Morgunblaðið - 12.08.1978, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978
17
Fulltrúadeildin:
Felldi skattalækkun-
artillögur Carters
ngto
FULLTRUADEILD Bandaríkja-
þings felldi í fyrrinótt tillögur
Carters forseta um tekjuskatts-
lækkun (18.1 milljarð dala fyrir
ríkissjóð) og er þessi afgreiðsla
fulltrúadeildarinnar talin vera
áfall fyrir stefnu Carters í
skattamálum. Tilgangurinn með
tillögum Carters var að draga úr
áhrifum verðbólgu og létta
skattabyrðar lágtekjufólks.
Hins vegar samþykkti fulltrúa-
deildin breytingartillögu um 16,3
milljarða skattalækkun sem
hátekjufólk kæmi til með að njóta
góðs af. Eftir þessi málalok bindur
Carter nú vonir sínar við að
öldungadeildin muni samþykkja
tillögur hans.
Talið er að synjun fulltrúadeild-
arinnar komi á afar óheppilegum
tíma fyrir Carter; einmitt þegar
vinsældir hans eru í lágmarki.
Hvaðatölur
tengjast dauða
Páls páfa?
Róm — 11. ágúst — AP
ÍTÖLUM gefst þessa dagana
kostur á að taka þátt í nokkurs
konar getraun, sem ftalska
ríkishappdrættið Lotto gengst
fyrir. Er þeim boðið upp á, að
geta sér til um hvaða tölur frá
1—90 eru nátengdastar dauða
Páls páfa. Flestir þáttakendur
veðja á tölurnar 21 og 40, en
páfi andaðist á þeim tíma
sólarhrings siðastliðin sunnu-
dag. Dregið verður í getraun-
inni á sunnudag.
Berlínarmúrinn aldrei rammgerðari
í dag er liðin 17 ár frá því að
hafizt var handa um að reisa
Berlínarmúrinn. Mynd þessi
var tekin við Múrinn í gær og
sýnir viðbúnaðinn. sem
kommúnistastjórnin telur
nauðsynlegan til að hindra
samskipti borgarbúa. Múrinn
hefur verið efldur mjög og
styrktur að undanförnu. og
fremst á myndinni er nagla-
bretti. en á bak við gaddavírs-
girðinguna eru blóðhundar
hafðir til frekara öryggis. Svo
„öruggur" er Múrinn nú talinn
að ekki á neinn að komast yfir
hann nema fuglinn fljúgandi.
Frá því að þetta tákn um
harðræði stjórnanna fyrir aust-
an járntjald reis hafa alls 70
manns fallið fyrir byssum
austur-þýzkra landamæra-
varða við Múrinn. Síðasta árið
er vitað um 27 tilfelii þegar
skotið hefur verið að flótta-
fólki.
Carter
Chrysler-salan:
Engin merki um „þýðu”
í Tékkósló vakíu en spái
„nýju vori”í A-Evrópu
Brezka st jómin
krefst öryggis
— segir andófsmaðurinn Pachman
Ósló, 11. ágúst. - AP.
30
London, 12. ágúst, Reuter.
BREZKA ríkisstjórnin mun
krefjast tryggingar fyrir því að
enginn starfsmaður missi starf
sitt hjá Chryslerbifreiðaverk-
smiðjunum í Bretlandi áður en
Norður-Yemen:
Líflát
manna
fyrirskipað
Beirút, Líbanon, 12. ág. AP
STJÓRNIN í Norður-Yemen, sem
kom til valda fyrir tveimur
mánuðum, fyrirskipaði í dag að
teknir skyldu af iífi 30 yfirmenn í
hernum en þeim er gefið að sök
að hafa efnt til uppreistar gegn
fyrrverandi forseta landsins,
Ahmed AI Ghashmi hers-
höfðingja.
Yfirmennirnir eru sagðir hafa
ætlað að reyna að egna herinn
gegn Ghashmi í kjölfar kosningar
hans í forsetaembætti í apríl.
Meðal yfirmannanna er Abdulla
Abui Alem hershöfðingi, fyrrver-
andi meðlimur í forsetaráðinu og
yfirmaður fallhlífahersveitanna,
að því er ríkisútvarp Yemen skýrði
frá. Alem og flestir uppreistar-
mannanna flýðu til Suður-Yemen
eina marxíska landsins á Arabíu-
skaganum, þegar áætlanir þeirra
fóru út um þúfur.
Ghashmi forseti lézt 10. júní
þegar sprengja, sem falin var í
tösku opinbers sendimanns frá
Suður-Yemen, sprakk í skrifstofu
hans. Tveimur dögum síðar var
Salem Robaye Ali forseti Suður-
-Yemen ráðinn af dögum af
Sovét-sinnuðum ofstækismönnum
þar í landi.
hún veitir samþykki sitt fyrir
kaupum frönsku samsteypunnar
Peugeot-Citroen á
Chrysler-samsteypunni.
Chrysler-verksmiðjurnar í Bret-
landi hafa síðustu þrjú árin fengið
80 milljónir sterlingspunda í styrk
frá brezka ríkinu til að bæta upp
taprekstur sinn og til greiðslu
lána. Með því móti vildi brezka
stjórnin koma í veg fyrir uppsagn-
ir hjá verksmiðjunum þar sem
vinna 23.700 manns, því stjórninni
þykir ekki bætandi á það atvinnu-
leysi sem ríkir í Bretlandi, þar sem
1V2 milljón manns eru án atvinnu.
