Morgunblaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfuiltrúi Fréttastjóri Auglýsírigastjóri Ritstjórn og afgreíösla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guómundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aóalstræti 6, sími 10100. Aóalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2000.00 kr. ð mánuöi innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakiö. Fúaspýtumar og bjálkinn Þaö er ekki hægt aö ætlast til þess, aö fólk geti áttaö sig á því moldviðri, sem þyrlaö er upp í flokksmálgögnunum, né raunar öörum blööum, þar sem ábyrgðarleysiö ríöur einatt ekki viö einteyming — og er þá átt viö margvísleg skrif í síðdegisblööunum. í flokksmálgögnunum stangast hvað á annars horn, jafnvel í sama tölublaöinu. Venjulegir lesendur veröa ruglaöir, þegar þeir lesa mótsagnakenndar fullyröingar þessara blaöa, en verstur er þó Þjóöviljinn, þegar hann leggur kollhúfur og veröur í raun og veru gjörsamlega óskiljanlegur í þrjózkufullum mótsögnum sínum. En þær eiga auövitaö ekki rætur aö rekja til neinnar ábyrgðartilfinningar, heldur þvert á móti eru þær sprottnar af því ábyrgðarleysi í stjórnmálum, sem einkennt hefur Alþýöubandalagiö og nú blasir viö öllum landslýö í sambandi viö stjórnarmyndunarviðræöurnar viö Framsóknarflokkinn og Alþýðuflokkinn. Alþýöubandalagiö hefur aö öllum líkindum aldrei oröiö eins gegnsætt og nú á þessum síöustu og verstu tímum og þaö þarf ekki einu sinni pólitísk röntgentæki til aö skoöa hjörtu og nýru þeirra manna, sem þar fara með stjórn, svo augljós sem skollaleikur kommanna er nú, jafnvel heittrúuöum Alþýöubandalagsmönnum. Sunnudaginn 6. ágúst s.l. segir annar ritstjóri blaðsins, fyrsti þingmaöur Alþýöubandalagsins í Reykjavík, m.a.: „Alþýöu- bandalagiö vildi fara í ríkisstjórn til þess aö breyta efnahagskerfinu; þaö þurfti róttæk úrræöi á öllum sviðum, þar dugöi ekki og dugir ekki hálfkákiö. Gömlu íhaldsúrræöin eru dauöadæmd. Þaö þarf ný úrræöi, nýja meöferð vandans. Alþýöubandalagiö haföi þau úrræöi..." En þennan sama dag segir Ólafur Ragnar Grímsson í grein, sem er álíka athyglisverö og þegar rjúpa rembist viö staurinn: „Gagnrýni Alþýðuflokksins á millifærsluleiöina veröur enn fáránlegri þegar höfö er í huga sú staðreynd, aö nú þegar hefur millifærslu veriö beitt í júní, júlí og einnig í ágúst til styrktar frystiiönaöinum. Tillögur Alþýöubanda- lagsins fólu því eingöngu í sér aö framlengja pær aögeröír í 4 mánuöi til viðbótar viö þá þrjá, sem þegar hafa veriö ákveönir (leturbr. Þjóöv.)“. Hin „nýju úrræöi, nýja meðferð vandans" er sem sagt fólgin í „gömlum íhaldsúrræöum", sem talin eru „hálfkák“ í forystugrein Þjóðviljans þennan sama dag — og jafnvel sagt aö séu „dauöadæmd"! Hvernig á nokkur maður aö geta skilið svona málflutning? Er hægt aö taka hann alvarlega? Nei, þaö er þverbrestur í Alþýöubandalaginu og Þjóöviljanum, nýr og hættulegur þverbrestur — og þaö sér í sárin. í forystugrein í Tímanum laugardaginn 5. ágúst sl. er sama uppi á teningnum, en þar eru mótsagnirnar beinlínis hlægilegar. í forystugrein blaösins þennan dag, þar sem reynt er aö gera nýstárlegar tillögur Eyjólfs Konráös Jónssonar í efnahagsmál- um tortryggilegar, enda þótt þær eigi skiliö, aö um þær sé fjallað af einurð, eins og ýmsir hagfræöingar hafa gert, er m.a. fullyrt, aö úr Sjálfstæöisflokknum heyrist ekkert annaö en „innbyrðis skætingur, gagnkvæmar ásakanir. ..“ og þaö er þó munur eöa blíöskaparveörið í blessuöum Framsóknarflokknum! En lítum nánar á máliö. í grein, sem einn af ungu tækifærissinnunum í Framsóknarflokknum skrifar og er ekkert nema „skætingur" í garö Alfreðs Þorsteinssonar og ýmissa annarra framsóknarmanna, er ekki skafiö utan af hlutunum. Þar segir m.a.: „Viö, sem gagnrýnum nú flokksstarfiö, erum umbótasinnarnir í Framsóknarflokknum. Viö höfum alltaf veriö tilbúnir til aö hlusta, en aöeins mætt þögn milli dembulyga og svívirðinga. Viö höfum komiö fram af fullum heilindum, en mætt undirferli. Vö höfum aldrei leynt því markmiöi, sem viö stefnum aö, samt erum viö ásakaðir um makk, en viö munum halda gagnrýni okkar áfram, hvað sem þessu líður. Viö stöndum í dagsbirtunni, en Alfreð í kvöldrökkrinu í smiöju' Kristins Finnbogasonar...