Morgunblaðið - 12.08.1978, Side 19

Morgunblaðið - 12.08.1978, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978 31 í hugskoti vor allra. Hitt er ráð að minnast þess heldur nú, að þó að margt misjafnt megi eflaust segja um stjórn þjóðar vorrar á sjálfri sér á síðustu áratugum, verður því ekki neitað, að hún hefur unnið stórkostlegt afrek ein- mitt á þeim tíma með nær ótrúlegri uppbyggingu á sviði verklegra framkvæmda og atvinnumenningar yfirleitt. Þjóðin er fámenn og þegar á allt er litið í einni heild, er það ekkert smáræði, sem hver einstök íslensk hönd hefur fengið áorkað, og það er sálubót að minnast þessa, þegar efnahagsvandi og stjórnmálakreppa dagsins í dag slá nokkrum fölskva á lífsgleðina. Þjóðlífið gengur sinn gang fyrir því og upp- bygging fyrir nútíð og fram- tíð heldur ótrauð áfram. Þrátt fyrir nokkurn velting láta ýmsar atvinnugreinar engan bilbug á sér finna, heldur halda stórsýningar til að kynna ástand og horfur, gefa landsmönnum kost á eins konar úttekt hverrar greinar fyrir sig og margvís- framtíðinni, einkum ef hann fær að búa við það þjóðfé- lagslega efnahagsjafnvægi sem honum er svo nauðsyn- legt til þroska. Hún á að sýna hvert vér erum komin áleiðis á þeirri braut að laða fram lífgefandi eigindir íslenskrar náttúru og vinna bug á eða koma saman við hið mót- dræga í fari hennar. Hún á einnig að minna á, að þjóð- menning vor er að stofni til bændamenning og ber þess óafmáanlegar menjar. Islens- kir bændur ættu að vera stoltir af arfleifð sinni og þjóðin ætti að vera stolt af þeim. Það getur hún leyft sér án þess að neitt sé frá neinum tekið eða á nokkurn hallað. Loks er þess að geta, að þessi sýning á eflaust að vera brýning um að nýta og jafnframt vernda kosti landsins og nota nútíma verkmenningu og vísindi til að leiða í ljós allt sem hægt er að gera við íslensk skilyrði til þess að landbúnaður í víðtækum skilningi megi blómgast til gagns og lífsfyll- ð nýta og landsins ims Selfossi legri þekkingu á gildi hennar fyrir þjóðfélagið í heild. Þessi starfsemi er þörf og þakkar- verð því að hún er öllu öðru betur fallin til að vekja áhuga og uppræta fordóma, sem stafa af vanþekkingu, eins og fordómar gera oftast nær. Mér þykir líklegt að þessi sé megintilgangur hinnar miklu landbúnaðarsýningar, sem Búnaðarsamband Suður- lands hefur nú efnt til af svo miklum stórhug, og er hún þó að vísu saman sett af mörg- um samverkandi þáttum. Hún mun eiga að sýna hvers íslenskur landbúnaður er megnugur og benda til þess, sem hann getur enn orðið í ingar, eigi aðeins fyrir hvern bónda og hverja byggð, held- ur og fyrir þjóðina alla. Allt ber þetta þá að þeim brunni, að landbúnaðarsýning eins og þessi gegnir sama tilgangi og Búnaðarbálkur Eggerts Ólafssonar átti að gegna á sinn hátt og á sinni tíð. Sýningin er í raun og veru Búnaðarbálkur í sérstakri útgáfu á nútímans vísu, í sýnilegri og áþreifanlegri mynd í eintómra orða stað, í senn varnarræða, kynning og hvatning. Sú er ósk mín og von, að sýningin nái göfugum tilgangi sínum. Ég óska Búnaðarsambandi Suðurlands til hamingju með sýninguna og með 70 ára heilladrjúgt starf þess. Ég lýsi yfir því, að Landbúnað- arsýningin á Selfossi 1978 er opnuð. Birgir ísl. Gunnarsson: Ad reyna aðvarpaaf sér ábyrgð Með þeirri breytingu, sem orðið hefur í eðli borgarstjóra- embættisins, hafa nokkrar um- ræður orðið um gildi hinnar pólitísku ábyrgðar og hvar sé í raun munur á henni og hinni