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á Hjartavernd. Pétur Ámundason og börn. t Eiginmaður minn, GUDMUNDUR ÁSGEIRSSON, Heiðargerði 29, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginnll. júlí kl. 13.30. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Áslaug Ingimundardóttir. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, JONAS ÞORVALDSSON fyrrv. skólastjóri í Ólafsvík Framnesvegi 27, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 10. júlí kl. 13.30. Ingunn Hjördís Jónasdóttir Jónas Sch. Arnfinnsson Valgerður Anna Jónasdóttir Elias Hergeirsson Þorvaldur Jónasson Margrét H. Ármannsdóttir Ragnheiður Jónasdóttir Gunnar Ólafsson og barnabörn stæða aðferð notar hann við hlaupareikninga og er hér auðvit- að í báðum tilfellum um vísvitandi falsanir að ræða. Halldór segir það haugalygi bankaráðsins, sem fram er tekið í yfirlýsingu sem birtist í Morgun- blaðinu 9. febrúar 1977 að „Ólafur Finsen var útgefandi að einum víxli Guðbjarts, sem féll á Ólaf sem ábyrgðarmann.“ Þ.e.a.s. sem Ólafur varð að greiða. Það er sama hvað Ólafur staðfestir þetta oft í blöðum, Halldór segir það samt „haugalygi". Auðvitað var margbúið að fram- lengja þennan víxil og Ólafur skrifað uppá í hvert sinn. Til þess að sýna hvernig þetta gekk fyrir sig, skal hér birt tafla yfir framlengingar á umræddum víxli á árinu 1964. Kaupdagur Upphæð 31.12.63 1.465.000 25.01.64 1.340.000 20.02.64 1.255.000 02.04.64 1.151.000 30.05.64 1.134.000 27.06.64 999.000 25.07.64 976.000 31.08.64 923.700 09.11.64 875.000 Af þessu yfirliti sést, að Guð- bjartur greiðir til bankans á árinu kr. 590.000 til lækkunar víxlinum, en samkvæmt reikningsaðferð Halldórs hefði bankinn átt að lána honum kr. 8.653.700. Af þessu má einnig sjá að víxillinn er aðeins einu sinni framlengdur á réttum tíma og því sennilega afsagður 7 sinnum. Þetta fékkst þó ekki staðfest hjá fógetaembættinu, þar sem ekki tókst að fá aðgang að afsagnargerðum frá þessum tíma. 2. Halldór segir í umræddri grein að bankaráð Samvinnubank- ans hafi ranglega haldið því fram, að Guðbjartur hafi aðeins átt tvo reikninga í bankanum, nr. 313 og 242, en til viðbótar hafi hann átt tvo felureikninga nr. 3131 og 2429. Hér má segja að um afsakanlegan misskilning sé að ræða hjá Hall- dóri. Haustið 1967 hóf Samvinnu- Gjaiddagi Grciðsludg. 20.01.64 25.01.64 20.02.64 20.02.64 20.03.64 02.04.64 20.05.64 30.05.64 20.06.64 27.06.64 20.07.64 25.07.64 20.08.64 21.08.64 20.10.64 09.11.64 10.01.65 27.01.65 bankinn tölvunotkun við bókun hlaupareikninga. Urðu þá öll hlaupareikningsnúmer fjögurra stafa tölur. Var þá tölunum 1 og 9 bætt aftan við númer Guðbjarts, en eftir sem áður hafði hann aðeins tvo reikninga. Þetta er sagan um felureikningana. 3. í Dagblaðinu 26/6 1978 sýnir Halldór kvittun þar sem Einar Agústsson hefur tekið við skulda- bréfum af Guðbjarti. Það er rétt kvittun Einars ber það ekki með sér að Einar hafi tekið við þessum skuldabréfum fyrir hönd Samvinnubankans en hins vegar er það staðreynd að þannig var það í raun og veru. Skuldabréf v/Svans Halldórssonar keypti Samvinnubankinn til greiðslu á víxilskyldum Svans. Skuldabréf útgefið af Garðari Sigmundssyni var tekið til trygg- ingar skuld á hlaupareikningi 3131 (áður 313) og afborgarnir af því voru lagðar inn á þann reikning. 