Morgunblaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978 Fylkir að bjarga sér FYLKIR bætti stöAu sína í botnbar- áttu 2. deildar en Ármann fékk einn skellinn enn og er með ólíkindum hve liðinu hefur gengiö illa, eftir að hafa unnið 4 fyrstu leiki sína. Fylkir sígraði meö eina marki leiksins í gærkvöldi og sigurinn var sann- gjarn, bví að Fylkir var áberandi betri aöilinn í leiknum. Sigurmarkiö skoraði Hilmar Sig- hvatsson á 72. mínútu og var mjeg vel að dví marki staðið, fallegur samleikur Harðar, Baldurs og Hilm- ars endaði með marki. Lokakaflann sóttu Ármenningar af mikilli elju og fengu Þeir Þá tvö góð færi, einu færin sín í leiknum. Þaö var Egill SteinÞórsson sem Þá átti tvö góð skot á markið og var Það fyrra sórlega glæsilegt, Þrumuskot í stöngina. Ögmundur varði vel síöari tilraun Egiis. Egill SteinÞórsson lék nú ( framlínunni og var bezti maöur Ármennínga í leiknum, sívinnandi. Kristinn Pedersen var einnig góöur. Ögmundur, Ómar og Hilmar voru góðir í liði Fylkis, en allir leikmenn liösins börðust vel og á Það einnig við um leikmenn Ármanns. • Fylkir sækir að marki Ármanns, en markvörðurinn grípur vel inn í. (Ljósm. — gg.) „Liðið er þrek- laust og æfinga- sókn í lágmarki" ÞAÐ lið sem komið hefur hvað mest á óvart í 1. deild í sumar og valdið mönnum miklum vonbrigðum cr lið UBK. UBK sýndi stórskemmtilega knattspyrnu í fyrrasumar og áttu flestir von á því að áframhald yrði á framförum liðsins. Svo hefur ekki orðið og nú er allt útlit fyrir að þeir komi til með að leika í 2. deild næsta keppnistímahil. Spjall vikunnar er að þessu sinni við einn leikmanna UBK, Helga Helgason. Við spurðumst fyrir um orsakir þess hve UBK hefur gengið illa, og jafnframt fengum við Helga til að spá um leiki helgarinnar. — Ég tel úr því sem komið er að það sé alveg ljóst að lið okkar fellur niður í aðra deild, sagði Helgi. — Það eru margar ástæður þar að baki. Okkur hefur gengið illa vegna þess að meiðsli hafa hrjáð leikmenn óeðlilega mikið, en það eru e.t.v. aðrar dýpri ástæður, sem ég vil nefna. Og þá fyrst og fremst æfingasókn liðsmanna. Æfingasóknin í sumar hefur að meðaltali verið um 50%, og það sér hver heilvita maður að það dæmi gengur ekki upp, þegar við leikum við lið eins og Val, í A, ÍBV og fleiri lið sem æfa mun betur, jafnvel allt að 100%. Þá hefur það viljað brenna við að leikmenn hafa misst móðinn þegar þeir hafa tapað stöðu sinni í liðinu og gefist upp. Engin barátta verið fyrir hendi að endurheimta stöðu sína í liðinu. Og ekki er von á góðu þegar baráttuviljinn er ekki fyrir hendi. — Eitt er það sem ætti að koma í'ljós, og það er hve þjálfuninni hefur verið ábótavant, þrekæfing- ar hafa engar verið, og liðið er algerlega þreklaust. Þá hafa skot- æfingar verið í lágmarki. Enda komið illilega í ljós í leikjum okkar að við náum varla að skora mörk, og skotharka er