Morgunblaðið - 12.08.1978, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978
15
V erkalýðsmálar áð Alþýðubandalagsins:
Lýsir fyllsta stuðningi við
afstöðu viðræðunefndar Abl.
Morgunblaðinu hefur
borizt ályktun stjórnar
verkalýðsmálaráðs Alþýðu-
bandalagsins sem sam-
þykkt var á fundi ráðsins
hinn 9. ágúst:
Undanfarin ár, eða allt frá því
að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins, kom til
valda sumarið 1974, hefur verka-
lýðshreyfingin háð samfellda
varnarbaráttu andspænis ofsókn-
um ríkisvaldsins. Á Alþýðusam-
bandsþinginu 1976 var mörkuð sú
stefna að reyna að sameina
launamenn um eina meiginkröfu
— þá 100.000 kr. lágmarkslaun.
Jafnframt var ákveðið að beita
nýjum baráttuaðgerðum af hálfu
verkalýðssamtakanna. Þessi
stefna og þær baráttuaðferðir sem
beitt var hafði í för með sér að
verkalýðshreyfingin sneri vörn í
sókn með kjarasamningunum
1977, „sólstöðusamningunum".
Síðar tókst Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja að ná
verulegum árangri í fyrsta verk-
falli samtakanna síðastliðið haust.
Varla var blekið þornað á undir-
skriftum kjarasamninganna þegar
fjandsamlegt ríkisvald greip inn í
gang mála; kjarasamningunum
var rift með einu pennastriki.
Kaupránslögin voru sett. Þessu
tilræði við frjálsan samningsrétt
mótmælti launafólk með verkfall-
inu 1. og 2. mars og síðan með
útskipunarbanni Verkamanna-
sambands íslands. Launafólk
Athugasemd Neytenda-
samtakanna um dag-
stimplun mjólkurvara
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
stjórn Neytendasamtakannai
Vegna frétta í fjölmiðlum um
dagstimplun mjólkurvara hefur
stjórn Neytendasamtakanna gert
eftirfarandi ályktun á fundi sínum
10. ágúst 1978:
1. Það er með öllu óverjandi að
mjólkursamlögin fari ekki eftir
settum reglum um stimplun
mjólkur og mjólkurvöru.
2. Eftirlit með mjólkursamlög-
um í landinu þarf að stórauka,
ekki síður en með öðrum matvæla-
iðnaði. Matvæli eru viðkvæm vara
og neytandinn á heimtingu á að
gæði þeirra séu í samræmi við
settar reglur.
3. Til þess að unnt sé að halda
uppi fullnægjandi eftirliti þarf að
efla Heilbrigðiseftirlit ríkisins
verulega og heilbrigðisnefndirnar
úti á landsbyggðinni. Núverandi
ástand býður upp á lagabrot eins
og fram hefur komið í fjölmiðlum.
4. Nauðsynlegt er að endur-
skoða X.kafla Reglugerðar um
mjólk og mjólkurvörur, sem fjallar
um viðurlög og málsmeðferð brota
á settum reglum og herða viður-
lögin.
fylgdi mótmælunum svo kröftug-
lega eftir í kosningunum 25. júní
að ekki hafa aðrar eins tilfærslur
átt sér stað í þingstyrk flokka í
sögu lýðveldisins. Stjórnarand-
stöðuflokkarnir, Alþýðubandalag
og Alþýðuflokkur bættu við sig 12
þingmönnum og báðir flokkarnir
háðu kosningarbaráttuna meðal
annars undir því kjörorði sem
verkalýðshreyfingin hafði kynnt í
upphafi. Samningana í gildi. Það
var því skylda þessara flokka við
kjósendur sína og verkalýðs-
hreyfinguna að standa fast á
kröfunni um að sá kaupmáttur
sem um var samið 1977 yrði
tryggður. Allt annað væru bein
svik við kjósendur. Þess vegna
lýsir stjórn verkalýðsmálaráðs
Alþýðubandalagsins fyllsta stuðn-
ingi við afstöðu viðræðunefndar og
þingflokks Alþýðubandalagsins í
viðræðum um myndun vinstri-
stjórnar. Þar hafnaði Alþýðu-
bandalagið að sjálfsögðu kaup-
lækkunarkröfu þingflokks Alþýðu-
flokksins. Um leið harmar stjórn
verkalýðsmálaráðsins að ekki
skyldi hafa tekist að mynda
vinstristjórn með skýra vinstri
stefnu, en sú tilraun sigldi í strand
þegar þingflokkur Alþýðuflokks-
ins tók upp kaupránskröfur frá-
farandi ríkisstjórnar.
Verkalýðshreyfingin hlýtur nú,
er stjórnarmyndunarviðræður
standa yfir, að leggja þunga
áherslu á að standa fast á verði
um réttindi alls launáfólks, hvaða
ríkisstjórn sem verður mynduð.
