Morgunblaðið - 12.08.1978, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978
37
Erlendir
punktar
Sviss
Tekjur svissneska flugfélagsins
Swissair minnkuöu um 5% í júní í
ár samanborið við júní 1977. Það
sem er e.t.v. enn athyglisveröara í
fréttatilkynningu flugfélagsins eru
upplýsingar um að útgjöldin fyrir
afskriftir hafi einnig lækkaö um
5%, miðað við sama tímabíl.
Stál
Bandaríska fjármálaráðuneytið
hefur sett á staö sérstaka rann-
sókn til að kanna hvort breskir
stálframleiðendur selji vörur sínar
til USA með undirboðum (dump-
ing).
Grænland
Konunglega grænlandsverzlun-
in væntir þess aö útflutningur á
þeirra vegum verði um 250 millj.
d.kr. á þessu ári samanborið viö
220 millj. d.kr. á síöasta ári. Á
fyrri hluta þessa árs nam útflutn-
ingur sjávarafurða á þeirra veg-
um, 116 millj. d.kr. en var í fyrra á
sama tímabili 74 millj. d.kr. en
það er um 57% aukning.
Ítalía
Átta hundruð tuttugu og átta
stærstu fyrirtækin á ítalíu juku
sölu sína á síöasta ári um 17,3%
en þaö dugöi þá hvergi til aö
halda óbreyttri rekstrarniður-
stöðu þar sem veröbólga varð
mun meiri á árinu 1977.
Rafeindatæki
Brezka ríkisstjórnin hefur nú
uppi áætianir um aö veita u.þ.b.
70 millj. punda til eflingar breska
rafeindaiönaöinum á næstu fimm
árum. Er hér um hreina styrki að
ræða og mun áformað aö ráð-
stafa þeim bæöi til eflingar
rannsóknastarfs og einnig til
eflingar þeim iðngreinum sem
hagnýta sér niðurstöður rann-
sóknanna.
Vestur-Þýzkaland
í nýlegri skýrslu OECD sem
fjallar um þróun mála í Vest-
ur-Þýzkalandi á næstu 12 mánuð-
um kemur fram aö spáð er 6,5%
aukningu innflutnings á þessu
tímabili á meðan útflutningurinn
eykst aðeins um 4.5%. OECD
heldur að þaö verði erfitt fyrir
Þjóðverjana að halda markaðs-
hlutdeild sinni erlendis á meðan
markiö er skráð eins hátt og raun
ber vitni.
Concorde
British Airways heíur tilkynnt
að tap félagsins á rekstri
Concorde-véla hafi numið 32.6
millj. dollara á siðasta fjár-
hagsári félagsins. Er þetta
svipuð upphæð og tekjur
félagsins námu í heild.
Þessi hversdagslega þrenning
er grunnur starfs í heimi hér
hvern dag. Sjaldan höfum við
verið minnt eins oft ósjálfrátt á
samstöðu þessarar þrenningar
eins og nú í sambandi við
kosningar og allt, sem þeim er
samfara. Þar er þó neikvæða
hliðin mest áberandi. Þeir, sem
uppskera, gleyma þeim sem sá.
Og þeir, sem sá, gleyma þeim
sem plægðu.
Getið þið hugsað ykkur borg,
sem hefur tekið meiri framför-
um, verið í raun betur stjórnað,
þrátt fyrir allt í hálfa öld en
Reykjavík? Hér yrði of langt
mál að sýna rök. En samt:
Almenn velsæld, yfirfull leik-
hús, íþróttahöll, leikvangur,
listahallir, sundlaugar, sjúkra-
hús á heimsmælikvarða,
öldrunarhjálp, elliheimili,
barnagarðar, menntaskólar, há-
skóli, aðstoð við alkóhólista,
ekkert fátækrahverfi, gróandi
trjálundir og blómagarðar.
Sem sagt ljómandi borg —
borgin okkar. Hér hefur
sannarlega verið plægt og sáð og
uppskorið. Og margt af þessu
hefur gerzt með dug, dáðum og
framsýni á örfáum síðustu
árum.
Samt er vanþakklæti þeirra,
sem njóta, svart og sárt.
Fögnuður yfir falli þeirra, sem
plægðu og sáðu, sannarlega
óskiljanlegur ófögnuður.
Svipað verður hlutfallið milli
þeirra, sem plægt hafa og sáð á
vegum stjórnenda þjóðarinnar
undanfarna áratugi, og hinna,
sem nú uppskera með úlfúð og
vanþökk óþroskaðs og skilnings-
lítils fólks.
