Morgunblaðið - 06.08.1978, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.08.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. ÁGÚST 1978 27 eða að dvalið sé milli ferða og farnar gönguferðir út frá þeim. Húsverði er nauðsynlegt að hafa í stóru húsunum, bæði vegna hús- anna sjálfra og umhverfisins. Þeir vinna mjög gott starf. Sumir eru að hluta hjá Náttúruverndarráði, svo sem í Landmannalaugum og á Hveravöllum. — Okkar stærstu hópar sækja að jafnaði á þá staði sem sæluhús- in eru á. Til dæmis voru um hverja helgi í júlímánuði 130—140 manns í Þórsmörk og 40—50 manns um hverja helgi í Landmannalaugum,' en þá er líka farið í Eldgjá. — Vandamál? Ég veit ekki hvort þetta er vandamál. Þórs- mörkin þolir mikinn fjölda manna án þess að á sjái, ef vel er gengið um. Þar er svo skýlt og gróðurinn svo sterkur, og þar er góð hrein- lætisaðstaða. Auðvitað verður að ganga vel um. Stðirnir, sem hærra standa, svo sem Landmannalaugar og Hveravellir, þola ekki eins mikinn ágang. • Fjallahópur — Við höfum einnig verið að reyna að fara á aðra staði en þá, sem orðnir eru fastur liður. Úm hverja helgi er boðið upp á einhverja slíka. Yfirleitt hefur reynzt erfitt að fá fólk til að fara annað en venjan er. En í sumar hefur okkur tekizt að fá í hverja auglýsta ferð, og það er alveg einstakt. Nú um síðustu helgi var t.d. farið í Þjófadali og gengið á Hrútfell. Helgina áður var gengið á Fimmvörðuháls, farið hefur verið að Hagavatni og nú um verzlunarmannahelgina er ætlun- in að ganga á Öræfajökul frá Sandfelli og þegar komnir 15—20 þátttakendur viku áður, svo búast má við góðri þátttöku. Það er kominn þarna kjarni, sem við köllum fjallahópinn, og sækir mjög þær ferðir sem bjóða upp á fjallgöngur. — Til slíkra ferða þarf góðan útbúnað, en fólk sem vill ferðast er yfirleitt búið að koma sér upp einn besti útsýnisstaður í Skaga- firði. • í Grænlandi með tjöld — Hvað við erum með á prjón- unum? Við höfum allt ísland í huga og sömuleiðis nágrannalönd- in. Þótt ísland sé gott, þá eru fleiri lönd það líka. Náttúran er söm við sig. Utanlands er ferðast svipað og innanlands. Miðað er við að stanza og líta í kring um sig. Mér mundi sjálfum ekki henta að fara ár eftir ár á sólarströnd, búa í sama herberginu, sitja á sömu börunum og liggja á sömu ströndinni. Það er of einhæft. Og margir fleiri eru sama sinnis. — 'I sumar höfum við farið til Grænlands og Færeyja og höfum það þá eins og hér heima, búum í tjöldum og göngum mikið. Höfum þegar farið eina vikuferð til Grænlands, förum aðra ferð í vikunni en þá þriðju í ágúst tmánuði. Tjaldbúðirnar fær- um við til, flytjum okkur eftir því sem tilefni gefst til og um semst við grænlenzka aðila. Ákveðum þetta ekki fyrirfram, umfram það að flogið er til Eiríksfjarðar. Við flutninga milli staða eru notaðir bátar. Seinni ferðina höfum við skipulagt vegna Flugleiða, og þá gefst fólki kostur á að vera í hóteli. • Að taka allt sorp með heim Einar var að því spurður hvort margir útlendingar kæmu í ferðir Útivistar á íslandi. — " — Sárafáir einstaklingar, svar- aði hann. En við erum með franska Jiópa, sem eru alveg út af fyrir sig. Þá skipuleggjum við ferðirnar fyrir þá og höfum íslenzka fararstjóra. Ferðirnar eru mjög góðum útbúnaði, bæði gönguskóm, hlífðarfatnaði, regn- fatnaði, góðum bakpoka, og jafn- vel broddum og ísöxum til jökla- ferða. Það er reglulega gaman að sjá þegar fólk er að fara af stað, hve vel það er útbúið. Þetta er ekkert sambærilegt við það sem áður var, enda fékkst