Morgunblaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978 Hingað til hefur skatta- kerfid ordið flóknara við hveria „einföldun” Rœttvið GestStéinþórsson, hinn nýja skattstjóra íReykjavík ÞEIR ERU víst fáir sem ekki verður hugsað til skattstjórans í sínu umdæmi um þetta leyti árs. Það er ugglaust misjafnt hvernig þær hugsanir eru, en víst er að þær beinast fyrst og fremst að þessu ákveðna embætti, en ekki að þeim manni, er gegnir því. Það eru sjálfsagt fremur fáir sem vita hvernig skattstjórinn lítur út, þótt einhverjir geri sér ef til vill einhverja mynd af honum í huga sér. f byrjun þessa mánaðar tók ungur maður við starfi skattstjóra í Reykjavík, þegar Halldór Sigfússon lét af störfum. Blaðamaður Mbl. leit inn á skrifstofu hans nú í vikulokin og spjallaði við hann um nýja starfið, afstöðu almennings til þess og fleira. Gostur Steinþórsson Hinn nýi skattstjóri Reykvík- inga heitir Gestur Steinþórsson og hann var önnum kafinn við að rýna í ýmis plögg og pappíra þegar blm. bar að garði. — „Það er nóg að gera þessa dagana hjá okkur, kærufrestur var að renna út og þeir eru margir sem kæra. Þeir eru engu að síður merkilega fáir að mínum dómi, miðað við það að skattar hafa yfirleitt hækkað um ein 70% frá síðasta ári,“ sagði Gestur og ýtti plöggunum dálítið til hliðar. Blm. spurði hvort hann hefði lengi unnið á skattstofunni. „Eftir að ég lauk lögfræðinámi árið 1974 vann ég við lögfræðistörf hjá Sjóvá þar til ég byrjaði hér sem skrifstofustjóri og jafnframt varaskattstjóri árið 1976. Við starfi skattstjóra tók ég svo núna um mánaðamótin.“ „Ég kann ágætlega við þetta starf. Það er líflegt og í því felast mikil samskipti við fólk. Það halda margir að þetta sé afskaplega leiðinlegt og dauflegt starf, en staðreyndin er allt önnur, — það er jú varla hægt að komast nær fólki en í gegnum budduna. Afstaða fólks til skattyfirvalda virðist annars hafa breyst nokkuð á síðustu árum. Það hefur áttað sig á að við hér á skattstofunni erum aðeins að framfylgja ákveðn- um lögum, en ekki að leggja gjöld á fólk eftir okkar eigin höfði.“ „Annars gætir alltaf töluverðs misskilnings hjá fólki í sambandi við skattana. Það er alltaf að bera saman sína skatta og annarra og hugsar þá kannski sem svo: — Hann Jón á hæðinni fyrir ofan keypti íbúðina um leið og ég og er meira að segja jafn gamall, en samt borga ég helmingi hærri skatta, hvernig stendur á þessu? — Það áttar sig hins vegar ekki á því að Jón á hæðinni fyrir ofan er kannski fjölskyldumaður en við- komandi einhleypur. Það eru alls konar svona atriði sem fólki sést yfir. Það er nú ekki nema von, því að skattalögin eru svo ógurlega flókin. Ýmis smáatriði geta ger- breytt álagningunni." „Það er vissulega skiljanlegt að fólki finnist það skrýtið, en staðreyndin er sú að menn sem berast mikið á í fjármálum, taka mikil lán og hafa mikil fjárráð, koma tiltölulega best út, vegna þess að skattalögin sem nú gilda, eru einfaldlega ekki miðuð við núverandi verðbólgu. Nýju skatta- lögin, sem koma til framkvæmda árið 1980 eru tilraun til leiðrétt- ingar á þessu misrétti sem felst í þessu. Það er meira að segja ekki nóg með að fólk græði verðbólgu- krónurnar sjálfar, heldur eignast það einnig stöðugt meiri eignir, sem aftur gera því auðveldara fyrir um lánafyrirgreiðslu.“ „Ég held að það hafi verið erfiðara að vera skattstjóri hér áður, enda þótt maður lendi í ýmsu núna. Það er nefnilega einhver Pétur Sigurðsson, fyrrv. alþingismaður: Er tímabært að færa út íslenzku landhelgina? Það eru ótrúlega margir sem gera ekki greinarmun á land- helgi okkar og fiskveiðiland- helgi (fiskveiðilögsögu). Landhelgin, sem ekki er ákveðin í ísl. lögum nema sem tollsvæði í lögum um tollheimtu og tolleftirlit, er skv. ákvæðum 6. gr. þeirra laga það sem hér segir: „Tollsvæði ríkisins er landið ásamt eyjum og útskerjum, sem því tilheyra, og hafið 4 sjómílur frá stórstraums- fjöruborði, talið frá ystu skerjum og hólmum, sem upp úr sjó koma. Firðir eg víkur teljast til tollsvæðisins 4 sjómílur til hafs frá línu, sem dregin er þar sem 12 mílur verða milli nesja, næst fjaðar- mynni —.