Hvaða þjóð hefur uppskorið
meiri blessun síðastliðin 50 ár
en þessi litla þjóð okkar hér úti
á heimsenda?
Hvaða þjóð hefur í raun og
veru verið betur stjórnað um
áratugi? Frá örbirgð til auðs.
Frá kúgun til frelsis. Þar er ekki
fyrst og fremst á flokka og
„klíkur“ að líta heldur á fram-
sýni, samningsvilja, forsjá og
mennt hinna beztu. Ekki þannig
að alltaf hafi verið friður og
samstaða, en samt framför. Allt
hefur blessazt. Berið saman við
atvinnuleysi og úlfúð í helztu
ríkjum heims, með allan þeirra
auð í námum, gróðri, frjósemi
moldar og fögrum listum. Þar
ríkir hvarvetna atvinnuleysi,
hérvæðing og ótti við hermdar-
verk.
Meira að segja má hér minna
á stórsigra eins og handritamál-
ið í menntum og þorskastríðið
efnahag, háð án blóðdropa við
stórveldi heims, til þess að gera
íslenzka ríkið eitt hið víðlend-
asta í veröld allri! Hvílíkur
sigur! Hvílík plæging! Hvílík
sáning! En samt — ekkert að
þakka, ekkert að meta. Aðeins
skammazt yfir sönnum eða
upplognum mistökum erjandans
eða sáðmannsins í stað þess að
gleðjast' yfir uppskeru og upp-
skeruvonum.
Því miður er þetta svona á
mörgum sviðum á Islandi nú á
dögum. Sjónvarpið er skammað
fyrir allt að heita má. En taki
það hvíld frá störfum, sem
auðvitað er eðlilegt, hvín í
mörgum eins og allt sé að farast.
Sé fylgzt með útvarpinu er
það auðsuppspretta fræðslu og
skemmtunar. Það vitum' við
bezt, sem vorum hálfa ævina án
þess.
Samt er það vanþakkað og
skammað daglega. Og vissulega
ættu sjónvarp og hljóðvarp ekki
að starfa samtímis eða sömu
daga, oiema að mjög litlu leyti
hjá svo fámennri þjóð. Þau
eyðileggja e.t.v. hið bezta hvort
fyrir öðru. En það er önnur
saga.
Samtök áhugafólks um
áfengisvarnir eða svonefnt
S.Á.Á. sem er eitt myndarleg-
asta átak samhuga hugsjóna-
manna á stundinni, sendi út
blað um daginn, þar sem fullyrt
var hástöfum, að ekkert hafi
verið gert fyrir alkóhólista fyrr
en nú!!
Samt fullyrði ég að plæging
og sáning hafði þar farið fram í
aldarfjórðung með miklum dáð-
um margra þótt ekki sé nú
minnzt alls, sem bindindisfólk
plægði, sáði og uppskar fyrr og
síðar.
S.Á.Á. uppsker vissulega og
gerir það með sóma, þar sem
plægt hafði verið og sáð með
súrum sveita.
Árangur þeirra erfiðu starfa
hefur verið frábærari en orð fá
lýst hin síðustu 6 ár. En þar má
þakka góðri áheyrn tveggja
ríkisstjórna bæði til vinstri og
hægri. En umfram allt
borgarstjórn Reykjavíkur hin
síðustu ár. Fáar borgir í heimi
hafa betur staðið að slíkum
málefnum á síðustu og beztu
tímum.
Það er bent hér á þessi atriði
sem tákn um plægingu, sáningu
og uppskeru, sem flestir hugsa
um og er daglega á hvers manns
vörum. Ætti því að skiljast. En
alls staðar og ávallt eru slík
málefni að mótast.
Mannlif allt í leik og starfi,
gleði og sorg er mótað og
meitlað af þessum þrem þáttum
gróandans. Uppskeruglaðir og
kröfukaldir unglingar gleyma
oft erfiði og raunum þeirra, sem
plægðu og þeirri ábyrgð, sem
þeir verða sjálfir að leggja sér á
herðar með uppfylltum kröfum.
Sveiti, tár og blóð voru oft
starfseinkenni þeirra, sem
plægðuu bæði á landi og sjó
þann jarðveg, sem nú er skilað í
hendur nýrra kynslóða, sem vel
ættu að geyma sinn arf, njóta
uppskerunnar með því að virða,
meta og þakka þeim, sem
plægðu og sáðu og lögðu svo
uppskeruna með fórnarlund í
annarra hönd.
Kröfur á eigin hendur voru
aðalsmerki plægjenda og sáð-
manna. Og þar réðu mestu
framsýni, fórnarlund, dáð og
dugur.