þá ekki útbúnaður af þessu tagi. Auk þess eru þeir, sem stunda ferðalög að ráði, alltaf í ullarnærfötum, sem er í rauninni skilyrði fyrir því að manni líði alltaf vel á ferðalagi. — Þrátt fyrir aukna bílaeign er stór hópur af fólki, sem vill ferðast með leiðsögumanni, sem getur upplýst um sögur og örnefni, svo fólk fái meira út úr ferðinni. Og leiðsögumenn eru líka margir orðnir líflegri og segja meira frá en áður var siður. Miðað er að því að hafa fjölbreyttar ferðir, svo allir finni eitthvað við sitt hæfi. Þannig er til dæmis efnt til ferða með sérfróðum mönnum, í ýmsum greinum, sem ná til misstórra hópa. Ferðir á söguslóðir eru vinsælar, til dæmis á söguslóðir Njálu, og sögustaði í Borgarfirði og Dalasýslu. Jarðfræðilegar ferð- ir eiga erfiðara uppdráttar, en áhugi er vaxandi. Og sama er að segja um fuglaskoðunarferðir, jurtaferðir og grasaferðir. Það síðasttalda er nýjung og verður efnt til grasaferðar í ágúst. — Ferðafélagið er vaxandi fé- lag, sagði Þórunn að lokum. Félagatala var um sl. áramót um 7500—8000 og hefur orðið töluverð aukning síðan, svo hún er líklega nú nær 80000. Og það ánægjulega er að félagið er að endurnýjast með ungu fólki. Áður en Þórunn kvaddi, var aðeins drepið á ferðafélagsbæk- urnar, sem orðnar eru 51 talsins, og eru nú lljósprentaðar um leið og þær seljast upp. Fjölmargir koma og fá sér bók yfir það svæði, sem þeir ætla að ferðast á, áður en þeir leggja upp í ferð. Enda er þar að finna einhverja beztu landlýsingu, sem fáanleg er, og spannar yfir allt landið. alveg eins og fyrir Islendinga, nema hvað þær eru lengri. Það eru 2ja—3ja vikna ferðir, sem er of langt fyrir íslendinga. — Verðlag í landinu er hátt, eins og við þekkjum, sagði Einar, þegar talið barst að því. Öll þjónusta er dýr. Ef maður ekur á sínum eigin vegum um landið og villl kaupa sér mat, þá er ekkert að fá annað en veizlumat í hvert mál. En margir vilja bara einfaldan góðan mat, sem er ódýrari, svo sem soðinn fisk og kartöflur, þar sem nýjan fisk er að fá, sem er víða. — Þegar borið er saman verð- lagið hér og t.d. á Spáni, þá gleymist gjarnan að reikna með öllum aukagjaldeyrinum, sem fólk hefur með sér og eyðir. Hér á landi er ekki þjónusta eins og á dýrustu hótelum erlendis, en þar eru nú uppi kaupkröfur líka. Starfsfólk unir því ekki lengur að vera ódýrara vinnuafl en þekkist ann- ars staðar. Svo þetta breytist vafalaust. Þá færist ferðamanna- straumurinn til. Hvað ísland snertir, þá hefur það einn erfiðan hjalla sem ferðamannaland. Það er svo dýrt að komast hingað. Að lokum ræðum við um um- gengni á þeim stöðum, sem farið er um, þegar ferðazt er um ísland. Einar leggur áherzlu á að fólk taki allt sitt sorp með sér, flytji það þangað sem það getur losnað við það á eðlilegan hátt. Engin lausn er að setja það í yfirfullar tunnur, stinga undir steina eða grafa það, því tófan grefur það upp. Hún bjargar sér, eins og eðli hennar segir til um, og nær í matinn. Umgengni skiptir höfuðmáli. Menn eiga ekki að skilja við neinn stað í verra ástandi, en þeir vilja koma að honum sjálfir. Gamlaárskvöld, grímuball og sautjándi júní allt í senn Það veröur seint sagt um okkur íslendinga að við fylgj- umst ekki með æðaslætti mannlífsins úti í heimi. Þann- ig voru ekki fyrr komnar hingað uppeftir fréttir af skítugum ungmennum í út- löndum sem tuggðu sikkris- nælur, höfðu grænmálað hár og kölluðust „pönkarar", að mikils metnir tónlistarfröm- uðir hófu að leika hljómlist í „pönk-stíl,“ sem er nokkurs konar taktfastur