Morgunblaðið - 12.08.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGUST 1978
13
KONUM hefur verið kunnunt um það. allt síðan á dögum Kleopötru að
fátt er betra fyrir húðina en góður andlits-maski. En sögur herma. að
á þeim dögum. hafi konur notað leirborna mold úr næsta árfarvegi til
að smyrja húð sína með. Leðjan var látin þorna á andlitinu cn síðan
þvegin burt.
l>að er nú sjálfsagt áratugur eða meir, sfðan almennt var farið að
hverfa aítur til efna úr náttúrunni við framleiðslu á allskonar
snyrtivörum. þó ekki hafi heyrzt um leirborna mold, selda í krúsum.
enn.
Til eru snyrtivöruframleiðcndur, sem auglýsa að þeir noti eingöngu
efni beint úr náttúrunni í vörur sínar, þar sé engum kemískum efnum
bætt í.
Allskonar húsráð eru til. ef svo má að orði komast, við tilbúning
andlits-maska í heimahúsi og af eftirtöldu sczt. að margt af því, sem
notað er í þá, er til í nær hverju eldhúsi. Það má eiginlega segja, að
samsetningin minni meira á mataruppskrift en fegrunarlyf.
Gæta þarf þess vandlega, að setja aldrei maska á hina viðkvæmu húð
í kringum augun. aldrei yfir rispu eða sár á húðinni og ekki á húð, sem
hefur ofnæmiseinkenni.
Til að vera alveg öruggur um, að húðin þoli þau efni sem í
maskanum eru, er bezt að bera á húðina í olnbogabótinni, til reynslu,
láta liggja á nokkra tfma með grisju eða plástur yfir. Ef minnsti roði
eða erting myndast á húðinni. má ekki setja maskann á andlitið.
Fyrir allar
húðtegundir
Eggja-haframjölsmaski
4 matsk. haframjöl mulið þar til
það verður að fínu dufti. Eitt egg
þeytt þar til það er froðukennt,
duftinu blandað í. Þessu er síðan
nuddað inn í húðina og látið þorna
í 5—10 mín. Þvegið af með kvöldu
vatni.
Fyrir eðlilega
húð og þurra
Avocado-maski
2 tsk. avocado stappað með 'A
tsk. sítrónusafa. Borið á andlit og
háls, látið liggja í 20 mín., en síðan
þvegið af.
Banana-maski.
Einn banani stappaður vel og 1
tsk. hunang hrært í. Borið á
andlitið og haft í 20 nrín. en síðan
þvegið af.
Fyrir þurra húð
og viðkvæma
Eggja-olíumaski.
Ein eggjarauða þeytt vel, 1
matsk. af ólífuolíu hrært saman
við. Borið á andlit og háls og látið
vera í 10 mín. En þá er vel þeyttri
eggjahvítunni smurt yfir, og hún
látin þorna vel ca. 15 mín.
Hreinsað af með volgu vatni.
Fyrir feita húð
Eggja-sítrónumaski
Ein eggjahvíta þeytt, safa úr
einni sítrónu bætt í. Smurt á
andlitið og næstum látið þorna, en
þá er öðru lagi smurt yfir og látið
vera í 10—15 mín. í viðbót.
Hreinsað af með köldu vatni.
Hveitiklíð-maski
3 matsk. hveitiklíð, 1 matsk,
gerduft og nógu mikið vatn til að
þetta sé eins og grautur. Smurt á
andlitið og látið vera í 15 mín.
Hreinsað af með legi úr einum
hluta af eplaediki á móti átta
hlutum af vatni.
Hveitikím-jógurtmaski
Búinn til úr jöfnum hlutföllum
af hveitikími og jógurt, látið vera
á húðinni í 15 mín., hreinsað af
með volgu vatni.
Ölgers-maski
3—4 matsk. ölger leystar upp í
dálitlu af volgu vatni, dropa af
möndluolíu, 1 matsk. af hungangi,
1 tsk. sítrónusafa og einni tsk.
heilhveiti bætt saman við. Vatni
bætt í ef með þarf. Borið á andlit
og háls og látið þorna í 20 mín.