engin. — 1. deildin í sumar hefur verið leiðinleg að mínum dómi, knatt- spyrnan dauf og engin stemming verið þar sem IA og Valur hafa stungið hin liðin alveg af. Þeirra mikla geta byggist á hve þessi félög hafa mikinn félagslegan þroska yfir hin félögin, betri þjálfara og sterkari liðsheild, sagði Helgi Helgason að lokum í spjalli okkar. ÞR. Mikil spenna meðal kylfinga Átta kylf ingar geta enn sigrað í meistaraf lokki GIFURLEG spenna er í íslandsmótinu í golfi, sem lýkur í dag. ( meistaraflokki karla hefur Sigurður Hafsteinsson úr GR tekið forystuna, en hann var efstur eftir fyrsta dag ásamt Björgvin Þorsteinssyni. Björgvin hefur ekki vegnað vel tvo síðustu daga og hann verður ekki í ..úrslitahollinu" í meistaraflokknum er síðustu 18 holur mótsins hefjast í dag. Þar verða fjórir þeir beztu. en Björgvin er nú í fimmta sæti í mútinu. Öll nótt er þó ekki úti fyrir Björgvin, hann hefur áður sýnt sitt ódrepandi keppnisskap. Þó svo að þeir Sigurður, Óskar, Geir og Þorbjörn Kjærbo hafi náð betri árangri til þessa, þá munu þeir örugglega fylgjast náið með því sem Björgvin gerir í dag. Það er ekki aðeins í meistara- flokki karla, sem keppnin er hörð. Eins og í meistaraflokki hafa nýir menn skotizt í efstu sætin í hinum karlaflokkunum þremur. Hjá kvenfólkinu var Sólveig Þorsteins- dóttir, ung stúlka úr Keili, sterk- ust í gær og hún ógnar nú því forskoti, sem Jóhanna Ingólfsdótt- ir hafði náð. I karlaflokkunum, öðrum en meistaraflokki, eru Keilismenn komnir í forystu, en allt getur enn gerzt. I 1. flokki karla tók Gísli Sigurðsson 12 högg á Viðar Þorsteinsson í gær og náði forystunni, Jóhann Einarsson slakaði á klónni í 2. flokki í gær og Hólmgeir Hólmgeirsson er nú í efsta sæti. Helgi Gunnarsson náði mjög góðum hring í 3. flokki í gær og er kominn í efsta sætið. Sigurður Hafsteinsson var að sjálfsögðu maður dagsins í meist- araflokki í gær og lék á 73 höggum. Þorbjörn Kjærbo sýndi sömuleiðis styrk sinn í gær og meðan flestir léku verr en áður kom hann inn á 73 Köggum eins og SURÐUR. Ymislegt skemmtilegt hefur gerzt í þessu landsmóti í golfi, eins og venjulega. Þannig stal hrafn úr Sædýrasafninu bolta frá Samúel Jónssyni í keppni á Hvaleyrinni. Samúel tók rangan bolta eftir mikla leit og er hann uppgötvaði þjófnað krumma fékk hann dæmd á sig tvö víti. Sigurður Ágúst Jensson lenti útistöðum við kríu á Nesvellinum í fyrradag og endaði návígi þeirra með því að Sigurður tók unga kríunnar og „droppaði" honum kylengd í burtu. Jón bakarameistari Sigurðsson gaf glæsilega tertu í aukaverðlaun á Nesinu í fyrrakvöld og með það í huga að sælla er að gefa en þiggja mætti Jón ferskur á teig í gærmorgun. Hann gerði sér lítið fyrir og lék eins og hershöfðingi. Fyrri hringinn lék hann á 36 höggum og 42 þann síðari, samtals á 78 höggum, sem er aldeildis frábært hjkeppanda í 2. flokki og þýðir