Stjórnin hafði heitið verksmiðjun-
um frekari fjárstuðningi áður en
eigendaskiptin voru kynnt í gær.
„ÞAÐ eru alls engin merki þess,
að pólitískri harðstjórn í
Tékkóslóvakíu tiu árum eftir
innrásina sé að ljúka. sagði
tékkneski andófsmaðurinn og
skákmeistarinn Ludek Pachman
í samtali við norska fréttamenn á
dögunum, en Pachman er sem
sakir standa í heimsókn þar.
„Það er minna um handtökur nú
seinni ár en var á árunum 1969 til
1972, en á hinn bóginn er almenn-
ingur í landinu beittur meiri
pólitískum þrýstingi," eins og
Pachman orðaði það. Hann sagði,
að miðstjórn tékkneska kommún-
istaflokksins hefði ákveðið að
halda mikilvægan fund í septem-
ber n.k., þar sem innanríkismál
yrðu til umræðu og á þeim fundi
myndi stjórnin ræða á hvern hátt
hún hygðist berjast gegn alþjóð-
legum andkommúnískum öflum,
„og við verðum að bíða eftir þeim
fundi til að sjá hvernig málin
þróast", bætti Pachman við.
Hann sagðist að lokum v sterklega
trúaður á „nýtt vor“ í A-Evrópu
innan tíðar, þótt hann gæti ekki
sagt til um hvort það yrði í
Tékkóslóvakíu eða öðrum löndum,
en kvaðst binda vonir sínar t.d. við
Pólland, þar sem kirkjan og aðrar
frjálsar stofnanir hafa verið
nokkuð öflugar.
Tengsl milli morðingja
Moros ogSchleyers
— segirL’ Unita
Róm — 11. ágúst — Reuter
L'Unita, málgagn ítalskra
kommúnista, skýrir frá því í dag
að lögreglan hafi komizt yfir
upplýsingar. sem tengi
morðingja Aldo Moros úr Rauðu
herdeildunum vestur-þýzkum
hryðjuverkamönnum, sem staðið
hafi fyrir ráninu og morðinu á
HannMartin Schleyer fyrir tæpu
ári. Blaðið heldur því fram að
ERLENT
Christina fundar með 20
grískum skipaeigendum
á Scorpios um helgina
Aþenu, 12. ágúst, Reuter.
IIERMT var í Aþenu í dag að
Christina Onassis Kauzov hefði í
dag flogið til eyjarinnar Scorpios
þar sem hún mun dvelja yfir
helgina ásamt um 20 grfskum
skipaeigendum. Flaug hún þang-
að í dag í þyrilvængju, að því er
starfsmaður flugvallarins í
Aþenu skýrði frá.
Vinir frú Kauzov hafa látið svo
um mælt að hún sé nú undir
Christina Onassis og Sergei Kanzov
miklum þrýstingi frá ættingjum
sínum að skilja við þriðja eigin-
mann sinn, sovézka kommúnist-
ann Sergei Kauzov, þar sem
ættingjarnir óttist að skipafélag
hennar bi'ði hnekki vegna gifting-
arinnar.
Lundúnablaðið Daily Mail hefur
þó eftir Sergei í dag að hjónaband-
ið sé ekki í neinni hættu og
nokkrir vinir Kristínar sögðu
einnig í dag að hún væri reiðubúin
til að eftirláta eitthvað af völdum
sínum æðstu stjórnendum skipa-
veldisins frekar en að skilja. „Við
tölumst við í síma dag hvern og ég
á von á henni brátt aftur, sagði
Sergei í Moskvu í dag.
Enn er ekki vitað hvers vegna
Christina Onassis Kauzov brá sér
sem snöggvast í dagsferð til
Lundúna, en starfsmaður á flug
vellinum í Aþenu skýrði svo frá í
dag að í fylgd hennar í einkaþotu
þaðan í gær hefði verið síðasti
eiginmaður hennar, Alexander
Andreados, en þau skildu fyrir
u.þ.b. ári.
vopn Rauðu herdeildanna hafi
verið úr birgðum, sem stolið var í
Sviss í fyrra. og úr sömu send-
ingu hafi vélbyssa morðingja
Schleyers einnig komið. í fregn-
inni segir ennfremur að í fylgsni
Rauðu herdeildanna í norður-
hluta Rómar hafi fundizt tvö
vestur-þýzk skrásetningarnúmer
bifreiða. ásamt fleiri gögnum þar
að lúti.
Italska lögreglan hefur í dag
verið ófáanleg til að tjá sig um
málið, en L‘Unita segir að ítalskir
rannsóknarlögreglumenn séu í
nánu samstarfi við vestur-þýzka
starfsbræður sína vegna málsins,
og sé frekari fregna að vænta af
því á næstunni.
íran:
Herlög
ígildií
Isfahan
Teheran. — 11. ágúst. Reuter
HERLOG og útgöngubann eru nú
í gildi í Isfahan. næststærstu
borg írans. eftir óeirðir og
götubardaga þar undanfarið. sem
trúæsingamenn hafa stofnað til í
mótmælaskyni við handtöku
trúarleiðtoga þeirra.
í minni háttar bardögum, sem
brotizt hafa út síðustu daga, hafa
fjórir látizt og nokkrir tugir
manna særzt. Mótmæli þessi gegn
stjórn keisarans eru þau mestu,
sem orðið hafa á þessu ári.
kvæmt opinberum heimildum
eiga herlög og útgöngubann að
gilda næsta mánuðinn í Isfahan.