Morgunblaðið - 06.08.1978, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. ÁGÚST 1978
35
Hreiðrið í mónum
Ilreiðrið í mónum
eftir Árna Hermann
Björgvinsson, 5 ára,
Garði, Þistilfirði.
Það komu tveir
hrossagaukar fljúgandi til
Islands, og bjuggu sér
hreiður úti í móa. Annar
verpti fjórum eggjum í
hreiðrið og lá á þeim í 21
dag. Þá fóru að heyrast
brak og brestir í eggjun-
um.
Fuglinn reis upp af
eggjunum og leit niður í
hreiðrið. Þá sá hann gogg,
sem kominn var út úr eggi.
Daginn eftir voru komnir
fjórir ungar. En eftir
nokkra daga fann kjói
hreiðrið. Hann ætlaði að
éta ungana. Þá kom strák-
ur með prik í hendinni og
barði kjóann, svo að hann
datt dauður niður. Strák-
urinn tók kjóann og gróf
hann. Síðan fór hann heim
og sagði mömmu sinni og
pabba frá þessu.
Árni Hermann.
Framhalds
saga XIV
Melkers og réttir Malín
hann.
„Sjáðu,“ segir hún dálítið
flóttaleg. „Skórinn hennar
er ekki týndur. Þú getur
geymt hann handa næsta
barninu þínu.“
En nú virðist Malín verða
reið og hún segir:
„Þið eruð laglegar barn-
fóstrur! Ég má varla líta
undan, þá látið þið barnið
mitt hugsa um sig sjálft. Til
allrar hamingju er ég svo
glöð, af því að Pétur er á
batavegi og kemur heim
fljótlega, annars heði ég
gefið ykkur öllum vel utan
undir."
„Þú segist vera glöð, en
...“ segir Melker undrandi,
„en hvað um Skellu?“
„Skella er hérna í skip-
inu,“ Malín. Síðan snýr hún
sér við og kallar: „Palli,
komdu nú! Og hafðu Skellu
með þér!“
Endurfundirnir verða
ólýsanlegir, og Melker fær
vitneskju um, að Palli hefur
synt til Skellu á flekanum
og gætt hennar.
„Þú ert duglegur drengur,
Palli,“ segir Melker og lyftir
Palla upp í fang sér. Hann
faðmar að sér Palla og
yrðlinginn, báða í einu.
Vestermann kemur til
þeirra líka og virðir yrðling-
inn fyrir sér og klappar
honum á kollinn. „En hvað
hann er fallegur," segir
hann. Og síðan lofar hann
Palla að hann skuli aldrei
skjóta yrðlingana. Og Palli
segir honum í þakklætis-
skyni, hvar riffillinn hans
er falinn.
Skella dáist einnig að
yrðlinginum, en andartaki
síðar er hún horfin aftur.
Melker er að gefast upp á
henni. Hvar er tröllabarnið
nú? Það er útilokað að
hemja það.
Skemmtilegt spil
Sendandii Birna M. Þorbjörnsdóttir, 7 ára, Sporði,
V.-Hún.
Keppendur geta verið eins margir og maður vill. Til þess að spila þurfið þið
nokkrar tölur og einn tening. Tröllin Físsi og Ríssi ætla í ferðalag um landið og
lenda í mörgum ævintýrum.
1. Tröllin ætla í feðalag, farðu á reit nr. 4.
5. Físsi og Ríssi festust í girðingu. Bíddu eina umferð.
15. Físsi og Ríssi kom að læk. Fáðu tölurnar 1, 3 eða 5 til að halda
áfram.
25. Físsi og Ríssi koma að húsi og skoða það í krók og kring. Bíddu
eina umferð.
40. Físsi og Ríssi mega ekki vera að því að skoða þetta hús. Farðu á
reit nr. 46.
47. Ríssi týndi vini sínum. Farðu á reit nr. 41.
50. Físsi og Ríssi fara að borða. Bíddu tvær umferðir.
53. Þú hefur unnið.
Ég ætla að senda ykkur þetta spil sem ég hef verið að búa til, ef einhver hefði gaman
af, að spila það.
Með kveðju,