embættislegu ábyrgð. Við sjálf- stæðismenn í borgarstjórn höf- um gert grein fyrir þeim mikla mun, sem þarna er á milli og hversu ólýðræðislegt það sé að ætla að skjóta sér undan hinni pólitísku ábyrgð. Fyrir stuttu gerðist atvik á vettvangi borgarmála, sem sýn- ir að a.m.k. hluti hins nýja meirihluta gerir sér alls ekki grein fyrir því, hver munur er þarna á og vill geta velt af sér pólitískri ábyrgð í erfiðum málum og skellt skuldinni á embættismenn. Markús Örn Antonsson borgarfulltrúi gerði nokkra grein fyrir málinu hér í blaðinu s.l. sunnudag, en hér verður nokkru bætt við og eftirleikurinn skýrður. Á fundi borgarstjórnar ekki alls fyrir löngu var fjárhags- áætlun borgarinnar tekin til endurskoðunar. Gunnlaugur Pétursson borgarritari gerði grein fyrir tillögum um breyt- ingu á fjárhagsáætluninni. Hann lét þess þá sérstaklega getið, að fjárhæð til byggingar barnaheimila yrði óbreytt frá því, sem áætlað var s.l. vétur, en því fylgdi magnminnkun í fram- kvæmdum, þ.e. að draga yrði úr hraða við þau barnaheimili, sem væru í byggingu. Áður hafði hinn nýi meirihluti falið borgar- verkfræðingi að leita samninga við verktaka og freista þess að fá þá til að hægja á byggingar- hraðanum. Það tókst borgar- verkfræðingi og lagði fram tölur um, hvað raunhæft væri að ætla til hverrar byggingar. Sam- þykkt borgarstjórnar um fjár- framlag til barnaheimila í endurskoðaðri fjárhagsáætlun var því byggð á þessum nýju tölum, sem hann lagði fram. Allt þetta gerði borgarverk- fræðingur sem embættismaður samkvæmt ósk hins nýja meiri- hluta og á pólitíska ábyrgð þeirra borgarfulltrúa, sem hann skipa. Næst gerist það svo í málinu, að tveir borgarfulltrúar, þ.e. Guðrún Helgadóttir, bftr. Alþýðubandalagsins og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, bftr. Alþýðu- flokksins, en þær sátu báðar umræddan borgarstjórnarfund, mættu á fund í félagsmálaráði og samþykktu þar bókun, þar sem segir: „Félagsmálaráð mót- mælir þeirri málsmeðferð borgarverkfræðings að semja við verktaka þriggja barnaheimila... o.s.frv.". I lok bókunarinnar segir: „Félags- málaráð samþykkir að skrifa borgarráði og fara þess á leit við ráðið að það endurskoði ákvörðun borgarverkfræðings“. Að þeirri bókun stóð einnig Gerður Steinþórsdóttir, varaborgarfull- trúi Framsóknarflokksins, sem hlaut auðvitað eirinig að hafa gert sér grein fyrir, hversvegna borgarverkfræðingur gerði um- rædda samninga. Bókun þessari var sérstaklega mótmælt af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í félagsmálaráði. Þegar fundargerð Félags- málaráðs kom fyrir borgarráð óskuðum við Albert Guðmunds- son eftir því með sérstakri Birgir ísl. Gunnarsson. bókun, að borgarverkfræðingur skilaði skriflegri greinargerð um það, hvernig ákvörðun þessi væri til komin. Við vildum fá það fram svart á hvítu, að hann hefði gert þetta samkvæmt ósk hins nýja meirihluta. Þá sáu þeir Björgvin Guðmundsson og Kristján Benediktsson sig til- neydda að viðurkenna sinn þátt í málinu og óskuðu bókað, að borgarverkfræðingur hefði ann- ast þessa samninga í umboði og með samþykki meirihluta borg- arráðs. Enginn vafi er á því, að þarna ætlaði a.m.k. hluti af borgarfull- trúum hins nýja meirihluta að varpa af sér pólitískri ábyrgð í óþægilegu máli og koma sökinni yfir á embættismann. Báðar samþykktu þær í borgarstjórn að draga úr hraða við byggingu barnaheimila, en þegar í félags- málaráð kom var það greinilega óþægilegt að taka á sig