lækkun í forgjöf niður í 12. Veðurguðirnir voru mislyndir gagnvart kylfingum í gær, rok, ÍBK SKELLTI KA NYRÐRA Rúnar Georgsson með þrennu í 5:0 sigri Keflvfkinga HANN var einkennilegur leikur KA og Keflavíkur fyrir norðan í gærkvöldi. Jafnræði var með liðunum lengst af úti á vellinum; en einn stór hlutur skildi þó liðin og sá munur var, að leikmenn IBK skoruðu úr flestum færa sinna, þar sem leikmönnum KA virtist gersamlega fyrirmunað að leika það eftir þeim. Mörkin urðu fimm áður en yfir lauk og þar af komu tvö þeirra á fyrstu fjórum mínútunum, Eftir það var varla um keppni að ræða. Rúnar Georgsson var maður leiksins, skoraði þrennu, en mesta athygli vakti mark Þórðar Karlssonar sem skoraði með sinni fyrstu spyrnu eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Eins og fyrr segir skoruðu Keflvíkingar tvívegis á fyrstu 4 mínútunum, fyrst Rúnar af stuttu færi eftir mikið þóf í vítateig KA og síðan Steinar Jóhannsson með viðstöðulausu skoti eftir horn- spyrnu Ólafs Júlíussonar. Eftir þetta jafnaðist leikurinn nokkuð og KA-menn fengu færi á að minnka muninn, t.d. skaut Eyjólf- ur í stöngina úr aukaspyrnu inni í vítateig IBK og Þorsteinn varði fallega skot frá Elmari Geirssyni. Keflvíkingar tóku að sækja meira á ný er líða tók að lokum hálfleiksins og á 42. mínútu skoraði Rúnar annað mark sitt eftir að Þorbergur hafði misreikn- að sendingu fyrir markið frá Óskari Færseth. Á síðustu sekúnd- um fékk KA síðan enn færi, en Gunnar Gunnarsson skaut himin- hátt yfir úr opnu færi. Síðari hálfleikur var tíðindalítill framan af, en Þorsteinn, mark- STAÐAN StaAan í 1. dcild eítir leikinn nyrðra í Kær, KA - ÍBK 0-5 Valur ÍA VíkinKur Fram ÍIIK ÍBV KA Þróttur FII IIIIK 11 11 0 0 37,5 22 111211 10—10 25 11 7 1 fi 22-23 15 11 71 fi lfi,18 15 II 535 21,18 13 12 5 16,16 13 14 3 18 12,3fi 10 13 2 5 fi 16,20 9 11 24 8 17,29 8 14 I 1 12 11,36 3 mörk Markahæstu menn í 1. deild, Pétur PétursKon ÍA Initi Björn Albertsson Val Matthías lialltrrimsson IA Guómundur Þorbjörnsson Val Gunnar Örn Kristjánsson VíkinK Atli Eóvaldsson Val Arnór Guðjohnsen Alhert Guðmundsson Vai Leifur LGASON Fll Janus GuðlauKsson Fll Itúnar Georttsson ÍBK Páll Ólaísson Þrótti 15 11 11 8 7 7 7 6 fi 6 fi vörður ÍBK, sýndi þó leikni sína tvisvar eða þrisvar sinnum. Á 27. mínútu hálfleiksins skoraði Þórður mark sitt, en hann var þá nýkominn inn á sem varamaður. Markið var fallegt, þrumuskot eftir aukaspyrnu. ÍBK hafði nú loks umtalsverða yfirburði og 5 mínútum fyrir leikslok innsiglaði Rúnar sigurinn með því að skora auðveldlega eftir að Þorbergur hafði enn misreiknað fyrirgjöf. Ólafur Júlíusson, Einar Ás- björn, Sigurður Björgvinsson og Gísli Torfason voru mjög góðir í liði ÍBK, en hjá KA er varla talandi um aðra en Elmar Geirs- son og Gunnar Gíslason, aðrir hafa leikið miklu betur í sumar. Góður dómari var AAR