Helst á að þvo þennan maska af
með volgu jurtatei.
Nokkrar hinna hárprúðu „Hallgerðar1* er standa að baki „Galleri
Langbrók“.
7
Myndllst
eftir BRAGA
ASGEIRSSON
um stofnendum, er voru margir,
var varla helmingur eftir, er yfir
lauk, og kom hér til hin marg-
fræga þrætugirni iistamanna.
Væri vel ef hinu nýja „galleríi"
auðnaðist að hasla sér völl, og
vissulega eru konur einar sér
vænlegri til árangursríks sam-
starfs á þessum sérstaka vett-
vangi en blandaður hópur beggja
kynja. Þaö er mikill vandi aö
sinna slíku brautryöjendastarfi og
veltur mikið á góðum, hugmynda-
ríkum og atorkusömum fram-
kvæmdastjóra — því aö fæstir
hafa listamenn þolinmæði tii að
standa í slíku vafstri til lengdar,
enda lítt til þess fallnir.
Húsakynni „Gallerí Langbrók"
eru fremur takmörkuö, en það er
mjög notalegt að koma á staðinn
og viö skulum vona, að hér
sannist hið fornkveðna: „mjór er
mikils vísir". Ég vil engu spá um
r
GALLERILANGBROK
Nýlega hóf starfsemi sína nýtt
„gallerí", eða réttara sagt sýning-
arsalur að Vitastíg 12 og stendur
að því heil tylft valkyrja, er haslað
hafa sér völl á vettvangi myndlist-
ar, listiðnaðar og hvers konar
listrænnar hönnunar. Þar sem
hér er um aö ræða hressilegt og
tímabært framtak, þykir mér rétt
og skylt aö vekja sérstaka athygli
á því, sem hér er að gerast.
Markmið hinna kappsfullu „lang-
bróka" (langbrók þýðir sítt hárjer
að sjálfsögðu að koma á framfæri
verkum sínum og annarra, er
starfa á svipuðum grundvelli og
jafnframt að vera tengiliöur milli
listamanna og almennings. Telja
þær stöllur, aö hér hafi þráöur
slitnað, er „Gallerí Sólon Island-
us“ leið undir lok eftir aöeins
liölega eins árs starfsemi. Sýn-
ingarSalurinn náöi þó aldrei aö
koma undir sig fótum og byggja
upp markvissa starfsemi, þótt allt
væri á réttri leið, þá er menn uröu
aö hrökklast burt af staðnum.
Starfsemin í kringum „Gallerí
Sólon Islandus" var lofsverð
tilraun, þótt athafnasemin heföi
mátt vera samfelldari og ein-
drægnin meiri, — af upprunaleg-
framtíð þessa sýningarsalar, en
hitt vil ég fullyrða, að slík
starfsemi á að geta blómstrað í
höfuöborginni, ef rétt er að farið.
Hér er um mjög heilbrigöa og
menningarlega athafnasemi að
ræða, sem ekkert nútímaþjóðfé-
lag getur verið án. Er það trúa
mín, að verði hér framhald á og
starfsemin njóti eölilegs vaxtar,
líöi ekki mörg ár, áður en hún
hefur skotiö traustum, varanleg-
um rótum.
Ég óska aö lokum freyjunum
tólf til hamingju með framtakið
og fyrirtækinu velfarnarðar.
Dvrin á svninounni
m J mU
bíða spennt ef tir þér
og f jölskyldu þinni
Meðal annars tvær gyltur með grísi, hænur og ungar, kal-
kúnar, endur og gæsir, folaldsmeri, minnsti og stærsti
hestur landsins, fimmtán mjólkurkýr, nýborinn kálfur, tólf
ær, forystukind með lambi, geitafjölskylda — hafur, huðna
og tveir fjörugir kiðlingar, dúfur, lax og laxaseiði, o.m.fl.
Sýningin er opin 11.-20. ÁGÚST
Virka daga kl. 14 — 23Jkl. \0 — 23 laugardaga og sunnudaga.
Ævintýri fyrir alla f jölskylduna
argus