þá ábyrgð, enda óvinsælt að byggja ekki barnaheimili. Þá var nær- tækast að hengja borgarverk- fræðing og segja, að þetta væri bara embættismönnunum að kenna. Það tókst ekki í þetta sinn, en ekki var tilraunin stórmannleg. Þetta dæmi sýnir glöggt muninn á pólitískri ábyrgð og embættis- legri ábyrgð. Þegar sjálfstæðis- menn réðu börginni störfuðu embættismenn borgarinnar á pólitíska ábyrgð borgarstjóra oog meirihlutans. Nú er reynt að dreifa ábyrgðinni, rugla fólk í ríminu og skella sökinni á þá, sem sízt skyldi. Slíkt stjórnar- fyrirkomulag kann ekki góðri lukku að stýra. Leikfélag Akureyrar: íslenzkur blær á verkefnaskránni STJÓRN Leikfélags Akureyrar hefur sent frá*sér fréttatilkynn- ingu um væntanlega starfsemi félagsins á næsta starfsári og verkefnaval. Þar segir meðal annarsi Leikhússtjóri hefur verið ráðinn Oddur Björnsson, leikritahöfund- ur. Hann er stúdent frá MA og lagði stund á leikhúsfræði í Vínarborg í tvö ár. Hann hefur starfað við Þjóðleikhúsið um tíu ára skeið og leikrit hans hafa verið sýnd þar og víðar. Leikhússtjórnin leggur áherslu á aukna fjölbreytni í verkefnavali og sem besta nýtingu þeirra starfskrafta, sem leikhúsið hefur yfir að ráða. Fyrsta verkefni vetrarins verður „Þess vegna skiljum við“ eftir Guðmund Kamban. Þetta verkefni var sýnt í Þjóðleikhúsinu 1952 og þykir eitt af öndvegisverkum skáldsins. Þetta leikrit hefur þá sérstöðu meðal verka Kambans, að þar er tekið á mannlegum vanda- málum með léttleika og kímni. Leikstjóri hefur verið ráðinn Haukur J. Gunnarsson. Hann hefur stundað nám m.a. í Englandi og Japan og uridanfarið unnið við leikstjórn hjá ýmsum leikfélögum úti á landi. En í vetur mun hann setja á svið tvö leikrit við Trönderlag Teater í Þrándheimi. Auk þess er hann ráðinn til að stjórna flutningi á leikriti eftir Jökul Jakobsson í íslenska sjón- varpinu. Annað verkefnið verður „Sjálf- stætt fólk“ eftir Halldór Laxness, í nýrri leikgerð Baldvins Halldórs- sonar, sem mun einnig annast leikstjórn. Verkið var sýnt í Þjóðleikhúsinu 1972, 60 sinnum fyrir fullu húsi. Um sama leyti hefjast æfingar á barnaleikritinu, sem að þessu sinni verður „Skugga-Sveinn“ Matthíasar Jochumssonar sem er leiksýning fyrir unga sem aldna. Leikstjóri hefur verið ráðinn Sigrún Björnsdóttir. I janúar hefjast æfingar á leikritinu „Stalín er ekki hér“ eftir Véstein Lúðvíksson. Það var sýnt í Þjóðleikhúsinu á síðasta leikári við mjög góða aðsókn og vakti mikla athygli og umræður. Enn hefur ekki verið ákveðið með leikstjórn. Vorverkefni félagsins verður söngleikur, sem sýndur hefur verið víða um heim undanfarin ár við mikla hrifningu. Efni söngleiksins er sótt í sígilda sögu Cervant.es um Don quixote. Undirbúningur að sýningunni er þegar hafinn. Leik- stjóri verður Haukur J. Gunnars- son, en leikmynd gerir Alister Povvel, sem að undanförnu hefur starfað í Þrándheimi. Hann mun einnig gera leikmynd að jólaverk- efni Þjóðleikhússins. Leikhússtjórnin hcfur ráðið eftirtalda 6 leikara á A-samning: Aðalstein Bergdal, Gest E. Jónas- son, Sigurveigu Jónsdóttur, Svan- hildi Jóhannesdóttur. Viðar Eggertsson og Þráinn Karlsson. Einnig verða ráðnir tveir leikarar á B-samning, auk tveggja tækni- manna, en frá þeim samningum hefur ekki verið gengið. Stjórnin hefur ákveðið að gang- ast fyrir leiklistarnámskeiði á komandi vetri, jafnt fyrir byrjend- ur og þá, sem áður hafa sótt slík námskeið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.