hávaði með ofbeldisívafi. í það minnsta þóttust hinir mætu poppfræð- ingar dagblaðanna greina eitt- hvað því um líkt á breiðskífu Megasar og Spilverksins hér um árið. Haldin voru sérdeilis aðlaðandi „pönkkvöld" í þess- um bleiku öldurhúsum okkar og sínu íslenska hámarki náði pönk-bylgjan þegar þau dá- samlegu undur gerðust að margfaldir snillingar í pönki, pönksveitin Stranglers, komu hingað og heiðruði fósturjörð- ina með heilum hljómleikum í Laugardalshöll. Þar var mikið um dýrðir. Gagnfræðaskólakrakkarnir vöknuðu allt í einu upp við það að það var komið gamlaárs- kvöld, grímuball og sautjándi júní allt í senn. Fjölmargar húsmæður þessa lands máttu sjá á eftir snyrtiáhöldum sínum í helgimyndir pönksins á andlitum afkvæma sinna, sem síðan skrýddust garð- vinnufatnaði afa síns -og ömmu og fóru að sjá stórpönk- arana spila. Þeir snillingarnir frömdu slíkan hávaða að jafnvel þrautreyndir hávaðamengarar úr öldurhúsabransanum tóku fyrir eyrun, en fögnuður ungl-, inganna var mikill, enda ekki á hverjum degi sem gamlaárs- kvöld ber upp á sautjánda júní og hægt að bregða sér í gervi heimsfrægra hávaðagarpa með því að klessa á sig kinnalit og setja upp horn- spangarsólgleraugu. En allt tekur enda um síðir. Hinir miklu pönk-spámenn voru allt í einu búnir að spila gítargripin þrjú í öllum mögu- legum samsetningum og allir fóru heim, og daginn eftir voru allir krakkarnir orðnir að þessu sígilda vandamáli, ís- lenskum unglingum, nema hvað einn og einn var með hálfa sikkrisnælu í vasanum. Síðan hefur enginn talað neitt að ráði um pönk hér a skerinu, lífið gengur sinn vanagang niður verðbólgu- skriðuna og stjórnmálafor- ingjar keppast við að ryðja brautina með útspekúleruð fjölmiðlabros á vör. En viti menn. Rétt í þann mund er þær fregnir berast utan úr heimi að pönkið sé dáið, en fé þess og frændur njótist af miklum krafti á nokkrum umboðsskrifstofum í Englandi og víðar, kemur hingað upp á landið hálf-ís- lenskt pönkfyrirbæri frá Þýskalandi og hyggst fremja hér landsmönnum hávaða, til yndis og ánægju, næstu þrjár vikur. Pönkið er sem sagt búið alls staðar nema hér. Þessi hljóm- list sem stundum var nefnd nýbylgja, var einungis sápu- kúla sem hljómplötuauðhring- arnir blésu upp svo hægt væri að koma nógu miklu af pen- ingum inn í hana og það gekk afbragðsvel, enda gleypa menn óspart vð sápukúlum núna á létttónlistarsviðinu, þar sem allir eru að bíða eftir stór- þvotti, á við Bítlana á sínum tíma. Það er hins vegar ánægjulegt að hin margumtal- aða pönk-bylgja reis og hneig hérlendis á því sem næst einum sólarhring. Tónlst pönkaranna, sem umboðsaðil- ar hálfíslenska fyrirbærisins kalla tungumál heillar kyn- slóðar, átti bara hreint ekkert erindi hingað, eftir allt saman. En eins og dæmin sanna gæti það vissulega átt sér stað, að eftir nokkur ár þegar venju- legir menn muna ekki lengur hvað pönk var, verði ennþá einn pönkari eftir á sveimi, með næluna góðu í kinninni, græna hárið og hornspangar- sólgleraugun. Ef svo væri sýnist mér fullvíst, að sá pönkari væri hér á íslandi. Einn og ýfirgefinn, eins og geirfuglinn forðum. —SIB Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á 85 ára afmaeli mínu 18. júlí sl. og geröu mér daginn ógleyman- legan. Guö blessi ykkur öll. Þorgerdur Siauröardóttir, Rauöageröi 24. Ég þakka öllum vinum og vandamönnum þann hlýhug og vináttu, sem þeir sýndu mér á áttræöisafmæli mínu 1. ágúst s.l. Ottó Gudjónsson, Norðurbrún 1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.