Einarsson. Stigahæstu leikmenn, Gunnar Gíslason og Elmar Geirsson KA fengu 3 og þeir Þorsteinn Bjarna- son, Gísli Torfason, Sigurður Björgvinsson, Einar Á. Ólafsson, Rúnar Georgsson og Ólafur Júlíusson fengu einnig 3. HDan/—gg. Ragnar ekki í úrslit RAGNARI Olafssyni tókst ekki aö komast í hóp 40 Þeirra beztu á brezka unglingameistaramót- inu í golfi og er Þátttöku hans Því lokiö í mótinu. Ragnar lék í gær á 78 höggum, en í fyrradag lék hann á 77 höggum. Til að komast í 40 manna úrslita- keppnina heföi Ragnar Þurft að leika á 5 höggum betra skori. Árangur Ragnars er eigi aö síður góður og hann hefur nú aö undanförnu leikið fjóra hringi á erfiöum 18 holu völlum og aldrei farið yfir 80, sem trúlega hefur ekki gerzt áður hjá íslendingi á erlendri grund. Ragnar kemur heim á morgun. rigning eða logn skiptist á og hafði veðurfarið greinilega áhrif á frammistöðu kylfinga. I dag verð- ur ræst út kl. 7.20 á Nesvellinum, kl. 8 á Hvaleyrinni og kl. 10 á Hólmsvelli í Leiru. Þar keppa meistaraflokksmennirnir og má búast við að þeir ljúki keppni milli klukkan 15 og 16. I kvöld verður verðlaunaafhending fyrir lands- mótið í Lækjarhvammi Hótel Sögu. MEISTAUAFLOKKUR KARI.A, SÍKuróur Ilafstrinsson. GR 227 (73 - 81 - 73) Óskar Sa'mundsson. GR 229 (75 - 76 - 78) Grir Sr anssun. Gl( 230 (76 - 7fi - 78) Þiirhjiirn Kjarbu. GS 230 (75 - 82 - 73) BjiirKvin Þurstoinssun. GA 231 (73 - 80 - 78) Gvlfi Kristlnssun. GS 232 (81 - 77 - 71) Svrinn SÍKurbrrKssun. GK 233 (77 - 73 - 78) llannrs Eyvindssiin. GR 233 (79 - 79 - 75) Þúrhaliur IIólmKrirssiin. GS 237 (80 — 79 - 78) Sinuróur Thnraronsrn. GK 239 (83 - 7fi - 80) 1. FLOKKUIÍ KARI.A, Gísli SÍKuróssnn. (iK 245 (88 - 78 - 79) Yióar Þiirstoinsson. GA 218(81 - 7fi - 91) Guómundur Þórarinsson. GV 253(81 - 88 - 81) llonninK Bjarnasun. GK 253 (82 - 89 - 82) Jón Þór Ólafssnn GR 255 (80 - 89 - 8fi) 2. FLOKKUR KARLA, llúlmKoir lIólmKoirssun. GK 252 (80 - 81 -82) Bjiirn Finnbjörnssun. GLux 251 (8fi - Sfi - 82) Jóhann Einarssun. NK 257 (83 - 83 - 91) llrúlfur IIjaltasnn. GIi (86 - 88 - 83) Einar GuólauKssnn. GR. 258(81 - 87 - 87) 3. FLOKKUR KAKLA, lioliíi R. Gunnarssnn. GK 282 (93 - 100 - 89) Samúol I). Júnssnn. GK 285 (95 - 91 - 99) Stofán 11. Stofánssnn. NK 286(93 - 98 - 95) líciomir Lárusson. Nh 290(99 - 91 - 97) Þorstoinn Magnússon. NK 290 (99 - .01 - 95) MEISTARAFLOKKUR KVENNA, Jóhanna Irinólfsdóttir. GR 210(80 - 73 - 87) SúlveÍK Þorstoinsdóttir. GK 213 86 — 81 — 7fi) lakohína GuólauKsdóttir. GV 219(81 - 80 - 85) Kristín Pálsdúttir. GK 259 (81 - 92 - 86) Kristín Þorvaidsdóttir. NK 2fi I (89 - 88 - 87) 1. FLOKKDR KVENNA, Kristino E. Kristjánsdóttir. NK 28fi (92 - 98 - 96) ÁKÚsta I)úa Jónsdóttir. GR 288 (105 - 91 - 92) Sjiifniiójúnsdúttir. GV 290 (98 - 95 - 97) Guórún Eiriksdóttir. Gr 291 (102 - 95 - 94) - áij/ —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.