“ Fiskveiðilandhelgin er hins- vegar ákveðin með lögum á þann veg að hún er 200 sjómílum utan við grunnlínu sem dregin er milli 38 lögboðinna staða, svo og kringum þrjá tiltekna staði til viðbótar,200 mílur frá þeim en það eru Kolbeinsey, Hvalbakur og Grímsey. Hver sjómíla reiknast 1852 metrar. í fiskveiðilandhelginni er öll- um erlendum skipum bannaðar allar veiðar, nema með sérstök- um samningum. Islenskum skip- um einnig nema skv. sérstökum ákvæðum laga óg reglna þar um. Um fiskveiðilandhelgina, utan hins lögboðna tollsvæðis (land- helginnar) er öllum skipum frjáls sigling með þeim undan- tekningum sem eru gerðar um búlkun og frágang veiðarfæra fiskiskipa. Una tollsvæðið (landhelgina eiginlegu) gilda aðrar og strang- ari reglur, en í 11. gr. laga um tollheimtu og tolleftirlit segir svo m.a.: „Öll för, sem eru á tollsvæði ríkisins, eru háð eftirliti tollgæslunnar. Tollgæslu- mönnum er heimilt að fram- kvæma leit og rannsókn alls- staðar í skipum og flugförum, sem eru á tollsvæði ríkisins. Einnig er þeim heimilt að gera leit í öllum farartækjum, sem eru á eða koma frá fermingar- og affermingar- stöðum skipa og flugfara, svo og öðrum þeim stöðum þar sem ótollafgreiddar vörur eru eða hafa verið geymdar. Toll- gæslumönnum er ennfremur heimilt að leita í öllum farartækjum, sem þeir hafa grun um að flytji ólöglega innfluttar vörur. Stjórnendum farartækja er skylt að stöðva þau þegar tollgæslumaður gefur um það merki — Á þessari lagagrein má sjá að réttur ísl. tollyfirvalda er mjög mikill yfir tollsvæði ríkisins. Þess má einnig geta að sam- kvæmt lögum má fela áhöfnum skipa og flugvéla . landhelgis- gæslunnar að vinna við tolleftir- lit. Ég hefi nokkrum sinnum vakið athygli á því að fyrr en síðar þurfti Alþingi að setja lög um landhelgi íslands, lög sem kvæðu m.a. á um að tollsvæði og réttur íslands til að takmarka siglingar erlendra fara næði yfir hafsvæði sem afmarkaðist a.m.k. af línu sem dregin væri 12 sjómílur frá áðurnefndri grunn- línu. Þessu hreyfði ég meðal ann- ars í þingflokki Sjálfstæðis- flokksins, innan stjórna hags- munasamtaka og í persónuleg- um viðtölum við ýmsa sem teljast til ráðamanna þessara mála um mótun og hraða slíkra aðgerða. Til þess hefur sú skoðun þó i verið ríkjandi að við ættum að flýta okkur hægt í þessu máli, láta það bíða þar til full niðurstaða væri fengin á haf- réttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í málum sem varða okkar aðalhagsmunamál. Á þá skoðun hefi ég fallist. Pétur Sigurðsson. Um er að ræða viðkvæmt mál á alþjóðavettvangi, mál sem gengur þvert á skoðanir stór- þjóða sem hafa yfir sjóher að ráða, en þær hafa til þessa verið aðal talsmenn frjálsra siglinga, helst allt að landsteinum sjálf- stæðra ríkja, þótt þær hafi í sumum tilfellum aðrar skoðanir varðandi eigin landhelgi, sbr. Sovétríkin sem hafa 12 mílur. Á þessu hefur þó orðið mikil breyting. Er það helst að þakka þeirri afstöðubreytingu sem orðið hefur hjá fulltrúum Frakka á hafréttarráðstefn'unni. Þessa skoðanabreytingu þeirra má rekja til síðasta stórslyss í sögu olíuflutninganna sem átti sér stað við Frakklandsströnd Ermarsunds. En það munu Kanandamenn sem hafa til þessa haft (með stuðningi Is- lendinga) forystu um það á ráðstefnunni að strandríki fái rétt til að setja reglur um siglingar skipa um fiskveiði- landhelgi sína. Ein megin ástæða þessa áhuga míns á útfærslu land- helginnar er ótti minn við þær geigvænlegu afleiðingar sem hlytust af, fyrir lífríkið við strendur Islands, ef olíuskip færist og farmur þess dreifðist um grunnmið og fjörur. Að vísu er ein aðalsiglingaleiðin Ameríka — Evrópa djúpt suður af íslandi, en ákvörðunarstaðir éru dreifðir allt til Grænlands, N-Noregs og Rússlands. Auk þess getur verið um siglinga- skekkjur og bilanir að ræða sem auka þessa hættu að mun. Til okkar sjálfra er flutt mikið magn olíu og þeir sem til þekkja vita að sigling ókunn- ugra, á stórum djúpsigldum skipum til okkar oliuhafna í erfiðum vetrarveðrum er enginn barnaleikur og margar hættur að varast. Réttur okkar íslendinga til að ráða um slíkar og aðrar hættu- legar siglingar á lífshagsmuna- svæðum okkar á að vera ótví- ræður löngu áður en far með hættulegan farm nálgast strendur okkar. Að sjálfsögðu geta skip og loftför hernaðarþjóða verið búin þeim vopnum sem valdið gætu gífurlegri eyðingu ef slys bæri að höndum. Fyrir stuttu birtist frétt um ferðir erlends herskips langt inni á Húnaflóa. í sumar var hér á ferð erlent skip sem reyndi að trufla veiðar íslenskra skipa. í slíkum tilfellum er sjálfsagt að eiga skilyrðislausan yfirráða- rétt og stjórnunarrétt siglinga yfir a.m.k. hluta fiskveiðiland- helginnar. Að sjálfsögðu eru fleiri en ég sem leitt hafa hugann að þessu máli og máske tjáð sig opinber- lega þar um. Ég þykist t.d. vita að okkar ágætu sendinefndar- menn á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna hafi rætt þetta mál í sínum hópi og það ekki síst eftir afstöðubreytingu Frakka. Væri fróðlegt að heyra skoðanir þeirra þar um, svo og um rök gegn slíkri framkvæmd sem ég geri mér fulla grein fyrir að eru fyrir hendi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.