Fögnuður. þakklæti og fram-
tak til enn stærri dáða ættu að
vera aðalsmerki þeirra, sem
uppskera.
Vei þeim, sem ekki vilja skilja
að plæging, sáning og uppskera
eru heilög þrenning hins gró-
andi lífs og menningar hjá
hverri þjóð í leik og athöfn, list
og menntun. Verða að haldast í
hendur.
Plæging,
sáníng,
uppskera
Hótel Borg hefur fyrir stuttu breytt nokkuð fyrirkomulagi hvað
varðar hádegisverð og hefur Friðrik Gíslason skólastjóri Hótel- og
veitingaskóla íslands staðið að hinni nýju uppbyggingu matseðils í
hádeginu. Má nú fá þríréttaða máltíð og geta gestir hvort sem er valið
sér einn eða fleiri réttanna eftir því hvað tími þeirra leyfir, sagði Aron
Guðbrandsson einn eigenda Ilótels Borgar er nýjung þessi var kynnt
fyrir blaðamönnum. I lok næsta árs verða liðin 50 ár frá því Hótel
Borg var tekin í notkun.
Námskeið fyrir æsku-
lýðsleiðtoga í Skálholti
Æskulýðsstarf Þjóð-
kirkjunnar mun í næsta
mánuði gangast fyrir
æskulýðsleiðtoganámskeið-
um og fara þau fram í
Skálholti. Er um að ræða
tvö námskeið, hið fyrra
ætlað Reykjavík og ná-
grenni og hið síðara fyrir
Skálholtsstifti.
Námskeið þessi eru ætluð 16 ára
og eldri og væntir Æskulýðsstarf
þjóðkirkjunnar þess að þau sæki
bæði unglingar, prestar og aðrir
starfsmenn kirkjunnar eða áhuga-
menn. Ðagskrá námskeiðanna,
sem standa yfir í 4 sólarhringa,
verður m.a. biblíulestrar, hóp-
vinna ýmiss konar þar sem m.a.
verða teknir fyrir hinir ýmsu liðir
messunnar. í lok námskeiðanna
fara fram umræður þar sem
þátttakendum verður gefinn kost-
ur á að koma með hugmyndir
sínar um hvernig starfsemi æsku-
lýðsfélaga eigi að vera háttað. Til
að námskeiðin verði haldin þarf 20
þátttakendur og fer innritun fram
á skrifstofu Æ.Þ. til 16. ágúst.
Fyrra námskeiðið í Skálholti fer
fram dagana 31.8—3.9. og það
síðara^H.—17.9. Þá verður svipað
námskeið haldið að Vestmanns-
vatni dagana 5.-8. október.
Höfum kaupendur aö eftirtöldum veröbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS: Yfirgengi miöað
Kaupgengi við innlausnarverð
pr. kr. 100.- Seðlabankans
1967 2. flokkur 2806.30 51,9%
1968 1 flokkur 2444.04 34,4%
1968 2. flokkur 2298.59 33,7%
1969 1 flokkur 1712.60 33,6%
1970 1 flokkur 1572.94 74,8%
1970 2 flokkur 1146.33 33,4%
1971 1 . flokkur 1078.22 73,0%
1972 1 flokkur 940.00 33,3%
1972 2 flokkur 804.30 73,0%
1973 1 flokkur A 615.24
1973 2 flokkur 568.77
1974 1 flokkuf 395.05
1975 1 flokkur 322.98
1975 2 flokkur 246.49
1976 1. flokkur 233.43
1976 2 flokkur 189.55
1977 1 flokkur 176.04
1977 2. flokkur 147.47
1978 1 flokkur 120.18
Höfum seljendur aö eftirtöldum veröbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF
RÍKISSJÓÐS:
1972— A
1973— B
1974— D
1974—F
Sölugengi
pr. kr. 100-
598 47 (10% afföll)
513 44 (10% afföll)
388 22 (1 0% afföll)
274 73 (10% afföll)
VEÐSKULDABRÉFX:
Kaupgengi
pr. kr. 100-
1 ár Nafnvextir: 26% 79-
2 ár Nafnvextir: 26% 70-
3 ár Nafnvextir: 26% 64.-
x) Miöaö er viö auöseljanlega fasteign.
HLUTABRÉF:
Málning h.f. Kauptilboð óskast.
piÁRPEmncnRPEMc bumoi hp.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjargótu 12 —- R (Iðnaðarbankahúsinu)
Sími 2 05 80.
Opið frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.