4. Nokkur bið hefaur orðið á því að hægt væri að senda þessa athugasemd vegna fjarveru bankaráðsmanna. Bankaráðið ætl- ar sér ekki að standa í frekari blaðaskrifum um þetta mál. Bankaráð Samvinnubankans. Svona lítur það út, nýja veiðihúsið á efsta svæðinu í Stóru-Laxá. (Ljósm. Sig. Sigm.) Syðra-Langholti: Nýtt veiðihús í Hreppunum Nýlega var tekið í notkun nýtt og myndarlcgt veiðihús fyrir efsta svæðið í Stóru Laxá í Hreppum, en þar er veitt á fimm stangir. Húsið, sem bændurnir byggðu sjálfir, hefur hlotið nafn- ið Stöðulfoss og stendur það skammt frá bænum Laxárdal. Það er um 80 fermetrar að flatarmáli, byggt úr timbri og stendur á súlum. í því eru fimm rúmgóð herhergi. eldhús, geymsla og bað. Það var Þórður Jasonarson, byggingarmeistari í Rcykjavík, sem húsið hannaði og Guðmundur Jónsson Birnustöð- um á Skeiðum var byggingar- meistari. Kostnaður við byggingu húsins er um 6 — 7 milljónir króna. Sem fyrr segir, er hús þetta fyrir efsta svæðið í ánni, en fyrir voru við ána tvö veiðihús, annað við Hlíð fyrir þriðja svæði og hitt hjá Hólakoti fyrir fyrsta og annað svæðið. Veiðin í Stóru Laxá hefur verið geysilega góð það sem af er og voru í gær komnir um 200 laxar á land, en til gamans má geta þess, að í fyrrasumar veiddust 266 fiskar allt fram á haustið. Laxá á einn stærsta laxastofn landsins og er meðalþunginn til þessa í kring um 10—11 pund. Fyrst verið er að tala um góða veiði, er rétt að geta þess að næstum alls staðar er nú talað um að bæði fiskigengd og veiði sé mun meiri heldur en á sama tíma í fyrra og má nefna sem dæmi, að á hádegi í gær voru 330 laxar komnir á land úr Grímsá í Borgarfirði, en á sama tíma í fyrra voru þeir aðeins 165. Sig. Sigm. - Argentínustjóm Framhald af bls. 34. hafi einhver áform á prjónunum við suðurenda meginlandsins. Af þessum sökum er e.t.v. ekki að furða að Chilemönnum hafi verið ljúft að verða vitni að hrörnandi samskiptum Brasilíu og Argentinu varðandi hagnýt- ingu vatnasvæða á ánni Paraná. Bæði löndin hafa gert áætlun í þessu efni, sem stangast á hvor við aðra. Erlend samtök hafa ýtt undir tilraunir Argentínustjórnar til að leggja rækt við þjóðernis- hyggju í landinu og má á meðal þeirra nefna „Amnesty International" sem hefur gert málstað pólitískra fanga í A-rgentínu að sínum, en fangar þessir nema trúlega nokkrum þúsundum. Allur þorri Argen- tínumanna hefur á tilfinning- unni að þjóðin hafi sætt ill- kvittnum slúðurofsóknum þar sem forkólfar mannréttindabar- áttu hafa ekki greint nægjan- lega á milli argentínskra stjórn- valda og þjóðarinnar í heild. Ekki óvænt sjón í Argentínu. Hermaður vopnaður vélbyssu rekur afsettan ráðherra á undan sér eftir tiltektir í Buenos Aires. Senriilega myndi Argentínu- stjórn fara með stórsigur af hólmi ef kæmi til þjóðar- atkvæðagreiðslu um mannrétt- indastefnu. Hinu verður ekki á móti mælt að hún hefur staðið höllum fæti víða í landinu og má ætla að flestir Argentínumanna kysu að hafa aðra foringja við stjórnvölinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.