Morgunblaðið - 12.08.1978, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 12.08.1978, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978 41 félk í fréttum + Hér er mynd, sem tekin var í miðjum klíðum, þegar fram fór bankarán í borginni Cincinnati, í Bandaríkjunum fyrir nokkru. — Bankaræninginn vopnaður skammbyssu beinir henni að bankastarfsfólkinu, sem kastaði sér á gólfið. Ræninginn og aðstoðarmenn hans tveir höfðu á brott með sér nokkur þúsund dollara. — Hver þorði að taka myndina? Svarið er: Sjálfvirk myndavél í bankanum. + Þetta er glaðlegt andlit PLO-foringjans Yasser Arafats á blaðamannafundi í Havana á Kúbu. — Þar var hann gestur Castro.s einræðis- herra. Á þessum fundi hafði Yasser skamm- að Carter Bandaríkja- forseta upp úr skón- um fyrir að láta við- gangast mótmæla- laust, að Gyðingar berðu miskunnarlaust á fólki í S-Líbanon. + Um daginn reyndi hástökksmethafinn bandaríski, Franklin Jacobs, að setja nýtt met í hástökki á íþróttamóti. Metið er 2,33 m. Hann grófst að mestu ofaní svampdýnuna er hann kom niður, en honum mistókst að hnekkja meti sínu. BLðM VIKUNNAR UMSJÓN: ÁB. Blágresi III (Geranium) í þessum þriðja og síðasta blágresispistli mínum vil ég nefna nokkrar af hinum smá- vaxnari tegundum sem vel hæfa í hleðslur og stein- hæðir. GRÁGRESI (Ger. sinereum) er líklega þekktast þeirra. Það er ættað úr Pyrenneafjöllum og dafnar hér vel. Aðeins um 15 sm. á hæð með grágrænu laufi og ljós jurt að gista í íslenskri útskagaveðráttu, — en ekki aldeilis! Dalmatíu— blágresið virðist hafa tek- ið ástfóstri við íslenska veðráttu og unir sér dável hér. Það er glöggt dæmi um það að til ólíklegustu staða má seilast eftir öndvegis plöntum í ís- lenska garða. Dalmatíu-blágresið er lágvaxið og myndar fljótt breiður sem þaktar eru Dalmatíu-blágresi. blárauðum blómum með dekkri æðum. Einnig er til afbrigði með hvítum blómum. RAUÐGRESI (Ger. subcaulescens) frá Balkanlöndum sem oftast er talið afbrigði af grá- gresinu, er líkt því en ber rauðbleik blóm. Báðar þessar tegundir mynda lágar laufbreiður sem stráðar eru blómum meiri hlutann af síðsumrinu. DALMATÍU-BLÁGRES (Ger. dalmaticum) er eins og nafnið bendir til ættað frá Dalmatíu sem er land- svæði í Júgósalvíu á strönd Adríahafsins gegnt Ítalíu. Mætti halda að heldur væri nöturlegt fyrir slíka sólarstranda- allstórum bleikum blóm- um. Hæðin er 15—20 sm og blómgunartími þess er venjulega í ágúst. í lauf- inu eru oft áberandi rauðir og rauðgulir litir allt sumarið. Afar auðvelt er að fjölga því með bútum af jarðstönglum sem bera rætur. SKRIÐGRESI (Ger. pylzowianum) er smá- vaxnast þessara tegunda, aðeins 10—15 sm á hæð, ættað frá Kína. Það ber fíngert lauf sem tekur oft á sig fagra haustliti og blómstrar sparlega fáein- um fagurbleikum allstór- um blómum á stangli, allt sumarið og fram á haust. Lýkur hér blágres- is-þáttum. Ó.B.G. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al'GLYSING A- SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.