“ Svo mörg eru þau orö. Þær eru margar nýju gorkúlurnar í Framsóknarflokknum fullar af hroka og sjálfsmetnaöi, ekki vantar þaö. Maöur, líttu þér nær, mætti segja viö leiðarahöfunda Tímans. Ef dæma ætti innvgði Framsóknar- flokksins af þeirri forhliö, sem viö blasir í Tímanum s.l. laugardag, mætti fullyröa án fyrirvara, aö þar væri mörg fúaspýtan í hlutverki bjálkans. Ef svo heidur fram sem horfir veröa einkunnarorö Framsóknarflokksins innan tíöar: Blindur leiöir blindan. Það eru nú tvær aldir síðan séra Gunnar Pálsson í Hjarð- arholti orti þá merkilegu vísu, sem þannig byrjar: Ef menn vildu Island eins með fara og Holland. held ég varla Ilolland hálfu betra en ísland, og í eru þessi nær ofdirfsku- fullu orð, mælt á neyðaröld: Auðugt land er ísland af ýmsu er vantar Ilolland. En því tekur skáldið Hol- land til samanburðar, að það var í hugum manna frjósam- ast og ríkast allra grann- landa. Og mjög um sama leyti orti Eggert Ólafsson hinn mikla kvæðaflokk sinn, Búnaðarbálk, sem er lofgjörð um kosti íslands, einkum sem landbúnaðarlands, og um leið brýning til landsmanna, að þeir opni augu sín fyrir þessum kostum og ali með sér manndáð til að færa sér þá í nyt. Sannmæli er, að boðun og lögeggjan þessara og þvílíkra vakningarmanna hafi aldrei síðan verið látin niður falla. Þessi trú þeirra á möguleika Brýning um a* vernda kosti < Ávarp forseta Island dr. Kristjáns Eldjt við opnun Landbúnaðarsýningarinnar á landsins hefur alltaf átt sína boðendur og baráttumenn til andófs gegn gömlum og nýj- um kvörtunum undan hörku og fátækt landsins, þeim barlómi sem Eggert kallaði svartagallsraus. Þessi ósam- hljóma tvísöngur á þó sínar eðlilegu skýringar þegar að er gáð. ísland hefur mörgum löndum fremur tvær hliðar, hina góðu og gjöfulu og hina hörðu og naumu. Landið er að vísu auðugt, bæði landið sjálft og hafið kringum það, sem er hluti þess, en í eðli þess býr sú ættarfylgja norð- ursins að halda fast á kostum sínum og láta þá ekki fala nema fyrir atorku og þraut- seigju, æðruleysi og fyrir- hyggju. Alls þessa hefur þurft með til þess að geta lifað sæmilegu lífi í þessu landi og þess þarf enn alls með til að hér verði lifað góðu lífi á nútímavísu. En hver maður hlýtur að sjá, sem sjá vill, að það er hægt ef menntuð þjóð beitir viti og vilja, verkhyggni og vísind- um, til þess að laða fram kosti landsins, skilja eðli þess, rækta allt það góða, sem í því býr, og semja við hart skap þess í stað þess að láta það koma sér í uppnám. Þeir segja, útivistarmenn nútímans, að allt veður sé gott, allt hitastig þægilegt, þetta sé aðeins spurning um að kunna að búa sig, með öllu sem í því hugtaki felst. Þetta mætti vera kjörorð fleiri en útilífsmanna: að kunna að búa sig, eða með öðrum orðum, kunna að nýta kosti landsins til fullnustu og kunna að umbera og umgang- ast það, sem kalla má ókosti þess, þannig að þeir vinni ekki lífinu í landinu grand. Enginn mun ætlast til, að bóndinn hafi gaman af óþurrki eða sjómaðurinn af gæftaleysi og ördeyðu. En svo skynsamlegt ráð þarf að vera gert fyrir jafnsjálfsögðum hlut í lífsbaráttu beggja, að þeir geti haldið sínu jafnað- argeði og staðið nokkurn veginn jafnréttir þegar slíkt ber að höndum. Og er þá komið að þeim þættinum sem ekki er minnstur, fyrirhyggj- unni og hagstjórninni og félagsþroskanum, hjá hverj- um og einum og þjóðfélaginu í heild. Heillavænleg sam- skipti við náttúru landsins, sem vér sækjum lífsbjörg vora til, kemur fyrir lítið, ef vér kunnum ekki fótum vor- um forráð í meðferð þess, sem aflað er. Um þessar mundir er þannig ástatt í þjóðfélagi voru, að mikill óstöðugleiki ríkir í efnahags- og atvinnu- lífi. Áhrif þessa óstöðugleika eru margvísleg og skaðsam- leg og hafa meðal annars bitnað harkalega á íslenskum landbúnaði. Ekki skal spilla hátíðarstund með því að fjölyrða um slíkt, þótt það búi sjálfsagt einhvers staðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.