Nýjar tölur úr Leirvogsá
Fyrir skömmu birtum við
írekar ónákvæmar tölur um
veiðina í Leirvogsá. Hið rétta
er. að mun meira hefur veiðst í
ánni heldur en fram kom í
fréttinni. Pétur Pálmason á
Kjalarnesi tjáði Mbl. í gær, að f
fyrrakvöld hefðu verið komnir
318 laxar á land og veiðin hafði
verið bara nokkuð góð þó að
áin hafi verið orðin æði vatns-
lítil. Veiði hófst í ánni 1. júlí og
fljótlega veiddist lax sem vó 17
pund. en annars er meðalþung-
inn um 5 pund eins og áður.gg.
rjbót kv, ★frami. -dagar k ft. 1 ævi:
\alla hans aldurdaga. 2 +eilífð: um aldurdaga\
| eilíflega. -dagikj^dauðameirL -gifta kv, t ævi-,
I löng 1, roskinnl
lað árum, gamall. -lag h. t 1 örlög. 2 dauði.|
-laus 1, *dauður. -lok h ft, Adauði. -nari ki
Ueldur. -prúður 1, t virðulegur. -rán h, t dauði.|
-rúnir kv ft, Arúnir, sem gefa háan aldur.
Hafnarfjarðarvegur enn, vegna
skrifa Agústs Þorsteinssonar
Fágætur;
aldurdagi
HANDRITALESARI Mbl., Karl
Emil Gunnarsson, kvaðst hafa
hlýtt á bátt Gísla Jónssonar
menntaskólakennara, „Daglegt
mál“, fimmtudaginn 10. ágúst par
sem hann gagnrýnir fyrirsögn á
forsíðu Mbl. 1. ágúst s.l. Hermir
handritalesari að Gísli hafi talið
fyrirsögnina „Fágætur aldurdagi"
brenglaða par sem ruglaö sé
saman orðunum aldurtili og
dauðdagi.
Undirrituöum blaðamanni, sem
ábyrgur er fyrir bössusmíöinni, er
aufúsa í að benda íslenskufræð-
ingnum á að hann mun purfa að
skenkja öörum en Morgunblaö-
inu af lærdómi sínum og má geta
pess að nafnorðið aldurdagi er
skýrt meö orðinu dauðamein í
orðabók menningarsjóðs. Hefur
undirritaður einnig heyrt orðið í
daglegu tali. Gunnar Pálsson.
Bezti Ágúst.
Þú telur skrif mín bera vott um
þann mikla misskilning , ser.
mikill fjöldi íbúa Garðabæjar
hefur á þessu málefni.
Ég er þér sammála um að
fjöldinn er mikill og raunar alltaf
að aukast. Þú virðist núorðið einn
á báti með þínar skoðanir, og læt
ég öðrum eftir að dæma, hvort þú
eða hinn mikli fjöldi misskilur
hlutina.
Þú tvítekur fram í grein þinni,
að Hafnarfjarðarvegur eigi að
vera innanbæjarvegur Garðabæj-
ar og ert þá sammála mér og
hinum mikla fjölda. Hitt mun
flestum nema þér ljóst, að sá
vegur getur ekk} bæði verið
innanbæjarvegur og samtimis
hraðbraut milli Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar. •
Varðandi umferðarljós er það að
segja, að jafnsjálfsögð og þau eru
á ýmsum innanbæjarvegamótum
eiga þau ekki að trufla umferð á
hraðbrautum. Hægt er að benda á
stórslys sem orðið hefur við
umteröarljósin við Lyngás, ekki
þrátt fyrir ljósin, heldur einmitt
vegna þeirra.
Þú segist ekki sjá aðra lausn á
sambandi sjávarbrautar við Álfta-
nes en veg frá Stálvík yfir
Gálgahraun. Ég vil í því sambandi
benda þér á að renna enn einu
sinni yfir fyrri grein mína, og
muntu þar finna mun betri lausn á
því máli.
Að lokum þetta. Sjávarbraut er
mér ekkert trúaratriði, aðeins
óhjákvæmileg nauðsyn.
Leifur Jónsson læknir.
Kínverskt fimleikafólk á Islandi
Sýningar í Laugardalshöll priðjudaginn 15. ágúst kl. 20.30 og fimmtudaginn 17.
ágúst kl. 20.30.
Einstakt tækifæri til aö sjá snilli þessa fólks í öllum greinum áhaldafimleika.
Forsala aögöngumiöa veröur í Laugardalshöll mánudaginn 14. ágúst kl. 18—20 og frá kl. 18.30
sýnjngardagana.
Missiö ekki af þessu einstaka tækifæri. Fimleikasamband íslands
tsalan hef st á mánudag
þemhard lax^al
KJÖRGARÐ/